Skítt með haustlitina, við fórum sko að veiða í dag. Þegar ekkert annað blasti við heldur en sófinn eða áfram haldandi tiltekt í bílskúrnum var valið ekki erfitt. Vatn sem við höfum lítið heimsótt í sumar varð fyrir valinu og ferðin sveik okkur ekki. Þokkalegasta veður, NNV4 og 7°C, skýjað. Lengi vel var útlit fyrir að frúnni tækist að saxa á forskot mitt í urriðum því fljótlega setti hún í þokkalegan hæng á Peacock og ekki löngu síðar enn einn á Black Ghost. Staðan var því orðin 30 / 33 og ég varð ekki var. Ég rölti, veiðandi til baka að bílnum en fékk ekki eitt einasta nart. Trúlega sá frúin aumur á mér og stakk upp á að við færum í gagnstæða átt og reyndum fyrir okkur þar. Og viti menn, ég setti í mjög fína hryggnu í öðru kasti og bætti svo annarri við skömmu síðar.
Hængarnir voru langt því frá farnir að dökkna, önnur hryggnan var ókynþroska en hin komin nokkuð nærri hrygningu, vel full hrognum sem nú eru í salti í ísskápnum. Flök í frysti og önnur komin í grafning.
Jamm, það er 30.september í dag og síðasti sjéns að bregða sér í megnið af vötnunum á Veiðikortinu. Þrátt fyrir að mjög hefur dregið úr veiði síðustu vikur, þá er alltaf von. Vötnin sem loka eftir daginn í dag eru; Kleifarvatn á Reykjanesi, Úlfljótsvatn, Ljósavatn, Arnarvatn, Hraunhafnarvatn, Æðvarvatn, Baulárvallarvatns, Haukadalsvatn, Hraunsfjarðarvatn, Hraunsfjörður, Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði, Laxárvatn og Hólmavatn í Dölum, Kleifarvatn og Mjóavatn í Breiðdal og Þveit við Hornafjörð.
Ekki má gleyma því að sum þessara vatna eru fiskgeng frá sjó og því ekki loku fyrir það skotið að hægt sé að krækja sér í einn slíkan, svona að hausti. Svo eru haustlistaferðir alltaf ágæt afsökun.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá gegnir flugustöngin tveimur megin hlutverkum; koma línunni út með sómasamlegum hætti og styðja við baráttu þína þegar þú hefur tekið fisk. Þetta er einföld og góð skilgreining, punktur, málið dautt. Eða hvað?
Óli og María í Veiðihorninu fengu um árið (2006) Hardy á Englandi til að hanna með sér flugustöng fyrir íslenskar aðstæður, Hardy Iceland sem var öllu lengri en tíðkaðist almennt með einhendur, 9,6‘ og stífari, afl hennar var alveg fremst, þ.e. í toppinum. Fleiri hafa hannað stangir fyrir íslenskar aðstæður, JOAKIM‘S stangirnar eru stimplaðar þannig, meðal-hraðar með mjúkum toppi. Nielsen, þ.e. Birgir Þórsson stimplar sínar Powerflex stangir með hentar íslenskum aðstæðum, hröð stöng. E2 frá Scott var síðan hönnuð eftir forskrift Engilberts Jensens, mjúk í toppinn og kraftmikil niður í skaftið. Sem sagt; ég er á Íslandi og taki ég fyllilega mark á þessu þá þarf ég stífa stöng í lengri kantinum með mjúkum toppi sem er þetta frá því að vera miðlungs- og upp í hröð. Og hvernig veit ég að stöngin sem ég er með í höndunum sé þetta allt, ef það er þá hægt í einni og sömu stönginni?
Það verður seint sagt um framleiðendur og seljendur flugustanga að þeir séu hugmyndasnauðir í lýsingum sínum á eiginleikum stanga; mjúk og kraftmikli, djúp vinnsla,einstaklega hröð, aflmikil og hröð. Flestar lýsingar miða að því að lauma inn þeirri hugsun hjá veiðimanninum að hann geti kastað lengra, miklu lengra með viðkomandi stöng. Lengi vel var valið á flugustöng nokkuð einfalt, til voru þrjár skilgreiningar; Fast action, Medum action og Slow action og skilgreiningin var að sama skapi einföld:
Fast action / hröð stöng sveigist mest og nánast eingöngu í efsta þriðjundi, þ.e. næst toppinum. Hentar best fyrir stærri (þyngri) flugur, þungar línur og í hreinskilni sagt, hentar betur þeim sem hafa unnið heimavinnuna sína í flugukasti vel, eru góðir kastarar. Allt gengur miklu hraðar fyrir sig og því þurfa tímasetningar í kastinu að vera nokkuð nákvæmar. Oftast notuð í veiði þar sem von er á stærri fiskum, stærri ám eða jafnvel strandveiði.
Medium action / miðlungs hröð stöng sveigist alveg niður í annan þriðjung, þ.e. niður í miðju. Þessar stangir hlaða sig hægar heldur en fast action stangir og því gefst kastaranum meiri tími til að tímasetja aðgerðir í kastinu. Góð alhliða stöng sem hentar í ám, lækjum og í vatnaveiði sem ræður vel við flugur í ýmsum stærðum og línur frá #4 – #8. Langflestar stangir fluguveiðimanna falla undir þessa skilgreiningu.
Slow action / hæg stöng sveigist alveg niður í fyrsta þriðjung, þ.e. alveg niður í haldið. Þessar stangir hlaða sig mjög hægt frá toppi og niður í hald og því þurfa menn að hafa góða þolinmæði og sjálfstjórn til að vinna með svona stangir. Allt of oft freistast menn (oftast byrjendur) til að flýta aðeins fyrir hleðslunni með því að beita meira afli heldur en stöngin í raun ber og því verður kastið oft á tíðum tómt klúður. Stöngin þarf sinn tíma til að hlaðast. Þurfi fast action stöng 1/3 af x-tíma (svignar í efsta þriðjungi) og medium action 2/3 af x-tíma (svignar í tveimur af þremur hlutum) þá þarf slow action stöng í það minnsta 1,5 af x-tíma til að svigna.
Sem sagt; action lýsir því hvar stöngin svignar undir átaki og hversu langan tíma það tekur hana að hlaða sig, ekki hversu mikið hún svignar, þá tölum við um mýkt hennar.
Ummæli
30.09.2012 – Árni Jónsson: Mér finnst einmitt ég hafa rekið mig á það, að hraðar stangir (og mið-hraðar sérstaklega) henti flestum og þá sérstaklega í logninu á Íslandi.
Svo hef ég líka tekið eftir því að sumir framleiðendur í hærri verðflokkunum eru hættir að tala í hefðbundnum hugtökum. S.d. flokka G.Loomis sínar stangir með “Taper” & “Power” eða tveimur mismunandi skilgreiningum. Taper segir þá til um hver hraðinn á “prikinu” er og Power um hvernig aflið vinnur og skilar sér í aflhleðslunni.
Scott aftur á móti talar um “Flex Profile” & “Recovery Speed” sem að mér finnst vera með betri skýringum sem að ég hef séð (og henta Íslenskum aðstæðum vel)
Sérstaklega hef ég rekið mig á “Fast-action” er langt frá því að vera það sama frá framleiðanda til framleiðanda. Máli mínu til stuðnings nefni ég eitt merki: Winston.
Mín ráðlegging til þeirra sem að eru að reyna að koma sér út úr þessum frumskógi framleiðanda, gerða, verðflokka og alls hins, er að byrja á að finna ódýra stöng frá framleiðanda “X” áður en að farið er útí fjárfestingu og prófa sig þannig áfram þar til að þú ert búinn að finna þann framleiðanda sem að þér finnst henta þínum stíl best. Svo er hægt að fara vinna sig upp í verðflokkum. Svínvirkaði fyrir mig.
Íhaldssemi mín og það sem mér finnst þægilegt verður oftar en ekki til þess að ég festist í einhverjum ramma sem ég fer helst ekki útfyrir. Mér þykir t.d. þægilegast að veiða með flottaum úr einþátta girni og hafa hann frammjókkandi. Þessi sérviska mín kostar sitt og á hverju sumri kemur að því fyrr eða síðar að mínum eigin takmörkum er náð hvað varðar kostnað í taumum. Þá bregð ég mér í endurvinnsluna. Þegar taumurinn er orðinn það stuttur að grennsta taumaefnið passar ekki lengur framan á hann er alveg sjálfsagt að færa sig upp um einn sverleika og hnýta á milli. Þetta verður að vísu ekki ákjósanlegasti ósýnilegi taumurinn, en dugir samt glettilega ef snyrtilega er hnýttur.
Það sem ber að varast og hefur komið mér í koll er að blanda saman óskyldum efnum í taum. Plastefni bregðast mismunandi við tognun og hita og það er einmitt hiti sem myndast þegar við hnýtum saman taum og taumaefni. Að vísu getum við dregið verulega úr þessari hitamyndun með því að væta hnútinn vel áður en hann er hertur, en hiti myndast nú samt sem áður. Það tognar lítillega á efninu, það veikist og í verstu tilfellunum krullast það sitt hvoru megin við hnútinn, svona eins og skrautbandið á jólapökkunum. Mitt blákalda mat er að efni sem krullast er ónýtt frá framleiðanda og það kaupir maður bara einu sinni, betra er að eyða 100 kr. meira í taumaefnið heldur en taka séns á einhverju no-name efni sem er ódýrara. Útsölurnar að hausti og fljótlega upp úr jólavertíð eru líka varhugaverðar. Plastefni gengur í samband við súrefni og veikist með tíð og tíma, sérstaklega þegar sólar- og halógenljós hjálpa til. Þegar taumar og taumaefni hafa legið frammi í nokkra mánuði hefur slitstyrkur þeirra minnkað verulega og þú bara slítur og slítur út úr hnútunum. Keyptu nýtt efni í upphafi vertíðar, ekki henda hundraðköllum til að spara 40% á útsölu löngu áður en þú ætlar að nota efnið.
Stöngin mín er; a) hröð, b) miðlungs-hröð, c) hæg, d) stíf, e) miðlungs-mjúk, f) mjúk og ég nota hana í allt. Auðvitað er engin stöng sem nær þessu öllu, enda er þetta aðeins samansafn úr leit á Google yfir það hvernig menn lýsa bestu stöng sem framleidd hefur verið; stönginni sinni. Það hefur verið sagt um karlmenn og bíla að þeirra bíll er bestur; kemst lengst á lítranum, er aflmestur eða endist best á meðan konurnar okkar eiga annað hvort lítinn sætan, sparneytinn eða bara rauðann bíl.
Þegar ég byrjaði í fluguveiði var mér ráðlagt að fá mér miðlungs-mjúka stöng. Hún fyrirgefur þér mistökin var sagt við mig. Fyrsta stöngin mín, Abu Garcia Diamond í tveimur hlutum, hefur núna fengið ákveðinn heiðurssess í bílskúrnum. Ég opna hólkinn reglulega og kíki á hana, en tek hana yfirleitt aldrei með mér í veiði, nema þá sem varastöng. Vissulega var stöngin miðlungs og fyrirgaf mér næstum öll mistökin sem urðu á vegi mínum til að byrja með, ég var sáttur. Ég sótti mér leiðbeiningar varðandi köstin og fékk þá kommentið; fín byrjendastöng og leiðbeinandinn lagði áherslu á að ég ætti að tilta (halla) stönginni til hægri og láta stöngina renna frá fremra stoppi og aftur í það aftara. Þessi hreyfing hefur fylgt mér alla tíð síðan sem minn aðal-kaststíll jafnvel þótt ég noti standard fyrir öxl á styttra færi með léttri stöng.
Þegar mér síðan tókst að tæla konuna mína í fluguveiði, þá var henni bent á Airflo stöng (sett) sem væri tilvalið fyrir byrjendur. Eftir því sem ég best veit var hún mjög ánægð með stöngina en mér fannst hún frá fyrstu tíð allt of stíf (þ.e. stöngin) hún fylgdi mér ekki eins vel í rennsliskastinu mínu. Aftur á móti var hún frábær í standard yfir öxl og það varð einmitt aðalsmerkið í kaststíl konunnar. Maður beinlínis heyrir í ákveðnu fram og bakkasti hennar, svúpp, svúpp (Essence of Fly Casting II – Mel Krieger) beint yfir öxlina. Þeir sem séð hafa til okkar segja, hún kast miklu betur en hann og það er örugglega alveg rétt. Hún vandaði sig líka miklu meira í upphafi því stöngin hennar fyrirgaf henni ekki eins mikið og fyrsta stöngin mín, ég komst upp með villurnar.
Eins og með svo marga fluguveiðimenn höfum við uppfært stangirnar okkar. Hvort sem það var nú frekjan í mér eða aðeins tilviljun, þá erum við með eins stangir sem aðal-stangir í dag; miðlungs-mjúkar JOAKIM‘S MMX. Konan mín heldur áfram að kasta eins og klippt út úr kennslumyndbandi Mel Krieger (svúpp,svúpp) og ég held áfram með rennsliskastið mitt með fáeinum áherslubreytingum til batnaðar. Þegar ég svo tek í hraða stöng, segjum Scott S4 eða Sage One, þá finnst mér svolítið eins og ég sé með kústskaft (bara miklu léttara) í höndunum. Nei, bíðið aðeins áður en þið missið ykkur í hneykslan og formælingum. Það getur vel verið að ég sé auli og asni, en ég er ekki að hallmæla stöngunum sem slíkum. Það segir ekkert um gæði stanganna að menn hafi skiptar skoðanir á þeim, sú stöng sem hentar kaststíl einum getur verið sem kústskaft í höndum annars. Ástæða þess að framleiðendur senda frá sér margar mismunandi útfærslur stanga er einfaldlega sú að þarfir manna og stuðningur stanga við kaststíl þeirra er mismunandi. Fyrsta stöng manna hefur mjög mikil áhrif og mótar, oft fyrir lífstíð, kastið þeirra. Lengi býr af fyrstu gerð og mörgum reynist erfitt að breyta rótgrónum stíl þegar fram í sækir. Það er hægt að leiðrétta og þá eiga menn að nýta sér leiðsögn til þess hæfra manna, kastkennara sem geta litið út fyrir eigin uppáhalds stíl og leiðbeint með rýni til gagns. En hvað með; hröð, miðlungs eða hæg? Meira um það síðar.
Ummæli
26.09.2012 – Árni Jónsson: Allir góðir kastkennarar taka það einmitt fram að þetta er ekki klippt og skorið og allir þróa sér sín eigin stíl. Kennarar sem segja annað og byrja að segja þér hvað þú átt og átt ekki, hugnast mér ekki.
26.09.2012 – Þórunn: awwwwwwww…… (Aðspurð skýrði Þórunn þetta með orðunum; ´Æ, hvað þetta er krúttlega sagt’)
Meira að segja jafn orðvar maður og ég nú er (hóst, hóst) getur varla komið orðum öðruvísi að skreppitúr okkar hjóna upp að Úlfljótsvatni í dag heldur en með orðunum; Við runnum á rassgatið með þennan veiðitúr og þá er ég ekki að tala um óeiginlega merkingu. Fyrst rann frúin fram af bakkanum með töluverðu skvampi en varð ekki meint af og ekki gat ég verið minni maður og fann mér skemmtilega flata, hallandi og hála hellu til að skella óæðri endanum niður á og renna mér þannig út í vatnið á bak- og afturendanum. Það var ekki laust við að mér yrði hugsað til filtsólanna á gömlu vöðlunum mínum á meðan vatnið seytlaði inn í ermarnar hjá mér þar sem ég lá þarna flatur í vatninu.
Og í sem skemmstum orðum, þá var þetta nú það helsta sem kom fyrir okkur í þessum veiðitúr. Ekki einn fiskur en fallegur haustdagur hefur verið greyptur í minni okkar og verður það fram að næsta vori, ef ekki lengur. Ekki nein vissa fyrir hendi um fleiri ferðir á þessu hausti eftir frábært veiðisumar. Hér eru sko engar barlómssögur um veiði undir meðallagi, vatnsskort eða þurrka. Sumarið búið að vera flott og við hjónin búin að prófa mörg ný vötn.