Föstudagur, vikulokaferð efti vinnu í Kjósina til að vinda ofan af stressi vikunnar. Veðrið var alveg ljómandi mestan part leiðarinnar upp í Kjós, en svo tók smá gjóla sig upp og ýfði aðeins vatnið. Við hjónin stoppuðum ekkert rosalega lengi, en nóg samt til að ég fengi eitt, smá, agnarlítið nart, en mestu um vert, þá náðum við að hreinsa vinnuna út úr kollinum og renndum þannig fersk inn í helgina.
Það verður nóg um að vera næstu helgi. SVFR heldur upp á 75 ára stórafmæli sitt í Elliðaárdalnum á laugardaginn frá kl.13 – 16. Þar verður boðið upp á kastkeppni, gönguferð með ánni, hnýtingaráð, ratleik og sitthvað fleira. Og eins og góðu afmælisbarni sæmir er öllum boðið, félagsmönnum og ófélagsbundnum. Eflaust verður fjör í dalnum á laugardaginn.
Á sunnudag boðar svo JOAKIM’S til árlegrar samkomu á Klambratúni kl.13 þar sem gestum og gangandi er boðið að prófa stangir, línur og sitthvað fleira sem JOAKIM’S hefur að bjóða. Kastsnillingarnir Stefán Hjaltested og Júlíus Guðmundsson munu svo leiðbeina með köst og val á stöngum. Skemmtileg helgi framundan.
Nú er rétt að taka frá tíma sunnudaginn 18.maí frá kl.13 því þá verður blíða á Klambratúni eins og alltaf þegar Joakim’s heldur upp á daginn.
Joakim’s 2013 á Klambratúni
Á staðnum verður allt það nýjasta í flugustöngum, fluguhjólum og línum í JOAKIM´S merkinu. Öllum verður boðið að prófa að kasta. Joakim’s hefur góða reynslu af því að menn prófi stangir áður en þeir kaupa. Allar prufustangirnar verða á mjög góðu tilboðsverði á JOAKIM´S daginn. Stefán Hjaltested og Júlíus Guðmundsson munu leiðbeina við kastið og val á stöng og línu.
Svo verður auðvitað boðið upp á kaffi og kleinur eins og venjulega.
Og þeir veiða þokkalega á Joakim’s í Elliðavatninu eins og þessi mynd frá ánægðum Joakim’s eiganda ber með sér.
Samkeppni – það er orðið sem mér dettur einna helst í hug til að lýsa ferð minni upp að Meðalfellsvatni í kvöld. Þvílík samkeppni á milli náttúrlegrar flugu og manngerðrar. Eftir hlýindi dagsins var ekki nema von að eitthvað klak væri í gangi á vatninu og uppitökur og gleðilæti silungsins eftir því. Eftir að hafa byrjað á mínu hefðbundnu flugum var ekkert annað að gera heldur en slá þessu upp í kæruleysi og smella þurrflugu undir. Trúlega hefur allt hjálpast til við að gera mína flugu EKKI eins girnilega og þær náttúrulegu; léleg framsetning, ekki sú rétta o.s.frv. Í það minnsta varð ég ekki var fyrr en ég skipti yfir í Watson’s Fancy púpu með kúluhaus og gaf henni fullt leyfi til að sökkva eins og henni sýndist. Þá fyrst og einmitt í fyrsta inndrætti varð ég var við fisk. Nokkrir tittir sem mér tókst að losa af án þess að taka þá í háfinn og tvo sæmilega sem ég tel til afla sem ég varð að taka í háfinn til að losa um fluguna. Ég segi sæmilega, en samt ekki nóg til að hirða þannig að þeir fengu líf líka.
Frábært kvöld og gaman að sjá lífið vera komið á fullan skrið í vötnunum.
Það greip mig einhver óeirð seinni part dags sem jókst umtalsvert rétt eftir kvöldmat þannig að ég stakk af upp í Heiðmörk. Að vísu var veðrið ekki neitt sérstakt og ekki mikils fisks að vænta eins hressilega og hann blés, en af stað fór ég og gat slátrað tæpum tveimur tímum í rokinu við Helluvatn austanvert.
Ég þóttist vera austastur allra í vatninu, en komst svo að því að vatnið virðist ná miklu lengra í austur en mig grunaði. Hefðu þeir aðeins verið einn eða tveir, þá hefði ég væntanlega bent þessum góðu mönnum á að veiði í Suðurá er óheimil skv. reglum. En, þar sem þeir voru í það minnsta fjórir (þóttist telja sex á tíma) þá lét ég það eiga sig að ramba á milli þeirra og leiðrétta áttavillu þeirra. Finnst það samt alltaf svolítið leiðinlegt þegar veiðimenn geta ekki virt veiðisvæði.
Suðurá við Helluvatn
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 0
0 / 0
0 / 0
0 / 2
4 / 7
Ummæli
13.05.2014 – Þórarinn: Tja, hvar endar vatnið og áin tekur við. Ég hefði veitt þarna sjálfur í þeirri trú að ég væri að veiða á löglegum stað. Ég hefði líklega farið upp að brú og talið mig í fullum rétti. Gaman væri ef einhver sem þekkir þetta getur sagt um hvar menn mega veiða og hvar ekki því mér finnst það alls ekki vera á hreinu.
Kveðja, Þórarinn
PS. Takk fyrir skemmtilegan vef, ég hef oft haft þá ánægju að lesa hann þó ég hafi ekki skilið eftir svar fyrr.
Svar: Já, þessi spurning hefur kom nokkuð hressilega fyrir á Fésbókinni þegar ég birti þessa grein. Ég veit að það er fyrirspurn í gangi til OR / Veiðifélagsins um veiðimörkin og ég mun pósta svarið um leið og það best. Eflaust margir sem líkt er farið og þér.