Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Þurrflugukastið

    18. nóvember 2012
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Létt og lipurt

    Númer eitt, númer tvö og númer þrjú; það er stutt. Vegna þess að veiðimaðurinn þarf að geta haft augun á flugunni má kastið auðvitað ekki vera lengra en svo að flugan hverfi bara ekki eitthvert út í buskann. Þú verður að halda augnsambandi við fluguna.

    Til að ná léttu og mjúku kasti þá er um að gera að nota léttar græjur, lína og stöng #3 er mjög gott og línur alveg upp í #7 sleppa ágætlega ef þær eru nógu mjúkar og falla létt. Auðvitað veiða menn þurrflugu aðeins með flotlínu og sleppa öllum skothausum og því um líku sem raskar yfirborði vatnsins óhjákvæmilega meira en hefðbundin flotlína.

    Létt og lipurt, stutt og hnitmiðað eru lykilatriðin í þurrfluguveiðinni og því ekki út vegi fyrir böðla eins og mig að æfa stuttu og markvissu köstin í vetur, vera klár næsta vor þegar fyrsta klakið á sér stað.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Litið um öxl

    30. ágúst 2012
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Litið um öxl

    „Nei, nei, þú þarft ekkert að líta til með línunni“ var sagt við mig í sumar þegar ég var að vinna í kaststílnum mínum. Ég er þrjóskari en andsk… þegar því er að skipta og vil meina að viðkomandi hafi talið mig betri kastara heldur en ég er. Auðvitað veit ég og nýti mér það í 90% tilvika að ég get fundið það í þumlinum hvenær línan hefur rétt úr sér að baki mér og óhætt er að hefja framkastið. En, þegar ég hita upp eða æfi mig á flötinni hef ég, og mun trúlega halda áfram að líta aðeins um öxl í bakkastinu. Ég fer ekkert dult með þetta enda augljóst hverjum sem vill sjá. Hitt hef ég aftur á móti farið svolítið leynt með að ég tel mig áfram í framkastinu og ég tel mig til baka í bakkastinu. Það tekur; 1, 2, 3 fyrir línuna að rétta úr sér í framkastinu og það tekur hana 3, 2, 1, 0 að rétta úr sér í bakkastinu vegna þess að ég hef lengt aðeins í henni þegar kemur að bakkastinu. Lengri lína = lengri tími.

    Öllu ofangreindu hætti ég síðan að pæla í þegar ég er komin með flugu á tauminn því þá er ég farinn að veiða, þá fær þumallinn að ráða og segja mér til um tímasetningar.

    Ummæli

    4.9.2012 Börkur Smári: Að líta um öxl í bakkastinu gerir ekkert nema gott, því bæði tímaseturðu framkastið betur og ósjálfrátt verður bakkastið betra því þú sérð hvernig það lítur út. Það eina sem við verðum að passa okkur á er að vinda ekki upp á líkamann í leiðinni. Þá tekur stangartoppurinn góðan sveig til hliðar og línan mun líklega lenda í sveig á vatninu í næsta framkasti.

    Persónulega byrja ég alltaf að kasta og lít til baka í bakkastinu þangað til ég er kominn með góðan takt í köstin.

    ps. svo er alltaf gott að vita hvað er fyrir aftan mann þegar maður er að veiða ;)

    9.12.2012 – Stefán Hjaltested (af Facebook): Litið um öxl. Ef kastarinn stendur rétt að kastinu og hallinn er réttur frá þér átt þú ekki að þurfa að horfa á eftir línunni í bakkastinu Það er ljótt að venja sig á að gera það nema um verulegt lengdarkast er að ræða. Ekki horfir þú á bensín fótinn er þú gefur inn á bílnum? kv. Stefán

    12.12.2012 – Börkur Smári – Flugukast: En þú lítur aftur fyrir þig þegar þú bakkar bílnum ekki satt Stefán :) ?

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Léttari lína í vindi

    15. ágúst 2012
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Línubogi

    Þetta hljómar náttúrulega sem algjör fjarstæða í eyrum veiðimanna, en sýnið mér smá þolinmæði. Segjum sem svo að ég sé að veiða með miðlungs hraðri stöng #7 og hefðbundna WF7 línu þegar vindurinn tekur að blása beint í trýnið á mér. Til að byrja með reyni ég að þrengja kasthjólið til að koma línunni betur upp í vindinn, segjum að það þrengist úr 40 sm. niður í 30 sm. Enn eykur í vindinn og ég man eftir línu #6 sem ég er með í töskunni. Ef ég set nú þessa línu á stöngina (#7) þá reynir minna á hana og 2/3 hennar svigna minna heldur en með línu #7, ekki satt?  Fyrst mér tókst að minnka kasthjólið um 10 sm. með línu #7 ætti ég að geta þrengt hjólið enn meira með léttari línu og skotið henni þannig betur upp í vindinn.  Þessu til viðbótar ætti ég að geta valdið lengri undirspekkaðri línu í falsköstunum m.v. línu sem er á pari við stöngina, það þarf jú meira af línu #6 til að fylla þyngdarmörk kasthæfni minnar heldur en af línu #7.

    Og ef þú heldur virkilega að ég hafi úthugsað þetta upp á eigin spítur, þá hefur þú allt of mikla trú á mér. Hann heitir Lefty Kreh sem setti þetta fyrstur fram. Kannski ég prófi þetta bara sjálfur í næsta roki?

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Upphaf að löngu kasti

    18. maí 2012
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Upptaka

    Upptaka línunnar hefur mikið að segja þegar við leggjum af stað í langt kast. Nú kann einhver að segja að þetta sé nú bara enn eitt bullið, skröksagan. En, ef við viljum ekki styggja fiskinn með óþarfa falsköstum þá ættum við að huga að lengd línunnar sem við tökum upp við upphaf kastsins. Stutt lína kallar á fleiri falsköst með lengingum til að ná löngu kasti, alveg sama hversu góðir kastarar við erum. Þetta er augljóst því við þurfum á þyngd línunnar að halda til að koma henni lengra út, löng lína = meiri þyngd.

    Ef við bætum nú mótstöðu vatnsins við þá gefur það auga leið að við þurfum ekki eins mörg falsköst til að ná lengd í kastið. Því lengri lína sem liggur í vatninu þegar við tökum upp, því betur hlöðum við stöngina í upptöku og eigum þannig inni afl sem nýtist í fyrsta framkast og við þurfum alls ekki eins mörg falsköst til að ná út til þeirra stóru.

    Þetta leiðir svo hugann að því hvar við stöndum í og við vatnið þegar við tökum upp. Ég ætla að velta vöngum yfir því í næsta pósti.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hvort gripið?

    15. maí 2012
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Hvort gripið?

    Á meðan sumir veiðimenn og kastkennarar mæla með Þumal ofaná, þá mæla aðrir með V-gripinu. Hér ræður ekki aðeins smekkur manna. Nokkrir aðrir þættir koma hér við sögu. Kaststíll manna er misjafn þó við byggjum allir á sömu reglunni; hlaða stöngina og stoppa ákveðið í fram og aftur kastinu. Sumum hentar betur að halda um stöngina líkt og tennisspaða, V-gripið. Kannski eru það helst þeir sem finnst þeir þurfa að nota langan kastferil, jafnvel víðan og ávalan sem kjósa V-gripið. Öðrum hentar betur að notast við þumalinn ofaná því þeir kjósa stuttan kastferil, snöggar og ákveðnar hreyfingar, beina línu fram og aftur, mjög ákveðin stopp. Mér hefur virst þeir sem tekst að halda olnboganum þétt að síðunni kjósa frekar þumalinn ofaná.

    En það eru fleiri þættir sem hafa áhrif á val manna á gripi. Þegar við þenjum okkur og viljum ná lengri köstum er oft tilhneiging til að úlnliðurinn ‚brotni‘ í bakkastinu ef við notum þumalinn ofaná. Þá getur verið hentugra að skipta yfir í V-gripið, það brotnar síður í löngum kastferli og lengri stoppum á meðan við bíðum eftir að lína réttir úr sér.

    Svo er það auðvitað stærð og þyngd stangar sem hefur áhrif á val manna, mér hefur virst að meira segja hörðustu þumlarnir leiti til hliðar á þungri stöng og verði að V-gripi. Létt stöng, stutt köst, kalla aftur á móti á þumalinn.

    Ummæli

    15.05.2012 Siggi Kr. – Ég verð að viðurkenna að ég gerði mér ekki grein fyrir hversu gríðarlega mikilvægt gripið er í fluguköstum fyrr en ég las þessa grein: http://www.sexyloops.com/articles/gripsandholds.shtml og fór að fara eftir því sem í henni stendur varðandi hvaða grip henta hvaða græjum, sérstaklega varðandi stærð/þyngd stangar og hvernig handfangið er í laginu og hvernig mismunandi grip geta orsakað villur í köstunum hjá manni. Mæli með því að allir flugukastarar lesi þetta. Þar sem ég nota bæði stangir með full og half-Wells handfangi skipti ég gjarnan á milli gripa og svo ruglar maður þessu stundum öllu saman og allt fer í klessu :)

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Átta

    9. maí 2012
    Kast

    Upp

    Forsíða

    Upphaf áttunnar

    Menn beita mörgum mismunandi aðferðum við inndrátt, fingrasetningin er alls ekki sú sama hjá öllum. Við hægan, stöðugan inndrátt hafa sumir náð þeirri leikni að þurfa aldrei að endurnýja gripið með vinstri hendinni og ná þannig að halda jöfnum, hægum inndrætti allt til upptöku. Helsta aðferðin við þetta er að velta línunni í vinstri hendi á milli þumals og vísifingurs ásamt því að snúa hendinni sitt á hvað. Á ensku hefur þessi aðferð verið kölluð The figure of eight sem ég leyfi mér hér að kalla áttuna.

    Flestir sem komast upp á lagið með þessa aðferð fella u.þ.b. þriðja, fjórða hvern snúning úr lófanum þannig að þessi aðferð getur verið ákveðin ókostur ef línan liggur lengi í sandi, óhreinkast.

    This slideshow requires JavaScript.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 8 9 10 11 12 … 19
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 177 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar