Nú geta veiðimenn farið að yljað sjálfum sér um veiðihjartað með því að panta Veiðikortið eða setja það ofarlega á jólaóskalistann og þangað til það er í hendi, geta menn flett í gegnum fylgirit kortsins því það er komið á vefinn.
Bæklinginn má nálgast hér og kortið má auðvitað kaupa á vefnum hérna.
Stangaveiðifélag Akraness stendur fyrir bókakynningu í Vitakaffi, fimmtudaginn 3.des. kl.19:30. Þar mun Kristján Friðriksson kynna bók sína Vatnaveiði -árið um kring sem kom út fyrr á þessu ári.
Áhugasömum gefst hér gullið tækifæri til að kynna sér betur silungsveði í vötnum landsins.
Bókin verður til sölu á staðnum og höfundur áritar bókina að lokinni kynningu.
Annað slagið fara veiðimenn á stjá, skoða sig um í heiminum og þá ekki síst veiðivöruverslanir. Síðast liðið haust var ég á ferð í London og gerði mér ferð niður á Regent Street og Pall Mall og heimsótti þær tvær veiðivöruverslanir sem helst eru nefndar þar í bæ; Orvis og Farlows.
Ég hafði svo sem heyrt af ákveðnum vonbrigðum manna með þessar verslanir þannig að ég gerði mér ekkert háar hugmyndir um þær svona fyrirfram, sem var kannski eins gott. Ekki kemur mér til hugar að gera lítið úr eða tala niður til þessara verslana, en mikið ósköp getum við nú vel við unað með allar okkar veiðivöruverslanir hérna heima.
Í fljótu bragði telst mér til að á Íslandi séu vel á þriðja tug veiðivöruverslana og flestar þeirra eru með allgott úrval af klæðnaði, veiðigræjum og öðrum útbúnaði. Margar þeirra bjóða einnig uppá gott eða þokkalegt úrval hnýtingarefnis, þannig að flugunördum er einnig bjargað. Auk þessara verslana eru svo nokkrar vefverslanir og smærri aðilar sem margir hverjir bjóða upp á fínustu vörur á hagstæðu verði. Ef allt er nú talið til, þá er hér ein verslun fyrir hverja 10.000 íbúa, svona um það bil og flestar þeirra með sama eða betra úrval af vörum heldur en þær stöllur í London. Þetta á við flest nema fatnað, þar skara verslanirnar í London framúr þeim íslensku. En minna má það nú vera, báðar búðirnar nýta örugglega 75% af gólfplássinu undir fatnað, allt frá fingravettlingum upp í klassísk Tweed jakkaföt og svo utan yfir- og innan undir fatnað af öllum gerðum.
Orvis og Farlows
Ef einhvern langar í valkvíðakast í innkaupum á veiðifatnaði, þá getið þið heimsótt Orvis á Regent Street 11 eða Farlows á Pall Mall 9. Þið hinir getið bara sparað ykkur sporinn og skroppið út í næstu veiðivöruverslun hér heima og sótt það sem ykkur vantar, oftast.
Veiðivöruverslanir á Íslandi; takk fyrir frábært vöruúrval, þið fáið klapp á bakið frá mér.
Flest veiðifélög og klúbbar eru nú að skipuleggja vetrarstarf sitt og nokkrir hafa nú þegar leitað eftir kynningu á bókinni Vatnaveiði –árið um kring sem gefin var út nýverið.
Þeim sem áhuga hafa á kynningu bókarinnar er bent á að setja sig í samband við undirritaðan með tölvupósti á kristjan(hjá)fos.is eða símleiðis í 859-9970 Gestum á bókakynningum gefst kostur á að kaupa bókina á sérstöku kynningarverði og fá hana áritaða af höfundinum.
3. desember – Stangaveiðifélag Akraness, Vitakaffi kl.19:30
9. desember – Ármenn, Árósar kl.20:00
10. desember – Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
Um bókina:
Bókin er alhliða fróðleg og fer jafnt í undirbúning sem framkvæmd. Undirritaður hefur lengi haft drauma um að stinga af með stöng, kaffibrúsa og hníf, sækja sér björgina sjálfur, annars svelta. Það verður kannski loksins af því í sumar, fyrst maður getur ekki borið fyrir sig þekkingarleysið lengur. ∼ Morgunblaðið
Veiðimenn eyða jafnan löngum vetrarkvöldum í að lesa veiðibækur og fagna útgáfu bóka um veiði. Mál og Menning var að gefa út bókina „Vatnaveiði – árið um kring“ sem er reglulega skemmtilegur lestur enda bókin full af góðum ráðum til handa veiðimannsins. ∼ Vísir
Í þessari gagnlegu handbók um silungsveiði á Íslandi er farið yfir heilt ár í lífi veiðimanns, allt frá undirbúningi og fluguhnýtingum að frágangi eftir síðustu veiðiferð ársins. Fjallað er um kjörsvæði og hegðun silungsins, mismunandi veiðislóðir, græjur og grip, og eftir því sem veiðiárinu vindur fram eru kynntar ólíkar aðferðir og gefin góð ráð til að leysa úr þeim vandkvæðum sem upp kunna að koma. ∼ Forlagið
Ármenn ætla að opna dyr félagsheimilis síns, Árósa upp á gátt miðvikudagskvöldið 21.okt. kl. 20:00 og bjóða öllum að kynna sér það góða starf sem fer fram í þessu eina fluguveiðifélagi Íslands.
Í grófum dráttum verður starf Ármann í vetur með svipuðu sniði og undanfarin ár. Ármenn hittast á mánudagskvöldum á ‘Skegg og skott’ þar sem hnýtt er á öngla og í veiðifélaga en á miðvikudagskvöldum er opið hús og yfirleitt einhverjir áhugaverðir fyrirlestrar eða kynningar á döfinni. Dagskrá þessara kvölda hefst stundvíslega kl.20:00, báða dagana.
Ármenn er félagsskapur fluguveiðimanna sem berst lítt á og hugsa fyrst og fremst um að eiga gott sambýli við allt sem að veiðum lýtur. Félagið var stofna árið 1973 og er ennþá eina fluguveiðifélag landsins. Af eigin reynslu get ég eindregið mælt með þessum félagsskap. Ármenn eru höfðingjar heim að sækja, taka sjálfa sig mátulega alvarlega en eru alltaf reiðubúnir að leiðbeina hvorir öðrum þegar á reynir.
Hinn árlegi Urriðadans í Öxará verður n.k. laugardag, 17. október. Að venju mun Jóhannes Sturlaugsson leiða gesti og gangandi í allan sannleikann um hegðun og atferli urriðans í Þingvallavatni. Kynningin hefst kl.14 við bílastæðið þar sem Valhöll stóð, gengið verður að teljaranum við brúnna og þaðan upp með ánni þar sem valdir höfðingjar og húsfreyjur Þingvalla verða til sýnis.
Þeir sem tök hafa á eru hvattir til að mæta á staðinn og njóta þess sem fyrir augu og eyru ber.