
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Nokkrar línur um línur
Ég hafði verið að veiða á flugu í nokkur ár áður en ég fór að íhuga aðra flugulínu heldur en hefðbundna framþunga flotlínu. Ástæðan? Jú, ég var spurður hvernig ég ætlaði að koma flugunni niður til stóra urriðans í Veiðivötnum fyrst ég ætti ekki sökklínu. Ég var ekki alveg sannfærður, þyrfti ég virkilega sökklínu til að veiða í Veiðivötnum? Niðurstaðan varð sú að ég keypti mér Intermediate línu með miðlungslöngum haus og afskaplega litlum sökkhraða, undir tommu á sek. Til vonar og vara samþykkti ég að taka með mér láns-línu með sökkhraða 5 tommur á sek. ef flugan mín vildi bara alls ekki fara niður.
Það er skemmst frá því að segja að ég veiddi 90% af fiskunum í þessari fyrstu Veiðivatnaferð minni í yfirborðinu með ‚gömlu góðu‘ flotlínunni, ekki einu sinni með Intermediate línunni, hvað þá sökklínunni. Í dag veiði ég reyndar nokkuð jöfnum höndum með Intermediate og flotlínu. Þess vegna er ég vopnaður einu góðu veiðihjóli með tveimur mismunandi spólum; einni með flotlínu og annarri með intermediate línu. Ég smelli annarri á hjólið og set hina í bakpokann þannig að ég get skipt eftir hentugleikum. Enn þann dag í dag hef ég ekki séð ástæðu til að fjárfesta í sökklínu, þess í stað hef ég verið að íhuga líftíma flugulína af meiri áhuga heldur en áður.

Mér telst til að ég sé að nota fjórðu og fimmtu flugulínurnar sem ég hef keypt um ævina. Fleiri eru þær nú ekki og ekki eru þær af einhverri ákveðinni tegund. Í mínum huga ræður mestu að línan renni þokkalega, leggist vel fram og krullist ekki fram úr hófi þegar hún fer í kalt vatnið að vori eða hausti. Reyndar er svo komið að ég verð að huga að endurnýjun, leggjast í landkönnun línufrumskógarins og finna mér línu sem leyst getur af hólmi slitna Intermediate línuna mína og þá mögulega eina í stað flotlínunnar sem hefur eiginlega alla tíð verið hálf leiðinleg í framkastinu þegar mikið af henni liggur í vatninu við fætur mér.
Ég gleymdi einu varðandi línurnar sem ég hef valið; þær hafa allar verið í ódýrari kantinum, einfaldlega vegna þess að ég vil ekki vera með lífið í lúkunum að skemma þær ekki á brölti mínu í hrauni og eggjagrjóti.
Höfundur:
-
Ný tímarit
Síðustu viku hef ég bætt inn sex nýjum tölublöðum vefrita hér á síðuna. Þau eru; HookedUp, Magasin Mitt Fiske, NZFisher, Catch, High Country Angler og North 40. Allt eru þetta áhugaverð tímarit, þótt ég hafi mest dálæti á Catch og High Country Angler. Búast má við nokkrum fjölda nýrra tölublaða það sem eftir lifir desember og ég mun gera mitt besta til að vekja athygli á þeim eftir því sem fram vindur.

HookedUp 
Mitt fiske 
NZFisher 
Catch 
HCA 
North 40 Höfundur:
-
Einfalt ráð
Mér liggur við að segja að það gerist allt of sjaldan að það sé sett ofan í við mig, en það kom nú samt fyrir um daginn. Áttu ekki bara einhver einföld ráð? sagði einn við mig sem hafði lesið sig í gegnum pistlana á síðunni. Ég hélt nú reyndar að þessar athugasemdir mínar væru ekkert sérstaklega flóknar, en svo renndi ég í huganum yfir ýmislegt sem angraði mig þegar ég var að byrja í fluguveiðinni. Það sem kom fyrst upp í hugann var auðvitað hvað mér gekk einfaldlega mjög illa að finna hvenær fiskurinn hafði einhvern áhuga á flugunni minni.
Mér gekk einstaklega illa að brjóta múrinn á milli mín og bleikjunnar í Þingvallavatni. Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um hve oft ég fór heim með öngulinn í rassinum áður en ég fékk minn fyrsta fisk í Þjóðgarðinum. Ég var búinn að prófa öll trikkinn sem reyndir veiðimenn höfðu fram að færa, mismunandi tíma dags, ýmsar flugur og mismunandi dýpi, en ekkert gekk. Svo var það að múrinn féll eftir að ég mætti á staðinn og hélt við línuna, ekki með einum fingri, heldur tveimur og var ekkert að gaufast með slaka línu eftir að hafa lagt hana fram.

Línunni brugðið undir tvo fingur Um leið og ég tamdi mér að setja línuna fasta með einum eða tveimur fingrum um leið og ég var búinn að leggja hana fram, þá fór bleikjunum að fjölga sem enduðu í netinu mínu. Það var eins og ég fyndi betur með tveimur fingrum þegar bleikjan sýndi flugunum mínum áhuga og þá gat ég brugðið við. Vel að merkja, ég hef aldrei komist upp á lagið með tökuvara, það er eins og ég lokist af við það að glápa á þessa litlu þúst þarna úti á vatninu, ég næ einfaldlega betri árangri með því að glápa eitthvað út í loftið og leyfa fingrunum að finna lauflétta snertingu bleikjunnar.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Kuldabolar
Það er til marks um gott sumar þegar snjóskaflinn undir Miðmorgunsöldu í Veiðivötnum nær að bráðna áður en síðasti fiskurinn er dreginn upp úr Veiðivötnum, sú varð raunin í sumar sem leið. Veiðimenn urðu því að taka með sér ís eða annan útbúnað í Vötnin til að kæla aflann. Svipaða sögu er að segja af öðru hálendissvæði, Framvötnum. Í síðustu ferð okkar veiðifélaganna í sumar inna að Frostastaðavatni, þ.e. 11. september var litli skaflinn undir Fitjahlíð í Dómadal næstum því horfinn og í raun fyrir löngu ómögulegt að ná einhverjum ís úr honum.
Það skiptir miklu að kæla afla vel, sérstaklega ef úthaldið eru nokkrir dagar í sól og blíðu. Í veiðiferðir okkar í sumar höfum við verið að taka með okkur ísmola í frauðplastkassa eða kæliboxi með misjafnri endingu og oftar en ekki höfum við þurft að bregðast við ótímabærri bráðnun með því að sníkja ís hjá öðrum eða renna í næstu kjörbúð og endurnýja ísbirgðirnar. Ísmolar hafa þennan leiða ávana að bráðna, hverfa og umbreytast í vatn með tilheyrandi sulli og sóðaskap í kæliboxinu. Oft hefur maður brugðið á það ráð að setja kæliboxið í næsta læk til að lengja líftíma molanna, en eins og veðráttunni var háttað s.l. sumar var ekki á neitt að stóla í þeim efnum, þeir voru nokkrir lækirnir sem fóru á þurrt í blíðunni.
Síðla sumar mundi ég eftir ábendingu á spjallsvæði veiðifélags míns; Settu vatn í gosflösku, frystu og áttu klárt í kistunni fyrir næstu veiðiferð. Það tók mig að vísu nokkrar veiðiferðir að muna eftir því að útbúa svona kuldabola og eiga tiltæka í frystinum, en það tókst á endanum. Kosturinn við flöskurnar er að þykkur klakinn heldur lengur en molarnir, ekkert sull þótt þeir bráðni og einfalt að endurnýta með því að skjóta þeim í frystinn að veiðiferð lokinni. Munið bara að fylla flöskurnar ekki nema upp að öxlum, annars er eins víst að upp úr kistunni komi frosinn gosbrunnur, tappinn af og plastið sprungið.Höfundur:


