Sumir segja að hjólið sé einhver merkilegast uppgötvun mannsins og sé á listanum yfir 10 mikilvægustu uppgötvanir hans, rétt á eftir eldinum. Ég vil meina að krókurinn sé líka á þessum top 10 lista. Enginn veit fyrir víst hvenær hann kom fyrst fram á sjónarsviðið en fyrstu krókarnir komu fram löngu áður en menn réðu við að bræða málm eða berja hann til hlýðni við hugmyndir sínar. Að öllum líkindum voru fyrstu krókarnir mótaðir úr beini fyrir um 42.000 árum síðan, sel það ekki dýrar en ég keypti það. Krókurinn er ekki flókið fyrirbrigði en ef einhvern hluta hans vantar, þá skerðist notagildi hans verulega.
Augað er ekki endilega bráðnauðsynlegt. Lengi vel voru krókar án auga og komu nú samt að ágætum notum og enn eru bindir krókar fáanlegir og notaðir af hnýturum fyrir ákveðnar tegundir flugna. Ef augað er aftur á móti til staðar, þá er vissulega betra að augað sé vel formað, vel opið en þó lokað þétt upp við legginn þannig að girnið eða taumaendinn smokrist ekki úr því.
Blindur krókur
Leggurinn þarf að vera jafn og vel formaður annars er hætt við að hann brotni við átak. Rétt eins og keðjan sem brestur á veikasta hlekknum, þá brestur krókurinn þar sem hann er þynnstur, gjarnan við beygju á bug. Annar staður sem krókurinn er veikur fyrir getur verið við agnhaldið. Já, þrátt fyrir allt þá eru krókar með agnhaldi ennþá útbreiddari heldur en agnhaldslausir krókar. Ef agnhaldið er skorið of djúpt, þá hættir krókinum til að vera veikur einmitt við oddinn.
Það er ekki aðeins að maður verður að nota ping testiðþegar maður leggur af stað í að hnýta flugu. Það sem augað sér, er það sem flugan fer á og því er eins gott að þekkja og velja góða króka sem eru vel gerðir áður en fluga er hnýtt. Mér finnst í það minnsta fátt leiðinlegra heldur en kasta flugu sem ég hef haft fyrir því að hnýta yfir veturinn og krókurinn brotnar um leið og flugan lendir í fyrirstöðu eða uppi í fiski eða einfaldlega yfirgefur tauminn þegar minnst varir.
Eins og vodka martini renndum við í hlað við Landmannahelli klukkutíma fyrir miðnættið á föstudaginn, sem sagt hrist og skekin eins Bond vill hafa það. Þar sem ferðalag okkar hófst uppi á Sprengisandi lá beinast við að fara veg 208 niður að gatnamótum við Landmannaleið (F225). Enn þann dag í dag skil ég ekki hvers vegna þessi skollans partur fær ekki F-forskeytið, mér datt oftar en einu sinni F-orðið í hug þegar ég keyrði þar yfir urð og grjót og þvottabretti til skiptis.
Við gerðum ýmislegt veiðitengt þarna um kvöldið, en ekkert að því kemur til umfjöllunar í þessari grein. Ef einhver hefur áhuga á að lesa um það má gera það á heimasíðu Ármanna með því að smella hérna.
Það var síðan ekki fyrr en vel eftir hádegi á laugardaginn að við gerðum okkur ferð inn að Herbjarnarfellsvatni. Mikið ósköp var nú kuldalegt við vatnið, snjór niður í vatn á nokkrum stöðum og það var beinlínis kuldalega grátt, enda urðum við ekki vör við nokkurn einasta fisk á ferli. Við nýttum okkur tækifærið og settum slatta af snjó í slöngu til að fríska upp á kælikassann okkar.
Oft hefur Dómadalsvatnið leikið við okkur á miðjum degi og því ákváðum við að kíkja þangað fyrst við vorum ekki með neitt annað á dagskrá fram yfir kvöldmat. Vatnið var ekki alveg eins kuldalegt og Herbjarnarfellsvatnið en það var nú samt á því smá græn slikja sem gaf nýlegri bráðnun merki.
Við Dómadalsvatn
Við veðjuðum á að fara inn með vatninu að vestan og freista þess að baða nokkrar flugur. Leikar fóru svo að ég fékk nokkrar undirtektir við hinum og þessum flugum, en veiðifélagi minn fékk þó fisk sem í ungæðishætti sínum lét glepjast af gylltum Nobbler með brúnu skotti. Þar sem viðkomandi fiskur var ekki pönnutækur var honum skilað aftur í vatnið og verður vonandi orðinn stór og sterkur á næsta ári.
Það atvikaðist reyndar þannig að við ásamt félaga okkar í Ármönnum sem hafði slegist í hópinn um kvöldmatarleitið, gátum ekki staðist kvöldstilluna og heimsóttum vatnið aftur upp úr kl.22 en lutum í lægra haldi fyrir kaldri dalalæðunni sem lagðist yfir Dómadalinn um miðnættið án þess að hafa sett í fisk.
Dalalæðan við Landmannahelli – smellið fyrir stærri mynd
Systir læðunnar í Dómadal gerði sig einnig heimakomna við Landmannahelli þannig að við fórum fljótlega í bólið eftir að hafa notið útsýnisins og kyrrðarinnar og veiddum ekkert meira á stöng þessa helgina. Rétt aðeins af ástandi Landmannaleiðar (F225) niður á Landveg; vegurinn er miklu mun betri heldur en 208, skil ekkert í fólki sem velur efri leiðina niður í Framvötn.
Veiðifréttir hafa alltaf áhrif á mann, sérstaklega þegar þær koma frá stöðum sem maður þekkir þokkalega. Kvíslaveitum hefur brugðið fyrir á samfélagsmiðlum upp á síðkastið og þar sem við veiðifélagarnir höfðum hvort hið er ákveðið að kíkja í Kvíslavatn bráðlega varð úr að við slógum tveimur ferðum í eina og færðum færanlega veiðihúsið okkar upp á Sprengisand á miðvikudaginn.
Kvíslaveitur – smellið fyrir stærri mynd
Skömmu áður en komið er að Svartá er ekið yfir Þveröldur og þaðan er ágætis útsýn yfir Kvíslaveitur. Dratthalavatn er til vinstri á myndinni, þá Svartárskurður og Kvíslavatn hægra megin við miðju. Ofan Kvíslavatns eru síðan Hreysislón, Eyvindarlón og Þjórsárlón. Yfir svæðinu vaka svo Kerlingarfjöll og Hofsjökull í vestri.
Veðrið á miðvikudag var frábært og Sprengisandur (F26) frá Vatnsfelli og inn að Svartá var bara í ágætis standi eftir að hafa verið opnaður nú nýverið. Stefnan var tekin á Ölduver að vík eða bugt sem gengur undir nafninu Skötuvík hjá okkur veiðifélögunum. Ekki svo að skilja að við höfum veitt skötu þarna, en skötuorm höfum við aftur á móti séð í maga nær allra fiska sem þar hafa veiðst sbr. fyrri ferðir okkar sem lesa má með því að smella hérna.
Umrædd vík við Ölduver
Eins gott og veðrið var á miðvikudagskvöldið, þá var töluverður strekkingur á fimmtudaginn og ekki mikið um skjól fyrir norðaustan áttinni að finna við Ölduver. Við gleyptum í okkur morgunverð og héldum til baka inn á Sprengisandsleið í stefnuna norður. Mögulega væri eitthvert skjól að finna norðan við vatnið, kannski í grennd við Tunnuver.
Eins og svo oft áður kemur hér útundúr frá veiðisögunni sem að þessu sinni tengist örnefnum og ýmsum ambögum sem skotið hafa upp kollinum.
Kvíslaveita dregur nafn sitt af öllum þeim kvíslum sem veitt var til þeirra 5 lóna sem mynda veiturnar. Vatnið sem við heimsóttum hét Kvíslavatn fyrir tíma Kvíslaveitna og heitir það enn þann dag í dag. Kvíslárveitur eru ekki til og Kvíslarvatn er í Veiðivötnum. Þá er það sagt og verður ekki sagt aftur.
En aftur að ferð okkar í Tunnuver. Eftir smá leit að slóðanum niður að Tunnuveri fannst hann loksins, nokkru vestar heldur en ég hef sett hann á kortið af Kvíslavatni hér á síðunni. Núverandi afleggjari að Tunnuveri er rétt austan við brúna yfir Hreysisskurð, biðst ég afsökunar á ónákvæmri staðsetningu á kortinu. Hvað um það, veiðistaðurinn sem við stefndum á er annar af tveimur álitlegum veiðistöðum við norðaustanvert Kvíslavatn. Ef haldið er áfram umræddan slóða er komið að öðrum álitlegum veiðistað sem er við ós Eyvindarkvíslar fremri.
Tunnuver – smellið fyrir stærri mynd
Það hvíla á mér einhver álög þetta sumarið eða ég kann ekki fótum mínum forráð. Þrisvar í Veiðivötnum fyrir rúmri viku síðan og á fimmtudaginn endurtók ég leikinn við Tunnuver. Þar setti ég fót niður á sandbotn sem reyndist svo alls ekki vera sandbotn. Sandbleytur, innan sviga kviksyndi, eru fylgifiskar leysinga að vori og langt fram á sumarið uppi á hálendi. Það er óþægilegur andsk…. að lenda í þessum glompum og sökkva upp að hné eða lengra. Við stöldruðum ekkert mjög lengi við í Tunnuveri, þó nógu lengi til að tveir vænir fiskar kæmu á land.
Þegar við komum úr Tunnuveri sótti á okkur töluverður efi hvort við hefðum betur haldið áfram á þeim slóðum því vindur var umtalsvert meiri sunnar við vatnið heldur en fyrir norðan. Við þvældumst nokkuð um svæðið, skoðuðum hina og þessa staði sem við höfðum áður veitt á en settum ekki í neinn fisk. Það vantaði kannski nennuna í okkur að kasta í rokinu og þegar kólnaði í þokkabót færðum við okkur aftur í vagninn og settumst við spil og snakk át þar til komið var að háttumálum.
Úfið Kvíslavatn í rokinu
Föstudagurinn heilsaði okkur með smá golu sem datt þó fljótlega niður. Blíðan tók öll völd og við ákváðum að halda kyrru fyrir í Skötuvík og egna fyrir fiskinn þar sem greinilega var nóg af. Ég nefndi það áður að viðurnefni sitt fékk þessi vík af skötuorminum, uppáhalds fæðu silungsins. Á meðan veiðifélagi minn kippti nokkrum fiskum á land, datt ég í rannsóknarvinnu með því að skoða vandlega litaafbrigði skötuormsins í fiski sem ég tók á land. Áður hef ég séð brúna og svarta skötuorma, en þarna voru þeir meira út í grænt, rétt eins og um daginn í Veiðivötnum. Stuttur grænn Nobbler sannaði sig, dreginn frekar hægt með botninum. Grænn skötuormur sem ég dundaði við að útbúa hérna um árið gekk líka, þ.e. ég fékk mjög ákveðin viðbrögð við honum. Eitthvað var stærðinni ofaukið og enginn urriði festist á krókinum. Ég þarf eiginlega að hnýta kvikindið á smærri krók og hafa hann grænni, þá gæti hann gefið mér fisk.
Ekki réttur litur og heldur stór á #10
Þegar kula tók síðdegis smelltum við í orkuríkan kvöldverð, pökkuðum saman og héldum suður á bóginn þangað sem við áttum erindi að Fjallabaki. Þrátt fyrir að fimmtudagurinn hefði nánast fallið flatur vegna leiðinda veðurs, þá bætti föstudagurinn það heldur betur upp og í heildina var þetta hin besta ferð. Undirritaður hefur samt oft gert betri veiði, en árið í ár endar á sléttri tölu og því ekki við miklu að búast frá mér þetta árið. Veiðifélagi minn raðar þess í stað inn fiskum í sinn dálk, sérstaklega urriðum á pínulítinn Nobbler. Þeir voru 12 fiskarnir sem fengu far með okkur til byggða, öðrum var sleppt fyrir síðari veiðiferðir.
Grein sem birtist í fréttablaði VEIDA.IS árið 2012. Eitthvað hafa áherslur og upplifun breyst á þeim árum sem liðið hafa, en flest stenst þetta tímanns tönn.
Þegar gjólan færist svo mikið í fang að hún verður að roki, leggja flestir veiðimenn árar í bát. Þeir hörðustu láta sig hafa rokið og fylgifisk þess, rigninguna. Miðað við Íslenskar aðstæður er kannski eins gott hve mér finnst yfirleitt gaman að eiga við mótvind.
Til að koma flugunni út á móti vindi þrengi ég kasthornið og nota sneggra tvítog til að hraða línunni. Undir svona kringumstæðum er um að gera að halda kasthjólinu kröppu (litlu) þannig að línan skjótist fram og verði fyrir sem minnstum áhrifum af vindinum. Fyrir þá sem styðjast við kastklukkuna, aftara stopp kl.13, fremra stopp kl.11 og síðan lagt niður til kl.8:30 þá getur verið ágætt að ímynda sér að flýta kastklukkunni aðeins þegar maður glímir við vindinn. Aftara stopp kl.12, fremra stopp kl.10:30. Með því að láta stöngina færast aðeins um 1 ½ klst. í stað 2 klst. í kastklukkunni, þá þrengist kasthjólið og línan verður ekki fyrir eins miklum áhrifum vindsins.
Eins er gott að hafa í huga þegar maður veiðir á móti vindi, hann er ekki eins sterkur niðri við vatnið eins og hann er í 1 – 2 metra hæð. Það fer ótrúlega mikið púður úr honum rétt við yfirborðið og þangað geta þeir sem ráða við undirhandarkast komið línunni.
Þegar allt um þrýtur er hægt að skipta yfir í kaststöngina og nota maðk eða spún. Ég reyni ýmislegt áður en ég gefst upp fyrir rokinu því veiði á móti vindi hefur oft gefið okkur veiðifélögunum flesta og flottustu fiskana. Að koma agninu rétt útfyrir ölduna þar sem hún brotnar á grynningunum er næstum ávísun á fisk. Hann beinlínis veður í æti þarna og um að gera að prófa.
Á síðustu og verstu tímum er beinlínis orðið hættulegt að nýta ákveðin hugtök í léttvægu spjalli eða riti. Eignarhald á ákveðnum orðum er orðið slíkt að hætt er við að maður gjaldfelli ákveðin hugtök með því að nota það. Ég ætla nú samt að láta slag standa og held því fram að grúskið mitt sem tengist stangveiði sé samheiti yfir áráttur og fýsnir. Fyrst og fremst er þetta fróðleiksfýsn með sterku ívafi söfnunaráráttu. Þegar síðan við bætist sú árátta mín að vilja ekki aðeins njóta veiðinnar heldur líka þess sem ég veiði, þá er eflaust um eitthvert afbrigði morð- og matarfýsnar að ræða. Í einhvern tíma hét þetta nú bara að bjarga sér og var talin til hvata sbr. sjálfsbjargarhvöt, frekar en fýsnar. En nóg um þetta.
Um daginn var ég að taka til í greinasafninu mínu og fann tímaritsgrein sem ég náði mér í fyrir fjölda ára og var hálfpartinn búinn að gleyma að hafa lesið. Greinin hafði á sínum tíma mikil áhrif á mig, kannski helst vegna þess að hún féll mjög vel að mínu háttarlagi og ég fann mig svolítið í henni. Greinina skrifaði Steve Culton, veiðimaður, hnýtari og sjálfstætt starfandi greinahöfundur, sjá vefsíðu.
Í þessari grein tók Steve fyrir og mælti með ákveðinni þráhyggju sem snýst fyrst og fremst um að leggja ákveðið vatn eða veiðistað í slíkt einelti að maður nái að þekkja staðinn, fiskana og breytileika umhverfis alveg út í gegn. Það fellst alveg heilmikill lærdómur í því að vita hvar fiskurinn heldur sig á hverjum árstíma, á mismunandi tímum dags og undir mismunandi kringumstæðum. Það að taka einn ákveðinn veiðistað fyrir lágmarkar áhrif mismunandi veiðistaða á skoðun á atferli og hegðan fisks. Það er ekki þar með sagt að maður eigi bara að veiða þennan eina veiðistað en það sem maður lærir á þessu er breytileiki vatna eftir árstíma og jafnvel innan dagsins. Fiskurinn, ætið og vitaskuld vatnið sjálft er alls ekki eins á mismunandi tímum, það sem maður lærir af einu vatni má síðan heimfæra á önnur þegar heildarmyndin næst.
Sjálfur átti ég svona vatn sem ég stúderaði nokkuð lengi og þar lærði ég heilmikið sem ég gat síðan nýtt mér í ferðum í önnur vötn og vatnasvæði.
Tilhlökkun nær aðeins ákveðið langt þegar kemur að veiðiferðum. Að þessu sinni stillti ég væntingarnar niður um nokkur prósent, svona til samræmis við það sem ég hafi frétt frá félögum mínum síðustu vikur. Hvort þessi lækkun væntingavísitölunnar hafi verið nóg er ég enn að gera upp við mig núna þegar heim er komið.
Klassísk upphafsmynd frá Veiðivötnum
Það var í það minnsta einmuna blíða og fallegt veður þegar hópurinn okkar renndi í hlað upp úr hádegi á miðvikudaginn. Einn var skipaður í sóttkví, þ.e. að vera fulltrúi okkar og sækja þrjár veiðiskýrslur, lykil og tilbehör til hennar Bryndísar og það leið ekki á löngu þar til komið var að úrslitastundinni; Hvert á að halda?
Fyrir valinu hjá okkur hjónum var að fara inn í Botn, þ.e. Norðurbotn við Litlasjó. Ástæðan var hávísindaleg íhugun um hlýnun vatnsins á svörtum sandi í bland við sögur af (ágætri) veiði við Strigaskó og á Lönguströnd dagana á undan. Veðrið var með eindæmum dásamlegt, hálfskýjað og suðvestanátt sem passaði kasthönd ágætlega.
Kvöldkyrrð í Norðurbotni
Alveg frá því við byrjuðum og þar til rúmlega kl.23 vorum við og fleiri kunningjar okkar á því að nú færi hann alveg að fara að koma upp að, en það bara gerðist ekki. Að vísu setti veiðifélagi minn í fisk en sleppti, svo setti hún í annan og hirti. Það voru nú allar aflatölur kvöldsins hjá okkur hjónum.
Eftir miklar vangaveltur og marga kaffibolla á fimmtudagsmorguninn var ákveðið að byrja daginn í Hellavatni sem ég hef sterkar taugar til. Í þessu stórkostlega umhverfi tók ég minn fyrsta Veiðivatnaurriða um árið og því hef ég alltaf sætt lagi að kíkja í vatnið. Að þessu sinni var einmuna blíða og það sem meira var, við sáum til fiskjar í Hellavatni, ólíkt því sem segja má um flest önnur vötn í þessari ferð, ef Arnarpollur er undanskilinn.
Eftir töluverða tilraunastarfsemi hjá mér með ýmsar flugur, meira að segja aflaflugu fyrstu vikunnar í Veiðivötnum; hvítum Nobbler, þá var það ekki fyrr en frúin setti agnarsmáan grænan Nobbler undir og dró hann löturhægt eftir botninum að hún setti í fisk sem reyndar fékk líf sökum smæðar. Sjálfur var ég ekkert á tökunótunum og fór því fisklaus úr Hellavatni þann daginn.
Eftir miðdegisverð fórum við ásamt öllum hópinum í Ónýtavatn þar sem Kári sperrti sig allhressilega í fangið á okkur. Grugg og góð alda átti að vera uppskrift að fiski og leikar fóru þannig að við flugufélagarnir tókum sitthvorn fiskinn á æpandi rauðan Nobbler og rauðan Dýrbít, en slepptum þeim báðum. Aðrir í hópinum vorum duglegir með spúninn á þessu svæði og reytingur af fiski kom á land en töluverðu sleppt sökum smæðar.
Áður en lengra er haldið, þá er rétt að taka það fram að ég sleppi ekki aðeins fiskum. Í þessari grein sleppi ég því líka að nefna stoppin okkar við vötn sem gáfu hvorugu okkar fisk eða þar sem ekkert líf var að sjá. Eins og verða vill í rólegum ferðum í Veiðivötn, þá var víða farið og mikið reynt og það voru ekki bara við sem vorum á faraldsfæti þessa daga. Flestir veiðimenn voru duglegir að færa sig á milli vatna, en stoppuðu yfirleitt stutt á hverjum stað.
Upplifun okkar af ferðalögum á milli vatna dagana á undan varð til þess að við ákváðum að byrja aftur í Hellavatni á föstudaginn. Að þessu sinni þáði einn mjög bústinn urriði appelsínugulan Nobbler hjá frúnni og annar (ekki eins bústinn) gaf sig á tal við ólívulitaðan Nobbler hjá mér. Fleiri urðu nú ekki fiskarnir að þessu sinni, en áfram létu þeir sjá sig og þannig stimplaði vatnið sig enn betur inn hjá okkur.
Einhverjum kílómetrum og einum miðdegisverði síðar varð Grænavatn fyrir valinu hjá okkur hjónum. Ég átti nú svo sem ekki von á einhverri flugeldasýningu, vatnið er e.t.v. ekki þekktast fyrir slíkt en þeir ku vera stórir og stæltir fiskarnir sem alast upp í því. Hann var nú samt ekkert sérlega stæltur, þessi sem frúin setti í og sleppti, en hún er þó í það minnsta búin að fá fisk í Grænavatni, eitthvað annað en undirritaður.
Þegar það fór að húma færðum við okkur enn og aftur á milli staða og merkilegt nokk, þá varð Hellavatn fyrir valinu, núna til að klára daginn. Þegar við mættum á staðinn var smá strekkingur, en ekki meiri en svo að dvölin þar var kærkominn hvíld eftir vindbarning við vötnin undir Snjóöldufjallgarðinum. Þegar leið á kvöldið fór hitastigið heldur að lækka, en það kom þó ekki í veg fyrir að frúin tæki þrjá fiska. Tveimur sleppti hún en fórnaði töluverðum tíma í að þreyta og taka á land 58 sm urriða sem tók hvítan Nobbler. Sjálfur dró ég í land, settist niður og naut þess út í ystu æsar að fylgjast með viðureigninni, svona viðureign og stórum fiski vill maður ekki missa af hjá veiðifélaga sínum.
Skeifan – Prófað en ekki til umfjöllunar – Smellið fyrir stærri mynd
Hvar við byrjuðum á laugardaginn skiptir í sjálfu sér ekki nokkru máli, þaðan var ekkert að frétta. Hvorki uppitökur, byltur né nokkuð annað. Eftir miðdegisverð stefndi dagurinn í að verða fisklaus hjá okkur báðum, en þá datt okkur Arnapollurinn í hug (ekki í fyrsta skiptið í þessari ferð reyndar). Að venju fórum við í Norðurbotn (já, hann er líka í Arnarpolli) og reyndum við gíginn þar sem við höfðum séð líf á fimmtudaginn. Ég reyndi allt, þ.e. flóru af flugum í ýmsum litum, mismunandi inndrátt og þar fram eftir götunum. Stutta útgáfan; ég fékk ekki eitt einasta högg. Á meðan færði frúin sig innst í krikann og setti í 6 stk á skömmum tíma. Þeir voru reyndar grunsamlega svipaði í vextinum allir, þannig að ég segi að hún hafi tekið sömu tvo fiskana nokkrum sinnum.
Við Arnarpoll
Eftir að hafa flutt okkur aðeins til um vötn, lá leið okkar að Litlasjó. Ekkert að frétta í Fyrstuvík, ekkert að frétta í Hrauninu, en þegar við komum niður í Hermannsvík vorum við stoppuð með miklu handapati og bendingum af félögum okkar í hópinum. „Brjálaðar tökur, fullt af fiski, hættið þessu kjaftæði og upp með stangirnar“, voru orð sem féllu. Þeir félagar höfðu sem sagt lent í skoti, fengið hvíld og lent aftur í skoti og við, þ.e. ég og veiðifélagi minn, rétt náðum að sjá síðustu fiskana koma á land áður en botninn datt úr öllum skemmtilegheitunum. Að vísu náðum við sitthvorum tittinum sem við slepptum og eftir töluverðar vangaveltur og fluguskipti tókst mér að þrefalda mína fiska í þessari ferð. Þetta er ekki erfitt reikningsdæmi; 1 fiskur á föstudaginn hirtur úr Hellavatni, 2 fiskar úr Litlasjó á laugardagskvöldið, samtals 3 fiskar hirtir í mína kistu í þessari ferð. Glöggir lesendur sjá þá í hendi sér að veiðifélagi minn var með 4 fiska hirta (þar af einn sem hefði rúmað alla mína c.a. 5 sinnum). Slepptir fiskar voru nokkrir og skiptast í mjög ýktu hlutfalli; frúin sleppti 13 stykkjum á meðan ég þurfti bara að sleppa þremur.
Fjölþjóða: Pólskar pylsur, steiktar upp úr íslensku smjöri og Austurrískur snaps – Staðgott nesti í lítilli veiði
Hvað það er sem hafði þessi áhrif á aflatölur þori ég ekki að segja til um. Uppitökur og sýningar fiska voru mjög fáar þessa daga sem við vorum í vötnunum. Kannski er bara svo mikið æti í vötnunum að fiskurinn þarf hvorki að vera velta sér í yfirborðinu eða koma upp að ströndinni í leit að hornsíli, sem nóg var af við öll vötnin. Það sem styður þessa ætiskenningu er e.t.v. það að magainnihald þeirra fiska sem við tókum var kuðungur og mýflugur að minnihluta. Mest var af skötuormi, sem mér kunnugri menn segja að sé nokkuð snemmt í árinu. Skötuormurinn er silunganammið eins og Bryndís sagði við okkur um árið og ef hann fær skötuorm þá leitar hann ekkert að öðru. Búsvæði skötuormsins er á botninum, meira að segja lengst úti í dýpinu og því er enginn ástæða til að koma upp að ströndinni eða láta sjá sig á yfirborðinu. Hvort þessi kenning stenst veit ég ekki, en ég kann enga aðra betri að sinni.
Já, ég er enn að gera það upp við mig hvort væntingavísitalan hefði verið of há hjá mér. Því er ekki að leyna að þetta er lélegasta Veiðivatnaferðin ever, eins og krakkarnir segja. Á móti kemur að það eitt að vera í Veiðivötnum í þessa daga, njóta umhverfisins og þess frábæra félagsskapar sem hópurinn okkar er, það dugar mér mjög langt í að réttlæta allan aksturinn, barninginn og aflaleysið. Takk fyrir mig Veiðivötn og hópurinn, kveð með Austurrískum frasa; I‘ll be back.