FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Árvík styður Febrúarflugur

    7. febrúar 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Einn dyggasti styrktaraðili Febrúarflugna í gegnum árin er Árvík. Fyrirtækið hefur skapað sér fastan sess í hugum stangaveiðimanna á undanförum áratugum, rótgróið og öflugt. Meðal vörumerkja Árvíkur má nefna flugustangir frá Scott, breiða vörulínu Loon, töskur og vesti frá Fishpond, hnýtingaráhöld frá Stonfo og Griffin að ógleymdum Kamasan önglunum sem allir fluguveiðimenn þekkja.

    Það er vart til sá stangaveiðimaður á Íslandi sem ekki hefur snert á og reynt einhverjar af vörum Árvíkur í gegnum tíðina.

    Árvík leggur til Road Trip hnýtingartösku frá Fishpond sem viðurkenningu til einhvers heppins þátttakanda í Febrúarflugum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Langskeggur styrkir Febrúarflugur

    6. febrúar 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nýr styrktaraðili Febrúarflugna er veiðiverslunin Langskeggur. Langskeggur hefur um árabil selt vörur Tempel Fork Outfitters á Íslandi, flugustangir, fluguhjól og línur. Temple For Outfitters hafa um árabil notið samstarfs við marga af þekktustu fluguveiðimönnum heims við hönnun TFO stanga og hjóla. Þeirra á meðal eru m.a. Lefty Kreh og Gary Loomis, einstaklingar sem hafa haft mikil áhrif á útbreiðslu fluguveiði í yfir 50 ár.

    Flugulínur TFO eru hannaðar og framleiddar í samstarfi við Cortland og saman hefur þeim tekist að framleiða hágæða flugulínur á viðráðanlegu verði.

    Langskeggur styrki Febrúarflugur þetta árið með því að leggja til BVK #4 8,6 feta flugustöng í fjórum pörtum sem hentar frábærlega í straumvötn og í alla vatnaveiði. Stöngin er aðeins 76 grömm að þyngd og það verður einhver heppinn hnýtari sem eignast hana á lokakvöldi Febrúarflugna þann 28. febrúar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðikortið styður Febrúarflugur

    6. febrúar 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það hefur ekki brugðist að Veiðikortið hefur stutt við bakið á Febrúarflugum þau ár sem viðburðurinn hefur verið haldinn. Veiðikortið þarf vart að kynna fyrir veiðimönnum, en með tilkomu þess fyrir 14 árum kom til sögunnar hagkvæmur og góður kostur fyrir veiðimenn til vatnaveiði, hringinn í kringum landið.

    Fjöldi veiðistaða á kortinu hefur nánast staðið í stað hin síðari ár og 2018 gefst handhöfum þess kostur á að veiða á 34 vatnasvæðum, vítt og breitt um landið.

    Ekki má gleyma því að víða er handhöfum Veiðikortsins heimilt að tjalda við veiðivötn, sér að kostnaðarlausu og eykur það enn við notagildi kortsins.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Febrúarflugukvöld 5. feb.

    4. febrúar 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Á fyrsta Febrúarflugukvöldinu þann 5. febrúar verða galdrar og goðsagnir í fyrirrúmi. Dýrfirðingurinn Jón Aðalsteinn Þorgeirsson ætlar að leiða gesti Febrúarflugna í allan sannleik um hinar víðfrægu flugur sínar Galdralöpp og Mýtuna. Jón Aðalsteinn hefur lengi lagt mikið upp úr einfaldleik flugna, notar eins fá hráefni og honum er frekast unnt í flugurnar og helst má ekki taka lengri tíma en 3 mínútur að hnýta hverja þeirra.

    Galdralöppin hefur fylgt fluguveiðimönnum frá því skömmu eftir síðustu aldamót og þessi fluga hefur fyrir löngu sannað sig. Mýtan gefur systur sinni ekkert eftir og er afburða þurrfluga sem leynist í mörgum fluguboxum landsmanna, þótt þeir geri sér ekki endilega grein fyrir heiti hennar eða uppruna.

    Hnýtingar Jóns Aðalsteins njóta alltaf athygli, eins og sjá má

    Það verður fróðlegt að fylgjast með Jóni Aðalsteini á mánudagskvöldið og heyra sögu þessara flugna og læra handbragðið af höfundinum sjálfum.

    Að sjálfsögðu eru allir velkomnir á Febrúarflugukvöldin sem eru í boði Ármanna í félagsheimili þeirra, Árósum, Dugguvogi 13. Húsið opnar stundvíslega kl.20:00

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ármenn styðja Febrúarflugur

    3. febrúar 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þetta árið er það þriðja í röð sem Stangaveiðifélagið Ármenn styður við Febrúarflugur með myndarlegum hætti. Ármenn eru elsta, og enn þann dag í dag, eina almenna fluguveiðifélagið á landinu.

    Félagið var stofnað árið 1973 og hefur frá þeim tíma haft að leiðarljósi að að auka hróður þeirrar íþróttar að veiða vatnafisk á flugu, efla virðingu veiðimanna fyrir íslenskri náttúru og hvetja til góðrar umgengni, hófsemi við veiðar, háttvísi á veiðislóð, auk ýmislegs annars. Nánari upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess, armenn.is auk þess að Ármenn deila fréttum af starfi sínu einnig á Facebook.

    Félagsstarf Ármanna fer að mestu fram í félagsheimili þeirra, Árósum, sem er í Dugguvogi 13 í Reykjavík. Þar hittast félagsmenn og gestir þeirra á mánudagskvöldum frá því snemma vetrar og fram til vors, hnýta flugur og skeggræða nýjungar og aðferðir við fluguhnýtingar. Ármenn munu þetta árið, rétt eins og síðasta ár, leggja til félagsheimili sitt og starfskrafta á mánudögum fyrir Febrúarflugur. Félagsheimilið verður opið öllum þeim sem vilja hnýta flugur í góðum félagsskap, kynnast nýjum flugum og hitta aðra áhugamenn um flugur og hnýtingar. Í fyrra mættu reglulega á bilinu 35 – 55 manns á þessi Febrúarflugukvöld í Árósum og auðvitað er vonast eftir svipaðri eða enn betri mætingu þetta árið.

    Fyrsta Febrúarflugukvöldið verður mánudaginn 5. febrúar í Árósum, Dugguvogi 13 og hefst stundvíslega kl.20:00. Allir þátttakendur í Febrúarflugum eru boðnir velkomnir, sem og aðrir áhugamenn um flugur og fluguhnýtingar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilegt nýtt ár

    1. janúar 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    FOS.IS óskar öllum lesendum vefsins gleðilegs nýs árs og þakkar kærlega fyrir samfylgdina á nýliðnu ári. Að vanda er fyrst færsla ársins nýtt dagatal fyrir það ár sem upp er runnið. Að þessu sinni er dagatalið með örlítið öðru sniði en áður sem vonandi nýtist betur á snjalltækjum, s.s. sjaldtölvum og símum. Dagatalið má skoða með því að smella hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 31 32 33 34 35 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar