Skyndiákvörðun og skreppur í Úlfljótsvatnið rétt fyrir kvöldmat hjá okkur hjónunum. Ákváðum að prófa inn af Steingrímsstöð og ekki sveik staðurinn mig. Tók eina hálfs annars punda bleikju á Knoll og svo tvo titti sem fengu líf. Einn mínus í ferðinni, það gerði nokkuð góðan austan strekking sem eyðilagði aðeins köstin hjá okkur þannig að við færðum okkur í sunnanvert vatnið gengt Brúarey á leiðinni heim. Töluvert líf á þeim slóðum og nokkrir veiðimenn. Frúin setti í einn titt á Pólskan PT, en meira varð nú ekki úr veiðinni.
-
Úlfljótsvatn, 9.ágúst
Höfundur:
-
Hatch
Smá klippa úr væntanlegri mynd frá Gin Clear Media sem kemur á markaðinn innan skamms. Þetta er virkilega eitthvað sem mann hlakkar til að skoða í fullri lengd.Höfundur:
-
Úlfljótsvatn, 7.ágúst
Meðan verkefnastjórinn gekk frá lausum endum eftir Sumar á Selfossi skapp ég í Úlfljótsvatnið frá kl.13:30 – 17. Gríðarlega flott veður, sólskin og steikjandi hiti og mér kom í raun ekki til hugar að fiskurinn mundir gefa sig í þessu veðri. En, það var nú öðru nær. Mikið líf með bleikjunni úti í dýpinu inn af Steingrímsstöð, nældi í eina um pundið en gekk erfiðlega að fá fleiri til að bíta fast. Flugan sem gaf er af nokkuð þekktum meiði; svart vínil rib á hefðbundinn öngul, ‘Hot Red’ neon floss skott, fíngerður koparþráður á milli vafninga og svo koparhaus til að setja punktinn yfir i-ið. Einhver lagði til að kvikindið fengi nafnið Knoll og svo sjáum við til hvort Tott komi ekki við sögu seinna. Mjög sáttur eftir daginn.E.S. í þetta skiptið mundi ég eftir einhverju af húsráðunum og setti væna slummu af Vick’s VapoRup á bak við bæði eyrunn og undir nasirnar. Og viti menn, það dugði, ekki eitt einasta flugnabit.
Höfundur:
-
Fluguna í ruslið
Að velja flugu, leggja hana fram og koma henni langt út eru allt gild atriði sem við viljum hafa í huga þegar við veiðum. Eitt atriði til viðbótar sem vill þó oft gleymast er; koma flugunni á réttan stað. Það geta verið margar ástæður fyrir því að við viljum koma flugunni okkar á einhvern ákveðinn stað. Kannski leynist fiskurinn við stein, kannski liggur hann þétt við gróðurfláka eða undir bakkanum þannig að við verðum að gæta vel að framsetningunni svo við eigum ekki á hættu að tapa flugunni, styggja fiskinn og þá missa af honum. Þá getur ruslakarfan komið að góðum notum. Prófaðu að fara út á grasflötina með ruslafötuna eða nýttu ferðina þegar þú ferð út með ruslið og gríptu stöngina með þér. Að stilla fötunni upp, merkja sér 4, 6, 8 & 10 metra fjarlægð frá henni, taka nokkur lauflétt köst þangað til að þú nærð því að láta fluguna detta niður í fötuna geta sparað þér mikið angur í veiðinni og gert hana enn meira spennandi en ella. Mundu bara að ofgera ekki æfingunum, oftar og stutt í einu er betra en lengi og sjaldan.Höfundur:
-
3 tbl. Veiðislóð
Þriðja tölublað Veiðislóðar er komið út hjá Vötn og veiði. Enn og aftur tekst þeim félögum að koma saman blaði með fjölbreyttu efni fyrir veiðimenn og er það vel. Viðtökur blaðsins hafa víst farið langt fram úr björtustu vonum sem kemur mér ekkert á óvart, flott blað og góðar greinar. Nú er um að gera að smella á tengilinn hér að ofan og kíkja á blaðið.Höfundur:
-
Göslarinn veiðir líka
Göslarinn veiðir líka þegar hann veður út frá bakkanum, hræðir fiskana á undan sér, hendir beitunni út og göslast aftur upp á bakkann, setur stöngina í letingjann og bíður, en…… svæðið sem fiskurinn heldur sig á meðan kyrrð og ró hvílir yfir vatninu er mjög lítið m.v. það svæði sem hann kýs sér sem öruggt skjól verði hann fyrir áreiti. Það er í eðli silungsins að leita út frá bakkanum, út í dýpið ef hann styggist. Hann víkur sér ekki til hliðar, færir sig um nokkra metra og leggst þar fyrir, hann leitar út í öryggið og þar með stækkar svæðið verulega sem hann getur leynst í og veiðimaðurinn þarf að auglýsa agnið sitt á. Nákvæmlega sömu reglur eiga við fluguveiði, við getum þurft að halda kyrru fyrir í töluverðan tíma þar til fiskurinn kemur aftur inn á yfirráðasvæði okkar ef við förum ekki varlega.Höfundur:

