Þegar haustið nálgast og silungurinn fer að taka á sig riðbúning opnast alveg nýr heimur fyrir veiðimanninum. Atferli fisksins tekur breytingum, urriðinn verður grimmari og bleikjan hópar sig í vötnunum. Fram að hrygningu er urriðinn sérstaklega sólginn í hrogn, jafnt eigin tegundar og annarra.
Hrognafluga úr antron
Í nýlegri veiðiferð varð ég vitni að þessu atferli svo um munaði og varð hugsað til þess að lítið hefur farið fyrir svo kölluðum hrognaflugum hér á Íslandi. Erlendis hafa menn notað léttar, í það minnsta léttari stangir og flotlínu í þessa veiði og auðvitað flugur. Þær flugur sem ég hef skoðað eru allar nokkuð keimlíkar; appelsínugulur hár/garn bolti á hefðbundnum stuttum öngli, þyngdar eða ekki. Auðvitað eru síðan til listaverk sem menn hafa dundað sér við að útbúa úr plastefnum, fljótandi eða föstum sem ná ótrúlegri líkingu við hrogn.
Hrognafluga úr plastefni
Hvort þessar flugur höfði eitthvað til urriðans í líkingu við raunverulegar hrognabrækur þori ég ekki að fullyrða en sjálfsagt er að hnýta nokkrar svona og taka með í veiðina þar sem urriða er von núna í haust. Nú, ef maður nær ekki tökum á svona hárboltum, þá má alltaf taka með sér stuttan orange Nobbler. Kannski er hér einmitt komin skýringin á því að urriðinn tekur það ólíkindatól. Eins og ég gat um áður er nokkuð misjafnt hvort menn þyngja hrognaflugur eða veiða þær við yfirborðið, en það er tiltölulega auðvelt að fela þyngingu undir bústnum búk hennar. Stærðirnar eru, sýnist mér frá #10 og niður í #16.
Það er viss hefð fyrir því hjá veiðifélaginu að taka eina helgi í ágúst við Hlíðarvatn og nú sem áður varð Menningarnæturhelgin fyrir valinu. Mosó mætti á staðinn síðdegis á föstudag og tók til óskiptra málanna fram í myrkur við að særa upp fiska með maðk á floti. Alveg þokkaleg viðbrögð og nokkrir fallegir fiskar lágu í kæli eftir kvöldið. Reykjavíkurdeildin mætti það seint á staðinn að stangirnar voru bara látnar hvíla sig eftir ferðalagið.
Hlíðarvatn í Hnappadal
Laugardagurinn rann upp, ekki alveg eins fagur og hér á myndinni en þokkalegur samt. Nokkur vindur þannig að flugunum var leyft að sofa frameftir. Ekki var alveg eins mikið líf í tuskunum og kvöldið áður, en mér tókst samt að særa upp þrjá urriða á spún við Stjánaströnd. Þegar vind stillti eftir hádegið voru flugurnar vaktar og þær settar í vinnu. Við hjónin tókum svolítið bland í poka á Peacock og græna og orange Nobbler, bleikjur og urriða fram að og eftir kvöldmat en brósi fór alveg á kostum með hrogn á floti og reif upp rúmlega 20 urriða á stuttum tíma inn af Tótutanga. Úrræðagóður strákurinn í maðkaleysinu. Nú er bara að kynna sér hrognafræðin.
Sunnudagurinn, eða Stóri-Bleikjudagurinn eins og hann verður kallaður hér eftir, rann upp fyrir okkur hjónum um 7:30 með yndislegu veðri, hita, algjöri stillu og fiskum að vaka undan Lárulág. Jú, við hjónin drifum okkur í vöðlurnar og ætluðum aðeins að stríða þessum tittum sem voru að vaka, en svo kom áfallið. Þetta voru bara ekkert einhverjir tittir, heldur heilu torfurnar (50-80 stk. pr. torfu) af bleikju sem dreifðu sér með reglulegu millibili við ströndina í aðeins ökkladjúpu vatni. Við fyrstu skref út í vatnið varð það eins og suðupottur á að líta þegar styggð komst að fiskinum. Bleikjan var greinilega farinn að hópa sig fyrir hryggningu enda flestir fiskarnir farnir að taka á sig riðbúning, misjafnlega mikið þó og fáir svo mikið að þeir sýndu flugu ekki áhuga. Svo mikill var atgangurinn og veiðin að við hjónin vorum fljót að fá nægju okkar og settum okkur því reglu; aðeins mátti taka tvo fiska á hverja tegund flugu, þá varð að skipta. Með þessu náðum við ágætri yfirsýn og reynslu með misjafnar flugur í bleikjuna; flestar gáfu í 1 – 3 kasti, fáar ekki. Stuttur listi yfir þær flugur sem gáfu gæti verið; Peacock í öllum mögulegum stærðum og útfærslum (yfirburðir), Ripp, Rapp, Rupp, Davy Jones, Knoll, Connemara Black, Watson’s Fancy púpa, Mobuto, Tailor, hefðbundið og flashback Héraeyra. Þegar svo Mosódeildinn reis úr rekkju toppaði mágkonan ferðina með því að taka sína fyrstu fiska á flugu og þótti það sko ekki leiðinlegt. Allir prófuðu eitthvað nýtt, gerðu tilraunir með flugur, breytilegan inndrátt og æfðu sig í að bregðast við naumum tökum bleikjunnar; sannkallaður fluguveiðiháskóli.
Það var svo ekki fyrr en eftir hádegið að aðeins fór að draga úr veiðinni og maður þurfti að hafa aðeins meira fyrir hverjum fiski en veiðin hélst alveg fram undir kvöldmat þegar mál var komið að pakka saman og koma sér heim. Eitthvað fór talning afla á milli daga í rugl, en samtals afli var eitthvað á þá leið að Mosó var með 42 fiska, mest urriða og töldu þar mest 25 stk. á hrogn. Reykjavíkurdeildin var með 7 urriða og 54 bleikjur, samtals 61 fisk. Allt fiskar af ágætri ‘matfiska stærð’, tæpt pund og upp í tvö. Hér eru ótaldir allir fiskar sem var sleppt eða sluppu. Toppur sumarsins.
Það eru tvennir tímar þegar maður leggst í flakk um YouTube og Vimeo; þegar veðrið er leiðinlegt og á meðan veturinn ríkir. Hér er ansi skemmtileg klippa frá Hrafni Ágústssyni sem ég rakst á í dag og sjálfsagt að vekja smá athygli á henni.
Það var engin frægðarför hjá veiðifélaginu í Kleifarvatnið í dag, allir núlluðu fyrir utan frúnna sem tók einn titt undir Lambhaganum á Peacock. Annars byrjuðum við á nokkuð skemmtilegum stað innan við Geithöfða en stoppuðum stutt þar sem töluverður vindur setti öll köst úr lagi. Eigum samt örugglega eftir að prófa þann stað síðar, stutt í dýpið þar sem spekingarnir segja að þeir stóru haldi sig.
Skyndiákvörðun og skreppur í Úlfljótsvatnið rétt fyrir kvöldmat hjá okkur hjónunum. Ákváðum að prófa inn af Steingrímsstöð og ekki sveik staðurinn mig. Tók eina hálfs annars punda bleikju á Knoll og svo tvo titti sem fengu líf. Einn mínus í ferðinni, það gerði nokkuð góðan austan strekking sem eyðilagði aðeins köstin hjá okkur þannig að við færðum okkur í sunnanvert vatnið gengt Brúarey á leiðinni heim. Töluvert líf á þeim slóðum og nokkrir veiðimenn. Frúin setti í einn titt á Pólskan PT, en meira varð nú ekki úr veiðinni.
Smá klippa úr væntanlegri mynd frá Gin Clear Media sem kemur á markaðinn innan skamms. Þetta er virkilega eitthvað sem mann hlakkar til að skoða í fullri lengd.