Nýliði ársins #2 – sú fluga sem þykir glæsilegust af frumsömdum flugum þátttakenda




Nýliði ársins #2 – sú fluga sem þykir glæsilegust af frumsömdum flugum þátttakenda



Höfundur:
Nýliði ársins #3 – sú fluga sem þykir glæsilegust af frumsömdum flugum þátttakenda



Höfundur:
Forvali fyrir úrslit Febrúarflugna 2016 er lokið. Úr þeim 390 flugum sem bárust inn á viðburðinn voru 42 flugur valdar, 14 flugur í hvern þeirra þriggja flokka sem viðurkenningar verða veittar fyrir. Nú gefst þeim sem sendu inn flugur kostur á að velja þrjár flugur í hverjum flokki; fyrsta, annað og þriðja sætið.
Atkvæðagreiðslan stendur til miðnættis föstudaginn, 4.mars og úrslitin verða kunngjörð 6.mars.
Fallegasta flugan: Sú fluga sem þykir fallegust að lögun, lit og handbragði.
Nýliði ársins: Sú fluga sem þykir glæsilegust af frumsömdum flugum þátttakenda.
Beittasta vopnið: Sú fluga sem menn hafa mesta trú á fyrir komandi sumar.
Höfundur:
Nú er viðburðinum okkar, Febrúarflugur 2016 lokið. Þennan febrúarmánuð bárust 390 flugur frá 40 þátttakendum sem er framar okkur björtustu vonum og óhætt að segja að markmið okkar með þessum viðburði, að gefa hnýturum kost á að sýna í boxin sín og sjá hvað aðrir eru að hnýta, hafi tekist bærilega. Formlega fylgdust 117 einstaklingar með viðburðinum auk fjölda annarra sem fylgdust sérstaklega með færslum sinna vina og kunningja.

Vegna þessa óvænta umfangs og ábendinga um ókosti upphaflegs fyrirkomulags atkvæðagreiðslunnar, höfum við ákveðið að kalla valinkunna einstaklinga til liðs við okkur og framkvæma forval fyrir atkvæðagreiðsluna. Með öðrum orðum, fækka þeim flugum sem taka þátt í endanlegri atkvæðagreiðslu.
Eftir að hafa farið yfir þær 390 flugur sem bárust þennan mánuð er ljóst að vanda þarf til valsins og því höfum við tekið okkur frest til 3. mars að hefja atkvæðagreiðsluna. Hún mun standa í 2 sólarhringa og fara fram meðal þeirra sem lögðu fram flugur í mánuðinum. Með þessu móti komum við í veg fyrir atkvæðasmölun sem nokkrir þátttakendur hafa lýst áhyggjum yfir.
Eins og kunnugt er verða veittar viðurkenningar fyrir þrjú efstu sætin í þremur eftirtalinna flokka:
Fallegasta flugan: Sú fluga sem þykir fallegust að lögun, lit og handbragði.
Beittasta vopnið: Sú fluga sem menn hafa mesta trú á fyrir komandi sumar.
Nýliði ársins: Sú fluga sem þykir glæsilegust af frumsömdum flugum þátttakenda.
Vinningshafar verða tilkynntir á viðburðinum og hér á FOS.IS sunnudaginn 6. mars. Samband verður haft við vinningshafa með einkaskilaboðum á Facebook og vinningum komið til skila eftir því sem hentar. Skipting verðlauna má sjá með því að smella hérna.
Við þökkum öllum þeim sem lögðu fram flugur, fylgdust með og síðast en ekki síst þeim sem lögðu okkur lið við undirbúning, kynningu og útvegun viðurkenninga. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um framhald þessa viðburðar að ári, en verði svo mun fyrirkomulag hans væntanlega verða með öðru sniði en var núna.
Höfundur:
Það er fátt notalegra heldur en setjast niður við hnýtingarborðið með rjúkandi heitt kaffi í viðeigandi bolla og smella í eins og eina góða flugu. Í dag gefst öllum sem áhuga hafa á að fá sé notalegan sopa eftir mat, miðdagskaffi og einmitt hnýta eins og eina flugu eða bara hitta aðra áhugamenn um flugur og fluguhnýtingar í Árósum, Dugguvogi 13 á opnu húsi Ármanna og FOS.

Húsið opnar kl.14 og verður opið í það minnsta fram til kl.16, lengur ef áhugi er fyrir hendi. Ármenn verða á staðnum og kynna félagið sitt, FOS mætir og kynnir innsendar Febrúarflugur og ekki má gleyma að viðurkenningarnar í Febrúarflugum verða til sýnis. Hnýtingargræjurnar verða eflaust uppi við og sett í nokkrar flugur, kannski 10 stk. sem hægt er að leggja í púkk fyrir fluguskipti.
Allir hjartanlega velkomnir í notalegt flugu- og hnýtingarspjall.
Höfundur:
Á morgun, laugardaginn 27. febrúar verður opið hús í Árósum, félagsheimili Ármanna, að Dugguvogi 13 í tengslum við Febrúarflugur 2016. Fyrir þá sem hafa aldrei barið félagsheimilið augum, þá lítur það svona út að utan. Húsið opnar kl.14 og verður opið í það minnsta til kl.16 og þá gefst öllum kostur á að sjá það að innan líka.

Á þessu opna húsi Ármanna og FOS gefst gestum kostur á að kynna sér starfsemi Ármanna, hnýta flugur og spjalla um flugur og fluguhnýtingar við jafnt reynda sem óreynda fluguveiðimenn.
Myndum af þeim hátt í 400 flugum sem borist hafa á viðburðinn verður varpað á skjá og eflaust verða einhverjar þeirra mönnum innblástur fyrir hnýtingarnar.
Efnt verður til fluguskipta þar sem þeim sem hug hafa á er boðið að leggja 10 flugur í púkk og fara síðan heim með einhverjar allt aðrar 10 í farteskinu í lok dags.
Að sjálfsögðu eru allir áhugamenn um flugur og fluguveiði velkomnir, óháð því hvort þeir hafi tekið þátt í viðburðinum eða ekki. Kaffiveitingar og góður félagsskapur á staðnum eins og Ármönnum einum er lagið.
Til þeirra sem ekki eru með Facebook aðgang og hafa því ekki tök á að setja flugur á viðburðinn, ekki hika við að senda okkur tölvupóst með mynd, nafni og lýsingu á flugunni og FOS sér um að koma flugunni til skila á viðburðinn. Póstfangið okkar er: fos@fos.is
Höfundur: