Ég tók mig til og setti inn nýjan valkost hér að ofan, Veður. Auk hefðbundinna veðurathugana er fjöldi einstaklinga sem halda úti sjálfvirkum veðurstöðvum, jafnvel með vefmyndavélum, úti um allt land. Ég hef safnað nokkrum þeirra saman, helst í nágrenni þekktra veiðistaða á landinu í þeirri von að þetta gagnist einhverjum. Ef þið hafið upplýsingar um einhverjar fleiri svona stöðvar þætti mér vænt um að heyra af þeim þannig að ég geti bætt þeim hérna inn. Einfaldast er að nota kommenta kerfið á síðunni (Rita ummæli) eða senda mér tölvupóst.
-
Veður og myndavélar
Höfundur:
-
Dagatal
Eins og tíðarfarið hefur verið upp á síðkastið þá sækir á mann nokkurs konar haust ró. Mannskepnan er þannig úr garði gerð að við hægjum ósjálfrátt á okkur þegar fer að hausta, leggjum frá okkur ákveðin verkfæri sem tekin voru fram síðasta vor (kannski aðeins of snemma) og búumst undir veturinn. Þetta á alls ekki við um silunginn. Þegar sumri fer að halla, ef það þá hefur komið yfir höfuð, tekur fiskurinn til við að fita sig fyrir veturinn. Oftast tekur fiskurinn kipp í áti rétt áður en hann fer í hrygningu, safnar forða sem hann viðheldur svo eins lengi fram eftir hausti og unnt er. Þessi áttími silungsins er oft gjöfulasti tími silungsveiðimannsins, hann tekur grimmt, nánast hvað sem er. Eitt af því sem getur truflað silungsveiðimanninn á þessum tíma er; dagatalið. Við fundum upp dagatalið og fylgjum því nokkuð stíft, kannski of stíft. Fiskurinn á sér ekkert dagatal annað en náttúruna. Ef náttúran seinkar sér eitthvert sumarið (eins og núna) þá færist dagatal hans til sem seinkuninni nemur, hann vaknar síðar til lífsins og safnar forða síðar á sumrinu, eða því sem næst. Látum ekki deigan síga og spáum alvarlega í að nýta sumarið í að prjóna okkur ullarvettlinga fyrir haustið, það getur orðið fjörugt.Höfundur:
-
Ónafngreint vatn, 30.júní
Það leynast margar veiði- og náttúruperlur á Íslandi. Mér stóð til boða að prófa eina svona perlu í gær í nágrenni Reykjavíkur. Um er að ræða vatn sem er í einkaeigu, hluti jarðar þar sem aðeins ábúandinn og fjölskylda hans hafa stundað veiði. Og þvílík perla. Vatnið tók á móti okkur með fínum pundara í þriðja kasti hjá konunni og áttunda kasti hjá mér, báðir á Pólskan PT.
Ef ekki hefði verið fyrir umferð á vatninu hefði ævintýrið haldið áfram, en við nýttum tímann vel og tókum fram kaffibrúsann og matarkexið (sem kemur við sögu á hverjum degi), góndum út í loftið og nutum umhverfisins. Þegar bátsverjar höfðu fengið nóg (14 stk. held ég) héldum við áfram og dagurinn endaði í sex fínum fiskum, allir á Pólskan PT þrátt fyrir tilraunir með aðrar flugur eins og t.d. Nobbler, Krókinn o.fl. Það verður nú annars ekki af þessari flugu skafið að hún skildi fanga þessa fiska, því næstum allir voru á fullu í síli og því hefði t.d. Nobbler eða Black Ghost átt að eiga betur við. Flottur staður og ég er alveg vís með að suða í góðum fjölskyldumeðlim um leyfi til að prófa hina veiðistaðina við vatnið, því aðeins einn þeirra (suðurbakkinn) var lagður að velli í gær.
Höfundur:
-
Tunglið
Ég heyrði í útvarpinu um daginn að tunglið væri að fjarlægjast okkur um 4 sentímetra á ári. Það er ekki nóg með að sumarið hefur yfirgefið okkur heldur er tunglið að gera það líka. Hvoru tveggja eru slæmar fréttir því þegar þetta tvennt fer saman, sumarblíða og fullt tungl þá er virkilega von á skemmtilegri veiði. Þannig er að aðdráttarafl tunglsins hefur áhrif á fisk í vötnum og sjó þannig að þeir leita meira upp á yfirborðið og þá sérstaklega ef aðeins er tekið að rökkva og fullt tunglið nýtur sín á himninum. Í dag, 30.júní fæðist nýtt tungl og það verður orðið fullt aðfararnótt 15.júlí og því e.t.v. ekki úr vegi að taka seinni vaktina þann 14. og vaka aðeins lengur eða taka næst besta kostinn og vaka með fiskinum aðfararnótt laugardagsins 16.Höfundur:
-
Hítarvatn, 24. – 25. júní
Hér verður hvorki sögð frægðarsaga af veiðimönnum né konum. Við hjónin brugðum okkur bæjarleið á föstudaginn vestur í Hítarvatn. Veðurspáin sagði til um NA og A átt um helgina, létta metra á sekúndu og þokkalegasta hita. Við hreiðruðum um okkur í hraunjaðrinum austan við Hólm og vorum bara nokkuð heppinn að vera ekki alveg við vatnið, slík var nepjan sem stóð af vatninu. Brugðum okkur í vöðlurnar upp úr kl.21 og vorum að í Hrauntöngunum til að ganga eitt án þess að taka eitt einasta kvikindi á land. Jæja, laugardagurinn yrði bara betri.
Við tókum daginn seint, notuðum morguninn í marga Latté og fylgdumst vel með þeim sem gengið höfðu inn fyrir hrauntunguna áður en við tókum okkur til. Þar sem töluverður asi virtist á veiðimönnum við vatnið og flest sem benti til að lítið væri um afla, ákváðum við að fara inn að víkinni undir Hólmanum. Höfðum farið í þá vík í fyrra og gengið ágætlega í svipaðri vindátt. Þrátt fyrir þokkalegar aðstæður var mjög lítið um líf, en eftir langa mæðu varð ég var með Orange Nobbler (stuttur) og það var einmitt lengdin á fiskinum sem ég krækti í og endaði pönnusteiktur með smjöri og sítrónupipar í kvöldverð. Síðar um kvöldið reyndum við aftur fyrir okkur, með spún sökum vinds, á töngunum undir Hólmi og tókum sitt hvorn fiskinn, ég áfram í smáfiskinum en konan tók tæplega pundara. Síðan ekki söguna meir, og líkur þar með veiðiþætti helgarinnar, ef undan eru skilin þau orð sem höfð eru eftir Finnboga í Hítardal að þetta vor væri það lélegasta í vatninu í það minnsta í fjögur ár. Okkur tókst að telja saman 12 fiska hjá þeim tæplega 20 veiðimönnum sem við sáum til og áttum orðastað við um helgina.Höfundur:
-
Heyrn
Ég er svo óheppinn að hafa ekki rakaraheyrn þ.e. geta skynjað hvað er sagt og brugðist við með réttum svörum án þess að hafa minnstu hugmynd um hvað er verið að tala um. Ég annað hvort heyri allt eða ekkert, en ég er nú líka bara venjulegur maður. Fiskurinn aftur á móti heyrir og skynjar hvort sem honum líkar það betur eða verr. Buslugangur, steinaglamur og skellir í þungum flugum á yfirborðinu eru allt eitthvað sem fiskurinn heyrir með skynrákinni sem liggur eftir honum endilöngum og hann bregst við þessu. Stundandi vatnaveiði í grænu vöðlunum mínum (ég trúi því að grænt sjáist síður en grátt) hef ég oft upplifað það að fiskurinn syndir rétt við fætur mér án þess að skeyta nokkru um mig, svo fremi ég standi fastur í fæturna og ekki urgi í botngrjótinu. Já, allt í lagi, ef hann syndir rétt við fætur mér þá hef ég örugglega vaðið of langt en það er ekki punkturinn með þessu heldur sá að það er hægt að vaða varlega og af skynsemi þannig að fiskurinn fælist ekki, kasta létt þannig að flugan skelli ekki á yfirborðinu og skilja hundinn eftir heima (ef ég ætti hund). Við getum svo óhikað sest niður á bakkanum og rætt þetta frekar því fiskar heyra ekki mannamál niður í vatnið.Höfundur:

