
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Taktu þér tíma
Ekki er flas til fagnaðar. Hversu oft hefur maður hugsað þetta, of seint. Sérstaklega þegar maður kemur á veiðistað, sér til fiskjar og telur sjálfum sér trú um að ef maður drífur sig ekki af stað, þá noti hann sporðinn og hverfi á brott eins og tundurskeyti. Fyrst er að setja saman stöngina, rólega. Ef maður böðlast við að setja hana saman, festa hjólið og þræða er eins víst að eitthvað fari úrskeiðis. Nú síðast í sumar lá mér svo mikið á að ég gleymdi einni lykkjunni þegar ég var að þræða og ég ætlaði aldrei að ná þokkalegu kasti fyrir vikið. Svo mikill var æsingurinn að ég tók ekki eftir þessum mistökum mínum fyrr en ég var búinn að fæla í það minnsta þrjá fiska undan línunni þar sem hún hlunkaðist fram úr efstu lykkjunni hjá mér. Þetta kostaði auðvitað brölt upp á bakkann aftur, losa fluguna og þræða stöngina upp á nýtt. Ég hefði betur tekið mér skynsamlegan tíma í upphafi. En þetta var ekki það sem ég vildi sagt hafa.

Þolinmæðin uppmáluð Að taka sér nægan tíma til að hnýta fluguna á tauminn getur margborgað sig. Hnútur sem hnýttur er í einhverju flasi heldur örugglega ekki eins vel og sá sem hnýttur er í rólegheitum og af nákvæmni. Taktu eftir því hvaða hnútar slitna helst hjá þér í átaksprófun. Ég er næstum viss um að það eru hnútarnir sem hnýttir eru í einhverju offorsi eða óðagoti. Svo eru rólegu hnútarnir yfirleitt miklu fallegri, silungurinn er smekkfiskur sem forðast groddagang.
Ef hnúturinn þinn lítur ekki eðlilega út eða er óþægilegur viðkomu, kipptu af og hnýttu aftur.
Höfundur:
-
Vöðluskór
Það eru ekki aðeins vöðlurnar sem gefa reglulega upp andann í mínum meðförum. Vöðluskórnir fá reglulega að kenna á eggjagrjóti og löngum göngutúrum. Gömul tugga, en ég er óttaleg kuldaskræfa og því voru fyrstu vöðlurnar mínar neoprene vöðlur með áföstum stígvélum, næstu vöðlur líka og þar næstu sömuleiðis. Við erum ekki að tala um mörg ár sem það tók mig að slátra stígvélunum á þessum vöðlum, fyrir utan sauma, rassa og hné. Já, ég er böðull á vöðlur, en ég þráaðist við neoprene því ég hafði bara ekki sérlega mikla trú á öndunarvöðlum til að halda á mér hita í skítköldum vötnum landsins. Þar kom þó loks að ég gafst upp og tók til við að slátra öndunarvöðlum, hélt kannski að þær entust eitthvað betur hjá mér. En, nei það var nú ekki svo.

Uppgefnir vöðluskór Með öndunarvöðlum kom nýtt vandamál inn á mitt borð, vöðluskórnir. Nú hafði ég tvennt til að misbjóða í göngutúrum; bæði vöðlum og skóm. Eftir að hafa stagað í og bætt skóna mína oftar en tölu verður á komið, neyddist ég s.l. sumar til að gefa út dánarvottorð fyrir bæði pörin mín og fór á stúfana og leitaði mér að nýjum skóm. Ég hafði augastað á ákveðinni tegund sem ég hafði lesið mér til um að hentuðu vel þeim sem væru gefnir fyrir gönguferðir, svona sambland af göngu- og vöðluskóm. Því miður reyndust þeir ekki lengur fáanlegir, hafa trúlega enst of vel og því var framleiðslu þeirra hætt. Ég leitaði því á önnur mið og skoðaði fjölda tegunda, en flestir sem voru á viðráðanlegu verði voru meira eða minna úr ofnu efni sem ég hef ekki sérlega góða reynslu af. Þeir sem voru aftur á móti aðeins verklegri voru á verði sem var nokkuð utan minna veiðilenda. Það endaði með því að ég fjárfesti í pari af ódýrum skóm til að klára sumarið, ég geri síðan aðra leit að skóm sem mér hef trú á þegar þeir hafa endað ævi sína. Hingað til hefur mín reynsla verið sú að dýrir vöðluskór endast ekkert betur hjá mér heldur en ódýrir og því gæti alveg svo farið að ég endurnýi skóna bara oftar og þá ódýrar í hvert skipti. Þetta er e.t.v. ekki sérlega gott viðhorf þegar litið er til sóunar, en kannski hafa einhverjir öflugir vöðluskór lækkað eitthvað í verði þegar ég fer næst á stúfana og þá tek ég vitaskuld tillit til þess.
Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Nýr formaður Ármanna
Þann 11. júní 2014 birti ég hér á síðunni frétt þess efnis að ég hefði hlotið inngöngu í Ármenn, félagsskap veiðimann sem berst lítið á og hugsa fyrst og fremst um gott sambýli við allt sem að veiðum lýtur. Á þessum tæpum þremur árum sem liðin eru frá inngöngu minni í Ármenn hef ég átt einstaklega gott samstarf við fjölda félagsmanna og notið leiðsagnar mér eldri og reyndari félaga í öllu því sem að stangveiði með flugu lýtur.
Á aðalfundi Ármanna sem fram fór þann 8. mars, lét Árni Þór Sigurðsson af störfum sem formaður eftir fjögur farsæl ár í því embætti. Það er missir af jafn öflugum formanni og Árni Þór reyndist, en maður kemur í manns stað og sá veit fyrir víst að hægt verður að leita til fyrrum formanns, rétt eins og annarra félagsmanna, í því starfi sem hann var kosinn til næstu tvö árin.
Ármenn er öflugur og þéttur félagsskapur yfir 300 veiðimanna sem umfram allt njóta þess að veiða og vera í sem nánustu tengslum við náttúruna. Félagsstarfið hefur einkennst af gróskumiklu vetrarstarfi þar sem hæfileg blanda gamans og alvöru hefur ráðið för í viku hverri frá hausti og fram á vor. Vikuleg hnýtingarkvöld Ármanna sem ganga undir nafninu Skegg og skott hafa laðað félagsmenn til sín á mánudagskvöldum og reglulegir fræðslufundir á miðvikudagskvöldum hafa ekki síður verið burðarás í vetrarstarfinu. Þegar vorar færa Ármenn sig út, safnast saman við kastæfingar og fínpússa í sameiningu þá list að kasta flugu fyrir fisk svo sómi sé að.
Starf félagsins og markmið eru vel mörkuð í 2. grein laga þess:
- Að auka hróður þeirrar íþróttar að veiða vatnafisk á flugu.
- Að efla virðingu veiðimanna fyrir íslenskri náttúru.
- Að hvetja til góðrar umgengni, hófsemi við veiðar og háttvísi á veiðislóð.
- Að stuðla að því að félagar geti stundað stangaveiði fyrir hóflegt verð.
- Að auka rétt almennings til veiða á stöng í almenningum og þjóðlendum.
Þessi markmið hafa alltaf fallið mér mjög í geð og tóna vel við það ég hef reynt að koma á framfæri hér á FOS.IS og því er mér það mikill heiður að hafa verið kosinn formaður Ármanna á framangreindum aðalfundi þann 8. mars.
Ég vonast til að eiga gott og farsælt samstarf við Ármenn í anda félagsins, en síðast en ekki síst vonast ég til þess að eiga eftir að kynnast dyggum lesendum þessarar síðu innan félagsstarfs Ármanna á komandi mánuðum. Ég bendi áhugasömum á að kynna sér upplýsingar um aðildarumsókn á nýjum vef Ármanna sem nálgast má hérna.
Ármaður #861
Kristján Friðriksson, formaðurHöfundur:
-
Útfjólublátt ljós við barinn
Ég hef áður haft orð á því að vöruúrval veiðiverslana hér heima er eiginlega ótrúlega gott, í það minnsta m.v. þær erlendu verslanir sem ég hef heimsótt. Þetta á ekki síst við um hnýtingarvörur og þar hefur Vesturröst heldur betur bætt í úrvalið síðustu vikur og gott var það þó fyrir.
Eftir áhugavert kvöld með Robert Nowak í Árósum á mánudaginn, hef ég aðeins verið á höttunum eftir UV efni. Á þeim buxunum kíkti ég við í Vesturröst og skoðaði aðeins úrvalið sem þeir voru að taka upp úr kössunum. Ég verð nú eiginlega að játa að mér hafði ekki komið til hugar allar þær fjaðrir, þræðir og kúlur sem hægt er nálgast til að nýta í UV útgáfur af flugum. Rekkarnir eru beinlínis fullir af nýju skemmtilegu hnýtingarefni og ekki síst nýjum áhugaverðum UV flugum. Ég þarf í það minnsta að taka örlítið til í mínum boxum til koma einhverjum UV flugum þar fyrir.
Höfundur:









