Undantekningin sannar regluna; Sjaldan er ein bleikjan stök. Við hjónin stukkum á glufuna sem myndaðist í yfirvinnunni hjá mér, settum kvöldmat snemma á borð, gúffuðum í okkur og stungum af á Þingvöll. Þokkalegt veður, SSV átt 4-5 m/sek., þoka en hlýtt. Af gefinni reynslu var ákveðið að byrja í Nesi þar sem frúin fékk murtu-nart, ég ekkert.
Færðum okkur eftir nokkra stund yfir í Vatnskotið vestanvert og komum okkur fyrir úti í Vatnsvíkurhólmanum þar sem mér tókst að krækja í eina bleikju í matfiskstærð og eina murtu. Annað varð svo sem ekki til frásagnar um þessa ferð okkar. Engin mynd, nema sú sem Þingvellir stimpluðu inn í huga minn þetta kvöld, rólegheit.
Hvar eiga veiðimenn að vera annars staðar en á Þingvöllum á þessum degi? Ég reif mig upp kl.6 í morgun, hitaði vatn á brúsa og skundaði á Þingvöll, eins og sagði í ljóðinu forðum. Dásamleg þoka grúfði yfir völlunum og vatninu, hlýtt og stillt veður, ekki hægt að biðja um það betra.
Þingvellir kl.07:00 17.júní 2014
Um síðustu helgi fórum við hjónin á Þingvöll og áttum skemmtilega stund með fullt af murtum og 2-3 undirmálsbleikjum sem ekki verða færðar til bókar sökum smæðar. Í þeirri ferð brugðum við út af vananum og fórum í Tóftirnar austanverðar, svæði sem lofar góðu. Ég hugsaði mér því gott til glóðarinnar í morgun og byrjaði í Tóftum, en fljótlega fékk ég það á tilfinninguna að trúlega yrði meira um menn en afla á þeim slóðum, svo ég færði mig út á Nes með stefnuna á Nautatanga.
Eftir að hafa hrist nokkrar murtur af brá svo við að tekið var í Peacock’inn af fullri alvöru. Jamm, ekki bar að öðru en stærri bleikja væri þar á ferð. Eftir nokkuð snarpa viðureign lá þessi líka feita og pattaralega hryggna á bakkanum, 1 – 1,5 pund. Skömmu síðar var aftur tekið í Peacock og nú af enn meiri alvöru. Viðureignin var að sama skapi lengri og endaði með þessari líka fínu bleikju á bakkanum.
Þjóðhátíðarbleikja – 2,5 pund
Eftir smá bið, með tilheyrandi árangurslausum tilraunum með aðrar flugur, setti ég Peacock aftur undir og auðvitað kom enn ein bleikjan á hjá mér í svipaðri stærð og sú fyrsta. Flottur morgun á Þingvöllum í kyrrð og ró, fjarri glys og látum Borgarinnar. Ég hef sjaldan átt ánægjulegri Þjóðhátíðardag, til hamingju með daginn.
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 3
0 / 3
0 / 0
5 / 11
10 / 15
Ummæli
17.06.2014 – Þorkell:Fagnaði þjóðhátíðardeginum með nákvæmlega sama hætti og þú. Reis úr rekkju klukkan sex, skundaði á Þingvöll og treysti vort heit. Landaði þremur bleikjum á Pheasant tail og Peacock og veðrið maður. Til hamingju með daginn sömuleiðis.
Svar: Já, segðu. Frábært verður eins og sjá má á myndunum af þinni frásögn, sjá hér.
Flottur dagur í nágrenninu í dag. Svo skemmtilega vildi til að þegar við hjónin mættum þar nokkru eftir hádegið, var þar mættur vinnufélagi minn ásamt afsprengi. Þeir feðgar reyndu mest fyrir sér með maðk og uppskáru einn urriða í soðið. Við hjónin vorum aftur á móti eins og endranær á flugunni og reyndum ýmsar tegundir áður en tæpur tveggja pundari lét glepjast af stuttum rauðum Nobbler. Þar sem frúin var ekki með neinn slíkan haldbæran skipti hún yfir í Orange Nobbler, sem ekki virtist koma að sök þar sem hún setti stuttu síðar í einn sem slagaði í pundið.
Rétt áður en við tókum okkur kaffipásu setti frúin síðan í annan sem náði tveimur pundum. Eftir pásu setti ég síðan í einn sem náði hálfu öðru pundi, frúin missti einn og ég þrjá. Þegar kvöldkulið setti að okkur, tókum við okkur upp og héldum heim á leið, sæl og ánægð með prýðilegan dag. Takk fyrir okkur, Halla.
Það er sem sagt opinbert að ég er orðin félagsvera. Þetta skemmtilega skírteini beið í póstkassanum mínum þegar ég kom heim í dag.
Fyrir nördana er þetta náttúrulega alveg stór skemmtilegt númer; 861 er jú ASCII kóði íslenska stafasettsins í tölvum, eitthvað sem kerfisstjórinn gleymir víst aldrei.
Ármaður virðir: Íþrótt, Bráð, Land og Annan mann
Ummæli
11.06.2014 – Friðrik Helgi Árnason: Frábært vertu velkominn í hópinn. Kv Friðrik Helgi, ármaður #832
Þegar veðurspá helgarinnar hljóðar upp á sólbruna og svitaköst, er ekkert annað að gera en koma sér af stað. Eina vandamálið var að velja; vestur eða austur. Fyrir austan hljómaði Gíslholtsvatnið ekki illa, nema þá að fljótlega á föstudag var mættur þar fjöldi fólks og við hjónin heldur sein til að komast af stað. Hítardalur var því næstur í símaskránni. Jú, töluverður fjöldi hafði tilkynnt sig á staðinn, en á móti kemur að vatnið er stórt og alltaf pláss fyrir eitt fellihýsið enn.
Eftir að við höfðum komið okkur fyrir austan við Hólm á föstudagskvöldinu, var einfaldlega lagst til hvílu og látið ráðast hvenær vaknað yrði á laugardagsmorgun. Aldrei sefur maður nú betur en í útilegu og við vorum heldur lengi að komast á lappir og vorum því ekki klár í slaginn fyrr en undir hádegið á laugardag. Nokkuð ljóst að við yrðum að ganga smá spöl því fjöldi fólks var þegar á veiðum næst Hólmi og tjaldborginni sem risið hafði þar í grennd. Spölurinn sem við lögðum að baki, báðar leiðir hefur verið rétt um 5 km. í 18 – 20°C og glampandi sól. Mér er ómögulegt að segja til um tíman sem fór í þenna spöl (bláa línan á kortinu) því viljandi var engin klukka með í för.
Rölt helgarinnar við Hítarvatn
Af veiði fer aftur á móti fáum sögum hjá mér. Að vísu setti ég fljótlega í fisk á Watson’s Fancy púpu með kúluhaus, en eitthvað sveik hnúturinn mig og áður en mér tókst að landa þeim fiski var hann á bak og burt með fluguna mína. Frúin setti aftur á móti í fínan urriða á Mýpúpu #14 (efri rauði punkturinn) og varð mikið var við fisk á þeim stað en tókst ekki að ná fleirum á land. Þegar við höfðum fært okkur örlítið sunnar setti hún aftur í urriða, í það skiptið á Peacock með orange skotti, flottur fiskur. Dagsform veiðimann er misjafnt og mér gekk flest í móti þennan dag. Ótrúlegur fjöldi flugna týndist, taumur í bölvuðu rugli, hnútar sviku og veiðimaðurinn hreint ekki á staðnum í huganum. Það er eins og fiskurinn finni það þegar veiðimaðurinn er ekki með á nótunum, hefur jafnvel tekið vinnuvikuna með sér í veiðina eins og tilfellið var með mig þennan dag.
Þegar heim í vagn var komið, föt lögð til þerris (sviti, ekki rigning) og stungið út úr eins og einu hvítvínsglasi á meðan grillið hitnaði, var gert að afla frúarinnar og hann settur á grillið. Eftir síðbúinn kvöldverð áttum við skemmtilega stund með kunnugum veiðimanni ofan af Skaga sem var ósínkur að miðla af 30 ára reynslu sinni af Hítarvatni og bleikjunni. Alveg bráðskemmtilegt spjall og fullt af gagnlegum upplýsingum + sýnishorn af Hítarvatnspúpu sem hann hafði þróað. Takk fyrir ánægjulega stund, Lúðvík Björnsson, nú verða hnýttar Hítarvatnspúpur í boxin.
Sunnudagurinn vaknaði töluvert á undan okkur hjónum. Alveg makalaust hvað maður getur sofið eftir 5 km. hraunbrölt. Það var nokkurs konar sárabót að frétta að morgunveiðin sem maður svaf af sér hafði eiginlega brugðist algjörlega þennan morgun, ekki tittur á land og sumir urðu ekkert varir. Það er einnig misjafnt dagsform fisksins. Við ákváðum að taka okkur saman og reyna fyrir okkur að vestan áður en við héldum heim á leið fyrst ekkert var að frétta af veiði úr hrauninu. Heldur var nú meiri vindur og skýjað þegar við héldum af stað og röltum inn fyrir Stóraklif þar sem við komum okkur fyrir við lítinn læk við rætur hlíðarinnar. Ekki leið á löngu þar til ég setti í urriða með Peacock en sá var ekki alveg af stærðargráðu matfiskjar þannig að hann fékk líf. Fljótlega fór að bæta í vind, en þó ekki þannig að sjálfhætt væri veiði. Við færðum okkur að næsta læk þar sem ég setti í annan eins urriða, en í það skiptið með stuttum Orange Nobbler. Af tökum og veiði frúarinnar fer engum sögum. Dagsform? Eftir að hafa fikrað okkur í rólegheitum til baka þar sem við prófðum fyrir okkur á nokkrum stöðum var haldið heim á leið án frekari tíðinda. Af öðrum veiðimönnum og afla var það helst að sjá að sunnudagurinn hafi verið í smærri kantinum hjá flestum, frekar rýr fiskur og smár, en nokkuð af honum.
Ekki var nú blíðan að flækjast fyrir manni um helgina, en um leið og vind lægði aðeins í gær ákváðum við hjónina að skjótast í Kjósina rétt um kvöldmatarleitið. Meðalfellsvatnið tók á móti okkur í þokkalegasta veðri, örfáir dropar og hægur vindur úr ýmsum áttum.
Við röltum aðeins inn með vatninu að sunnan til að byrja með. Í þriðja kasti með nýju #5 stöngina setti frúin í bleikju sem stóð í þeirri trú að hún væri skilgetið afkvæmi flugfisks. Eftir nokkur hressileg stökk, þar sem bleikja afhjúpaði smágert vaxtarlag sitt þurfti frúin ekkert að hafa fyrir því að losa þann tittinn af. Grönn taka og ágætt að fiskurinn losaði sig sjálfur af. Ekki leið þó langur tími þar til frúin setti í þokkalegan urriða og það var ekki annað að sjá en frúnni þætti gaman að eiga við hann með nýju stönginni. Sjálfur setti ég í einn urriða sem tók Higa’s SOS en ég varð að hafa fyrir því að losa hann og skila honum aftur í ætið. Hann verður e.t.v. orðinn að matfisk síðar í sumar.
Frekar var nú rólegt þarna undir hlíðinni, þannig að við færðum okkur að ósum Sandár sem beljaði niður í vatnið. Góðar leysingar greinilega í gangi þarna fyrir ofan. Fyrstu köst okkar hjóna skiluðu strax narti, en engum tökum. Rétt í þá mund að konan hafði gengið frá stönginni tókst mér að setja í þokkalegan urriða á rauðan Nobbler. Þeim var ekki sleppt og bíður hann nú eftir plássi á grillinu.
Úr Meðalfellsvatni
Tvennt kom okkur hjónum á óvart í gærkvöldi. Fyrra var hve hækkað hefur í vatninu síðustu daga með síðbúnum leysingum. Ég er ekki frá því að yfirborðið sé einhverjum 30 sm. hærra en það var 1.apríl. Hið síðara er dræm aðsókn í vatnið þetta fallega kvöld. Kannski hafa veiðimenn bara verið svona úrvinda eftir kosningavökur.
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 0
0 / 0
1 / 2
1 / 7
8 / 12
Ummæli
07.06.2014 – Urriði: Flott. Hvernig stöng er nýja fimman?
Svar: Takk, löngu kominn tími til að taka fisk með sér heim. Ég gaf frúnni JOAKIM’S 9′ ELP stöng sem hún féll alveg kylliflöt fyrir eftir að hafa prófað á Miklatúni nýlega. Mjög skemmtileg stöng á fínum díl hjá þeim félögum. IM12 grafít eins og gerist í þeim bestu og flottur frágangur.