FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Elliðavatn 25.apríl

    25. apríl 2013
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Í einhvern tíma hefði maður nú örugglega vorkennt skátunum að leiða skrúðgönguna um bæinn á sumardaginn fyrsta í norðan garra og hraglanda. Þeir voru jú ekki í vöðlum eins og veiðimennirnir við Elliðavatn í dag, opnunardaginn. Eftir að hafa beðið fram yfir hádegið eftir því að súlan stigi aðeins í hitamælinum, drifum við okkur bara í vöðlurnar hérna heima (þetta er nú bara skottúr að heiman) og renndum upp að Elliðavatni. Alveg þokkalegur reytingur af veiðimönnum var vítt og breytt við vatnið, sumir lengst úti eins og gengur, en aðrir nokkuð fastir við bakkann.

    Sökum nokkurs strekkings ákváðum við að rölta inn með vatninu vestan brúar, svolítið í skjóli fyrir verstu kviðunum. Við þóttumst nú ekki vera svo innarlega að ekki væri fiskjar von en urðum ekki vör þannig að við ákváðum að prófa fyrir okkur við Helluvatn að norðan. Þótt veðrið væri ekki upp á marga fiska var alveg prýðilegt að koma sér fyrir á þessum slóðum. Einn og einn veiðimaður reyndi fyrir sér við vatnið, stoppuðu stutt nema þá einna helst þeir sem höfðu komið sér fyrir við Kerið þar sem Suðurá rennur í vatnið. Ég er ekki frá því að þeir hafi tekið einhvern fisk sem er miklu meira en hægt er að segja um okkur hjónin. Þegar svo tók að ganga á með snjókomu, ákváðum við að nú væri komið nóg en vorum jafnframt sammála um að Elliða- og Helluvatn væru vötnin sem yrðu trúlega mest fyrir barðinu á okkur í sumar, svona sem virkra-daga-veiði-skreppir eftir vinnu.

    Helluvatn - Horft til Suðurár
    Helluvatn – Horft til Suðurár á sumardaginn fyrsta

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
     0 / 0 0 / 0 0 / 0 0 / 0 3

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn 21.apríl

    21. apríl 2013
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Það getur nú varla talist góð frammistaða að láta 20 daga líða á milli veiðiferða. En eins og menn hafa e.t.v. orðið varir við þá virðist sem vorinu hafði verið slegið á frest þessar fyrstu vikur apríl þangað til í dag. Það var einhver reitingur manna við Meðalfellsvatnið upp úr hádeginu í dag, flestir að mér sýndist á beitu eða spún, fyrir utan okkur hjónin. Þokkalegasta veður, létt austanátt með hita upp á þetta 5-6°C. Vatnshitinn var aftur á móti einni gráðu hærri, í það minnsta við suðurbakkann sem við komum heimsóttum í þetta skiptið. Greinilega nokkuð í land að kjörhita verði náð. Lauflétt yfirferð yfir helstu púpur og nokkrar straumflugur gerði nú samt enga lukku þannig að við fórum fisklaus heim, rétt eins og í fyrstu ferð sumarsins.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
     0 / 0 0 / 0 0 / 0 0 / 0 2

    Ummæli

    21.04.2013 – Nafnlaus: Þurfa menn ekki að leita sér lækninga við því að fara til frostfluguveiða? (ha ha )

    Svar: Jú, ætli það sé ekki nærtækast. En hefði maður slysast til að krækja í einn, þá hefði kæling aflans ekki verið vandamál 🙂 Annars var ég að spá í að hvort ekki væri hægt að fá svona hóp-meðferð því Svarti Zulu var greinilega á þessum slóðum rétt á eftir okkur eins og sjá má á blogginu hans hérna.

    23.04.2013 – Urriði: Og hvar eru myndirnar úr þessari ferð? Miðað við aflatölur þá ættirðu alveg að hafa haft tíma í að smella af nokkrum myndum ;-) Ef það er e-ð hægt að setja út á bloggið þá er það skortur á myndum úr þessum ferðum þínum (að mínu mati).
    Ég er reyndar rosalega mikið fyrir veiðimyndir og myndbönd eins og þú hefur líklega tekið eftir, kannski skiptir þetta minna máli fyrir aðra.

    Svar: Æ, þurftir þú nú að herma upp á mig eitthvað markmið fyrir þessa vertíð, þ.e. að taka fleiri myndir. Annars er ég alveg sammála þér, myndirnar segja oft meira en þúsund orð og það hefur verið nokkuð oft á ‘listanum’, ég skal hlaða rafhlöðurnar í vélinni og taka hana með mér næst 🙂

    Vel að merkja, ekkert smá flott nýja klippan hjá þér á Vimeo (sjá hér) það verður bara gaman þegar GoPro myndirnar fara að detta inn.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn 1.apríl

    1. apríl 2013
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Austlæg átt, þokkaleg bjart yfir og hitinn þetta á bilinu 6-7°C, næstum alveg eins og spáin hafði sagt fyrir um. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hve margir veiðimenn tóku fyrri vaktina við vatnið þennan fyrsta dag í vertíð. Vatnið nánast íslaust, aðeins ís á víkinni undan Hjarðarholti, annars autt. Við hjónakornin potuðum okkur austast í röðina undan Meðalfelli, rétt við fyrsta bústaðinn á norðurbakkanum. Lítið varð maður nú var við fisk (ekkert) en það skemmdi nú ekki fyrir okkur ánægjuna að vera loksins komin með stöngina í hönd og fluguboxið í vasann. Ekki var að sjá að aðrir væru mikið meira að taka fisk, en okkur tókst ekki að ná tali af mönnum því rétt upp úr hádeginu hurfu nánast allir af staðnum. Væntanlega búnir að fá nóg af engu. Það er bara að vona að seinni vaktinn verði lukkulegri.

    Meðalfellsvatn 1.apríl 2013
    Meðalfellsvatn 1.apríl 2013

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
     0 / 0 0 / 0 0 / 0 0 / 0 1

    Ummæli

    02.04.2013 – Eiður Kristjánsson: Núllaði líka, fór í Vífó eins og svo margir aðrir :) Ertu búinn að sjá þessa síðu? http://www.danica.com/flytier/ Þarna er ógrynni af flottum flugum og endalaust af hugmyndum.

    Svar: Já, þessi er alltaf ofarlega á listanum hjá manni, hreinn snillingur hann Hans Weilenmann og svo eigum við líka okkar fulltrúa þarna inni, Viðar Egilsson í Litlu flugunni / Gallerí flugur

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Einkavatn 30. september

    30. september 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Skítt með haustlitina, við fórum sko að veiða í dag. Þegar ekkert annað blasti við heldur en sófinn eða áfram haldandi tiltekt í bílskúrnum var valið ekki erfitt. Vatn sem við höfum lítið heimsótt í sumar varð fyrir valinu og ferðin sveik okkur ekki. Þokkalegasta veður, NNV4 og 7°C, skýjað. Lengi vel var útlit fyrir að frúnni tækist að saxa á forskot mitt í urriðum því fljótlega setti hún í þokkalegan hæng á Peacock og ekki löngu síðar enn einn á Black Ghost. Staðan var því orðin 30 / 33 og ég  varð ekki var. Ég rölti, veiðandi til baka að bílnum en fékk ekki eitt einasta nart. Trúlega sá frúin aumur á mér og stakk upp á að við færum í gagnstæða átt og reyndum fyrir okkur þar. Og viti menn, ég setti í mjög fína hryggnu í öðru kasti og bætti svo annarri við skömmu síðar.

    Hængarnir voru langt því frá farnir að dökkna, önnur hryggnan var ókynþroska en hin komin nokkuð nærri hrygningu, vel full hrognum sem nú eru í salti í ísskápnum. Flök í frysti og önnur komin í grafning.

    Falleg haustveiði

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     73 / 35 14 30 / 35 4 37 15

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Úlfljótsvatn 22. september

    22. september 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Meira að segja jafn orðvar maður og ég nú er (hóst, hóst) getur varla komið orðum öðruvísi að skreppitúr okkar hjóna upp að Úlfljótsvatni í dag heldur en með orðunum; Við runnum á rassgatið með þennan veiðitúr og þá er ég ekki að tala um óeiginlega merkingu. Fyrst rann frúin fram af bakkanum með töluverðu skvampi en varð ekki meint af og ekki gat ég verið minni maður og fann mér skemmtilega flata, hallandi og hála hellu til að skella óæðri endanum niður á og renna mér þannig út í vatnið á bak- og afturendanum. Það var ekki laust við að mér yrði hugsað til filtsólanna á gömlu vöðlunum mínum á meðan vatnið seytlaði inn í ermarnar hjá mér þar sem ég lá þarna flatur í vatninu.

    Og í sem skemmstum orðum, þá var þetta nú það helsta sem kom fyrir okkur í þessum veiðitúr. Ekki einn fiskur en fallegur haustdagur hefur verið greyptur í minni okkar og verður það fram að næsta vori, ef ekki lengur. Ekki nein vissa fyrir hendi um fleiri ferðir á þessu hausti eftir frábært veiðisumar. Hér eru sko engar barlómssögur um veiði undir meðallagi, vatnsskort eða þurrka. Sumarið búið að vera flott og við hjónin búin að prófa mörg ný vötn.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     73 / 35 14 28 / 33 4 36 15

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Langavatn, Borgarbyggð 8. september

    8. september 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Það var nú alls ekki ætlunin að renna fyrir fisk um þessa helgi, nóg annað á verkefnalistanum. En ýmislegt varð til þess að á fætur var ég komin fyrir allar aldir í morgun og það var eins og veðrið léki sér að því að kitla veiðibakteríuna í mér. Áður en ég yrði algjörlega óhæfur til allra verka, gafst ég upp og renndi upp með Langavatni að vestan. Smá gola, hálfskýjað og afskaplega fallegt veður, létt bára úr norðri.

    Á meðan ég sýndi tilburði til fluguveiði var mun fallegri veiðisýning í gangi í grennd við mig. Smyrill nokkur lék listir sínar í lofthernaði og ekki laust við að maður fylltist auðmýkt fyrir náttúrunni við að horfa á annan eins snilling á ferð. Samt sem áður varð ég fyrri til að ná bráð, þokkaleg bleikja stóðst ekki rauðan Nobbler og fór því heim með mér eftir þennan frábæra dag.

    Veiðifélagi minn í þessari ferð

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     73 / 35 14 28 / 33 4 35 14

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 40 41 42 43 44 … 56
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar