Þó áramótin séu ekki alveg komin, þá er ég búinn að setja nýtt ár inn á Dagatalið. Helstu tillidagar, sólarupprás, sólsetur, fullt tungl og ýmislegt fleira fyrir hvern dag ársins. Að þessu sinni eru allir mánuðirnir á einni síðu og flýtivísanir á hvern mánuð efst á síðunni.
Vegna umfangs myndanna getur síðan verið svolítið hæg þegar hún opnast, en strax eftir fyrstu opnun ætti hún að komast á eðlilegt skrið.
Ummæli
27.12.2012 – Siggi Kr.: Var að kíkja á dagatalið og mikið gladdi það mig að 1. apríl skuli detta á frídag
Þurrflugur eiga ekki endilega að sitja á yfirborðinu, sumar liggja nokkuð djúpt, sumar sýna aðeins örlítinn hluta upp úr vatnsborðinu.
Þegar mikið klak er í gangi, þá getur verið gott að hafa óreglu á reglunni um að berja ekki vatnið endalaust. Samkeppni flugunnar okkar er gríðarleg í miklu klaki og rétt að gefa hverri flugu aukinn séns áður en maður skipti út. Í þessu eru síðan auðvitað til þeir sem skipta oftar en hönd verður á fest.
Hvað varðar stærð þurrflugna, þá eru skoðanir jafn skiptar og mennirnir eru margir. Ég veit svei mér ekki hvaða pól ég á að taka í þetta næsta sumar. En eitt má lesa frá mörgum sem skeggræða flugnastærðir og það er að ef tökurnar eru groddaralegar og flugan festist ekki í fiskinum, þá er um að gera að minnka þær. Samdóma virðast menn vera í því að fiskurinn taki litlar flugur frekar með því að súpa þær léttilega af yfirborðinu og þá eru meiri líkur á að hún festist heldur en í látunum þegar hann tekur þær í beinni árás. Ég er ekki frá því að þegar ég hugsa til sumarsins sem leið og þeirra mis-taka sem ég varð vitni að hjá veiðifélaga mínum, þá voru það þessar áköfu sem helst misfórust og því hefði e.t.v. verið ráð að minnka fluguna. Ætli ég raði ekki í box fyrir næsta sumar í stærðum #12 – #20, kannski með áhersluna á #12 og #14.
Gleðifréttir fyrir þá óþolinmóðu, bæklingur Veiðikortsins er komin á vefinn og þú getur nálgast hann með því að smella hérna. Nú er um að gera að fletta honum fram og til baka og láta sig dreyma um vorið, það eru jú bara tæpir fjórir mánuðir þangað til við getum farið að byrja í fyrstu vötnunum. Þangað til er bara gaman að ylja sér inni við, hnýta nokkrar flugur og fletta bæklingnum.
E.S. vek sérstaka athygli á alveg prýðilega góðri grein á bls. 52-53 í bæklingnum.
Eins og með svo margt annað er auðveldara að bæta við en taka af. Ég hef alltaf átt vanda til að nota of mikið dub á flugurnar mínar. Sumar hverjar líkjast meira Simba, konungi ljónanna heldur en veiðiflugu, þ.e. makkinn er slíkur að það sést nánast ekkert í fluguna sjálfa. Þetta lagast ekki ekki fyrr en ég hef í huga nokkuð sem ég las á einhverju blogginu, að taka þann skammt af dubbi sem maður telur sig þurfa í fluguna og helminga hann áður en maður byrjar á flugunni. Þá verður skammturinn nokkurn veginn eðlilegur. Svo er alltaf gott að hafa í huga að byrja smátt, það er auðveldara að bæta við heldur en grisja.
Það er alltaf eitthvað að gerast. Nú eru t.d. flest desember/áramóta tölublöðin af veftímaritunum að koma út og ég reyni að fylgjast með þeim eins og ég get og uppfæri þau hér á síðunni.
Margir bíða spenntir eftir rafrænni útgáfu jólabókarinna í ár; bæklingi Veiðikortsins, en þangað til hann verður tilbúinn er um að gera að tryggja sér kortið sjálft hérna og eiga þá von á bókinni á pappír inn um lúguna fljótlega.
Stöku sinnum leiðrétti ég eða bæti við nýjum atriðum í eldri greinar. T.d. hrasaði ég um daginn yfir ágætis hnýtingarmyndband fyrir Black Zulu og bætti því við greinina um þá ágætis flugu.