Aðeins eitt fet getur skilið okkur frá fiskinum og oftar en ekki er þetta fet það fyrsta sem við tökum út í vatnið. Þeir veiðistaðir eru svo sannanlega til á Íslandi þar sem silungurinn liggur fyrir rétt við bakka vatnsins eða árinnar og sætir færis að hrifsa til sín skordýr sem falla eða hætta sér of langt út í vatnið. Grasi vaxinn bakki er ekki aðeins áhugaverður til að tylla sér á eftir langan dag við veiðar, hann er líka eftirsóttur bústaður ýmissa skordýra sem oftar en ekki sækja í rakann sem vatnið færir sverðinum. Í fyrravetur las ég nokkuð skondna grein um baráttu Englendings við þá áráttu að vaða út í og leita að fiskinum í miðju vatninu/ánni. Einhverra hluta vegna skaut þessari grein alltaf upp í kollinn á mér í sumar þegar ég var staðsettur við vatn þar sem þannig háttaði til. Grasi grónir bakkar, skordýr á hverju strái og vísast einhverjar bleikjur í stjái miklu nær bakkanum heldur en ég. Svo kom fyrir að ég lét undan áráttunni, snéri mér svolítið á ská og sendi fluguna undir bakkann, kannski kvikindið væri þarna. Ekki ætla ég að fara með neinar tölur um hve oft fiskur tók fluguna, en eitt get ég fullyrt; hann tók ekki sjaldnar heldur en þegar ég þandi mig út yfir vatnið.
-
Aðeins eitt fet
Höfundur:
-
Sveiflur Elliðavatns
Nú er ég alveg gjörsamlega dottin í það, vatnið þ.e.a.s. og velti fyrir mér öllum mögulegum áhrifum sem við getum haft á vötnin okkar og það lífríki sem í þeim þrífst, eða ekki. Þó verulega hafi dregið úr sveiflum vatnshæðar Elliðavatns hin síðari ár, þ.e. Orkuveitan er ekki alveg eins gróf í vatnstöku, þá hafa menn í alvöru bent á að óafturkræf áhrif Elliðavatnsstíflunnar séu orðin og ekkert fái þeim breytt úr þessu. Aðrir benda á að það hafi mikið milda áhrif stíflunnar að hleypa framhjá þegar virkjuninn sé ekki í rekstri. Samhliða almennri hlýnun vatnsins síðustu ár, sem hefur bein áhrif á fiskistofnana, hafa menn ítrekað bent á þá staðreynd að hrygningarstöðvum bleikjunnar fækki ár frá ári og nú sé svo komið að aðeins þeir stærstu séu eftir og bleikjan þjappi sér orðið mjög saman á þessa staði. Grynnri, og nú orðið liðfærri hrygningarstaðir hafa oft og iðulega farið á þurrt á vetrum þegar Orkuveitan hleypti úr vatninu til raforkuframleiðslu. Ekki þurfi að lækka yfirborðið vatnsins nema um 10 sm. til að þessir hrygningarstaðir fari á þurrt, hrygningarstaðir sem að öllu jöfnu ættu að vera bleikjunni meira að skapi þar sem botninn er malarkenndur og gnægð ferskvatns úr lindum sem streyma þar fram. Það hefur einmitt verið á viðkvæmasta árstíma sem mestar sveiflur hafa orðið í vatninu, þ.e. á tímabilinu okt. til maí þegar raforkuframleiðslan hefur verið í gangi. Öfugt á við okkur mennina, þá veit bleikja ekkert um það að hrygningarstaðurinn sem hún velur sér í nóvember stendur orðið á þurru í lok janúar. Það er dýrar rafmagnið okkar Reykvíkinga heldur en marga grunar og virkjanir OR hafa víðar haft áhrif heldur en í Grafningnum.Höfundur:
-
Styggur urriði
Þegar við glímum við styggan urriða, hvort heldur sjóbirting eða staðbundinn fisk, þá luma reyndir veiðimenn á nokkrum hollráðum eins og t.d. að lengja verulega í og nota grennri taum heldur en venjulega og létta græjurnar almennt. Að nota stöng 4/5, flotlínu og taumenda ekki sverari heldur en 4x og hika ekki við að leita í boxinu að flugum í stærðum 16 til 22, umfram allt lengja tauminn upp í 12‘ eða lengri. Allt eru þetta atriði sem gott er að byrja á, ef þú missir þann stóra getur þú alltaf fært þig yfir í stærri græjur, það reynist oft of seint að færa sig niður í græjum þegar þú hefur styggt allan fisk í ánni með fallbyssunni. Svo er auðvitað ekki verra að ráða við nokkuð löng (+20 m) köst með þokkalegri nákvæmni þannig að við þurfum ekki þrjár, fjórar tilraunir til að koma flugunni fyrir fiskinn.Almennt má segja að stærð veiðibúnaðar er alltaf vanmetin, þ.e. við virðumst ekki trúa því alveg að það sé hægt að veiða þann stóra (silunginn) á neitt annað en stöng 7/8 með flugum í stærð 2 til 6, að þessu leitinu erum við svolitlir berserkjar hér á Íslandi. Þegar við tölum svo um lax virðumst við oftar en ekki þurfa báðar hendur á stýri skriðdrekans #10, taum 0x ásamt ullarvöfðu koparröri og hákarlakrók í yfirstærð.
Höfundur:
-
Kleifarvatn – 25.sept.
Ég get svo svarið það að veðrið var hreint ekki eins og spáin sagði til um. Ef það sem kom ofan úr loftinu við Kleifarvatnið fyrir hádegi í dag var lítilsháttar rigning og vindurinn aðeins 1-3 m/sek. þá er eitthvað farið að slá útí fyrir mér. Ásetningurinn var að komast í það minnsta í eina veiði áður en dagatalið segði mönnum að nú væri mál að hætta og það tókst. Að vísu var lítið um aflabrögð hjá okkur þremur sem fórum, aðeins einn veiðimaður varð var við fisk undir Vatnshlíðinni, aðrir ekkert. Nú eru aðeins 5 dagar eftir af dagatalinu og ef veðurspámenn ljúga ekki þeim mun meira, þá eru nú ekki miklar líkur á að maður fari meira þetta haustið.Höfundur:
-
Haustið
Það ber kannski í bakkafullan lækinn að nefna kólnandi veður að hausti, en það er eins og virkni veiðimanna minnki í beinu hlutfalli við lækkandi hitastig. Undantekning frá þessu eru auðvitað þeir sem renna fyrir sjóbirting að hausti eins og vinur minn Brynjar Örn sem fór í Eldvatnsbotna þann 17.sept. Það hefur örugglega verið skemmtileg barátta að eiga við svona tröll sem tekur fluguna í tunguna og leggst þungt í botninn. En það ætti að vera fleira í boði en birtingur. Ég hef áður nefnt að hin annars ágæta uppfinning okkar, dagatalið er ekki eitthvað sem náttúran tekur mark á og því oft á tíðum engin ástæða til að við sleppum takinu alveg strax af stönginni. Þó veiðitímabilinu ljúki í helstu vötnunum okkar rétt fyrir eða um mánaðarmótin sept. – okt. þá getur haustveiði í vötnum verið afskaplega skemmtileg ef veður og náttúran almennt leyfir.

Brynjar Örn með 14,5 punda sjóbirting úr Eldvatnsbotnum 17.sept. sem tók rauða Frances eins og fleiri birtingar þetta haustið, glæsilegur fiskur. Nokkur þeirra vatna sem eru opin ‚lengur‘ eru t.d. Kringluvatn í S-Þingeyjarsýslu, Sauðlauksdalsvatn við Patró., Urriðavatn við Egilsstaði og Víkurflóð við Kirkjubæjarklaustur og eru þá aðeins talin þau vötn sem finna má á Veiðikortinu. Fjöldi annarra vatna, vítt og breytt um landið eru vel veiðanleg langt fram eftir hausti og víða hafa menn komist inn á gafl hjá landeigendum sem heimila veiði lengur en gerist og gengur.
En hvað er það sem gerist á haustin sem kveikir svo í veiðinni að sumir beinlínis bíða af sér sumarið til að komast í haustveiði? Aðallega er það þrennt sem kveikir í veiðimönnum á haustin. Fyrst af öllu þá kólnar vatnið auðvitað með lækkandi lofthita og það virkar eins og hvati fyrir kulsækin fisk til að fara meira á stjá. Annar hvati til haustveiða er auðvitað styttri dagur, það líður styttra á milli ljósaskipta sem eins og kunnugt er hafa ótrúleg áhrif á hegðunarmynstur silungsins. Síðast en ekki síst, þá tekur silungurinn eftir því að vetur er í nánd og sækir stíft í fæðu til að byggja sér fituforða og virkar því afar grimmur á haustin. Þetta á ekki hvað síst við um fisk sem lokið hefur hrygningu, tímabili þar sem hann gefur fæðunni lítinn gaum enda ýmislegt annað að gera en éta á sig gat. Víða erlendis er gert hlé á vatnaveiði rétt fyrir og á meðan á hrygningu stendur, en síðan tekið til við veiði aftur og hún stunduð svo lengi sem veður leyfir. Kannski það sé eitthvað sem huga megi að hér á Íslandi í stað þess að skrúfa fyrir veiðar skv. dagatalinu. Haustferð út í kyrrláta náttúruna getur bætt ótrúlega mörgum dögum við annars stutt sumar okkar hérna á skerinu.
Höfundur:
-
Haustvindar
Það er nú raunar ekki aðeins á haustin sem ‚haustvindarnir‘ blása, þannig að þessi punktur á víst líka við um aðrar árstíðir. En sama á hvaða árstíma vindurinn blæs, þá eigum við fluguveiðimennirnir nokkur ráð til að sigrast á honum:- Auka hraða línunnar – Einfaldasta ráðið er að nota tví-tog (double haul) til að auka hraða línunnar því þannig náum við að skera vindinn betur. Ef þú ert í vandræðum með tví-togið þá er smá ábending hérna en svo er auðvitað alltaf hægt að hóa í vanan veiðimann eða kennara og biðja hann um að fara yfir grunninn með þér.
- Straumlínulagaðri flugur – Með því að nota straumlínulagaðri flugur þurfum við ekki að eiga eins mikið við loftmótstöðu og því er almennt auðveldara að koma þeim út heldur en bústnum, belgmiklum flugum.
- Þrengri línubogi – Þrengri línubogi gefur undir öllum kringumstæðum fyrirheit um betra/fallegra kast, sérstaklega þegar vð eigum við vind. Þrengri línubogi næst með æfingu, æfingu, æfingu og leiðsögn.
- Við yfirborðið –Því nær yfirborðinu sem þér tekst að kasta, því minni vindur er á ferðinni, bókstaflega. Færðu kasthornið aðeins fram á við til að ná ferlinum niður eða kastaðu undir hönd. Það er ekki öllum gefið að kasta undir hönd en það eins og annað kemur með æfingunni.
- Þyngri lína / taumur – Það gefur nokkuð augaleið að þyngri lína á auðveldara með að kljúfa loftmótstöðuna og því eðlilegt að menn noti þyngri línu á móti vindi. Annað ráð er að nota sömu þyng og ‚venjulega‘ en skipta yfir í hálfsökkvandi eða hraðsökkvandi línu, þær eiga auðveldara með að kljúfa vindinn heldur en hefðbundin flotlína. Fyrir þá sem ná tökum á sökkendum þá gera þeir sama gagn.
- Öfugt kast – Prófaðu að snúa þér undan vindi (upp að bakkanum), byggðu kastið upp eins og venjulega en láttu síðan bakkastið um að flytja línuna út á vatnið. Merkilegt nokk, þetta virkar hjá þeim sem komast upp á lagið með þetta.
Höfundur:

