Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Dalavötnin þrjú

    24. mars 2024
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það leynist ýmislegt í fórum FOS og þar á meðal eru nokkrar veiðistaðakynningar þar sem tölt er um veiðislóðir, staðhættir skoðaðir og kíkt á álitlega veiðistaði. Eftir því sem verkast vill hef ég lesið inn á þessar kynningar og tekið þær upp en ekki endilega birt þær opinberlega. Þar sem styttist í opnun fyrstu vatnanna þetta árið, þá hef ég bætt þremur kynningum inn á þrjú vatnanna sem finna má hér síðunni. Þau vötn sem hér um ræðir eru Dalavötnin þrjú sem finna má vestur á Mýrum og í Hnappadal: Langavatn, Hítarvatn og Hlíðarvatn.

    Öll eiga þessi vötn það sameiginlegt að vera inni á Veiðikortinu, gott aðgengi að þeim, heimilt að tjalda við þau og eru hin ágætustu veiðivötn. Hvað er hægt að fá það betra? Jú, fara og njóta þeirra í sumar og þess sem þau hafa að bjóða í umhverfi og vonandi smá veiði.

    Langavatn í Langavatnsdal
    Hítarvatn í Hítardal
    Hlíðarvatn í Hnappadal

    Það er ekki loku fyrir það skotið að ég taki aðrar kynningar fyrir á næstunni og bæti þeim hér inn á síðuna eða YouTube rás FOS, en það ræðst fyrst og fremst af viðbrögðum lesenda og þeim tíma sem mér gefst til dundurs.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Nýrað á FOS

    17. febrúar 2024
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    FOS hefur fengið töluvert af skilaboðum þar sem spurt hefur verið um flugu að nafni Nýrað. FOS leitaði til höfundarins, Jóns Inga Kristjánssonar, bauð upp á kaffibolla og fékk að launum eintak af flugunni og efnislista. Flugan hefur víða getið sér gott orð og því er sjálfsagt mál að verða við óskum um uppskrift að henni. Fluguna má finna, ásamt tæplega 200 öðrum flugum í safni FOS eða beint með því að smella á myndina hér að neðan.

    Nýrað – hnýtt af höfundinum Jóni Inga Kristjánssyni

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hnýtingarkvöld SVFB

    15. febrúar 2024
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Stangaveiðifélag Borgarness heldur uppteknum hætti og býður Borgnesingum og nærsveitarfólki til notalegrar samverustundar í kvöld, 15. febrúar kl. 20:00 Allir hjartanlega velkomnir. FOS þáði boðið og ætlar að nýta sér fríkvöldið og bregða sér bæjarleið í kvöld. Þetta er tilvalin leið til að kynna sér starf Stangaveiðifélags Borgarness. Allar nánari upplýsingar má finna í kynningu SVFB á Facebook.

    Ert þú eða þitt félag með eitthvað á döfinni fyrir almenning, hnýtara eða veiðimenn? Sendu FOS og Febrúarflugum orðsendingu og við komum henni með ánægju á framfæri.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Barely Legal Dentist

    8. febrúar 2024
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þessi fluga gaf hnýtaranum nokkra fiska síðasta sumar og hefði eflaust lokkað fleiri hefði veiðimaðurinn ekki asnast við að festa bæði eintökin sem hann hnýtti í botni. Frumútgáfurnar urðu sem sagt eftir í Litlasjó í Veiðivötnum og Kvíslavatni á Sprengisandi. Flugan er hnýtt á svipaðan hátt og Barley Legal, tvískipt marabou í skotti og væng, búkurinn vafinn tveimur vafningum búkefnis á milli vænghluta og ber óneitanlega keim af Dentist, Kolbeins Grímssonar.

    Upp skriftina má nú nálgast á FOS með því að smella á myndina hér að neðan.

    Barely Legal Dentist – Smelltu á myndina fyrir uppskrift

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilegt nýtt (veiði) ár

    31. desember 2023
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    FOS.IS, Febrúarflugur og Vatnaveiði -árið um kring óska ykkur öllum gleðilegs nýs veiðiárs

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilega hátíð

    21. desember 2023
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    FOS óskar öllum veiðimönnum gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 2 3 4 5 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 177 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar