
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Febrúarflugur 2016
Á morgun, laugardaginn 27. febrúar verður opið hús í Árósum, félagsheimili Ármanna, að Dugguvogi 13 í tengslum við Febrúarflugur 2016. Fyrir þá sem hafa aldrei barið félagsheimilið augum, þá lítur það svona út að utan. Húsið opnar kl.14 og verður opið í það minnsta til kl.16 og þá gefst öllum kostur á að sjá það að innan líka.

Árósar, Dugguvogi 13 – Smelltu á myndina til að opna kort Á þessu opna húsi Ármanna og FOS gefst gestum kostur á að kynna sér starfsemi Ármanna, hnýta flugur og spjalla um flugur og fluguhnýtingar við jafnt reynda sem óreynda fluguveiðimenn.
Myndum af þeim hátt í 400 flugum sem borist hafa á viðburðinn verður varpað á skjá og eflaust verða einhverjar þeirra mönnum innblástur fyrir hnýtingarnar.
Efnt verður til fluguskipta þar sem þeim sem hug hafa á er boðið að leggja 10 flugur í púkk og fara síðan heim með einhverjar allt aðrar 10 í farteskinu í lok dags.
Að sjálfsögðu eru allir áhugamenn um flugur og fluguveiði velkomnir, óháð því hvort þeir hafi tekið þátt í viðburðinum eða ekki. Kaffiveitingar og góður félagsskapur á staðnum eins og Ármönnum einum er lagið.
Til þeirra sem ekki eru með Facebook aðgang og hafa því ekki tök á að setja flugur á viðburðinn, ekki hika við að senda okkur tölvupóst með mynd, nafni og lýsingu á flugunni og FOS sér um að koma flugunni til skila á viðburðinn. Póstfangið okkar er: fos@fos.is
Höfundur:
-
Orkinn

Orkinn Eftir að hafa verið að fletta flugum frá Orkneyjum og víðar varð þessi til sem tilraun til að stæla flugur frá norðanverðum Bretlandseyjum. Stuttur krókur, orange búkur með gyltu tinsel og ein Ringneck Pheasant fjöður, það er nú allt og sumt.
Höfundur:
-
Orvis – Plate L
Orvis – Plate L úr Favorite flies and their histories sem er aðgengileg án endurgjalds hérna.

78. Split Ibis – 79. Saranac – 80. The Tim – 81. Sheenan – 82. Webster – 83. F.G. Simpson Höfundur:
-
Tvíkrækja

Ónefnd Enn ein tilraun með flugu á tvíkrækju. Man ekki til að ég hafi haft einhverja ákveðna flugu í huga þegar ég hnýtti þessa, held hreint og beint að hún hafi orðið til úr afgöngum á hnýtingarborðinu hjá mér.
Höfundur:
-
Heckham Peckham

Heckham Peckham Þessi er eftir William Murdoch frá Aberdeen og var upprunalega ætluð í sjóbirting en hefur gert góða hluti í staðbundnum urriða líka.
Höfundur:

