Þeim fer fækkandi hárunum á höfði mér, en þau eru enn það mörg að ekki er hægt að telja öll þau ör sem ég varð mér úti um sem snáði. Flest þeirra fékk ég áður en ég náði fullu valdi á hamri sem mér áskotnaðist. Með æfingunni urðu síðan hamarshöggin nákvæmari, naglarnir urðu fyrir flestum höggunum og hausinn fékk frið.
Svipað var þessu farið með fluguköstin mín, það var ekki fyrr en með nokkurri æfingu að hausinn á mér fékk frið fyrir flugunum, en enn má bæta nákvæmnina. Mín upplifun af kastæfingum er raunar því marki brennd að yfirleitt taka menn til við að þenja flugustöngina til að ná ekki síðri lengdarköstum heldur en næsti maður. Þar er ég sjálfur enginn undantekning sem er miður því ég ætti frekar að einbeita mér að nákvæmi í fluguköstum heldur en lengd þeirra. Í vor ætla ég að hafa eftirfarandi atriði í huga þegar ég fer og hitti veiðifélagana og tek nokkur köst.

Ég ætla að taka með mér 3-4 frisbee diska á kastæfingu og stilla þeim upp á víxl í ákveðnum fjarlægðum. Ágætt að byrja á 7, 10, 12 og 15 metrum. Æfa mig síðan í að hitta diskana með flugunni, einn af öðrum með hefðbundu yfirhandarkasti. Byrja á þeim sem er næstur mér og fikra mig smátt og smátt áfram þar til ég næ þeim sem er fjærst.
Þessa æfingu má þyngja og útfæra eins og hvern listir. T.d. setja sér þá reglu að eftir að hafa hitt ákveðinn disk, breyta þá til og takmarka kastið við upptöku + eitt falskast + hitta eða skipta um kast eftir að hafa náð öllum diskunum, nota undirhandarkast eða snúa baki í diskana og hitta þá í bakkastinu.




En það er líka hægt að veiða tvær flugur á allt annan hátt. Við veiðifélagarnir rottum okkur yfirleitt saman þegar við komum á veiðislóð um það hvaða flugu hvort okkar um sig byrjar á að veiða. Já, við veiðum tvær mismunandi flugur þar til ein þeirra hefur sannað sig. Þá vill bregða við að sama flugan endar á hjá okkur báðum. En stundum dugar það einfaldlega ekki til. Það hefur alveg komið fyrir að Alma Rún hefur gefið og gefið, en aðeins öðru okkar. Hitt hefur þá þurft að fara í tilraunastarfsemi og endað kannski á Peacock. Það er nú ekki margt líkt með Peacock og Ölmu Rún, þannig að einhver ókunnur faktor er greinilega í spilinu. Drögum við veiðifélagarnir misjafnlega inn, leggst önnur þeirra betur niður heldur en hin eða er einfaldlega um það að ræða að ætið sem fiskurinn er í sé allt annað handan þessara 10 metra sem skilja okkur að við vatnið?

