Valdemarsson flyfishing styrkir Febrúarflugur þetta árið líkt og undanfarin ár. Að þessu sinni leggja þeir til, hvorki meira né minna, heldur en V-Calmness Plús fluguveiðistöng fyrir línu #5 sem er þriðja kynslóð þessara vinsælu stanga.
Um árabil hefur Valdemarsson boðið upp á eigin hönnun flugustanga, fluguhnýtingaefni og áhöld, auk þess að selja eigin flugur í miklu úrvali. Á vefsíðu Valdemarsson má finna breitt úrval veiðivara sem vert er að gefa gaum.
Senda ábendingu