Í þessari viku veittist mér sú ánægja að heimsækja tvenn veiðifélög og halda smá tölu um dásemdir vatnaveiðinnar. Nú síðast í kvöld heimsótti ég alveg bráð skemmtilegan félagsskap starfsmanna RB á Veiðimessu að vori. Þetta var síðasta vísitering mín að sinni, nú tekur alvaran við, veiðin. Annars er það ekkert síður minn akkur að hitta veiðimenn og konur á svona samkomum, það má alltaf næla sér í gagnlegar upplýsingar í góðra vina hópi. Bestu þakkir fyrir gott hljóð í vetur og vonandi hafa menn og konur haft eitthvert gagn og gaman af.
-
Trúboði vorsins lokið
Höfundur:
-
Ráð gegn valkvíða
Ég hef með tíð og tíma tekið nokkru ástfóstri við ákveðnar flugur sem verða ósjálfrátt oftar fyrir valinu en aðrar þegar ég byrja veiðina; Pheasant Tail (original og kúluhaus) og svo svartar mjónur. En þegar þessir vinir mínir bregðast þá grípur ákveðin valkvíði um sig, hvað á ég að velja næst? Þegar uppáhaldið bregst þarf ekki alltaf að sveiflast öfganna á milli. Ágætt getur verið að hafa eftirfarandi forgangsröðun í huga við flugnavalið:- Breyttu um stærð. Ekki endilega alltaf minni, stærri er líka kostur.
- Veldu aðeins aðra lögun, stutt skott í stað langs, bústinn búkur í stað granns, stuttur búkur í stað langs.
- Örlitlar sveiflur í lit geta gert kraftaverk. Haltu þig við sama grunnlitinn, en með aðeins öðrum frambúk, baklit eða haus.
- Framsetning flugunnar skipti alltaf máli. Hvað svo sem þykir rétt hverju sinni; hægt og rólega í köldu vatni, sprækt og ögrandi í björtu veðri, þá kemur alltaf til greina að bregða út af vananum og frá öllum reglum annars lagið.
Höfundur:
-
Gróðurflákar

Gróðurfláki Fyrir mörgum eru gróðurflákarnir í vatninu hrein ávísun á vandræði og endalausar festur. Fyrir öðrum og þá helst fiskinum eru gróðurflákarnir endalaust forðabúr ætis. Eins óskemmtilegir og þeir geta verið þá eru gróðurflákarnir í vatninu heimkynni allskynns skordýra, seiða og hornsíla. Þetta veit fiskurinn og sækir óspart í þá.
Það er hægt veiða gróðurflákana án þess að vera í endalausum vandræðum. Ef vatnið er nægjanlega tært og þú sérð þokkalega til botns getur þú reynt fyrir þér þar sem gróðurinn er gysnari og/eða lænur hafa myndast í gróðrinum. Best er að nota flotlínu með tiltölulega stuttum taumi og þyngdar flugur undir þessum kringumstæðum. En svo má líka prófa eitthvað allt annað, hálfsökkvandi línu eða sökktaum en…. ekki nota sökkenda. Prófaðu að setja c.a. 1 -2 fet. af venjulegu taumaefni framan á sökktauminn þannig að flugan lyftist aðeins frá botninum, þá eru minni líkur á hún festist auk þess raskar taumaendinn gróðrinum minna. Ég hef horft á fisk fælast taumenda þegar hann skrapar leirbotn eða gróður og myndar þannig skugga eða grugg undir yfirborðinu.
Hvora aðferðina sem þú prófar, gættu þess að flugan lendi utan við gróðurinn og þú dragir hana inn og í gegn um hann, það minkar verulega líkurnar á að festa auk þess að með því egnir þú einnig fyrir fiskinn sem heldur til utan í flákanum.
Gjöfular flugur í gróðurflákum eru auðvitað Pheasant Tail, Héraeyrað, Beikir og svo Nobblerar / Damsel flugur til að líkja eftir seiðunum.
Ummæli
Siggi Kr. 30.04.2012: Getur verið fínt að nota booby flugur ef gróðurinn nær ekki mjög langt upp frá botninum. Allavega í stöðuvötnum – held að booby flugur virki ekki sérlega vel í straumvatni nema það renni mjög hægt.
Urriði 01.05.2012: Mér hefur gengið best að draga meðfram gróðurkantinum, ekki í gegnum gróðurinn. Svo ef gróðurinn nær ekki alveg upp í yfirborð þá strippa ég stundum léttar straumflugur yfir gróðurinn og þá skýst fiskurinn upp úr gróðrinum til að taka fluguna(ef hann er í stuði til þess).
Hörður Andri 04.05.2012: Það getur verið skemmtilegt að sjá urriðann skjótast út úr gróðrinum, mér hefur stundum fundist samt stóri urriðinn vera utan í gróðrinum meira, ekki inni í flókanum. Urriði hefur e.t.v. eitthvað til síns máls með að draga meðfram kantinum.
Höfundur:
-
Kleifarvatn, 29.apríl
Veiðifélagið eins og það lagði sig skrapp í Kleifarvatnið í dag.Svo mörg voru þau orð.
Veiðitölur ársins
Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað – – 2 1 9 7 Ummæli
G. Hjálmar 29.04.2012: Ég kannast svo sannarlega við það sem þú ert að ganga í gegnum! Fjórar ferðir og enginn afli, ekki gott fyrir sjálfstraustið það.
Höfundur:
-
Kleifarvatn, 28.apríl
Nokkuð erfiðar aðstæður; rok, rigning og kalt með köflum. Ágætis kastæfingar undir klettum Indjánans rétt fyrir kvöldmat og svo smá æfing á móti vindi undir Hverahlíðinni. Við erum sammála um það hjónin að framsetningar okkar með nýju línunum eru alveg að detta inn, skemmtilegar línur á móti vindi. Ekki eitt einasta orð um fisk. Það er nú farið að þyngjast í mér hljóðið núna.Veiðitölur ársins
Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað – – 2 1 8 6 Ummæli
Urriði 29.04.2012: Það er búið að opna Reynisvatn

Kristján 29.04.2012: Úps, hér brestur mig bara orð. Eigum við bara ekki að segja að ég hef aldrei komist upp á lagið með að veiða eldisfisk

Höfundur:
-
Sól og máni
Hver hefur ekki heyrt; Besta veiðin er undir fullu tungli, Fiskurinn tekur best við sólarupprás, Ekkert gerist fyrr en við sólarlag. Allt getur þetta verið rétt og gott, en hvenær á þetta sér allt stað og stund? Hér að ofan hefur nú bæst við nýr valkostur; Dagatal þar sem tilgreind er sólarupprás, sólarlag, tunglstaða og ýmislegt fleira fyrir hvern dag ársins. Dagatalið nær til loka þessa árs og verður væntanlega uppfært á og með nýju ári. Vonandi kemur þetta einhverjum að notum.Höfundur:

