Föstudagurinn fyrir Febrúarflugur er nærri orðinn að föstum pósti á FOS.IS Við höfum það fyrir satt að hnýtarar eru farnir að bíða nær jafn óþreyjufullir eftir 1. febrúar eins og við. Eins og undanfarin ár munum við kynna styrktaraðila átaksins formlega til leiks í fyrstu viku febrúar en dagskráin okkar verður létt og leikandi eins og endranær.
FOS.IS verður með örútgáfu að hlaðvarpi (viðtalsþáttum) á föstudögum í febrúar, tveir fyrstu þættirnir eru klárir og við munum leita hófanna hjá þátttakendum Febrúarflugna þegar líður á mánuðinn fyrir þá tvo sem eftir er að taka upp. Þættirnir eru afar einfaldir og lítið fyrir þeim haft, rétt eins og átakinu sjálfu, lauflétt spjall í gegnum fjarfundabúnað sem er einfaldlega tekið upp og verður deilt á FOS.IS og Febrúarflugum.
Tveir þemadagar verða í Febrúarflugum þar sem meðlimir verða hvattir til að hnýta ákveðna(r) flugu(r) en vitaskuld er ekkert skilyrði að taka þátt í slíku, en það gæti orðið skemmtileg tilbreyting fyrir hnýtara að bregða fyrir sig að hnýta eitthvað sem þeir gera ekki að öllu jöfnu.
Þegar hefur kvisast út að Sigurður Héðinn (Haugur) stendur fyrir hnýtingakeppni í tengslum við Febrúarflugur þar sem keppt verður í fjórum flokkum; Meistaraflokki, Almennum flokki, Púpuflokki og Unglingaflokki. Haugur veitir vegleg verðlaun í öllum flokkum en fyrirkomulag keppninnar verður kynnt nánar 1. febrúar.
Fyrir þá sem vilja stytta biðina eftir 1. febrúar, þá er hér brakandi nýr, beint úr þurrkaranum og sjóðandi heitur hlaðvarpsþáttur þeirra félaga Þrír á stöng, þar sem FOS.IS og Febrúarflugur koma heldur betur við sögu:
Í aðdraganda átaksins setti FOS.IS könnun á netið og kunnum við öllum þeim 176 sem svöruðu henni bestu þakkir fyrir þátttökuna. Margt áhugavert koma fram í tillögum svarenda sem FOS.IS mun reyna að nýta eins og kostur er, sumt hefur þegar komið hér fram, annað er mögulega í deiglunni.
Annars voru helstu niðurstöður könnunarinnar sem hér segir: Svarendur voru 176, þarf af ætluðu 91 að setja inn flugur, 64 voru ekki alveg vissir og 17 kusu að fylgjast bara með. Flestir sem svöruðu voru í SVFR (41) en fast á hæla þeirra voru Ármenn (39), önnur félög voru með 8 svör eða færri.
Í gegnum tíðina hef ég oft velt því fyrir mér hversu mikilvægt það sé að fylgja uppskrift flugu alveg í þaula. Uppskriftir eru misjafnar, sumar erfast nokkuð nákvæmlega frá höfundi yfir í bók, tímarit eða út á veraldarvefinn, á meðan aðrar eru í skásta falli gott gisk eða hafa þynnst út og aflagast í meðförum hnýtara. Ég tel mig þekkja refilstigu upprunaleitar flugna nokkuð vel og þeim drullupyttum sem víða leynast þegar leitað er að upprunalegri uppskrift. Sjálfur hef ég lent í einhverjum pollum og jafnvel farið með rangt mál í uppskriftum hér á síðunni, en blessunarlega eru góðir lesendur alltaf tilbúnir að benda mér á mistökin sem mér verður á að gera.
Það er ekki bara nördaskapurinn í mér sem hefur orðið til þess að ég ligg eins og ormur á gulli þegar kemur að bókum sem gaukað hefur verið að mér. Reynslan hefur kennt mér, helst vegna erlendra flugna, að leita uppskrifta í eins gömlum bókum og mér er unnt, helst þeim sem höfundur flugunnar hefur ritað sjálfur eða tekið þátt í að rita.
Yngri heimildir eru oft því marki brenndar að sá sem skrásetur uppskriftina hefur farið sínum höndum um innhaldslýsinguna, sem mér í sjálfu sér finnst ekkert óeðlilegt, svo fremi hann geti þess að um persónulegt val hráefnis eða útfærslu sé að ræða. Ef eitthvað er, þá finnst mér það virðingarvottur við flugu og höfund hennar þegar hnýtarar leggja út frá henni, breyta efni eða aðferð að því leiti sem þeim þyki betur fara. Það væri nú dapurlegt ef við stæðum föst í sporum fyrsta hnýtarans og hefðum aldrei breytt út frá uppskrift hans. Þá væri Watson‘s Fancy ennþá bara votfluga og sumar flugur væri hreinlega bannað að hnýta þar sem upprunaleg uppskrift innheldur fjaðrir af alfriðuðum fugli.
En hvenær bregður fluga svo út frá fyrirmyndinni að til verður afbrigði eða jafnvel ný fluga sem gefa ætti sérstakt nafn? Þeir sem hafa fylgst með Febrúarflugum síðustu árin kannast mæta vel við öll þau afbrigði sem hnýtarar senda inn af hinum og þessum flugum. Mér hefur oft fundist margar þeirra skera sig svo frá nafnamóður sinni að þær í raun verðskuldi sérstakt heiti. Svo hafa komið afbrigði af flugu og það eina sem gert hefur verið er að nota Glo brite #5 í staðinn fyrir #7 í einhvern hluta hennar. Er það afbrigði eða bara móðurflugan í nýju litaafbrigði?
Ef ég tek nú þekkta votflugu og hnýti hana úr hanafjöður í stað hænu og hún tekur upp á því að fljóta á yfirborðinu, er ég að hanna nýja flugu og get eignað mér hana? Nei, það væri nú full langt gengið, en það er ekkert sem bannar mér að gera það. Það eina sem gerist er að ég þarf að lifa með því að hafa stolið góðri hugmynd, gert að minni og falið það undir nýju nafni. Ég gæti meira að segja valið henni nafn sem allt önnur fluga er þekkt undir, því nöfn á flugum eru hreint ekki heilög. Það eru t.d. mjög margar dægurflugur sem heita Magic og engin amast við því.
Sjálfur hef ég tekið þekktan hárvæng, einfaldlega sleppt honum og notað þess í stað hanafjaðrir í hefðbundin væng og veitt vel á fluguna eftir sem áður. Ekki dettur mér í hug að endurskýra fluguna, ekki neitt FOS Dentist eða Dentist hanaafbrigði, bara Dentist og hún er með fjaðurvæng. Skárra væri það nú ef maður hrærði í pönnukökur og notaði AB mjólk í stað Súrmjólkur og eftir það hétu þær ekki pönnukökur heldur AB kökur. Og hver segir svo að það eigi að vera Súrmjólk í pönnukökum. Aldrei bakaði mamma mín pönnukökur úr Súrmjólk, en pönnukökur voru það nú samt heillin.
Ég hlusta svolítið á RÁS2 og þá sérstaklega á þætti þar sem nýrri tónlist og tónlistamönnum er gefið smá rými. Þetta er notaleg leið til að auðga tónlistarsmekk sinn, kynnast nýjum flytjendum og gefa þeim smá svigrúm í eyru mín. Ég nota líka Spotify, set þessi gömlu góðu á lista og hlusta á eðalinn sem ég hef hlustað á eins lengi og elstu menn muna. Vissulega lista ég niður einhver ný lög við og við en það er þá helst eftir að ég hef heyrt hlustað á þau í línulegri dagskrá. Vissulega hlusta ég líka á uppástungur Spotify, en það vill oft brenna við að ég hraðspóla yfir það sem Spotify heldur að falli mér í geð eða uppástungurnar eru einfaldlega spegilmynd þess sem ég er þegar með á einhverjum lista. Þannig gerist það að ég fer á mis við áhugaverða nýja tónlist, en neyðist til að hlusta á hana á RÁS2 og hrasa þá stundum um eitthvað skemmtilegt.
Þegar maður velur sér fyrsta hnýtingarsettið sitt eða ekki, þá er það svolítið eins og Spotify eða RÁS2. Þegar maður velur sér sjálfur í fyrsta hnýtingarsettið sitt eða fær einhver til að velja efnið fyrir sig, þá er maður að hlusta á Spotify. Ósjálfrátt velur maður efni í flugur sem maður þekkir, hafnar efni sem maður veit varla hvað er og í hvaða flugur það nýtist.
Ef maður aftur á móti eignast tilbúið sett með helstu áhöldum sbr. lista hér á síðunni og efni í töluverðan fjölda mismunandi flugna, þá er maður að hlusta á RÁS2. Þarna kennir ýmissa grasa og eflaust kemur eitthvað spánskt fyrir sjónir. En, það þarf ekki að leita lengi á netinu til að finna uppskriftir að flugum sem efnið nýtist í. Auðvitað getur farið svo að eitthvað efni verður afgangs, en í mínu tilfelli er lítið sem ekkert eftir af því efni sem var í mínu fyrsta setti, áhöldin eru enn í fullri notkun og standa fyrir sínu, en flugurnar sem urðu til úr þessu efni eru eflaust flestar týndar fyrir löngu síðan. Allar voru þær notaðar á einhverjum tímapunkti og þannig lærði maður að nota eitthvað annað en bara Peacock.
Það hefur ósjaldan komið fyrir að ég er helst til sparsamur á marabou fjaðrir þegar ég hnýti flugur eða ég nota ranga tegund þeirra í þær flugur sem ég er að hnýta í það og það skiptið.
Marabou fjaðrir, sem vitaskuld eru ekki af marabou storkinum heldur kalkún eða hænu, eru sérlega líflegt og púffí efni til fluguhnýtinga. Um leið og þær eru komnar í vatn þá verður oft heldur lítið úr þeim, nánast ræfilslegar ef ekki er nóg af þeim. Ég hef oft heyrt hvíslað í eyra mér; Meira marabou þegar ég hnýti með félögunum og ég er að vinna í þessu.
En hvað er þetta með mismunandi tegundir af marabou og hvað á maður að hafa í huga þegar maður kaupir slíkar fjaðrir? Gróflega má skipta marabou fjöðrum í þrjá flokka, hver með sína eiginleika og tilgang í fluguhnýtingum.
Frá vinstri; Plums – Blood quill – Stems
Langsamlega algengustu fjaðrirnar eru s.k. plums. Gríðarlegt magn þeirra í umferð ræðst einfaldlega af því að þetta eru algengustu fjaðrirnar á fuglinum, þær sem raða sér við enda fjöðurstafsins á stærri fjöðrum. Þessar fjaðrir eru helst nýttar með því að fjarlægja fanirnar eða staka geisla hennar frá hryggnum og nota í hringvöf eða sem dup í flugur. Raunar nota ég þessar fjaðrir gjarnan í skott á Damsel eða Nobbler flugum sem ég hnýti í stærð #12 og smærri.
Blood quill eru yfirleitt saumaðar saman í vöndul þannig að þær enda nær allar jafn langt frá sauminum og mynda þannig bústinn pensil með tiltölulega beinum enda. Fjaðrirnar eru gjarnan nýttar í væng eða skott á straumflugu og hver fjöður eða nokkrar saman eru hnýttar niður með stilkinum áföstum sem síðan er klipptur frá eða notaður til að þykkja búk hennar fyrir framan skottið.
Stems eða einfaldlega Woolly Bugger marabou eru lengstu og grófustu fjaðrirnar í fjölskyldunni. Hæpið er að nota nema 2/3 af þessari fjöður í hringvöf með stilkinum áföstum því neðsti hluti hans er yfirleitt svo sver að hann brotnar frekar en að vefjast um legg eða búk flugunnar. Þessar fjaðrir eru ofast notaðar í stórar flugur eða fanir reittar af stilkinum í smærri flugur. Almennt eru geislar þessara fjaðra heldur grófari heldur en hinna tveggja tegundanna hér að ofan og ekki alveg eins líflegar í vatni.
Þegar kemur að því að velja marabou fjaðrir, þá kaupi ég ekki marabou fjaðrir óséðar nema þá frá framleiðanda sem ég treysti og hef góða reynslu af. Það er eiginlega tvennt sem ég hef helst í huga þegar ég vel fjaðrir. Nær allar marabou fjaðrir eru litaðar og þegar ég vel mér quills eða stems, þá horfi ég fyrst á það hvort liturinn sé þéttur og einsleitur og hafi örugglega náð allri fjöðrinni. Það kemur ósjaldan fyrir að neðsti partur þessara fjaðra sé lítið sem ekkert litaður sem skerðir nýtingu þeirra. Hitt atriðið sem ég skoða er hvort fjaðrirnar séu óskemmdar, ekki tættar og rifnar þannig að jafnvel hluta vanti í fjöðrina sem gerir hana álappalega þegar hún er hnýtt. Brotinn stilkur er líka eitthvað sem ég skoða, því það getur verið óttalegt vesen að ná ósködduðum fönum af brotnum stilk.
Það er mín reynsla að ákveðin vörumerki tryggja ákveðin gæði, annað hvort ásættanleg eða framúrskarandi, þannig að ég treysti mér alveg til að versla nokkrar tegundir á netinu, óséðar. En, rekist ég á nýtt eða óþekkjanlegt vörumerki, þá reyni ég alltaf, ef mögulegt er, að opna pakkann og renna lauslega yfir fjaðrirnar áður en greitt er fyrir vöruna. Ég hef aðeins einu sinni fengið svip frá starfsmanni í verslun þegar ég hef gert þetta. Sá svipur fór nú fljótlega af honum þegar ég dró brotna fjöður upp úr honum og spurði; Hver er afslátturinn af þessari?
Í þröngum hópi veiðinörda er stundum talað um fimm þroskastig veiðimanna, stundum með glotti á vör og jafnvel einhver nafngreindur og flissað. Best er að setja þann fyrirvara strax að ég þekki nokkra einstaklinga, ekkert endilega veiðimenn, sem hafa sáralítið þroskast frá því þeir voru á gelgjunni og því er alveg eins von á að það finnist háaldraðar gelgjur meðal veiðimanna eins og annars staðar. Eins og annað sem sett hefur verið fram, þá eru ekki allir sammála um ástæður þroska. Sumir segja að reynsla (ástundun) þroski veiðimanninn einna mest á meðan aðrir segja að öldrun hans ráði mestu, alveg óháð því hve duglegur veiðimaður hann sé. Mig grunar að þarna séu menn að rugla saman þroska og færni, þetta fer alls ekki endilega saman.
Fyrsti fiskurinn er stigið þegar veiðimaður hefur himinn höndum tekið þegar fiskur bítur á. Stundum er þetta einfaldlega fyrsti fiskurinn en stundum endurtekur þetta sig nokkrum sinnum á lífsleiðinni; fyrsti á maísbaun, fyrsti á spún, fyrsti á flugu (undirflokkur: fyrsti á eigin flugu). Hvaða afbrigði af fyrsta fiskinum sem þetta er, þá hefur viðkomandi náð ákveðnum toppi á lífsleiðinni og það sést langar leiðir.
Fullt af fiski er mislangt skeið hjá veiðimönnum. Þetta er eiginlega gelgjuskeiðið og það smellur stundum harkalega inn rétt á eftir fyrsta fiskinum og það er mjög misjafnt hve lengi það varir. Eins og ég nefndi hér að framan, þá eru til eilífðargelgjur sem alltaf eru á eftir fullt af fiski, sama hvað, þannig að það er alveg eins víst að þú, lesandi góður, þekkir einhvern þannig. Því miður fylgir þessu stigi oft örlítið dómgreindarleysi, allur fiskur telur, sama hvað hann er lítill. Annars er grunnt á næsta stigi meðal allra þessara fiska, viðkomandi keppist við allt og alla og vill helst ekki aðeins vera með flesta fiska í veiðiferðinni, sá stærsti verður að vera meðal þeirra.
Stórfiskaleikur kviknar stundum án fyrirvara, eiginlega alveg óvart eða með einum fiski meðal margra. Þegar fyrsti stóri fiskurinn hleypur á snærið, þá er eins og magnþörfin hverfi og veiðimaðurinn metur gæði umfram magn. Oft eru gæðin metin í stærð, sem er eiginlega svolítið sérstakt því stór fiskur er ekkert endilega betri matfiskur, en þetta markast náttúrulega af því að ég kýs að éta það sem ég veiði. Eftir stendur að á þessu stigi þykir stærðin skipta máli, en það kemur ekki í veg yfir að gelgjan grípi um sig og veiðimaðurinn verði að landa stærsta fiskinum.
Næsta stig er hreint ekki sjálfgefið og margir veiðimenn þekkja ekkert til þess og vilja því meina að þetta sé ekkert ákveðið stig. Aðrir kannast þó við að hvorki magn eða stærð skipta lengur máli, gjarnan þegar þörf hvoru tveggja hefur verið fullnægt á fyrri stigum. Þá leita menn í að sækja fisk með fyrirhöfn, gjarnan á ókunnar slóðir, þangað sem erfitt er að komast eða ná orðlögðum þverhaus á sitt band. Það er svolítið erfitt að hengja ákveðin frasa á þetta stig, en sumir hafa viljað meina að þetta sé úrvalsdeildin sem segir e.t.v. meira um meðlimina heldur en nokkuð annað.
Ef mér telst rétt til og hef farið nokkurn veginn rétt með þessi stig, þá er komið að fimmta og síðasta stigi þroskaferils veiðimanns. Það eru til skemmtilegar greinar um þetta stig en sumar hverjar eru hálfgerðar minningargreinar um orðlagða veiðimenn þar sem þeir eru hafnir upp til skýjanna sem nánast ómennskir öðlingar. Þeir mæta á veiðistað, setja mögulega ekki einu sinni saman og hafa mesta unun af því að horfa á aðra veiða og samgleðjast innilega þeim veiðimanni sem tekst að glepja fisk. En það er til önnur útgáfa af þessu stigi og það eru einfaldlega þeir veiðimenn sem fá alveg jafn mikið út úr því að vera, hlusta á vatnið eða ekkert, gleyma jafnvel að draga inn af því þeir sjá eitthvað merkilegt í fjarska. Þetta er þeir veiðimenn sem vakna til lífsins þegar einhver fær fisk, taka þátt í gleði annarra og láta sér fátt um finnast ef gelgjan grípur um sig.
Um þennan seinasta flokk er hreint ekki einhugur. Veiðimenn? Eru það ekki þeir sem veiða eða í það minnsta gera tilraun til þess? Jú, jú, þetta er alveg sjónarmið, en ég held samt að sá sem hefur einu sinni hefur fengið stimpilinn veiðimaður losni nú ekki svo glatt við hann og því geti fimmta stigið alveg átt við.
Það þarf víst ekki að fara mörgum orðum um það að flugur eru misjafnar. Fíngerðar, grófar, stórar og litlar, svo ekki sé nú farið út í það til hvaða veiða þær eru ætlaðar. Sumar flugur eru eyrnamerktar löxum, aðrar urriða, enn aðrar bleikju og þar fram eftir götunum. Nei, ég ætla ekkert að efast um eyrnamark flugna, bitin aftan vinstra gefur einfaldlega til kynna að urriði hafi tekið í hana, nartað skotti aftan er einkenni bleikjunnar rétt eins og skóflað upp að framan. Ég hef ekki hugmynd um það hvað eyrnamark laxaflugu er, hann tekur ekki flugu, hann agnúast víst helst út í þær og festist bara óvart. Við skulum sjá til hvort einhver hafi ekki eitthvað við þessa setningu að athuga.
Í fljótu bragði man ég aðeins eftir einu sem allar flugur eiga sameiginlegt og það er hnýtingarþráðurinn. Þessi dásemd sem getur leikið í höndum manna, orsakað fúkyrðaflaum þegar hann slitnar eða lagst svo vitlaust að efnið undir og ofaná verður eins og kroppinbakur Frúarkirkjunnar í París.
Til langs tíma var hnýtingarþráðurinn spunninn úr silki, síðan hör og nú síðast komu gerfiefninn og þeim fjölgar ár frá ári. Eins og fram hefur komið hér á síðunni, þá er sverleiki þráðar helst gefinn upp með þremur mismunandi stöðlum. Núll skalanum (e: aught) sem við þekkjum sem einhver tala með viðskeytinu /0 þar sem hærri tala táknar grennri þráð. Denier skalinn sem snýr þessu á hvolf þar sem hærri tala táknar grófari þráð. Svo datt einhverjum í hug að fara merkja hnýtingarþráðinn með tex eða decitex sem er eiginlega sama aðferðin og notuð er við denier. Gallinn við allar þessar aðferðir er eftir sem áður að engin þeirra mælir raunverulegan sverleika þráðar, þeir byggja allir á vigt og því er ekki hægt að bera saman sverleika mismunandi hráefna með því að styðjast við þessa skala. Ef hnýtarar vilja virkilega sökkva sér niður í þessar pælingar, þá er hægt (með smá snúningum og stússi) að finna micron einingu hnýtingaþráðar hjá nokkrum framleiðendum og þá sjáið þið svart á hvítu hver sverleiki þráðarins er. Meira að segja ég nenni ekki að sökkva mér niður í þessar pælingar. Þess í stað ætla ég aðeins og henda hér inn grófa flokkun á nokkrum sverleikum og til hvers þeir hafa hentað mér best og byggja á því sem er til staðar við mitt hnýtingaborð.
UNI 1/0 þráðurinn er eiginlega steypustyrktarjárnið í fluguhnýtingum. Sérstaklega sver þráður sem hentar nær eingöngu í stærri straumflugur, saltvatnsflugur og aðrar flugur sem hætt er við að verði fyrir miklu áreiti. Þennan þráð keypti ég nær eingöngu fyrir forvitnis sakir og hef nær ekkert notað hann.
UNI 3/0 þráðurinn er eiginlega sá sverarsti sem ég hef notað og þá helst til að spinna og festa niður mökk af dádýrahárum á flugu. Almennt nota ég þennan þráð ekki mikið, en það kemur fyrir að ég styrki púpur með honum ef ég vil ekki nota vír.
UNI 6/0 er að sögn annar af algengustu hnýtingarþráðunum. Hentar vel í vel flestar straumflugur, púpur og flugur þar sem ekki er endilega gerð krafa um nettan haus eða flothæfni flugu, nema þá til að hnýta niður flotefni eins og holhár eða svamp því sver þráður sker síður svampinn og hárin. Í einhvern tíma var talað um að byrjendur ættu að nota þennan þráð þar til þeir hefðu náð tökum á styrkleika þráðar og átaki við hnýtingar. Þótt ég hafi fært mig svolítið til á skalanum, þá nota ég þennan þráð ennþá þegar ég hnýti stærri púpur og straumflugur.
UNI 8/0 er sagður vera algengasti hnýtingarþráðurinn. Hentar ágætlega þeim sem hafa náð tökum á hnýtingum, passar vel í all flestar flugur og gefur möguleika á snyrtilegum frágangi hauss og fjaðra. Hann er enn í ákveðnu uppáhaldi og ég nota hann mikið. Þráðurinn sem ég hef bundist ástar- og haturssambandi við, tek hann alltaf fram og byrja með hann, en þegar hann hefur slitnað þrisvar til fjórum sinnum í einni flugu, þá skipti ég yfir í aðra tegund sem er jafnvel léttar.
Veevus 10/0 er eiginlega minn alhliða þráður í dag. Þó aught tala hans gefi til kynna að hann sé veikari en UNI 8/0, þá er því þveröfugt farið. Hann er eins og talan gefur til kynna, grennri en hann er töluvert sterkari og heldur sér vel í keflishöldunni. Þennan nota ég óspart í miðlungs straumflugur, votflugur og púpur sem ekki krefjast rennislétts yfirborðs.
Í púpur sem ég vil hafa rennisléttar, þá nota ég annan tveggja; Veevus 140 eða UTC 70. Þessir þræðir eru báðir gefnir upp í denier og UTC þráðurinn er sverari, en hann er hreint ekki tvöfalt sverari þó hann sé tvöfalt þyngri. UTC var lengi vel minn þráður, en hann á það til að trosna svolítið hjá mér og því leitaði ég að arftakanum og fann hann í Veevus 140 sem heldur sér betur og er þess að auki grennri. Þessa þræði nota ég gjarnan í votflugur og þeir hafa reynst mér vel þar sem ég vil hafa rennislétta áferð og snyrtilega vafninga.
Þá er aðeins eitt af mínum algengustu þráðum eftir og það er sá sem ég nota í smávaxnar flugur, hvort heldur þær tilheyra ættbálki púpa, votflugna eða straumflugna. Eftir að hafa prófað nokkuð margar tegundir, þá sættist ég á nota Veevus 16/0 og sé ekki eftir því. Hvað sem ræður, þá leikur þessi þráður við mismunandi hráefni, heldur vel í hnútum og tekur lakki vel þannig áferðin verður falleg. Það sem þessi þráður er spunninn, rétt eins og Veevus 10/0, en ekki flatur eins og Veevus 140 og UTC 70, þá næ ég að vísu ekki alveg eins sléttu yfirborði en þráðurinn vegur það upp með því að vera sérlega sterkur og meðfærilegur.
Að lokum er vert að geta þess að val á hnýtingarþræði er mjög persónubundið og eflaust skilja sumir ekkert í þessu vali mínu og vilja meina að einhver annar eða önnur tegund sé miklu, miklu betri. Þó uppskrift að flugu segi svona og svona marga vafninga af þessum eða hinum þræðinum, þá getur einn hnýtari vafið þennan þráð þétt og áferðafallega á meðan sá næsti gerir ekkert annað en slíta hann eða búa til hóla og hæðir. Við erum berum okkur misjafnlega að og beitum mismiklu átaki, svo er sumum það gefið að láta hvern vafninginn renna saman við þann næsta á undan á meðan aðrir flengjast út og suður, fram og til baka og það grisjar samt sem áður í undirlagið.