Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Valdemarsson styrkir Febrúarflugur

    6. febrúar 2020
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Valdemarsson flyfishing styrkir Febrúarflugur þetta árið líkt og undanfarin ár. Að þessu sinni leggja þeir til, hvorki meira né minna, heldur en V-Calmness Plús fluguveiðistöng fyrir línu #5 sem er þriðja kynslóð þessara vinsælu stanga.

    Um árabil hefur Valdemarsson boðið upp á eigin hönnun flugustanga, fluguhnýtingaefni og áhöld, auk þess að selja eigin flugur í miklu úrvali. Á vefsíðu Valdemarsson má finna breitt úrval veiðivara sem vert er að gefa gaum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • VEIDA.IS styrkir Febrúarflugur

    6. febrúar 2020
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Einn öflugasti veiðileyfavefur landsins er VEIDA.IS og undanfarin ár hefur vefurinn styrkt Febrúarflugur með myndarlegum hætti og svo er einnig þetta árið. Á vefnum má finna veiðileyfi í fjölda veiðisvæða, bæði í lax og silung.

    Auk veiðileyfa má finna fjölda lýsinga og upplýsinga um veiðisvæði um land allt á vef VEIDA.IS, ásamt reglulegum fréttum af gagni veiðinnar yfir sumarið. Um þessar mundir streyma laus veiðileyfi inn á vefinn, þannig að það er um að gera að fylgjast vel með.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • JOAKIM’S styrkir Febrúarflugur

    6. febrúar 2020
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    JOAKIM‘S fluguveiðivörur þarf vart að kynna fyrir veiðimönnum og áhugafólki um fluguhnýtingar. Um árabil hefur JOAKIM‘S látið hanna fyrir sig flugustangir og fluguhjól og boðið veiðimönnum á Íslandi, ásamt því að bjóða upp á úrval hnýtingaefnis og tækja. JOAKIM‘S styrkir Febrúarflugur að vanda með gjafabréfum til handa tveimur heppnum hnýturum.

    Opnunartími JOAKIM‘S er afar sveigjanlegur en viðskiptavinum er bent að setja sig í samband við Jón Viðar í síma 698-4651 eða senda tölvupóst með fyrirspurnum á joakims(hjá)simnet.is og fá að kíkja í skúrinn hjá honum. Þar kennir ýmissa grasa; flugustangir, veiðihjól, hnýtingarefni og margt fleira.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hnýtingarkvöld á American Bar

    6. febrúar 2020
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Fræðslunefnd SVFR, Flugucastið og Haugur blása til hnýtingakvölds á American Bar, mánudaginn 10. febrúar í tengslum við Febrúarflugur.

    Fjöldi landsþekktra hnýtara verða á staðnum, þ.á.m. Sigurberg Guðbrandsson, Hilmar Hansson, Reiða Öndin, Hrafn H. Hauksson, Sigurður Héðinn og Sigþór Steinn.

    Veiðimyndir á öllum skjám, tilboð á barnum og gríðarleg stemming í salnum. Hnýtarar hvattir til að taka með sér græjur og smella í nokkrar Febrúarflugur. Græjur á staðnum fyrir þá sem langar að grípa í nokkrar flugur.

    Takið kvöldið frá og munið að það eru viðburðir í tengslum við Febrúarflugur í hverri viku mánaðarins.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fishpartner styrkir Febrúarflugur

    4. febrúar 2020
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nýr styrktaraðili Febrúarflugna að þessu sinni er Fish Partner. Auk þess að standa fyrir Íslensku fluguveiðiakademíunni selja Fish Partner veiðileyfi um land allt í lax- og silungsveiði af ýmsum toga. Fish Partner leggja til þrjár viðurkenningar að þessu sinni; tvær stangir í Tungnaá, fjórar stangir í Geldingatjörn og tvær stangir í tvo daga í Blöndukvíslar.


    Á heimasíðu Fish Partner má finna ýmsan fróðleik um veiðisvæði þeirra ásamt ýmsum gagnlegum upplýsingum og ábendingum um stangveiði á Íslandi.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðiflugur styrkja Febrúarflugur

    4. febrúar 2020
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Veiðiflugur á Langholtsvegi styrkja Febrúarflugur myndarlega að þessu sinni með því að leggja til gjafabréf fyrir einn heppinn hnýtara og Stonfo Transformer hnýtingaþvingu fyrir annan.

    Vöruúrval Veiðiflugna byggir á traustum grunni þar sem er í fararbroddi eru vörur frá Griffin, Kamasan, Loon, Mustad, Partridge, Semperfli og Stonfo. Á heimasíðu Veiðiflugna má finna umfjöllum um þeirra helstu vörur, sjá hér og síðast en ekki síst allar hnýtingarvörurnar í vefversluninni hérna.

     

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 15 16 17 18 19 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar