Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Fossá 7. júní 2019

    11. júní 2019
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Þegar það kemur að mögnuðum veiðistöðum, þá held ég að Fossá uppi við Háafoss sé sá magnaðasti veiðistaður sem ég hef augum litið. Það hefur staðið til frá því í fyrra að fara upp að Háafossi, trítla (kaldhæðni) niður í gljúfrið og bleyta flugur undir fossinum. Á föstudaginn var komið að stóru stundinni, tilhlökkun var umtalsverð á heimilinu og við héldum af stað upp í Þjórsárdal strax eftir vinnu á fimmtudag.

    Á tjaldstæðinu á Sandártungu í Þjórsárdal voru stöku hálf-freðnir túristar eftir undanfarnar kaldar nætur og svo við með okkar færanlega veiðihús. Við komum okkur fyrir, opnuðum bauk og belju og ég smellti í nokkrar flugur í síðustu geislum kvöldsólarinnar. Ekkert rugl og farið snemma í bólið, morguninn skildi tekinn með stæl, vel étið og lagt af stað upp að Háafossi.

    Það eina sem hægt var að setja út á morguninn var að það var töluverður gustur af norðri með einhverju sem bar vott af skítakulda. Þá var bara að bæta á sig einhverjum fötum, sem við og gerðum eftir staðgóðan morgunmat. Eftir stutt ferðalag upp að Háafossi tók labbið við. Það skildi enginn vanmeta labb í vöðluskóm og fullum herklæðum niður í Fossárgljúfur. Leiðin er e.t.v. ekki löng en hæðarmunurinn er 128 metrar og þetta er langt því frá bein leið. Við hjónin erum e.t.v. ekki sérlega vön fjallgöngum, en á köflum var betra að hafa varan á því víða var laust undir fæti og sólar á vöðluskóm ekki endilega sérlega stamir.

    Niður komumst við þó heilu á höldnu og það verður bara að segjast eins og er, umhverfið í gljúfrinu er hreint og beint stórkostlegt. Eftir að hafa setið um stund og dáðst að umhverfinu voru stangirnar settar saman og flugur og maður sjálfur baðaður. Já, það er eins gott að vera í vel vatnsheldum klæðnaði ef maður ætlar að veiða fosshylinn sjálfan. Pusið frá Háafossi er ekki neitt smáræði og það ferðast víða um gilið þegar því er að skipta.

    Ég viðurkenni það fúslega að ég var með hálfum huga við veiðarnar, var eiginlega sama hvernig og hvert flugan flæmdist, ég einfaldlega naut þess 100% að vera á staðnum og njóta alls þess sem fyrir augun bar. Væntanlega er ekki mikið vatn í Fossá um þessar mundir, því farvegurinn var langt því frá jafn víðfeðmur og ýmsar myndir af ánni hafa borið með sér sem ég hef séð. Ég byrjaði vel fyrir neðan fosshylinn sjálfan og fikraði mig smátt og smátt að fossinum. Í stuttu máli; ég varð ekki var við fisk í þessari heimsókn minni upp að Háafossi. Allt aðra sögu er að segja af veiðifélaga mínum, hún fékk stóra bónusvinninginn og landaði tveimur afar fallegum urriðum úr fosshylnum.

    Lesendum kann að þykja það stutt og snaggaralegt að ljúka þessari frásögn hérna, en því miður skortir mig orð og lýsingar til að ná þeirri upplifun minni af þessari heimsókn sem henni ber. Maður finnur einfaldlega fyrir ótrúlegri smæð og fyllist þvílíkri auðmýkt fyrir listasmíð náttúrunnar að orð fá því ekki lýst.

    Eftir að við höfðum prílað aftur upp á fossbrúnina, settumst við niður til að ná andanum og þurfum töluverðan tíma til að raða saman öllum myndunum og upplifuninni sem þessi ferð okkar skildi eftir sig. Síðar héldum við niður í Þjórsárdal sjálfan, fórum á nokkra valda veiðistaði inn af Stöng en fleiri urðu ekki fiskarnir í þessari ferð, þó ég hafi orðið var við nokkra í Fossá. Ég held svei mér þá að hugurinn hafi verið enn allt of mikið á ferðinni eftir Háafoss til að geta fest sig endilega við veiði þó veður og á léki beinlínis við okkur.

    Fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað sérstakt, eignast ómetanlegar minningar, þá mæli ég með því að príla niður í Fossárgljúfur og baða flugur undir Háafossi.

    Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
    0 / 0 2 / 12 2 / 0 3 / 7 8 / 9

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hvar leka þær?

    6. júní 2019
    Græjur

    Upp

    Forsíða

    Það kann að hljóma einkennilega að spyrja hvar vöðlurnar leki, en af biturri reynslu þess sem hefur átt við lekar vöðlur, þá getur þessi spurning átt fullkomlega rétt á sér.

    Ég var með vöðlur sem láku og þá er ég ekki að tala um neitt lítið. Annar sokkurinn á þeim var hreint og beint alltaf rennandi blautur, eða það hélt ég í það minnsta. Eftir að hafa skoðað hann vel og vandlega í nokkur skipti, þá bara fann ég ekki eitt einasta gat eða mögulegan leka á saumum. Allt slétt og fellt, hvergi ójöfnu að finna á þéttiborðum og ekkert sem gaf til kynna hvar hann væri að svíkja mig. Mér fannst nú samt að sokkinum nægði að sjá vatn til að fara að leka, svo heiftarlegt var ástandið.

    Eftir að mesta heiftin var runnin af mér, þá fór ég að hugsa rökrétt. Fyrsta hugsun mín snérist náttúrulega um samspil kulda og raka.  Sokkar á vöðlum eru ekki alveg 100% af sömu þykkt og maður getur fundið fyrir kulda þar sem sokkarnir eru þynnstir. Ég mistúlkaði þennan kulda sem leka. Eftir að hafa sætt mig við þessa misgreiningu á leka sokksins, þá hófust vísindalega rannsóknir sem helst fólust í útilokunaraðferð og naflaskoðun. Sokkarnir láku ekki fyrr en ég óð í vatni sem náði u.þ.b. 10 sm. upp fyrir hné. Aha, það hlaut því að vera gat á skálminni á þeim slóðum. Eftir nákvæma skoðun á efni, þéttiborðum og saumum fannst, ekkert. Það var hvergi neitt að sjá sem gat verið gat. Þá kviknaði á perunni hjá mér og grein eins bloggkunningja míns rifjaðist upp fyrir mér.

    Ég skrúfaði nokkuð sterka LED peru í perustæði og tróð inn í vöðlurnar. Fyrst kom ekkert merkilegt í ljós (til vinstri á mynd) en þegar ég renndi perunni meðfram saumunum þar sem ég taldi að lekinn leyndist, þá kom veikleiki í efninu í ljós (til hægri á mynd). Þessi veikleiki var ekki meiri en svo að hann sást hvorki utanfrá né innan, en með ljósaperuna á bak við kom hann berlega í ljós. Þarna lá hundurinn grafinn. Vatnið sullaðist þarna í gegnum efnið og inn undir þéttiborðann, lak í rólegheitum niður, niður, alveg niður í sokkinn sem að ósekju var grunaður um ódæðið. Einfalt lag af vöðlulími yfir veikleikann og málið var dautt.

    Þetta með LED peruna skiptir máli því þær perur hitna alls ekki eins mikið og halogen eða glóperur og svíða því ekki efnið í vöðlunum. Ekkert sull með spritt eða fylla vöðlurnar af vatni, bara að kveikja á perunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Af hverju leka þær?

    4. júní 2019
    Græjur

    Upp

    Forsíða

    Það er einkennilegur andsk…. hvað þessar vöðlur vilja fara að leka með tímanum. Reyndar er tíminn afstæður þegar kemur að vöðlum, nýjar vöðlur geta í raun verið eldgamlar og gamlar vöðlur geta verið næstum því nýjar. Aldurinn snýst meira um notkun heldur en ár.

    Það stendur víst einhvers staðar hér á vefnum að ég er óttalegur vöðluböðull og trúlega gildir það ennþá, en ég hef samt lagast með aldrinum. Ég þekki takmörk vaðlanna minna betur en áður, sumar hafa verið 3ja laga, aðrar 4ra og einhverjar hef ég eignast sem eru 5 laga. Mín reynsla er; þær þola meira hnjask því fleiri lög sem þær geyma, svona næstum því. Í mínu tilfelli eru það reyndar ekki sléttu og felldu fletirnir; framanverð læri, afturendinn eða skálmarnar sem eru hve óþægastar. Saumarnir og sokkarnir eru minn Akkilesarhæll og einmitt hællinn á sokkunum. Einhverra hluta vegna, þá vill hællinn helst taka upp á því að leka eða þá saumarnir í klofinu og niður með innanverðum lærunum. Áður fyrr var það afturendinn og tærnar sem voru hve leiðinlegastar. Nú hef ég lært það af biturri reynslu að setjast ekki hvar sem er niður, hvorki óvart né vísvitandi. Svo hef ég líka tekið mig á að klippa táneglurnar fyrir veiðiferðir og þá fór fremsti partur sokkanna að vera til friðs. Nú þarf ég bara að temja mér að passa betur upp á steina og sand í vöðluskónum þannig að sokkurinn haldi líka í hælinn.

    Í öllum þeim greinum sem maður finnur á netinu um það hvernig maður getur lengt líftíma vaðlanna eru flestir sammála um að geyma þær aldrei samanbrotnar, blautar eða í loftþéttum umbúðum. Fjarri sólarljósi, sem er í sjálfu sér svolítið skondið en kannski ekki mikið vandamál hér á landi, og umfram allt ekki í of miklum hita, sem er heldur ekki vandamál um þessar mundir.

    Ég hef það fyrir reglu að hengja vöðlurnar mínar upp á herðatré um leið og heim er komið, ásamt jökkum og vestum og eins og sést þá er dregið vandlega fyrir gluggann þannig að ekkert óþarfa sólarljós kemst að þeim.

    Þrátt fyrir að ég hef rekist á einhverjar greinar þar sem minnst er á að þvo vöðlurnar í þvottavél, þá hef ég aldrei gert það, jafnvel þótt einhver undrameðöl séu til sem hægt er að úða á þær til að ná þeim vatnsþéttum eftir þvott. Ég bara trúi ekki á þau undrameðul sem eiga að ná því að endurnýja upprunalega vörn efnisins eftir duglegan rúnt í þvottavélinni. Ég hef látið mér nægja að þurrka af þeim með rökum klút eða svampi ef mér er farið að ofbjóða útgangurinn.

    Hér áður fyrr var ég einlægur aðdáandi neoprene og brúkaði aðeins slíkar vöðlur. Eftir mjög hressilegt svitakast og endalaus vandræði með stígvélin á þeim, þá gafst ég upp og keypti mér betri ullarbrækur og skipti yfir í öndunarvöðlur. Óneitanlega litu þær út fyrir að vera þjálli og meðfærilegri, en ég gerði stór mistök í mínum fyrstu kaupum og þá meina ég stærðar mistök. Ég keypti þær í það minnsta tveimur númerum of stórar, var eitthvað hræddur um að ég kæmist ekki í þær verandi í þykkum ullarsokkum. Þær vöðlur tóku upp á því að leka á mettíma, einfaldlega vegna þess að þær krumpuðust í klofinu, á lærunum og langt niður eftir leggjunum. Krumpur í öndunarvöðlum eru ávísun á leka, bæði í efni og saumum. Eftir þessa bitru reynslu hef ég reynt að passa upp á það að kaupa vöðlur sem hæfa vexti og rúmmáli þess kropps sem í þær eiga að fara.

    Eins og upphaf greinarinnar ber með sér, þá á ég samt sem áður lekar vöðlur, en þá kemur að viðgerðum, eða þá helst hvar viðgerðar er þörf. Meira um það síðar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • 4. ára afmæli

    3. júní 2019
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Í dag á þetta litla og netta kríli mitt 4. ára afmæli. Ekki hefði mig grunað fyrir fjórum árum síðan að þetta skilgetna afkvæmi veiðidellunnar minnar næði því að lifa jafn góðu lífi og það hefur gert.

    Enn þann dag í dag selst hún og það gleður mitt litla hjarta jafn mikið þegar ég sé hana í betri bókaverslunum og það sem meira er, hún er ekki rykfallin í hillunum.

    Til þeirra sem gluggað hafa í bókina og eiga hana jafnvel; Takk fyrir samfylgdina í þessi fjögur ár.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Örklippa úr Hlíðarvatni í Hnappadal

    31. maí 2019
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Fyrsta ferð okkar veiðifélaganna í Hlíðarvatn í Hnappadal þetta árið. Klassísk vindátt, klassískur vindstyrkur og klassískur afli. Viðvörun: Í lok klippunnar sjást dauðir fiskar, viðkvæmum er bent á að slökkva fyrir mín. 1:38

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Byrjendur eða lengra komnir?

    30. maí 2019
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Þegar ég skrifa þetta þá þykist ég heyra viðbrögð eins félaga míns sem lætur mig heyra það reglulega; Hvernig er það, veistu bara ekki neitt?  Við sumu er einfaldlega ekki hægt að finna eitthvað eitt svar og þessi spurning er einmitt slík. Ég er einn þeirra sem nota fjölda flugna sem hreina og klára afsökun, fyrir öllu. Ég er með allt of margar tegundir flugna í boxinu, en á sama tíma með allt of fáar stærðir og þyngdir. Þannig get ég borið því við að votflugan mín var heldur of stór eða lítil, eftir því sem hentar. Púpan var heldur lítil og létt og náði því ekki til fisksins á botninum. Þurrflugan var allt of stór sem er yfirleitt raunin vegna þess að ég sé ekki þessi litlu kríli.

    Það eru til þeir veiðimenn sem eru aðeins með fjórar til fimm tegundir flugna í boxinu, samt er boxið fullt af flugum. Þeir hafa fundið sínar flugur og veiða aðeins á þær og ekkert annað. Kannski er það máttur netsins sem hefur orðið til þess að þessir veiðimenn eru mjög áberandi á ákveðnum vefjum og spjallsíðum. Ef maður er svo heppinn að fá að gjóa augunum yfir boxin þeirra, þá er ekki óalgengt að sjá ákveðið munstur.

    Brúnar flugur af ættstofni Pheasant Tail eru nokkuð áberandi í stærðum frá agnarsmáu upp í það sem einhver kann að telja að jaðri við straumflugu. Flestar þeirra eru án sjáanlegs kúluhauss, en þyngdar engu að síður. Annað hvort með kúluna undir thoraxinum eða tungsten á búk. Raunar getur þessi röð einnig samanstaðið af hérum í öllum mögulegum útgáfum. Hérahár verður nefnilega meira brúnt en drapplitað þegar það blotnar.

    Svo eru það þessar svörtu. Þarna getur allt mögulegt gerst. Sumir veðja alltaf á Hatara, þ.e. flugur úr svörtum vinyl og gildir þá einu hvort þeir setja skott, skottlok eða kraga á kvikindið. Þekktar flugur eru BAB, Krókurinn og Alma Rún. Þeir sem hafa ekki ánetjast leðri eða pleðri halda sig við hefðbundið efni og einn sem ég þekki er aðallega með Burton í svarta liðinu.

    Glepjur manna eru misjafnlega glysgjarnar. Ein af skemmtilegri glamúr röðum sem ég hef séð samanstóð eingöngu úr Royal Coachman í öllum þeim mögulegu og ómögulegu útfærslum sem hnýtaranum datt í hug að sjóða saman. Allt frá sérstaklega skemmtilegum mjónum upp í feitar og pattaralegar flugur sem sóru sig í Zulu ættbálkinn. Svo geta menn haldið sig á hefðbundnari nótum og hnýtt Watson‘s Fancy púpur með og án kúluhauss, kraga eða ekki, mjóar, feitar og ofur stórar útgáfur sem líkjast Killer meira en honum Watson karlinum.

    Fjórða, og síðasta röðin sem ég ætla að nefna, er hlaðin fulltrúum málma úr lotukerfinu. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna koparflugur eru jafn vinsælar hjá silunginum eins og raun ber vitni. Þessar flugur er hægt að hnýta úr öllum mögulegum afgöngum uppgefinna jólasería. Úr rauðum kopar, brúnum, grænum og gulum. Einu mega menn þó ekki gleyma, ef þessar flugur eiga að halda gula litnum, þá er eins gott að blanda sinki við koparinn og notast við brass. Það fellur síður á brass heldur en hreinan kopar. Þekktar flugur í þessari röð eru Koparmoli, Brassie og þeir félagar Copper John og Prince Nymph. Þær síðar nefndu geta reyndar allt eins átt heima í glepjuröðinni.

    Er þetta byrjendaboxið eða fyrir lengra komna? Ég hef lúmskan grun um að byrjendaboxið gæti litið svona út, svo kemur þetta tímabil þar sem maður lætur glepjast af öllu mögulegu og yfirfyllir boxin. Ég er staddur þar, en þegar þroskinn færist yfir fækkar bæði flugum og boxum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 88 89 90 91 92 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar