Og viti menn, það er komin dagsetning á Kastað til bata 2013. Farið verður í Laxá í Laxárdal, S-Þingeyjarsýslu dagana 4.-6. júní, en þar hófst einmitt ævintýrið á Íslandi fyrir fjórum árum síðan.
Umsóknarfrestur er til 15.maí þannig að það er ekki eftir neinu að bíða og hvet ég veiðimenn til láta vinkonur og vinkonur vinkvenna vita af þessu frábæra starfi.
Þetta er í fjórða sinn sem Kastað til bata verkefnið er sett upp. Þátttakendur hafa verið afar ánægðir og halda þær enn hópinn „Þetta er sannkallað ævintýri frá upphafi til enda. Skipulagið frábært, maturinn hollur og góður, leiðsögumennirnir stórkostlegir, og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Frábær hreyfing fyrir „brjóstakonur“ og dásamleg samvera í fallegu umhverfi“.
Greinarstúfur minn hér um daginn um Kastað til bata vakti töluverða athygli og ég fékk nokkrar fyrirspurnir um verkefnið. Þótt ég sé aðeins áhorfandi að þessum grasrótarsamtökum skal ég reyna að skýra markmið þeirra aðeins betur, eftir því sem ég treysti mér til.
Það inngrip í líkamann að gangast undir skurðaðgerð þar sem hluti eða heilir vefir eru beinlínis fjarlægðir getur haft mikil áhrif á daglegar athafnir. Sú hreyfing sem fellst í fluguveiðinni styrkir handleggs- og brjóstvöðva sem margar konur hafa beinlínis veigrað sér við að hreyfa eftir slíkar aðgerðir, sem von er. Hreyfingin færir að sögn mörgum konum ómetanlega þjálfun og ekki skemmir fyrir að geta notið náttúrunnar á fögrum stað í kaupbæti.
Félagslegi þáttur aðferðafræðinnar er ekki síður mikilvægur. Í hópi kvenna sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu er oft skipst á reynslusögum og ráðleggingum sem elft geta trú einstaklingsins á eigin getu og styrk. Þessum áhrifum hafa stofnendur Casting for recovery gefið heitið ripple effect sem gæti útlagst á íslensku sem gáruhrifin. Lítil gára, ein góð reynslusaga getur fært mörgum konum staðfestu og trú á eigin getu til farsællar framtíðar. Alveg eins og lítil gára sem breiðist úr frá upphafspunkti, nær boðskapurinn til fleiri og fleiri kvenna eftir því sem fjær dregur. Táknræn er sú athöfn þar sem konur eru hvattar til að kasta steini í vatnið, hlutgera þannig áhyggjur sínar og kvíða, varpa þeim frá sér og horfa á gárurnar bera þær á brott.
‚The spirit of Casting for Recovery can be seen in the rise of a large trout in a quiet pool. It glides below the surface, yet its power and energy sends out ripples across the water. The ripple effect from Casting for Recovery has touched many thousands of lives.‘
Tom Hayes | CFR Board of Trustees
Kastað til bata – Glæsilegur hópur á Íslandi
Hér á Íslandi hefur Krabbameinsfélagið og Samhjálp kvenna annast undirbúning og skipulagningu Kastað til bata undir kjörorðunum Að veiða er að vona. Með dyggum stuðningi einstaklinga, félaga og fyrirtækja, hefur konum verið boðið í veiði á undanförnum árum, m.a. í Elliðaárnar, Laxá í Laxárdal S.Þingeyjarsýslu og Sogið.
Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar Casting for Recovery / Kastað til bata eru hér nokkrir gagnlegir tenglar:
Veiðimenn á flugu þekkja flestir þá tilfinningu eftir dagspart í veiði að engu líkara sé en líkami og sál hafi endurnýjað sig fullkomlega jafnvel þótt aumir kastvöðvar og tilhlökkun fyrir næstu ferð séu alveg við það að gera mann brjálaðan. Og það var einmitt upp úr þessari upplifun sem Gwenn Bogart flugukastkennari og Benita Walton skurðlæknir fengu þá hugmynd að nota hana til að styrkja kynsystur sínar til bata sem greinst höfðu með krabbamein. Einhverjum gæti þótt hugmyndin ein fáránleg, hvað þá að byggja heila grasrótarhreyfingu eins og Casting for Recovery (CFR) á henni, en það er einmitt það sem þessum tveimur konum tókst árið 1996 vestur í Vermont í Bandaríkjunum.
Sjálfur hef ég upplifað það ótal sinnum að glíman við þennan ósýnilega andstæðing sem fiskurinn getur verið á hans heimavelli með aðeins eina flugu að vopni. Þessi upplifun er nánast ekki af þessum nútíma heimi sem við lifum í. Það að tengjast náttúrunni með þeim afgerandi hætti sem glíman við fiskinn er, gefur mér meira en flest annað sem ég hef reynt. Að sama skapi get ég aðeins þakkað fyrir að geta ekki sett mig í spor þeirra sem glíma eða hafa glímt við krabbamein og fylgifiska krabbameinsmeðferðar. En, ég get auðveldlega sett mig í spor þeirra fjölmörgu sem lofað hafa framtak þessara samtaka í gegnum árin.
Eins og áður segir var þessum samtökum komið á fót árið 1996 í Bandaríkjunum og fljótlega hlaut starf þeirra og árangur mikið lof sérfræðinga sem kynntu sér afrakstur þess. Lykilatriði starfsins hefur frá upphafi verið að gefa konum kost á hvíld og endurnæringu líkama og hugar eina helgi þeim að kostnaðarlausu í sem afslöppuðustu umhverfi og unnt er. En afrakstur þessara samtaka er meiri og annar en sá sem kemur fram undir merkjum CFR. Fjöldi kvenna sem kynnst hafa og miðlað af reynslu sinni undir merkjum samtakanna hafa bundist böndum sem ná langt út fyrir fluguveiði og samveru á árbakkanum. Eftir að hafa náð til Kanada árið 2004 var stofnað til CFR á Bretlandseyjum árið 2007. Það var svo árið 2010 að CFR náði til tveggja landa til viðbótar, Nýja Sjálands og Íslands. Hér á landi hefur starfið gengið undir nafninu Kastað til bata og hefur frá upphafi notið fulltingis reyndra veiðimanna og kvenna í nánu samstarfi við Krabbameinsfélagsins og Samhjálpar kvenna. Vonandi bera þessi samtök gæfu til að halda þessu frábæra starfi áfram með stuðningi fagaðila í stangveiði, verslana og veiðileyfasala.
Ég fagna því heilshugar að Þingvallanefnd og samstarfsaðilar hafa gert með sér samkomulag um að bæta veiðimenningu við Þingvallavatn. Við skulum svo ekki gleyma því að fleiri vötn og veiðisvæði þyrftu á viðlíka athygli veiðimanna að halda.
Göngum vel um veiðisvæðin okkar, virðum umhverfið og veiðireglur sem gilda á hverjum stað.
Sjá nánar yfirlýsingu Þingvallanefndar og samstarfsaðila hér.
Kannski er þetta að verða aðeins of mikið, en….. Flugur og skröksögur eru komnar á Twitter og heita því frumlega nafni @flugur Þar með geta lesendur og áhugasamir fylgst með fos.is á eftirfarandi miðlum:
Það má með sanni segja að maður varð upprifinn eftir kynningu Geirs Thorsteinssonar á Elliðavatni í kvöld í húsakynnum SVFR, kærar þakkir fyrir mig. Stangaveiðifélagið og Veiðikortið eiga hrós skilið fyrir framtakið, vonandi verður framhald á að vatnaveiði verði gerð jafn góð skil og gert var í kvöld.
Tenglar á bæði Elliðavatnsbækling Geirs og Þingvallavatnsbækling SVFR eru nú komnir hér inn á síðuna og munu eiga sér fastan sess hér til hliðar ásamt bæklingi Veiðikortsins og öðrum vefbæklingum. Þeir sem ekki hafa enn kynnt sér þessa bæklinga eru hvattir til þess að hlaða þeim niður hið fyrsta.