Ekki lék nú lánið við mig eins og konuna í kvöld. Við skruppum í vatn sem ekki má nefna eftir kvöldmat. Ekki leið á löngu þar til frúin tók einn vænan, ég aftur á móti missti tvo og sleppti tveimur unglingum. Kom samt nokkuð sáttur heim, frábært að komast út eftir erilsaman dag í vinnunni, tæma stressið og hlaða batteríið fyrir morgundaginn.
-
Einkavatn, 25.júlí
Höfundur:
-
Fæðuvandamál

John Hurt sem Fílamaðurinn Mýflugan er undirstöðufæða silungsins. Ég virðist vera ein af undirstöðufæðu mýflugunnar eða þannig leið mér í það minnsta eftir ferð upp að Úlfljótsvatni um daginn. Hefði endurgerð Fílamannsins verið á döfinni hefði ég örugglega komið sterklega til greina sem staðgengill John Hurt í aðalhlutverkið, slíkar voru bólgurnar sem tóku sig upp hjá mér eftir ferðina. Í gegnum tíðina hafa ýmiss húsráð orðið til gegn og fyrir meðhöndlun flugnabits. Hér eru nokkur dæmi:
- B-vítamín: Ráðlagður dagskammtur skv. framleiðanda af B1 og/eða B6 er sagður draga fram ákveðinn ilm á hörundi sem á að fæla mýið frá.
- Mentol: Margir mæla með kremi eða áburði sem inniheldur hátt hlutfall af mentol eða eucalyptus til þess að fæla flugur frá. Að sögn þarf ekki að bera á alla óvarða húð, vel dugar að setja eina og eina doppu hér og þar. Þekkt vörumerki; Tiger Balm, Vick‘s VapoRup, Deep Heat.
- Betametason: Er virkt efni í fjölda krema og smyrsla sem ávísað er gegn bólgu- og ofnæmissjúkdómum, flest lyfseðilskyld á Íslandi en ferðamenn þekkja e.t.v. Calestoderm-V sem hægt er að kaup án lyfseðils erlendis. Krem sem innihalda betametasón eru sögð prýðis fróun eftir skordýrabit.
- Sítrus ávextir: Sumir drekka mikið af fersku límónu- eða sítrónuvatni fyrir veiðiferðir og fullyrða að það dragi verulega úr ásókn flugu. Aðrir beinlínis rjóða andlit og hendur með límónu og segja það dugi mun betur.
- Sítrónugras: Ekki bara krydd, heldur líka áburður eða kalt seiði til að bera á sig og/eða úða á föt og annan búnað til varnar flugu.
- Myrta (Brúðarlauf / Bog Myrtle): Notað sem virkt efni í náttúrukremum sem menn rjóða á hendur og andlit til að stugga við mýflugum. Skotar hafa notað krem og olíur úr þessari jurt í margar aldir til þessara nota.
- Tea Tree olía: Ilmkjarnaolía sem dregur úr ertingu eftir skordýrabit. Fyrirbyggjandi virkni ekki þekkt.
- Neem olía: Krem og smyrsl sem innihalda þessa olíu eru talin halda skordýrum frá mönnum. Um er að ræða nokkrar vörur sem fundist gætu í verslunum hér á landi.
- Hvítlaukur: Nokkuð stíf inntaka hvítlaukstaflna (1200 mg/dag) eða át hvítlauks fyrir veiðiferðir er talið draga verulega úr ásókn mýflugu. Svo er bara spurning hvort veiðifélagar fælist ekki líka.





Hvort eitthvað af þessu virkar er svo allt önnur saga, kannski eru þetta bara allt kerlingarbækur eins og ráð við kvefi. Öll notkun krema og olíu ætti samt að vera í hóf stillt, ekki viljum við smita lykt á veiðibúnað þannig að fiskurinn fælist. Eitt ráð að lokum; ekki nota ilmvatn eða rakspíra þegar þið haldið til veiða. Ólíkt fiskinum þá fælast flugur ekki slíka lykt, heldur þvert á móti.
Höfundur:
-
Ónefndavatnið, 20.júlí
Við bræðurnir skruppum rétt út fyrir bæjarmörkinn í ónefnt vatn um kvöldmatarleitið. Smá gola, ekkert til að gera sér rellu út af og aðeins flugustangir með í för. Ég tók þrjá urriða á Pólskan PT fyrir ljósaskiptin og bætti svo þremur við á svartan Nobbler þegar fiskurinn leitaði upp á grunnið í kyrrðinni. Brósi hélt sig við fluguna, enda ekki um neitt annað að ræða og auðvitað tók hann einn á eigin flugu, svarta pöddu með silfurvöfum og rauðu skotti. Flottur skreppur í frábæru veðri.Höfundur:
-
Stærðin skiptir máli
Oftar en ekki heyrir maður áróður þess efnis að veiðimenn eigi að minnka flugurnar, við séum að egna fyrir silunginn með allt of stórum flugum. Auðvitað er töluvert til í þessu og sjálfur hef ég tekið undir þetta og sagt að við verðum að vera tilbúnir til að breyta út af vananum, vera sveigjanlegir. En við getum líka undirskotið stærðina á flugunum.

Vorflugulirfur og legglangur Peacock #8 Ég rakst á þessar vorflugulirfur um daginn, veiddi þær upp úr og bar nákvæmlega saman við púpuboxið mitt. Og viti menn, hefbundinn #10 var allt of stuttur, beinlínis rýr og ræfilslegur í samanburði við undrasmíð náttúrunnar. Loksins fann ég Peacock sem ég hafði hnýtt á legglangan #8 sem bar næstum við rétta lengd, en var langt því frá nógu bústinn.

Bústinn Peacock Þegar heim var komið, hnýtti ég bústinn skratta á legglangan #8 með góðu undirlagi úr brúnni ull, þakti hann með 5 strimlum af peacock og styrkti með koparvír. Pínulítill rauður broddur, brúnn haus og Frankenstein var fullskapaður. Þetta var beinlínis tröll í púpuboxinu, en í vatn skyldi hann sem hann og gerði. Fyrir þessu trölli lágu fjórar fallegar bleikjur sem stóðust ekki þetta hlaðborð. Við litlum #10 og #12 leit ekki nokkur fiskur, einmitt þeim sem ég hefði trúlega byrjað á að prófa og minnkað síðan niður í #14 eða jafnvel #16 og svo afgreitt málið með fussi og fúlheitum; „Hér er ekki nokkur fiskur„.
Auðvitað skiptir stærðin máli, en ekki endilega á þann veg sem við höfum verið að temja okkur. Gefum lífinu gaum, metum okkur við það sem er til staðar í vatninu og fiskurinn er að snuddast í, þá og fyrst þá verðum við samkeppnishæfir við náttúruna.
Höfundur:
-
Úlfljótsvatn, 16.júlí
Loksins, loksins. Úlfljótsvatn hefur verið lagt að velli. Við hjónin fórum í Úlfljótsvatnið í gær ásamt veiðifélögum okkar og tókst að brjóta múr gæftaleysis í vatninu með sjö bleikjum frá tæpu pundi og upp í eitt og hálft. Það var ekki fyrr en vel var liðið á kvöldið að fiskurinn gaf sig að einhverju ráði, allir á Rolluna og Peacock. Frúin skákaði mér með fjóra, ég með þrjá en það hefði getað orðið jafntefli hefði ég ekki asnast við að missa eina væna þegar ég ætlaði að grípa hana úti í vatni. Datt í hug nýr málsháttur; Ekki er bleikja í hendi fyrr en á bakkann er komin. Veiðifélagar okkar voru ekki eins lukkulegir þrátt fyrir lofsamlegar tilraunir með flugur á floti og flugustöng; það gengur bara betur næst.Uppfærði kortið af álitlegum veiðistöðum í vatninu ásamt því að bæta Rollunni við sem flugu júlí-mánaðar, sjá Úlfljótsvatn.
Höfundur:
-
Eftir töku
Þegar silungurinn hefur tekið og við höfum brugðist rétt við, reist stöngina upp og strengt á línunni er mikilvægt að við höfum fulla stjórn á henni. Örlítill slaki á línu gefur fiskinum færi á að losa sig af með því að skipta snögglega um stefnu í vatninu. Ég tel mig þekkja persónulega nokkra eldri og virtari silunga á Íslandi sem hafa reynslu af því að losa sig af flugu. Þeir eru útsjónarsamir, hægfara og rólegir í tíðinni, bíða eftir því að ég slaki örlítið á, kannski til að teygja mig eftir háfinum, en taka þá á rás að mér eða hnykkja hausnum til annarrar hliðarinnar, helst þeirrar sem er gagnstætt flugunni. Niðurstaðan; þeir halda áfram að lifa villtir í íslenskri náttúru og ég stend eftir með dúndrandi hjartslátt og adrenalínið á fullu. En hvað er þá til ráða? Jú, halda línunni alltaf strekktri og varist hausahnykki og loftköst. Enski frasinn tight lines er engin steypa, höldum línunni strekktri.Höfundur:

