Ég heyrði í útvarpinu um daginn að tunglið væri að fjarlægjast okkur um 4 sentímetra á ári. Það er ekki nóg með að sumarið hefur yfirgefið okkur heldur er tunglið að gera það líka. Hvoru tveggja eru slæmar fréttir því þegar þetta tvennt fer saman, sumarblíða og fullt tungl þá er virkilega von á skemmtilegri veiði. Þannig er að aðdráttarafl tunglsins hefur áhrif á fisk í vötnum og sjó þannig að þeir leita meira upp á yfirborðið og þá sérstaklega ef aðeins er tekið að rökkva og fullt tunglið nýtur sín á himninum. Í dag, 30.júní fæðist nýtt tungl og það verður orðið fullt aðfararnótt 15.júlí og því e.t.v. ekki úr vegi að taka seinni vaktina þann 14. og vaka aðeins lengur eða taka næst besta kostinn og vaka með fiskinum aðfararnótt laugardagsins 16.
-
Tunglið
Höfundur:
-
Hítarvatn, 24. – 25. júní
Hér verður hvorki sögð frægðarsaga af veiðimönnum né konum. Við hjónin brugðum okkur bæjarleið á föstudaginn vestur í Hítarvatn. Veðurspáin sagði til um NA og A átt um helgina, létta metra á sekúndu og þokkalegasta hita. Við hreiðruðum um okkur í hraunjaðrinum austan við Hólm og vorum bara nokkuð heppinn að vera ekki alveg við vatnið, slík var nepjan sem stóð af vatninu. Brugðum okkur í vöðlurnar upp úr kl.21 og vorum að í Hrauntöngunum til að ganga eitt án þess að taka eitt einasta kvikindi á land. Jæja, laugardagurinn yrði bara betri.
Við tókum daginn seint, notuðum morguninn í marga Latté og fylgdumst vel með þeim sem gengið höfðu inn fyrir hrauntunguna áður en við tókum okkur til. Þar sem töluverður asi virtist á veiðimönnum við vatnið og flest sem benti til að lítið væri um afla, ákváðum við að fara inn að víkinni undir Hólmanum. Höfðum farið í þá vík í fyrra og gengið ágætlega í svipaðri vindátt. Þrátt fyrir þokkalegar aðstæður var mjög lítið um líf, en eftir langa mæðu varð ég var með Orange Nobbler (stuttur) og það var einmitt lengdin á fiskinum sem ég krækti í og endaði pönnusteiktur með smjöri og sítrónupipar í kvöldverð. Síðar um kvöldið reyndum við aftur fyrir okkur, með spún sökum vinds, á töngunum undir Hólmi og tókum sitt hvorn fiskinn, ég áfram í smáfiskinum en konan tók tæplega pundara. Síðan ekki söguna meir, og líkur þar með veiðiþætti helgarinnar, ef undan eru skilin þau orð sem höfð eru eftir Finnboga í Hítardal að þetta vor væri það lélegasta í vatninu í það minnsta í fjögur ár. Okkur tókst að telja saman 12 fiska hjá þeim tæplega 20 veiðimönnum sem við sáum til og áttum orðastað við um helgina.Höfundur:
-
Heyrn
Ég er svo óheppinn að hafa ekki rakaraheyrn þ.e. geta skynjað hvað er sagt og brugðist við með réttum svörum án þess að hafa minnstu hugmynd um hvað er verið að tala um. Ég annað hvort heyri allt eða ekkert, en ég er nú líka bara venjulegur maður. Fiskurinn aftur á móti heyrir og skynjar hvort sem honum líkar það betur eða verr. Buslugangur, steinaglamur og skellir í þungum flugum á yfirborðinu eru allt eitthvað sem fiskurinn heyrir með skynrákinni sem liggur eftir honum endilöngum og hann bregst við þessu. Stundandi vatnaveiði í grænu vöðlunum mínum (ég trúi því að grænt sjáist síður en grátt) hef ég oft upplifað það að fiskurinn syndir rétt við fætur mér án þess að skeyta nokkru um mig, svo fremi ég standi fastur í fæturna og ekki urgi í botngrjótinu. Já, allt í lagi, ef hann syndir rétt við fætur mér þá hef ég örugglega vaðið of langt en það er ekki punkturinn með þessu heldur sá að það er hægt að vaða varlega og af skynsemi þannig að fiskurinn fælist ekki, kasta létt þannig að flugan skelli ekki á yfirborðinu og skilja hundinn eftir heima (ef ég ætti hund). Við getum svo óhikað sest niður á bakkanum og rætt þetta frekar því fiskar heyra ekki mannamál niður í vatnið.Höfundur:
-
Ólýsanleg hegðun
Því hefur borið við að umgengni veiðimanna við vötn og ár hefur verið nokkuð ábótavant í gegnum tíðina og nú hafa borist fregnir af ólýsanlegri hegðun á Arnarvatnsheiði. Sjá frétt á Skessuhorni. Hér keyri algerlega um þverbak og hegðun sem þessi kastar rýrð á alla veiðimenn, því miður. Þessum veiðimönnum veitti ekki af smá tilsögn í mannasiðum og fiskflökun. Ef þessi aðilar skyldu slysast inn á þetta blogg mitt; vinsamlegast leitið ykkur aðstoðar sem allra fyrst. Fyrsta skrefið gæti verið að skoða neðangreint myndband á Youtube.
Höfundur:
-
Meðalfellsvatn, 21.júní
Eins gott og veðrið var í höfuðborginni í gærkvöldi, var það ekki alveg eins stillt í Kjósinni. Þegar við hjónin mættum á svæðið upp úr kl.20 var strekkings vindur og ekki álitlegt að koma út flugu en við létum okkur hafa það og komum okkur fyrir rétt vestan við Hljóðasteina. Um leið og vindur fór að ganga niður tók fiskurinn við sér og frúin setti í flottan punds urriða með Pólskum Pheasant Tail. Sjálfur var ég í ungbarnaeftirlitinu, tók þrjá titti á Peacock, Pólskan PT og Rolluna. Töluvert af fiski að vaka en mér sýndist að við værum þau einu sem eitthvað tókum af þeim 3-4 sem voru á staðnum.Höfundur:
-
Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Nú er lag að fara með alla fjölskylduna í eitthvert af þeim 27 vötnum sem boðið er í, ókeypis þennan veiðidag. Allar nánari upplýsingar eru á vef Landssambands stangveiðifélaga og í bæklingi þeirra um veiðidaginn sem má nálgast hér.Höfundur:

