Fyrsta ferð okkar veiðifélaganna í Hlíðarvatn í Hnappadal þetta árið. Klassísk vindátt, klassískur vindstyrkur og klassískur afli. Viðvörun: Í lok klippunnar sjást dauðir fiskar, viðkvæmum er bent á að slökkva fyrir mín. 1:38

Ýmislegt og allskonar um flugur, veiðistaði og stangveiði almennt.
Fyrsta ferð okkar veiðifélaganna í Hlíðarvatn í Hnappadal þetta árið. Klassísk vindátt, klassískur vindstyrkur og klassískur afli. Viðvörun: Í lok klippunnar sjást dauðir fiskar, viðkvæmum er bent á að slökkva fyrir mín. 1:38
Höfundur:
Þegar ég skrifa þetta þá þykist ég heyra viðbrögð eins félaga míns sem lætur mig heyra það reglulega; Hvernig er það, veistu bara ekki neitt? Við sumu er einfaldlega ekki hægt að finna eitthvað eitt svar og þessi spurning er einmitt slík. Ég er einn þeirra sem nota fjölda flugna sem hreina og klára afsökun, fyrir öllu. Ég er með allt of margar tegundir flugna í boxinu, en á sama tíma með allt of fáar stærðir og þyngdir. Þannig get ég borið því við að votflugan mín var heldur of stór eða lítil, eftir því sem hentar. Púpan var heldur lítil og létt og náði því ekki til fisksins á botninum. Þurrflugan var allt of stór sem er yfirleitt raunin vegna þess að ég sé ekki þessi litlu kríli.
Það eru til þeir veiðimenn sem eru aðeins með fjórar til fimm tegundir flugna í boxinu, samt er boxið fullt af flugum. Þeir hafa fundið sínar flugur og veiða aðeins á þær og ekkert annað. Kannski er það máttur netsins sem hefur orðið til þess að þessir veiðimenn eru mjög áberandi á ákveðnum vefjum og spjallsíðum. Ef maður er svo heppinn að fá að gjóa augunum yfir boxin þeirra, þá er ekki óalgengt að sjá ákveðið munstur.

Brúnar flugur af ættstofni Pheasant Tail eru nokkuð áberandi í stærðum frá agnarsmáu upp í það sem einhver kann að telja að jaðri við straumflugu. Flestar þeirra eru án sjáanlegs kúluhauss, en þyngdar engu að síður. Annað hvort með kúluna undir thoraxinum eða tungsten á búk. Raunar getur þessi röð einnig samanstaðið af hérum í öllum mögulegum útgáfum. Hérahár verður nefnilega meira brúnt en drapplitað þegar það blotnar.
Svo eru það þessar svörtu. Þarna getur allt mögulegt gerst. Sumir veðja alltaf á Hatara, þ.e. flugur úr svörtum vinyl og gildir þá einu hvort þeir setja skott, skottlok eða kraga á kvikindið. Þekktar flugur eru BAB, Krókurinn og Alma Rún. Þeir sem hafa ekki ánetjast leðri eða pleðri halda sig við hefðbundið efni og einn sem ég þekki er aðallega með Burton í svarta liðinu.
Glepjur manna eru misjafnlega glysgjarnar. Ein af skemmtilegri glamúr röðum sem ég hef séð samanstóð eingöngu úr Royal Coachman í öllum þeim mögulegu og ómögulegu útfærslum sem hnýtaranum datt í hug að sjóða saman. Allt frá sérstaklega skemmtilegum mjónum upp í feitar og pattaralegar flugur sem sóru sig í Zulu ættbálkinn. Svo geta menn haldið sig á hefðbundnari nótum og hnýtt Watson‘s Fancy púpur með og án kúluhauss, kraga eða ekki, mjóar, feitar og ofur stórar útgáfur sem líkjast Killer meira en honum Watson karlinum.
Fjórða, og síðasta röðin sem ég ætla að nefna, er hlaðin fulltrúum málma úr lotukerfinu. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna koparflugur eru jafn vinsælar hjá silunginum eins og raun ber vitni. Þessar flugur er hægt að hnýta úr öllum mögulegum afgöngum uppgefinna jólasería. Úr rauðum kopar, brúnum, grænum og gulum. Einu mega menn þó ekki gleyma, ef þessar flugur eiga að halda gula litnum, þá er eins gott að blanda sinki við koparinn og notast við brass. Það fellur síður á brass heldur en hreinan kopar. Þekktar flugur í þessari röð eru Koparmoli, Brassie og þeir félagar Copper John og Prince Nymph. Þær síðar nefndu geta reyndar allt eins átt heima í glepjuröðinni.
Er þetta byrjendaboxið eða fyrir lengra komna? Ég hef lúmskan grun um að byrjendaboxið gæti litið svona út, svo kemur þetta tímabil þar sem maður lætur glepjast af öllu mögulegu og yfirfyllir boxin. Ég er staddur þar, en þegar þroskinn færist yfir fækkar bæði flugum og boxum.
Höfundur:
Örklippa úr helgarferð í Hraunsfjörðinn í lok maí. Frábært veður og bleikjurnar léku við hvern sinn ugga upp úr miðnættinu.
Höfundur:
Örklippa úr Þjóðgarðinum á Þingvöllum í maí 2019.
Höfundur:
Veiðifélag Landmannaafréttar hefur opnað upplýsinga- og sölusíðu fyrir nýjan og sérstaklega áhugaverðan valkost fyrir fluguveiðimenn, Sauðafellsvatn við rætur Heklu.
Það hefur legið í loftinu í nokkurn tíma að Veiðifélagið kæmi þessu vatni í sölu eftir að rannsóknir þar leiddu í ljós að urriða af Grenlækjarstofni sem sleppt var í vatnið árið 1993 hefur reytt vel af á undanförnum árum og hefur náð að fjölga sér þrátt fyrir að ekkert að- eða frárennsli sé sjáanlegt við vatnið. Svo virðist vera sem fiskurinn hafi náð að nýta sér lindir í vatninu til að viðhalda stofninum.
Veiði hefst þann 18. júní og sala fer eingöngu fram á vefsíðunni saudafellsvatn.is sem og skráning í veiðibók. Það ber að fagna því að önnur eins perla og Sauðafellsvatnið er hafi nú komið á markaðinn og þá sérstaklega að aðeins er leyfð fluguveiði. Umferð báta á vatninu er bönnuð og það ætti því ekkert að geta truflað upplifun veiðimanna í kyrrðinni við rætur Heklu. Veiðivörslu annast ferðaþjónustan Áfangar ehf. sem staðsett er í Áfangagili, skammt norðan Sauðafellsvatns.

Allar nánari upplýsingar um vatnið má finna á vefnum saudafellsvatn.is og hér á FOS.IS því vitaskuld hefur þessari perlu verið bætt inn í önnur vötn sem fjallað eru um hér á vefnum.
Höfundur:
Á heimleið úr Hraunsfirði eru nokkur álitleg vötn, í það minnsta fyrir þá sem eiga heima sunnan Borgarfjarðar. Eitt þessara vatna kom inn á Veiðikortið nú nýlega en vatnið höfum við veiðifélagarnir stundar í mörg ár, Hlíðarvatn í Hnappadal og það heimsóttum við í gær, sunnudag eftir að hafa verið tvær nætur við Hraunsfjörðinn.
Þeim sem þekkja Hlíðarvatnið ætti ekki að koma á óvart þegar ég segi að vindáttin var af norð-austri þegar við renndum í hlað fyrir landi Hraunholta upp úr hádegi í gær. Þessi yndislega vindátt hefur tekið svo ótal oft á móti okkur í Hnappadalnum að vart verður talið. En, það skemmir ekki fyrir okkur því við þykjumst þekkja fiskinn í vatninu nokkuð ágætlega, þ.e. stofninn, því flestir þeirra einstaklinga sem við höfum farið höndum um hafa fylgt okkur heim í lok dags.

Oft hefur nú vatnið verið meira á þessum árstíma heldur en það er um þessar mundir. Rifið stendur vel uppúr og það má ekki miklu muna að vaðfært sé að verða út í skerin undir Fellsbrekku. Eiðið út frá Rifi til norðurs var ekki alveg komið upp, en mig grunaði að það væri nóg fyrirstaða þannig að fiskurinn héldi sig þar í víkinni þannig að mér tókst að telja veiðifélaga minn á að tölta þangað í stað þess að rölta inn með vatninu í átt að Neðri-skúta.
Flugan sem fór undir var Orange Nobbler. Silungastofnarnir í vatninu hafa verið aldir upp við það í gegnum árin að vilja Orange Nobbler, hvort sem um er að ræða bleikju eða urriða. Af tómri frekju kom ég mér fyrir beint á móti vindi, slæmdi línunni út og leyfði flugunni að sökkva í ölduna. Tvö snaggaraleg tog og fyrsti fiskur var á, þokkaleg bleikja sem tók grimmt. Í kvikindisskap mínum kallaði ég nógu hátt „FYRSTI“ þannig að það barst veiðifélaga mínum örugglega þrátt fyrir rokið. Næsta kast, sama fluga, annar fiskur og auðvitað kalli ég „ANNAR“. Þriðja kast og ekkert gerðist. Fjórða kast og ég kallaði „ÞRIÐJI“ og skömmu síðar kallaði ég „FJÓRÐI“ en þá hætti ég líka því ég fann fyrir einkennilegum sviða á milli augnanna þar sem nístandi augnaráð veiðifélaga míns hitt mig fyrir. Áður en ég náði að hvísla „FIMMTI“ þá réttust aflatölurnar þegar frúin tók sinn fyrsta urriða í sumar og skömmu síðar bætti hún bleikju við.

Fiskarnir sem komu á land voru vel haldnir og virtust hafa haft nóg æti. Raunar voru þeir allir troðnir af bobba, ekki eitt einasta hornsíli í maga þeirra og flugu var nú ekki heldur fyrir að fara. Það er reyndar reynsla mín að það sé einhver bið eftir hornsílinu, en þegar það fer af stað þá er veisla úti á skerjunum.
Þetta var flott stutt stopp sem við gerðum í vatninu og eftir að við höfðum fengið okkur bita og skjalfest veiðinestið okkar og útsýnið, héldum við áfram för okkar heim eftir þessa fyrstu veiði-ferða-útilegu helgi sumarsins.
| Bleikjur í ferð | Bleikjur alls | Urriðar í ferð | Urriðar alls | Fj.ferða |
|---|---|---|---|---|
| 1 / 1 | 2 / 12 | 1 / 5 | 1 / 7 | 7 / 8 |
Og veiðifélaginn þurfti að eiga síðasta orðið (eins og vanalega): Djös…..það er bara mjööööööög ljótt að segja svona…eða telja svona upphátt, eiginlega svo hátt að það þurfti að kalla 🙂Bíddu bara. (annars er þetta ekki mitt ár, er það nokkuð?)
Höfundur: