Það var nú ekkert óskemmtilegt að sjá alla fluguna klekjast á Helluvatni laust upp úr kl.19 í kvöld. Vatnið að koma til í hita eftir nokkuð hressilegt fall undanfarna daga og lífið aftur komið á stjá. Fiskur að vaka úti á vatninu og alveg upp í harða grjóti, bara hinu megin. Sem sagt; ég skaust einn eftir kvöldmat, bara svona til að komast eitthvað út eftir vinnu í dag. Eitthvað meira að segja um þessa ferð? Jú, ég náði að krækja mér í eina Lippu upp af botninum einhvers staðar lengst utan úr vatni. Eigandinn verður bara að bíta í það súra, hún er kominn í spúnaboxið mitt og verður þar áfram.
Ég held sem sagt áfram að vera einn umhverfisvænsti veiðimaður landsins, ekki einn fiskur það sem af er sumri.
Helluvatn 23.maí 2013
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 0
0 / 0
0 / 0
0 / 0
12
Ummæli
24.05.2013 – Hilmar: Smá áskorun, í næstu veiðiferð þá notar þú bara þurrflugur !
Mbk, Hilmar
Svar: Það er svo sniðugt að ég verð að styðja á hnappinn ‘Samþykkja‘ þegar mér berast ummæli á greinar hjá mér. Ég hef eiginlega aldrei verið eins sáttur við að styðja á þennan hnapp eins og núna, geta slegið tvær flugur í einu höggi; samþykkja ummælin þín Hilmar og samþykkja áskorunina. Mér varð einmitt hugsað til boxins með þurrflugunum sem varð eftir í bílnum þegar ég sá allar vökurnar á vatninu. Sem sagt; sama hvernig veðrið verður um helgina, það verða þurrflugur sem fara undir hjá mér í næsta skrepp.
Ég veit, þeir eru ekkert stórkostlega umhverfisvænir en ef maður passar þá þokkalega, þá geta þeir komið að góðum notum í veiðinni. Ég á svona rúllu af gráum ruslapokum í veiðitöskunni minni og yfirleitt rúlla ég einum út og festi við töskuna þegar ég byrja veiði (þú veist, bara svona með einum góðum hnút um handfangið á henni). Þegar ég svo rekst á eitthvað rusl sem fokið hefur í ógáti frá öðrum veiðimönnum, treð ég því í pokann minn. Takið eftir; fokið hefur í ógáti því ekki dettur mér í huga að veiðimenn noti íslenska náttúru viljandi sem ruslatunnu.
Ég er kóngur í mínu eigin ríki, þ.e. þessari síðu, annars staðar ræður eiginkonan. Það tilkynnist formlega að Kristján X (tíu veiðilausar ferðir) hefur látið af embætti og við hefur tekið Kristján XI (ellefu veiðilausar ferðir). Þetta er nú bara ekki hægt lengur. Ég lýsi allri ábyrgð á þessari ferð á hendur eiginkonunni. Hefði hún ekki með veiðiglampa í augum blikkað mig í morgun og spurt; Eigum við að skreppa aðeins í Elliðavatnið? þá hefði ég hvergi farið og frekar setið hér heima og skrifað endurminningar mínar Ég man þá tíð er ég veiddi fisk. Veit einhver um brjálaðan útgefanda?
En mikið rosalega var vatnið kalt og mikið hefur það kólnað síðustu daga. Staðkunnugur veiðimaður, sem eitt augnablik dýfði tánni í vatnið við hlið mér í morgun hafði á orði að nú væri ekkert í gangi, ekkert klak og fiskurinn þar af leiðandi ekkert að éta. Takk og bless, og þar með var hann farinn. Annar renndi í hlað á Elliðavatnsbænum þegar við hjónin vorum að taka saman og hafði sömu sögu að segja á meðan hann nuddaði lífi í bláar hendurnar og tók síðan stefnuna á Helluvatn með þeim orðum að komast í skjól. Vonandi hefur einhverjum þeirra fjölmörgu sem þar voru, einmitt í skjóli fyrir sunnan áttinni, gengið eitthvað betur en okkur hjónum.
Vatnshitamælir við Vatnsenda
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 0
0 / 0
0 / 0
0 / 0
11
Ummæli
20.05.2013 – Veiði-Eiður: Hef nákvæmlega sömu sögu að segja yðar hátign. Fór með pabba í Elliðavatnið í morgun. Mættir um 6 og farnir um 7. Keyrðum ófærðina í gegnum Heiðmörk og að Vífilstaðavatni þar sem við börðum í svona 1 og hálfan tíma. Sáum líf en fengum ekkert.
Ég hef tekið eftir mun minni aflabrögðum eftir að ég byrjaði að blogga. Þetta er ábyggilega því að kenna, blogginu sko. Ekki mér…
Svar: Ég hef verið að hamast við að finna ástæður fyrir mínu fiskieysi en enda bara alltaf á því að líta í eigin barm. Ég hlýt bara að vera að gera eitthvað vitlaust. Er núna að spá í að sleppa bleikju í tjörnina í garðinum hjá mér, kvíð því samt aðeins ef þær vilja ekki bíta heldur.
20.05.2013 – Þórunn: Ok, Ég tek fulla ábyrgð á þessari veiðiferð, enda var hún svo snemma í morgunsárið og svo stutt að hún telst ekki með. Annars er gott að þú haldir að þú ráðir öllu á þessari síðu, haltu því bara áfram ….blikk, blikk…eigum við að skreppa?
20.05.2013 – Árni Jónsson: Örvæntu ekki. Eigi hef ég fleiri fiska dregið á land en þú minn kæri.
Svar: O, jæja. Það eru þá ekki alveg allir sem draga kvikasilfur að landi í Þjóðgarðinum.
21.05.2013 – Svarti Zulu: Jæja það er nú hiti í kortunum framundan ( ef 5 – 9 stig teljast hiti) þannig að nú hlýtur þetta að fara að koma. Ég var þarna við Riðhólinn á sunnudagsmorguninn og ekki urðum við varir við fisk þó margt væri reynt. Og svo er Vífilsstaðavatnið alveg að svíkja mig þetta vorið og ég sem hélt að ég væri bara nokkuð góður þar.
Svar: Mér finnst eins og það hafi verið að koma eitthvað bakslag í vorið síðustu viku eða svo. Hlýnunin hefur verið helst til lítil og svo kom þessi kuldakafli núna um helgina, birrrrr.
Ég get bara ekki ímyndað mér að nokkur taki oftar mark á heilræðum og veiðipistlum hér á þessari síðu. Auðvitað væri það skemmtilegra hefði ég getað byrjað þessa frásögn á douze points (svona í tilefni dagsins) en það er nú öðru nær, zéro point á víst betur við og tíunda veiðiferðin án fisks er staðreynd.
Úlfljótsvatn varð ofan á eftir að við hjónin renndum í gegnum þjóðgarðinn en leyst ekki á íslenska lognið sem var eitthvað að flýta sér norður, þannig að við komum okkur fyrir í eins miklu rólyndis logni og unnt var að finna við Grjótnesið í Úlfljótsvatni. Það er ekki of sögum sagt að stutt er í dýpið á þeim slóðum. Allt var reynt; straumflugur, púpur og meira að segja lét ég mig hafa það að setja dúndrandi sökkenda á línuna, en ekkert hjálpaði til. Að vísu var alveg hreint ágætt að komast út og viðra sig svona í upphafi langrar helgar.
Nú verður lagst í tölfræði og kannað hvernig okkur hjónum hefur yfir höfuð gengið í vorveiðinni undanfarin ár.
19.05.2013 – Axel Freyr: Dyntótt er veiðigyðjan Kristján eins og Björn Blöndal skrifaði svo fallega um. Ég er líka búin að núlla í mínum 5 veiðiferðum og er búinn að fá glósur um að maður sé fiskifæla og veiði aldrei neitt! svo að þú situr ekki einn að þjáningarborðinu. En alltaf þegar ég er búinn að núlla og er á leiðinni heim þá er ég að skipuleggja næstu ferð í huganum. Alltaf fylgir þeim hugarórum að næsta skipti skal verða mok hehe.
Svar: Já, þar rataðist Birni svo sannanlega rétt orð í munn. Mér finnst nú eiginlega eins og gyðjan sú arna hafi alveg yfirgefið mig. Samt var ég búinn að heita á hana fyrsta fiski ársins eins og venjulega.
19.05.2013 – Svarti Zulu: Ertu nokkuð að gleyma að hnýta fluguna á enda taumsins þetta árið?
Svar: Nú get ég ekkert annað en roðnað, því í fullri einlægni þá hef ég í það minnsta tvisvar verið 100% viss um að ég hefði tapað flugunni fyrst ekkert beit á hjá mér, kastandi á fisk, en…. hún hefur alltaf verið þarna greyið, bara ekki sú rétta. Hratt, hægt, djúpt, grunnt, stutt, langt, það er alveg sama hvernig ég hreyfi flugurnar þetta árið, þeir hlægja bara að þeim.
19.05.2013 – Urriði: Eru ekki margir kvensjúkdómalæknar karlar? Þú þarft ekkert að hafa gengið í gegnum hlutina sjálfur til að geta sagt öðrum til Þannig að fróðleikurinn á síðunni stendur alveg fyrir sínu
Svar: Æ, takk fyrir þetta Urriði. Mér veitir ekki af öllu peppi núna, geng orðið undir nafninu Kristján X (tíundi) og það væri skelfilegt að verða Kristján XI.
Eigum við að velta okkur aðeins upp úr stærðum? Við veiðimennirnir eru ekki skv. einhverjum staðli og því geta orð eins um litlar flugur verið stór orð í eyru annars. Ef við og reynsla okkar værum aftur á móti skv. staðli væri ekkert mál að flokka stórar, litlar og ör-litlar flugur. Einhvern tímann sá ég grófa flokkun; stórar flugur eru í stærðum #8 og niður í #12, litlar flugur eru í stærðum #14 og niður í #18, ör-litlar eru #20 og þaðan af minni. Skv. þessu eru allar mýflugur ör-ör-litlar því raunstærð flugnanna samsvara u.þ.b. #28 en samt er maður að veiða á Mýpúpu í stærð #12 Hvað er eiginlega í gangi? Án þess að gera lítið úr stærðum flugna og þeirri áherslu sem flugufræðingar leggja á smærri flugur, þá kennir reynslan mér að stærri flugur geta alveg eins kveikt tökur eins og smærri. Svo má aldrei gleyma því að púpur eru stærri að vori heldur síðla sumars. Því er nefnilega þannig farið að púpur og lirfur éta eins og þær geta á veturnar og langt fram á vorið og beinlínis tútna út í stærð. E.t.v. ættum við að hugsa dæmið í heilli árstíð, við byrjum stórt og smækkum svo flugurnar þegar líður á sumarið og ný kynslóð púpa og lirfa hefur tekið við í vötnunum.
Því var gaukað að mér í dag að enn væru þrjú pláss laus í Kastað til bata 2013 en fjöldi fyrirspurna berast daglega. Það er því ekki seinna vænna fyrir þrjár flottar konur að fylla hóp þeirra 14 sem komast að þetta árið. Eins og fram hefur komið er verkefnið þetta árið í samstarfi Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Austfjarða og Krabbameinsfélags Akureyrar.
Umsóknarfrestur er til 20.maí og getur ekki verið einfaldari, einn póstur á kastadtilbata@krabb.is með smá upplýsingum um umsækjandann. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins hér.