
-
Heilræði
Höfundur:
-
300 Febrúarflugur
Í kvöld er þriðja Febrúarflugukvöldið þetta árið í Árósum, Dugguvogi 13 kl. 20:00 og það má teljast skemmtileg tilviljun að seinni partinn í dag datt 300. flugan inn í átak ársins.

Í kvöld ætlar Kjartan Antonsson að leiða gesti um leyndardóma Zeldu, þ.e. flugunnar í Árósum og eflaust detta einhverjar flugur inn á hópinn á Facebook í lok kvöldsins því það verður örugglega hnýtt eitthvað á hliðarlínunni eins og venjulega.
Höfundur:
-
Febrúarflugukvöld 19. febrúar
Þriðja Febrúarflugukvöld ársins verður nú á mánudaginn í Árósum Ármanna að Dugguvogi 13. Að þessu sinni mun Kjartan Antonsson, höfundur Zeldu heimsækja okkur en sú fluga var trúlega mest á milli tanna bæði fiska og manna á liðnu ári. Saga Zeldu er nokkuð lengri en margir vilja halda, flugan var fyrst reynd árið 1999, en þá hafði Kjartan gengið með hugmyndina að henni í kollinum í einhver ár.

Kjartan Antonsson með vænan fisk sem auðvitað tók Zeldu Þátttakendur í Febrúarflugum eru sérstaklega hvattir til að mæta með hnýtingagræjurnar með sér og smella í eins og eina eða fleiri flugur á milli þess sem þeir geta fylgst með Kjartani á skjánum. Auk þess eru allir áhugamenn um flugur og fluguhnýtingar ævinlega velkomnir til að fylgjast með því sem um er að vera á staðnum. Veðurútlitið ætti ekki að skemma fyrir, hitatölur í kortunum og skaplegt veður almennt.
Sem sagt; Mánudagskvöld kl.20 í Árósum, Dugguvogi 13.
Höfundur:
-
Heilræði

Höfundur:
-
Heilræði

Höfundur:
-
222 Febrúarflugur

Það sem af er Febrúar hafa 222 flugur verið lagðar fram í átakinu og það stefnir í metfjölda þetta árið ef fram fer sem horfir. Það er líka eftirtektrarvert að á bak við allar þessar flugur stendur 41 hnýtari og þar með er þegar slegið fyrra met sem var 38.
Aðstandandi Febrúarflugna er í skýjunum yfir þessari þátttöku og þakka þessar gríðarlega góðu undirtektir.
Eins og venjulega eru flugurnar færðar reglulega yfir í eitt safn á FOS.IS sem má nálgast hérna.
Höfundur:

