Austlæg átt, þokkaleg bjart yfir og hitinn þetta á bilinu 6-7°C, næstum alveg eins og spáin hafði sagt fyrir um. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hve margir veiðimenn tóku fyrri vaktina við vatnið þennan fyrsta dag í vertíð. Vatnið nánast íslaust, aðeins ís á víkinni undan Hjarðarholti, annars autt. Við hjónakornin potuðum okkur austast í röðina undan Meðalfelli, rétt við fyrsta bústaðinn á norðurbakkanum. Lítið varð maður nú var við fisk (ekkert) en það skemmdi nú ekki fyrir okkur ánægjuna að vera loksins komin með stöngina í hönd og fluguboxið í vasann. Ekki var að sjá að aðrir væru mikið meira að taka fisk, en okkur tókst ekki að ná tali af mönnum því rétt upp úr hádeginu hurfu nánast allir af staðnum. Væntanlega búnir að fá nóg af engu. Það er bara að vona að seinni vaktinn verði lukkulegri.
Meðalfellsvatn 1.apríl 2013
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 0
0 / 0
0 / 0
0 / 0
1
Ummæli
02.04.2013 – Eiður Kristjánsson: Núllaði líka, fór í Vífó eins og svo margir aðrir Ertu búinn að sjá þessa síðu? http://www.danica.com/flytier/ Þarna er ógrynni af flottum flugum og endalaust af hugmyndum.
Svar: Já, þessi er alltaf ofarlega á listanum hjá manni, hreinn snillingur hann Hans Weilenmann og svo eigum við líka okkar fulltrúa þarna inni, Viðar Egilsson í Litlu flugunni / Gallerí flugur
Með þessari grein lýkur í raun yfirferð minni yfir nokkrar af þeim flugum sem ég hnýtti í vetur. Það er ekki seinna vænna því ekki á morgun, heldur hinn, hefst tímabilið formlega og eflaust láta einhverjir sig hafa það, hvernig sem viðrar, að heimsækja einhver veiðistað og reyna fyrir sér í vorinu.
Síðasta flugan af bekknum er auðvitað Pheasant Tail. Höfundur flugunnar, Frank Sawyer lagði mikla vinnu í og prófaði sig lengi áfram með ýmsar útfærslur af henni áður en hann var sáttur. Gaumgæfilegar athuganir hans á lífríki árinnar Avon leiddu smátt og smátt af sér þessa ódauðlegu flugu sem vel flestir veiðimenn þekkja. Einfaldleika hennar verður best lýst með efnisvalinu; öngull, koparvír og fasanafjaðrir. Fæstir hnýta hana eins einfalda í dag og Sawyer gerði á sínum tíma. Flestir bæta í það minnsta hnýtingarþræðinum við, ef ekki, þá í það minnsta tonnataki til að tryggja hausinn.
Ég nota þráð og ég nota e.t.v. meiri og grófari koparvír heldur en mörgum þykir við hæfi. Í vængstæðið er ég líka óhræddur við að nota brúnleitt dub úr íslensku fjallalambi. Eflaust þykir einhverju svo mikið út frá upprunalegu uppskriftinni bera að nefna ætti kvikindið eitthvað annað en Pheasant Tail, en….. Nei, ég nefni hana Pheasant Tail, punktur og basta. Já, og stærðirnar mínar eru legglangur #12 og #14 og stuttur #12, #14 og #16.
Pheasant Tail
En fyrir hreintrúarmenn, þá er hér smá klippa þar sem Oliver Edwards sýnir hvernig Frank hnýtti fluguna upprunalega.
Fyrir utan aulaskapinn í okkur sjálfum, léleg köst og niðurslátt í bakkastinu er ýmislegt sem getur skemmt flugulínuna okkar. Eitt það algengasta eru efnasambönd sem við notum í ‚góðri trú‘ til að þrífa línuna og láta hana renna betur. Alþekkt er svokölluð fóbía fluguveiðimanna gegn WD40 smurefninu, ekki flugunni. Sumir ganga svo langt að veiða ekki í vötnum þar sem orð hefur farið af beituveiði sem spreyjuð hefur verið þessu undraefni. E.t.v. er þessi fóbía ekki svo vitlaus. WD40 inniheldur jarðolíur sem þurrka plastefni þannig að efnatengi plastmólíkúla rofnar, sprungur myndast.
Nútíma flugulínur eru framleiddar úr plastefnum; Polyvinylclorid (PVC), Polyurethan (PU), Polyetheline (PE / PET) eða Vinyl. Öll eiga þessi plastefni það sameiginlegt að þola illa jarðolíur og efni unnin úr henni, misjafnlega þó. Sum þessara efna eru jafnframt viðkvæm fyrir sýrum. Það sem hefur síðan ruglað marga er skammstöfunarblæti framleiðenda þar sem þeir fela viðkomandi plastefni í nýrri skammstöfun og láta líta út fyrir að eitthvað nýtt og stórkostlegt efni sé á ferðinni en yfirleitt eru öll plastefni runnin undan rifjum ofangreindra efna.
Allt plastefni er viðkvæmt fyrir útfjólubláum geislum sólar. En þetta þýðir ekki að við eigum að bera sólavörn á flugulínuna. Þvert á móti, sólarvörn hefur þveröfug áhrif á plast m.v. húð og flýtir aðeins fyrir því að það brotnar niður. Hiti flýtir öllu þessu ferli og því rétt að forða línunni frá beinu sólarljósi og hita inni í bíl eða stangarhaldara á húddinu. Geymdu stöngina í skugga á milli holla.
Hér áður fyrr notuðu menn vax á flugulínurnar en það á alls ekki við lengur. Vax var aðeins notað á flugulínur úr silki til að auka flothæfni þeirra. En hvað á maður að nota á flugulínuna í dag? Ef þú vilt á annað borð nota hreinsivörur á flugulínuna, veldu þér þá eitthvað sem þú mundir þora að nota á andlitið á barninu þínu, ekkert annað. Volgt vatn og mild sápa. Áður en þú berð síðan eitthvað á línuna, athugaðu gaumgæfilega hvort það hæfi plasti og þá aðeins vörur til þess gerðar frá framleiðanda viðkomandi línu. Það sem hæfir einni línu getur skaðað aðra. Ef þú vilt endilega ‚spara‘ nokkrar krónur, horfðu þá til silíkonefna. Ekki trúa neinum fullyrðingum um að viðkomandi efni ‚næri‘ plastefnið. Slíkt efni er einfaldlega ekki til, plastefni taka ekki upp næringu. Aftur á móti eru til þau efni sem mynda húð sem verndar plast. Ókosturinn er bara sá að flest þessara efna hverfa næstum á skemmri tíma heldur en það tekur að bera þau á línuna, sérstaklega þau sem eru vatnsleysanleg.
Nokkur húsmæðraráð hafa skotið upp kollinum í gegnum tíðina. Án þess að dæma efnin eða þá sem nota þau á línurnar sínar, langar mig að benda á eftirfarandi:
Armor All er vatnsleysanlegt og inniheldur fjölda efna sem vinna á PVC. Ætli maður treysti bara ekki orðum Simon Gawesworth, hönnuðar Rio ‚Never, ever use Armorall on a PVC fly line. It breaks down the bond and results in very poor durability. The line will dry out and harden with constant use of Armorall.‘
Rain-X inniheldur ísóprópanól og acetone sem vinna beint á plastefnum t.d. Urethan (PU), polystyrene og PVC. Þetta er því trúlega það efni sem getur lagt flugulínuna að velli bæði að utan og innan. PVC er notað í huluna, PU og polystyrene er notað til að auka flothæfni hennar. Hér er því hægt að slá tvær flugur í einu höggi; eyða hulunni og útbúa sökklínu úr fínu flotlínunni.
Edik er sýra og þar með ætti ekki þurfa að segja neitt meira. Þeir veiðimenn sem mælt hafa með því að bera edik á flugulínur eru í flestum tilfellum að losa sig við útfellingar sem koma til við veiðar í kalkríku vatni. Eitthvað sem við þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af hér heima, nema menn séu að veiða í affalli jarðvarmavirkjana. Humm, Nesjavellir?
Sonax mælaborðshreinsir hentar að vísu á vinyl og inniheldur mjög lágt hlutfall jarðefna, en er vatnsleysanlegt efni og endist því skammt. Kannski skársti kosturinn ef þú átt lélega línu sem þú vilt hleypa lífi í skamma stund.
Og svona til að hnýta endahnútinn á þetta, þá eru hér nokkur efni og áhrif þeirra á plast. Ef þú finnur einhver þessara efna í hreinsivörum eða undraefni, láttu það þá einfaldlega vera.
Acetone: eyðir PVC, urethan, neophren, polystyren – Ethanole: leysir upp bindiefni í fiber – Tetrahydrofuran: eyðir PVC – Ethylene dichloride: eyðir Teflon – Methyl chloride: eyðir Teflon (mikið notað í stangir) – Methyl ethyl ketone: eyðir Teflon – Methanol: eyðir urethan, neophren, polystyren – Hexafluoroisopropanol: eyðir PET (kókflöskuplastið) sem er mikið notað í flugustangir – Trifluoroacetic: eyðir PET
Héraeyrað hefur fylgt fluguveiðimönnum frá örófi alda liggur mér við að segja. Mér hefur flugan fylgt alveg frá því ég eignaðist fyrstu hnýtingargræjurnar. Fyrst var hún bústin, síðar enn bústnari en hin síðari ár hefur hún gengið í gegnum nokkuð alvarlegan niðurskurð og á sama tíma hef ég fært mig frá tinsel vöfum og flash-back útgáfum í mjóslegna flugu með nokkuð áberandi koparvír. Svo hef ég látið það eftir mér að framkvæma þau helgispjöll að nota hár úr íkorna í skottið á henni.
Fátt er vitað um höfund flugunnar, margir verið nefndir en fáir tilnefndir fyrir alvöru. Hvað um það, þessi fluga er önnur vinsælasta fluga silungsveiðimanna á heimsvísu, hvort sem hún er nú veidd ein og sé í löngum taumi eða í félagi við aðrar sem afleggjari (dropper). Í mínu boxi er hún í stærðum #12, #14 og #16 með haus úr Rusty Brown hnýtingarþræði, sem eru náttúrulega bara tiktúrur í mér, ekki of brúnt og ekki of rautt. Uppskrift og alveg stórfína klippu má finna hér.
Í gegnum tíðina hef ég alltaf átt Watson’s Fancy púpu með silfurvafi og silfurkúlu í boxinu. Einstaka sinnum hefur síðan gyðla í stíl slæðst í boxið og svo berrassaður grubber sem hefur fengið að halda viðurnefninu Watson’s þó hann ætti e.t.v. frekar að vera kenndur við orm, blóðorm. Hvað um það, í minningunni er Watson’s Fancy púpan eina flugan með silfruðum kúluhaus sem hefur krækt í bleikju fyrir mig. Trúlega er þetta bara eitthvert bull í mér, en ég verð eiginlega að eiga nokkur svona kvikindi, annars finnst mér eitthvað vanta í boxið. Kannski er það vegna þess að ég hef ekki alveg fundið mig með Killer, frekar veðjað á þessa klassísku rauðu og svörtu púpu sem flestir silungsveiðimenn kannast við. Stærðirnar; smærri frekar en stærri, #12, #14 og #16.
Síðari hluta vetrar fóru nokkrir spjallverjar mikinn og lýstu því hvernig best væri að þrífa flugulínuna sína fyrir vertíðina. Eins og gengur komu margar og misjafnar aðferðir fram í dagsljósið. Töfralausnir eins og að bera hinar og þessar tegundir af bílavörum á línuna voru áberandi; Rain-X, Ultra Gloss, bílabón og Armor All. Í guðanna bænum, farið nú varlega eins og einn spjallverji benti á.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þessi umræða um það að menn eru að sækjast eftir hreinni línu / línu sem rennur vel. Ef línan þín hefur aldrei runnið auðveldlega þá er alveg sama hvað þú berð á hana, rennslið lagast ekki nema í skamma stund. Núningur línunnar við sig sjálfa á hjólinu og í gegnum stangarlykkjurnar er afskaplega fljótur að hreinsa undraefnið af henni.
Þegar litið er framhjá undraefnunum þá er það hrein lína sem rennur best og það eru ekki stóru skítaklessurnar sem eru leiðinlegastar heldur fasti fíngerði skíturinn. Fjárfesting í góðri flugulínu í upphafi ásamt míkróklút / gleraugnaklút borgar sig einna helst ef þú leitar að góðu rennsli. Ef þú ert duglegur veiðimaður og veiðir klukkustundum saman, láttu það eftir línunni að draga hana annars slagið inn í gegnum gleraugnaklútinn, jafnvel þótt þú sjáir engin óhreinindi á henni.
Ummæli
15.03.2013 – Urriði: Var einmitt að þrífa allar línur, hjól og stangir í gærkvöldi… núna er ekkert eftir nema að bíða eftir vorinu!
Svar: Vorið er barasta komið hér fyrir sunnan og svo hefur sést til lóu í grennd. Verst að vötnin eru ekki opin í ‘grennd’ en þetta fer nú að styttast.
16.03.2013 – Urriði: Allt undir ís hérna, -7°C og snjókoma…. ekkert vor á næstunni sýnist mér.
Svar: Frúin mín hafði á orði að þú ættir nú svo fallega á að sumri að það væri vel þess virði að bíða eftir vorinu, verð bara að vera sammála henni.
16.03.2013 – Þórunn: Sagði nú reyndar líka og á undan að ég vorkenndi honum ekkert! Spurning um að hnýta nokkrar flugur í þessu veðrið, hvort sem menn vantar eða ekki Bestu kveðjur austur.
17.03.2013 – Urriði: Haha ég tek bara aukavaktir í staðinn fyrir að hnýta flugur, sagði upp vinnunni og hætti að vinna í lok maí til að geta leikið mér í sumar! Ég gæti ekki vorkennt sjálfum mér þó ég reyndi það
19.03.2013 – Þórunn: Langar svo að segja hérna….æji sjarap
Kristján: Auðvitað nýt ég þess að þetta er bloggið mitt og ég get alltaf sleppt því að samþykkja ummæli sem geta orkað tvímælis, ólíkt mörgum spjallvefjum þar sem innlegg eru ekki ritskoðuð 🙂 Ég sleppi þessu síðasta kommenti inn því ég sá öfundina í svip konunnar við þetta síðasta innlegg frá þér, Urriði, hreint óborganlegur svipur.