Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Að veiða særða flugu

    24. apríl 2012
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Smelltu fyrir stærri mynd

    Að veiða særða flugu hefur trúlega tíðkast frá upphafi fluguveiða. Fyrir tækifærissinna eins og silunginn er særð bráð, síli eða seiði mun auðveldari bráð heldur en fullfrísk og þessu höfum við mennirnir komist að og reynum að líkja eftir. Aðferðin er ekki ýkja flókinn; koma flugunni, sem oft á tíðum er straumfluga, fram fyrir silunginn og draga hana inn með hléum þannig að hún falli (sökkvi) með reglulegu millibili eins og uppgefinn eða særður fiskur. Hvort menn dragi einu sinni eða tvisvar snöggt á milli hléa er auðvitað mismunandi, hver veiðimaður hefur sitt lagið á þessu. Galdurinn er einfaldlega að fá fiskinn til að eltast við særðu fluguna í stað ætisins sem syndir af fullum krafti undan honum. Silungurinn er þekktur í vatninu sem rándýr og ætið, næstum sama hvað það er, forðar sér þegar hann nálgast. Sumir veiðimenn ganga svo langt, helst í straumvatni, að láta bráðina leika sig alveg steindauða, hreyfa hana ekki neitt heldur láta strauminn um að bera hana inn á lygnur eða í bolla í vatninu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Kleifarvatn, 22.apríl

    22. apríl 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Og enn bætum við hjónin við í ‘núll’ ferðir okkar þetta vorið. Brugðum okkur í Kleifarvatnið og ætluðum nú aldeilis að láta reyna á hina marg rómuðu kvöldveiði. Vorum mætt upp úr kl.20 við syðrihluta vatnsins þar sem tveir veiðimenn höfðu barið það í nokkurn tíma en ekkert fengið. Þrátt fyrir nokkurn vind létum við okkur hafa það að særa út flugur af hinum ýmsustu gerðum allt fram í myrkur án þess að verða vör við einn einasta fisk. Annars gekk vindurinn niður og brast á með hinu fallegasta veiðiveðri og það greip um sig þessi yndislega tilfinning að fátt er betra en standa á vatnsbakka í blíðunni og velja spekingslega upp úr boxunum. Ágæt sárabót í ‘núllinu’.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     – – 2 1  7 5

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn, 21.apríl

    21. apríl 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Tókum á okkur smá krók á heimleiðinni og bleyttum færi í Meðalfellsvatninu. Voru seint, en ekki nógu seint á ferðinni til að ná í kvöldveiðina og stoppið var stutt. Ekki margir veiðimenn á stjái, sáum til einhverra þriggja sem voru á förum. Höfðum engar fréttir af veiði, og stoppuðum sjálf frekar stutt.

    Eitt vorum við hjónin þó sammála um; Vífilsstaðavatn er kaldast af þeim vötnum sem við höfum farið í þetta vorið sem er einkennilegt því það stendur alls ekki hæst þeirra. Miðað við útrennsli, en það er mest í Vífó miðað við stærð, þá gæti það verið skýringin á þessum kulda. Vatnið sem streymir inn í það kælir væntanlega mest. Meðalfellsvatnið hefur vinninginn í þroska, þar eru felstar flugurnar komnar á stjá og eitthvað segir mér að gróðurinn sé komin lengst.

    Já, eins og ég sagði í fyrri grein í dag, þá er þetta frekar snautlegt, aðeins tveir fiskar í sex ferðum, en það var gott að komast aftur í veiðina.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     – – 2 1  6  4

    Ummæli

    22.apríl 2012 – Gústaf Ingvi: Er að lenda í svipuðu og þið hjónin, er búinn að núlla nokkrum sinnum við vötn sem maður var vanur að fá fiska á þessum árstíma. En að góðu fréttunum þá er maður búinn að ná af sér hrollnum og er til búinn fyrir steinsmýrina í næstu viku.

    22.apríl 2012 – Svar: Takk fyrir þetta, hughreystandi að heyra. Var farinn að halda að við værum algjörlega búin að missa taktinn. Ég datt auðvitað í grúskið og bar saman hitatölur frá því í fyrra og hitteðfyrra og fann stóran mun: Þegar hitastigið náði loksins þetta 3-8 °C að deginum í fyrra (voraði seint og illa) var nánast ekkert næturfrost. Sömu sögu má segja um 2010, en þá voraði um svipað leiti og í ár. Núna (2012) er aftur á móti búið að vera stöðugt næturfrost alveg frá því í byrjun apríl. Ætli fiskurinn fari sér bara ekki hægar þegar sveiflurnar eru svona miklar á milli dags og nætur.

    23.04.2012 – Árni Jónsson: Ekki ertu einn í þessu, né tvö, því almennt er ansi dræm veiði á syðri endanum samkvæmt öllum sem að ég hef rætt við. Sjálfur er ég búinn að reyna Vatnamót, Varmá, Víkurflóð, Vífó & Meðalfellsvatn og allur aflinn telur 1 saklausa bleikju, sem að fékk líf. Fisk hef ég þó séð í Víkurflóði & Grímsstaðarlæk, en ekki í neinu magni. Ég bíð ólmur eftir því að uppáhaldið mitt Þingvellir opni, enda farinn að vopnbúast bókstaflega!

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Einkavatn, 21.apríl

    21. apríl 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Fyrsta ferð vorsins enda vatnið alveg nýkomið undan ís. Ennþá smá íshröngl við útfallið og ekkert líf að sjá. Gátum samt ekki stillt okkur um að bregða nokkrum flugum á taum en útkoman varð heldur snautleg, enginn fiskur. Nú er heldur farið að halla á veiðimennskuna, höfum núllað í þremur af fimm ferðum.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     – – 2 1  5  3

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Að skauta

    21. apríl 2012
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Smellið fyrir stærri mynd

    Nú er allur ís loksins farinn af vötnunum og við veiðimennirnir getum farið að skauta, eða öllu heldur látið flugurnar okkar skauta á vatninu. Þessi veiðitækni með þurrflugu hefur einhverra hluta vegna verið mest orðuð við straumvatn; þ.e. láta strauminn toga léttilega í fluguna þannig að hún skilji eftir sig röst í yfirborðinu og veki þannig áhuga fisksins. En þessa aðferð má alveg eins nota á kyrru yfirborði stöðuvatnsins. Tæknin sem beitt er við þetta er að koma þurrflugunni út og enda kastið með stöngina í lægstu mögulegu stöðu; alveg við vatnsborðið. Enginn slaki má vera á línunni og flugan verður að sitja hátt. Við tryggjum línuna, þ.e við höldum við hana með stangarhendinni því við ætlum ekki að draga hana inn heldur lyfta stönginni hægt en ákveðið upp í efstu stöðu. Trikkið við þessa aðferð er að lyfta stönginni hvorki of hægt né of hratt, flugan á að skauta á yfirborðinu og skilja eftir sig áberandi röst, ekki takast á loft. Ef vel tekst til, þá eru fáir fiskar sem standast flugun sem myndar röstina.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vífó, 20.apríl

    20. apríl 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Ósköp lítið um þessa ferð að segja, vatnið ennþá mjög kalt og afkaplega lítið líf komið af stað. Vorum sunnan megin í vatninu, tókum bakkann frá útfalli og næstum inn að læk í nokkrum áföngum. Heldur bjart yfir og tók fljótlega að anda köldu að vestan þannig að veiðimenn stoppuðu stutt.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     – – 2 1  4  2

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 59 60 61 62 63 … 87
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 180 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar