Það er sem sagt opinbert að ég er orðin félagsvera. Þetta skemmtilega skírteini beið í póstkassanum mínum þegar ég kom heim í dag.
Fyrir nördana er þetta náttúrulega alveg stór skemmtilegt númer; 861 er jú ASCII kóði íslenska stafasettsins í tölvum, eitthvað sem kerfisstjórinn gleymir víst aldrei.
Ármaður virðir: Íþrótt, Bráð, Land og Annan mann
Ummæli
11.06.2014 – Friðrik Helgi Árnason: Frábært vertu velkominn í hópinn. Kv Friðrik Helgi, ármaður #832



Það verður nóg um að vera næstu helgi. SVFR heldur upp á 75 ára stórafmæli sitt í Elliðaárdalnum á laugardaginn frá kl.13 – 16. Þar verður boðið upp á kastkeppni, gönguferð með ánni, hnýtingaráð, ratleik og sitthvað fleira. Og eins og góðu afmælisbarni sæmir er öllum boðið, félagsmönnum og ófélagsbundnum. Eflaust verður fjör í dalnum á laugardaginn.
Á sunnudag boðar svo JOAKIM’S til árlegrar samkomu á Klambratúni kl.13 þar sem gestum og gangandi er boðið að prófa stangir, línur og sitthvað fleira sem JOAKIM’S hefur að bjóða. Kastsnillingarnir Stefán Hjaltested og Júlíus Guðmundsson munu svo leiðbeina með köst og val á stöngum. Skemmtileg helgi framundan.








