Á YouTube má finna ágæta stubba úr myndbandinu Casts that Catch Fish frá On the Fly. Þetta eru stuttar klippur um algengustu mistökin í fluguköstum og hvernig má ráða bót á þeim, ekki ólíkt þeim molum sem ég hef verið að setja hér á bloggið. Því miður má ég ekki birta klippurnar hérna á síðunni, en ég hvet menn til að skoða þær á YouTube með því að smella hér.
-
Casts that Catch Fish
Höfundur:
-
Taumurinn langi
Það er ekki aðeins hraði línunnar eða aflið í kastinu sem skiptir máli fyrir það hvernig hún réttir úr sér. Taumurinn og flugan ráða þar miklu.Ef línan nær ekki að rétta úr sér í framkastinu, kuðlast niður með tauminn og fluguna á toppnum, þá er massi taums og flugu of mikill sem gerir það að verkum að yfirlínan ferðast hægar en undirlínan. Undir svona kringumstæðum fer allur vindur úr kasthjólinu og línan nær ekki að rétta úr sér. Athugaðu hvort ekki megi stytta í tauminum.
Höfundur:
-
Taumurinn stutti
Það er ekki aðeins hraði línunnar eða aflið í kastinu sem skiptir máli fyrir það hvernig hún réttir úr sér. Taumurinn og flugan ráða þar miklu.Ef línan réttir hratt úr sér og taumurinn kippist til baka þegar hún er komin öll fram, þá er taumurinn of stuttur, þ.e. massi hans og flugunnar stemmir ekki. Þú þarft að hægja á yfirlínunni, gefa tauminum meiri tíma til að rétta úr sér. Það er einfaldast að gera með því að lengja í honum.
Höfundur:
-
Hátt uppi, eða ….
Almennt er auðveldara að koma auga á fisk úr hæð heldur en við vatnsborðið. Reyndu að koma því þannig fyrir að þú getir skimað vatnið eilítið ofan frá, en mundu; Þú ert sjálfur sýnilegri hátt uppi heldur en krjúpandi við vatnsbakkann. Farðu varlega, vertu á móti sól til að varpa ekki skugga á vatnið og sparaðu snöggu hreyfingarnar.Höfundur:
-
Að koma auga á hann með gleraugum

Þegar þú ert búinn að vera lengi með veiðigleraugun á þér (Poloroid) er ágæt regla að taka þau af sér í smá tíma og skima um vatnið. Þegar þú setur gleraugun á þig aftur virðast þau virka betur. Það er þannig að augun í okkur venjast skautuðu gleri með tímanum og við hættum að sjá eins skýrt niður í vatnið og áður, að skipta um birtustig hjálpar til við að ‘núllstilla’ augun.
Höfundur:
-
Miðfjarðará – 2009

PDF skjal 1.8 MB Ég hef áður vakið athygli á frábærri klippu Fly Max Films úr Miðfjarðará árið 2009 (sjá hér). Nú er þátturinn í heild sinni (ásamt 4 öðrum þáttum Fly Max TV) komin út á DVD undir heitinu The Silver Collection og hægt að kaupa hann hér.
Í lok síðasta árs birti The Canadian Fly Fisher ágæta grein um þessa ferð, en því miður er það tímarit í dvala núna eftir eigendaskipti. Greinina er þó hægt að nálgast með því að smella á myndina hér til hliðar, því ég var svo forsjáll að taka hana niður sem PDF á meðan tímaritið dreifði henni á netinu. Endilega gefið þessu gaum, skemmtilegar tökur og frábær ummæli um Ísland.
Höfundur:

