Á YouTube má finna ágæta stubba úr myndbandinu Casts that Catch Fish frá On the Fly. Þetta eru stuttar klippur um algengustu mistökin í fluguköstum og hvernig má ráða bót á þeim, ekki ólíkt þeim molum sem ég hef verið að setja hér á bloggið. Því miður má ég ekki birta klippurnar hérna á síðunni, en ég hvet menn til að skoða þær á YouTube með því að smella hér.
-
Casts that Catch Fish
Höfundur:
-
Að losa stöng í sundur
Oftar en ekki hefur maður þurft að eyða drjúgum tíma í að losa veiðistöngina í sundur í lok veiðiferðar. Einfallt ráð, sem ég hef ekki hugmynd um hvers vegna virkar, er að taka hana í sundur fyrir aftan bak. Prófaðu bara næst þegar hún lætur eins og skrúfuð saman.Höfundur:
-
Double haul – Tvítog
Rétt tvítog getur hjálpað þér að ná lengri köstum. Eins er gott að hafa það í huga að með tvítogi þrengist kasthjólið og það verður því fyrir minni áhrifum vinds en ella, eitthvað sem kemur sér oft vel á Íslandi.
1 – Þegar þú hefur tekið línuna upp og ert lagður af stað í bakkastið, togaðu ákveðið í hana þannig að stöngin hlaði sig enn meira en aðeins fyrir áhrif línunnar í vatninu.
2 – Þegar bakkastinu er við það að ljúka, leyfir þú línunni að renna eins langt aftur og hleðsla stangarinnar leyfir. Gættu þess aðeins að sleppa ekki of mikilli línu út í bakkastið þannig að hún kuðlist ekki niður fyrir aftan þig. Þegar línan hefur rétt fyllilega úr sér, hefur þú framkastið …..
3 – Á sama máta og þú hófst bakkastið, togar þú ákveðið í línuna í upphafi framkastsins þannig að stöngin hlaðist enn og aftur.
4 – Þegar stöngin nálgast stoppið kl. 11, sleppir þú línunni (leyfir henni að renna lausri í hendi) þannið að það lengist í kastinu.Tímasetningin í tvítogi skiptir miklu máli og mörgum hefur reynst erfitt að samhæfa hreyfingar línu- og stangarhandar þannig að krafturinn nýtist til fullnustu, en í þessu eins og flestu öðru þá gildi að æfa, æfa, æfa ……..
Höfundur:
-
False Cast – Falskast
Þegar skipta skal um stefnu kasts og/eða lengja í því er ágætt að kunna skil á falskasti. Fyrir þá sem veiða á þurrflugu er nauðsynlegt að kunna falskast til að þurrka fluguna á milli þess að hún er lögð út.
1 – Byrjaðu eins og í venjulegu yfirhandarkasti (1, 2 og 3 í Yfirhandarkast).
2 – Þegar línan hefur rétt úr sér í bakkastinu, hefur þú venjulegt framkast. Ef þú vilt lengja í kastinu, skammtarðu aðeins meiri línu út með því að láta hana renna fram úr línuhendinni.Ef þú vilt forðast að auka-línan sem þú ætlar í framkastið liggi í vatninu og sé því þyngri en sú sem leikur í lausu lofti, prófaðu að taka aðeins meira út af hjólinu og smeygja lykkjunni upp í þig (klemma hana á milli varanna). Ég sá Mel Krieger gera þetta í nokkrum veiðiklippum og prófaði sjálfur, hrein snilld, mun léttari lína í framkasti.
3 – Hefðbundið framkast, með ákveðnu stoppi kl. 11, en í stað þess að leggja stöngina niður þegar lína hefur rétt úr sér, ferðu beint í bakkastið aftur (1). Þegar stönginn hefur náð efstu stöðu getur þú skammtað aðeins meiri línu út, alveg eins og í framkastinu.Endurtakið falskastið eins oft og þurfa þykir til að finna rétta staðsetningu fyrir fluguna eða til að lengja í kastinu. Mundu aðeins að því lengur sem flugan er í loftinu er fiskurinn öruggur og hann getur meira að segja grætt á ógætilegum falsköstum og forðað sér. Stilltu falsköstum í hóf.
Höfundur:
-
Overhead – Yfirhandarkast
Yfirhandarkastið er notað til að lyfta línunni upp af vatnsfletinum og staðsetja hana að nýju, með eða án lengingar í línunni.
1 Snúðu beint að flugunni eða þeim stað sem þú vilt að hún lendi á. Gættu þess að taka allan slaka ef línunni áður en þú byrjar að reisa stöngina. Að öðrum kosti er viðbúið að stöngin hlaðist ekki og kastið misheppnist.
2 Reistu stöngina með ákveðinni, vaxandi hreyfingu beint upp. Þetta losar fluguna upp af vatnsborðinu og gerir stöngina tilbúna í hröðun….
3 Auktu hraðan með vaxandi átaki. Þessi hreyfing mun hlaða stöngina krafti og gera þér kleift að láta línuna rétta úr sér fyrir aftan þig, í bakkastinu.
4 Stöðvaðu stöngina ákveðið að baki þér, ekki síðar en c.a. kl.1. Ákveðnara og hærra stopp í bakkasti myndar þrengra og fallegra kasthjól.
5 Haltu stönginni í fasti stöðu þar til þú finnur að línan hefur rétt úr sér. Létt átak línunnar gefur þér til kynna að nú sé lag að hefja framkastið með jöfnu, stigvaxtandi átaki fram til kl.11 þar sem þú stöðvar hana ákveðið….
6 Þegar línan hefur rétt úr sér í framkastinu, lækkar þú stöngina og fylgir henni og flugunni eftir niður á vatnsborðið.Höfundur:
-
Púpur og niðurtalning
Þegar púpurnar fara á kreik í vatninu er um að gera að taka vel eftir hegðun þeirra, litbrigðum og því hvar í vatnsbolnum þær halda sig. Svo má prófa sig áfram með veiðiaðferð.
Niðurtalning Þessi aðferð við að skanna dýpið sem veitt er á getur komið sér mjög vel þegar veitt er með púpum. Hún fellst einfaldlega í því að velja sér ákveðna tölu til að byrja með og telja rólega upp að henni þegar línan hefur lagst á vatnið. Þegar tölunni hefur verið náð byrjar maður inndráttinn eins og maður telur hæfa (hægt, miðlungs, hratt, stutt, miðlungs, langt). Í næsta kasti hækkar maður töluna um einn þannig að flugan sekkur eilítið dýpra og síðan endurtekur maður þetta í hverju kasti. Með þessu næst markviss skönnun á dýpinu eða allt þar til maður finnur fyrir botninum. Aðal trikkið er síðan að muna töluna sem maður var komin upp í þegar fiskurinn beit á.Höfundur:

