Sú skemmtilega nýbreytni stendur ungum veiðimönnum til boða að reyna fyrir sér í Hlíðarvatni í Selvogi núna á sunnudaginn, 4.sept. í boði veiðirétthafa vatnsins; Stangaveiðifélag Selfoss, Stangveiðifélag Hafnarfjarðar og Ármenn. Hlíðarvatnið hefur um margra ára skeið verið eitt gjöfulasta bleikjuvatnið í nágrenni Reykjavíkur og því tilvalið fyrir unga veiðimenn að reyna sig í vatninu. Fyrir þá sem hyggjast kíkja í vatnið er auðvitað tilvalið að renna yfir prýðis góða umfjöllun Ármanna frá árinu 2009 um vatnið sem má nálgast hér eða kíkja á mun styttri útgáfu hér á blogginu. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðum veiðirétthafa hér að ofan.
-
Opið í Hlíðarvatni
Höfundur:
-
Urriði á þurrflugu
Það eru tvennir tímar þegar maður leggst í flakk um YouTube og Vimeo; þegar veðrið er leiðinlegt og á meðan veturinn ríkir. Hér er ansi skemmtileg klippa frá Hrafni Ágústssyni sem ég rakst á í dag og sjálfsagt að vekja smá athygli á henni.Höfundur:
-
Hatch
Smá klippa úr væntanlegri mynd frá Gin Clear Media sem kemur á markaðinn innan skamms. Þetta er virkilega eitthvað sem mann hlakkar til að skoða í fullri lengd.Höfundur:
-
3 tbl. Veiðislóð
Þriðja tölublað Veiðislóðar er komið út hjá Vötn og veiði. Enn og aftur tekst þeim félögum að koma saman blaði með fjölbreyttu efni fyrir veiðimenn og er það vel. Viðtökur blaðsins hafa víst farið langt fram úr björtustu vonum sem kemur mér ekkert á óvart, flott blað og góðar greinar. Nú er um að gera að smella á tengilinn hér að ofan og kíkja á blaðið.Höfundur:
-
2 tbl. Veiðislóð
Annað tölublað Veiðislóðar er komið út hjá Vötn og veiði. Þeir félagarnir taka það fram að hér sé um tilraun að ræða og vonast til að hún gangi upp. Ég tek heils hugar undir það með þeim, þetta er flott tímarit og það væri synd ef þessi tilraun mistækist. Nú er bara að setjast niður, renna yfir blaðið og vona að umfjöllunin sé eitthvað annað en bara lax.Höfundur:
-
Veður og myndavélar
Ég tók mig til og setti inn nýjan valkost hér að ofan, Veður. Auk hefðbundinna veðurathugana er fjöldi einstaklinga sem halda úti sjálfvirkum veðurstöðvum, jafnvel með vefmyndavélum, úti um allt land. Ég hef safnað nokkrum þeirra saman, helst í nágrenni þekktra veiðistaða á landinu í þeirri von að þetta gagnist einhverjum. Ef þið hafið upplýsingar um einhverjar fleiri svona stöðvar þætti mér vænt um að heyra af þeim þannig að ég geti bætt þeim hérna inn. Einfaldast er að nota kommenta kerfið á síðunni (Rita ummæli) eða senda mér tölvupóst.Höfundur:

