
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Hlíðarvatn í Selvogi, 13. & 14. ágúst
Allt of langt síðan, en alls ekki langt. Þessu skaut niður í kollinn á mér í gær, sunnudaginn, þegar við veiðifélagarnir renndum suður að Hlíðarvatni í Selvogi. Við áttum fyrir höndum heilan sólarhring í veiði við Hlíðarvatnið og það var ekki laust við að maður gleymdi næstum alveg kvefi og pestarvotti sem var eitthvað að hrjá mig. Þegar suður í Selvog var komið var stillt og fallegt veður, næstum alveg eins og veðurspáin hafði lofað.
Eftir að hafa tekið félaga úr síðasta holli hjá Ármönnum tali, var ekki laust við að tvær grímur rynnu á okkur; var bleikjan bara hætt við eftir allt saman? Það var aðeins eitt til ráða, drífa sig í gallann og renna á einhvern þeirra ótal veiðistaða sem vatnið geymir. Vestasta-Nef varð fyrir valinu og þar setti annað okkar í væna bleikju eftir smá tíma, mér liggur við að segja að segja að það hafi „auðvitað“ verið veiðifélagi minn. Ég er reyndar viss um að bleikjan sú arna hafi verið sú sem slapp frá mér, nokkrum mínútum áður.

Horft yfir Hlíðarvatn til norðurs Þegar fór að halla í kvöldið, fórum við að Brúarbreiðu þar sem við höfðum séð eitthvert líf þegar við renndum í hlað fyrr um daginn. Það líf var greinilega farið að sofa þegar við mættum með flugurnar, þannig að við héldum áfram inn með vatninu að austan eftir stutt stopp. Mölin varð fyrir valinu og við lá að maður hefði sig varla til að eyðileggja stilluna með flugulínunni, svo fallegt var síðkvöldið og útsýnið eftir því. Eftir tíðindalaus köst ákváðum við að fara tiltölulega snemma í bólið og taka daginn í dag snemma.

Sunnudagskvöld við Hlíðarvatn Já, einmitt. Blessunarlega getum við þakkað fyrir að vera á Íslandi þegar kemur að veðri. Ef það er leiðinlegt, þá þarf maður í mesta lagi að bíða í eins og klukkutíma, þá hefur það örugglega breyst annað hvort til hins verra eða til hins betra. Þannig var það í morgun, heldur mikil gjóla og eiginlega bölvanlega blautt þegar við fórum á fætur, en eftir smá tíma hafði auðvitað lægt og næstum því stytt upp. Raunar var veðrið meira og minna í því að stytta upp í allan dag á milli þess að það var algjört logn, sól, þoka, rigning, gola og svo ágætis hiti. Þetta var sem sagt alveg týpískt íslenskt sumarveður sem fylgi okkur úr Kaldós út á Djúpanef, Austurnes og inn að Skollapollum. Á þessu ferðalagi okkar setti ég í þrjár mjög góðar bleikjur og veiðifélagi minn í eina áður en við héldum til baka í hús og fengum okkur mjög síðbúinn hádegisverð.

Skyggnst í átt að Mölinni Deginum lukum við á Réttarnesinu þar sem ég tók grunnnámskeið í almennu skeytingarleysi. Kennarinn var alveg ágætis bleikja sem ég sá vel til, rétt innan við Réttarnes. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að fylgjast með því hvernig hún brygðist við þeim flugum sem ég setti fyrir hana. Í stuttu máli, ég hef greinilega alls ekki sama smekk á flugur og bleikjurnar. Það sem mér fannst að hefði átt að gera þessa bleikju alveg brjálaða, lét hún bara eins og hún sæi ekki. Í besta falli sýndi hún misheppnuðum köstum mínum einhvern áhuga og þá helst ef línan kipptist til og lenti í einhverri bendu á vatninu. Trúlega varð henni bara svona skemmt yfir þessum aulaskap. Á meðan ég sat á skólabekk bætti veiðifélagi minn einni bleikju við í netið, þannig að við enduðum í 3 + 3 bleikjur á bilinu 30 – 38 sm. Öðrum eins fjölda var trúlega sleppt, þær verða orðnar veiðanlega að ári og þá munu veiðimenn örugglega bítast um þær. Það voru sælir og sáttir veiðimenn sem héldu heim úr Hlíðarvatni í kvöld og nú bíða 6 gómsætar bleikjur eftir því að verða matreiddar í vikunni.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 3 / 3 107 / 113 0 / 0 23 / 16 12 / 12 Höfundur:
-
Sauðlauksdalsvatn á FOS.IS

Sauðlauksdalsvatn – Smelltu fyrir stærra kort Þriðja vatnið sem bætist við á síðuna í þessari atrennu er Sauðlauksdalsvatn í nágrenni Patreksfjarðar. Er þá skemmtilegri veiðislóð Veiðikortsins um Dalina, Barðaströndina og vestur á Firði gerð nokkur skil á vefnum,
Sem fyrr eru lesendur beðnir um að miðla upplýsingum um fengsæla veiðistaði við vatnið, en að sögn eru þeir flestir við vestanvert vatnið.
Upplýsingar um vatnið má nálgast með því að smella hérna.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Vatnsdalsvatn á FOS.IS

Vatnsdalsvatn – Smelltu fyrir stærra kort Enn bætist við umfjöllun um veiðivötn hér á síðunni. Nú er röðin komin að Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði.
Vatnið er mörgum veiðimönnum kunnugt, en sjálfur hef ég ekki enn veitt í þessu vatni og því hef ég orðið að stóla á frásagnir annarra veiðimanna um þær flugur sem helst hafa gefið í vatninu.
Eitthvað fer lítið fyrir merktum veiðistöðum við vatnið, en hafi lesendur einhverjar upplýsingar sem þeir vilja deila, þá væru allar upplýsingar um það vel þegnar í skilaboðum eða kommentum.
Umfjöllun um vatnið má nálgast með því að smella hérna.
Höfundur:
-
Berufjarðarvatn á FOS.IS

Berufjarðarvatn – Smelltu fyrir stærra kort Nú eru smá upplýsingar um Berufjarðarvatn sem er á milli Hríshólsháls og Hofstaðaháls við Berufjörð komnar inn á vefinn. Vatnið hefur verið inn á Veiðikortinu frá því í vor, en því miður hefur ekki farið miklum sögum eða myndum af veiði í vatninu það sem af er sumri, hverju sem það kann nú að sæta.
Í umfjöllun um vatnið má finna kort af því ásamt nokkrum tenglum, en því miður höfum við ekki fengið neinar upplýsingar um flugur sem hafa gefið í vatninu. Lesendur sem þekkja til vatnsins mættu senda okkur upplýsingar um það, flugur og helstu veiðistaði.
Upplýsingar um vatnið má nálgast með því að smella hérna.
Höfundur:

