Einn af mörgum kostum Veiðikortsins er að það er hægt að skjótast í vötnin þegar manni hentar og víða er ekki lengra á milli vatna en svo að maður getur slegið saman einum bíltúr í veiðiferð í tvö eða fleiri vötn. Þetta gerðum við veiðifélagarnir til dæmis á heimleið okkar úr Hraunsfirðinum á sunnudaginn, við skutumst inn í Hítardal og freistuðum þess að ná einhverjum fiskum áður en Hítarvatn hverfur enn meira en orðið er. Það er óhætt að segja að það hefur lækkað verulega í vatninu í yfirstandandi þurrkatíð, það vantar á að giska 1.5 metra í vatnið frá því ég kíkti á það í byrjun júlí.
Hítarvatnið eins og það leggur sig
Eftir glampandi sól og hita í Hraunsfirðinum var bara hressandi að fá smá golu í andlitið í Hítardal og þræða ströndina austan Hólms þar sem nokkrir fiskar gerðu sér dælt við flugurnar okkar. En bæði bleikjur og urriðar voru í smærri kantinum og fengu því tækifæri til að stækka aðeins meira.
Lítið í fyrstu vík hraunsins
Við kíktum rétt aðeins inn í fyrstu víkina í hrauninu, en fiskurinn virtist hafa yfirgefið þá vík, trúlega leitað lengra inn í hraunið enda ekki mikið við að vera á grynningunum fram undan víkinni. Grynningarnar teygja sig lengst, lengst út í vatnið þannig að það má vaða töluvert út í vatnið þangað til dýpra vatni er náð þar sem fiskurinn gæti leynst í sólskininu og hitanum.
Með sól á milli tánna
Til að vera með í trendi sumarsins, þá bara varð ég að taka eina tásumynd við bakka Hítarvatns áður en við héldum ferð okkar áfram til byggða. Það er alltaf jafn frábært að heimsækja Hítarvatnið, hver veit nema maður taki eins og eina dagsferð inn að vatninu fyrir lok mánaðarins þegar veiðitímanum það lýkur.
Ekki þurfa allar veiðiferðir að vera viðburðaríkar til að vera ánægjulegar. Þegar grannt er skoðað má alltaf finna einhvern lærdóm úr hverri einustu ferð og það var sko pottþétt tilfellið í ferð okkar veiðifélaganna í Hraunsfjörð á föstudag og laugardag.
Eigum við eitthvað að ræða veðrið? Sumir flengjast til útlanda til að finna sól og hita streyma inn í kroppinn, aðrir fara bara vestur á Snæfellsnes á mun skemmri tíma og fyrir minni pening. Í stuttu máli má segja að það hafi verið stanslaus blíða alveg frá því að við lögðum af stað vestur á nes, að vísu smá strekkingur frá Borgarnesi og vestur að Hafursfelli, en þaðan í frá var logn og blíða allan þann tíma sem við eyddum á nesinu. Raunar var óbærilegur hiti á köflun, 24°C í forsælu við vagninn í botni Hraunsfjarðar.
Hraunsfjörðurinn eins og hann leggur sig í blíðunni
Af fiskum er fátt að frétta, veiðifélagi minn fékk einn titt í botni Hraunsfjarðar á föstudagskvöldið, nokkrar tökur til viðbótar og síðan smá eltingarleik við flugurnar á laugardeginum við „eyjuna“ undir hrauninu á laugardaginn. Ég setti eyjuna í gæsalappir vegna þess að hún er í raun tangi um þessar mundir vegna lágrar vatnsstöðu í firðinum, skortur á rigningu hefur nefnilega ekki bara áhrif á laxveiði, flest vötn á vestanverðu vatninu eru í lágmarki eftir þurra mánuði.
Það verður alveg að játast að maður var svolítið að vonast eftir því að sjá meira líf heldur en raunin varð. Sögur undanfarinna vikna af kraumandi firði voru annað hvort úr sér gengnar eða bara smásögur sem vörðu stutt því það var einstaklega lítið líf að sjá. Að vísu er fullt af fiski í firðinum, því komumst við að þegar við óðum langt út í miðjan fjörð fyrir hádegið á laugardag. Í stillunni og sólinni sást vel til flundru af öllum stærðum á botninum. Flestar styggar og færðu sig undan fótum okkar með róti á botninum, en svo kynntist maður líka flundrum sem fóru með þvílíkum hamförum að þær tókust á loft og bægsluðust á yfirborðinu með miklum látum.
Það hefur borið við að maður hefur agnúast út í flundruna þegar hún tekur fluguna algjörlega óumbeðið, en í þessari ferð upplifði ég gagnkvæma andúð flundru á veiðimönnum. Ég varð sem sagt fyrir því að flundra gerði sér lítið fyrir og réðst á lappirnar á mér í Búðavoginum, eitthvað sem ég vissi ekki til að þær gerðu. Svona getur maður nú alltaf lært eitthvað nýtt.
Horft yfir til Búðaness
Við félagarnir sátum fyrir síðdegisflóði laugardagsins í glampandi sól og hita við eyjuna og inn að Búðavogi, böðuðum ýmsar flugur með mismunandi hætti, oft og ítrekað í nærri 4 klst. án þess að það kæmi fiskur á land. Það var ekki fyrr en sólin fór á bak við Hádegisbrekkur og skuggi féll á vatnið að fiskur lét sjá sig og þvílík sýning. Veiðifélagi minn hafði staðið við enda eyjunnar og prófað hverja fluguna á fætur annarri án þess að sjá nokkurn einasta fisk svo klukkustundum skipti, dró inn og festi flugu á stöng, snéri sér undan og tók tvö skref … þegar einn snéri sér við með skvampi miklu þar sem hún hafði staðið. Orðrétt með sársauka- og hneykslistón ; Ertu ekki að kidda mig! hraut af vörum hennar og ég er ekki frá því að það hafi sprottið fram tár í öðru auga hennar í það minnsta. Þarna var sem sagt fiskur, raunar tveir frekar en einn, sem sendu veiðimanni diss aldarinnar á fluguval, inndrátt og veiðiaðferðir sem búið var að reyna svo klukkustundum skipti. Eftir smá fortölur og hvatningu, þurrkaði hún tárin og gerði nokkrar tilraunir til viðbótar að ná athygli þessara fiska. Þeir héldu uppteknum hætti og létu flugur algjörlega afskiptalausar, ánægðir með sig að vera búnir að dissa einn þaulsetnasta veiðimann sem ég þekki og mig grunar að dissið hafi grafið svo um sig í huga hennar að tilraunirnar urðu heldur færri en ég átti von á. Svona getur nú veiðin verið.
Tungl á heiðskírum himni yfir Kothraunskúlu
Eftir þetta diss aldarinnar, töltum við fljótlega til baka yfir hraunið, héldum í vagninn og nutum kyrrláts kvöldsins við fjörðinn í einmuna blíðu og fylgdumst með veiðimönnum koma og fara án þess að verða varir við fisk eftir því sem við best fengum séð. Almennt var töluverð umferð við vatnið, fáir stoppuðu lengi en nutu þó greinilega verunnar á þessum fallega stað.
Lærdómur ferðarinnar: flundrur fljúga og ráðast á lappirnar á manni og fiskar taka því illa þegar dótið þeirra er fjarlægt fyrir framan nefið á þeim og geta dissað veiðimenn með einni skvettu.
Einn af kostum Langavatns á Mýrum er að þar er ekkert farsímasamband og þess tókst mér að njóta í tætlur frá síðdegi þriðjudags og fram á síðdegi fimmtudags. Í annarri viku ágúst má alveg búast við því að laxarnir í Langá (og Gljúfurá) hafi drukkið megnið af Langavatni og þeir eru langt komnir með vatnið eins og það stendur núna eins og það svona rétt rúmlega lekur úr vatninu undir stífluna sem er alveg opin. Ég man ekki eftir því að geta kíkt undir stífluna áður og séð niður í Langá.
Lítið eftir sem runnið getur niður í Langá
Miðað við að vindi var spáð úr ýmsum áttum, þá skipti í raun engu máli hvar ég setti vagninn niður og ég ákvað því að fara inn fyrir Barónsklett og setja vagninn niður í fjöruna undir Múlabrekkum. Það kitlaði vitaskuld að sjá fisk í uppitökum rétt við bakkann og það var því með óðagoti sem ég gerði allt klárt og kom mér í vöðlurnar til að njóta kvöldsins.
Horft til Langavatnsmúla frá bækistöðvunum
Það er víst einfaldlega best að drífa það strax af að segja frá aflabrögðum. Það er nóg af bleikju í vatninu, greinilega. En, hún er frekar smávaxin en þó í góðum holdum. Af þeim tæplega 30 bleikjum sem ég tók víðsvegar í vatninu var aðeins þremur sem féll sá heiður í skaut að fá far með mér suður til Reykjavíkur. 90% bleikjunnar var af þeirri stærð sem myndin hér að neðan gefur til kynna.
90% bleikjunnar var í þessari stærð
Eftir að hafa hellt uppá morgunkaffið á miðvikudaginn, setið góða stund við vagninn og glápt á hlíð Langavatnsmúla, þá lagði ég sannanlega land undir fót og gekk fyrir og yfir Staðatunguhraun frá Beilárvöllum og inn að útfallinu. Þar sem ég komst fyrir hraunið renndi ég fyrir fisk og það má segja að það hafi verið líf meira eða minna á öllum stöðum sem ég prófaði, allt bleikja sem var heldur í smærri kantinum. Þar sem þessi vegalengd er rétt um 3.5 km á korti, aðra leiðina, þá ákvað ég að sleppa öllum fiski í þessum 5 klst. göngutúr mínum því sökum hita (17°C) hefði fiskurinn einfaldlega skemmst á þessu ferðalagi mínu hefði ég tekið hann með mér.
Horft til Langavatnsmúla, Barónskletts, Torfhvalastaða og Beilárvalla af Staðartunguhrauni
Það verður að viðurkennast að það seig á mig værð eftir göngutúrinn og staðgóðan hádegiverð, en ég hristi letina af mér og ákvað að fara alveg inn að botni Langavatns. Nei, ég fór ekki fótgangandi, ég fór bílandi.
Nú kemur smá útúrdúr frá veiðisögunni, að gefnu tilefni. Samkvæmt ábendingum frá kunningjum mínum og lesendum vefsins, þá hef ég gert mig sekan um að segja hina eða þessa slóða alveg ágæta og færa flestum bílum, ferðatíminn sé ekki nema X mínútur, vegurinn sé alveg ágætur og allt þar fram eftir götunum. Allt það sem ég segi um færð og ferðatíma er miðað við þann fararskjóta sem ég nota (Discovery Sport) og það fellihýsi (létt Coleman 8 feta) sem ég neyði með mér í veiðiferðir. Ég þekki ágætlega bílinn minn, veit veghæð hans, hvað hann er breiður og hve langt er á milli hjóla og hvaða drif- og fjöðrunareiginleikum hann er búinn. Með þetta í farteskinu fer ég e.t.v. hraðar yfir, veð dýpra, tekst að tipla á grjótum, þvera börð og skurði sem væru mögulega farartálmi öðrum. Ef þú treystir þér ekki eitthvað á bílnum þínum, þó ég hafi sagt leiðina þokkalega, slepptu því að fara hana. Það gerði ökumaður Land Cruiser á stærri dekkjum sem hætti við að fara inn að botni og snéri við á móts við vagninn minn þegar fyrsta klettabarðið blasti við á slóðanum. Trúlega hefði hann lent í vandræðum vegna breiddar bílsins á nokkrum stöðum sem mér tókst að smokra mér á milli á mínum slyddujeppa.
Baksvipur í blíðunni
Aftur að miðvikudeginum. Ég fór sem sagt alveg inn að botni og veiddi mig í áföngum til baka að vagninum. Staðir sem áður hafa gefið vænni bleikjur voru undir sömu stærðir fiska settir, með stöku undantekningum, en almennt var mikið af fiski þá 2 km sem ég veiddi.
Miðvikudagskvöldið var í rólegri kantinum hjá mér og ég hélt til í vagninum. Kvöldið var fallegt frá vagninum séð, sólsetur á bak við Langavatnsmúlann varpaði roða á himininn sem tókst að gæjast upp fyrir fjallsbrúnir. Ég er ekki frá því að göngutúrar dagsins hafi eitthvað dregið úr mér orkuna og ég lagðist því snemma til hvílu.
Sólsetur handan við fjöllin
Fimmtudeginum tókst að safna nokkrum vindi í sarpinn sem hann leysti úr læðing fram eftir degi. Ég fór því skemmri göngutúra frá vagninum, gerði tilraunir til að ná einhverjum urriða í öldunni og grugginu sem safnaðist saman við ströndina, án árangurs. Þegar mér þótti fullreynt að urriðinn væri ekki til viðtals, tók ég saman og hélt til byggða. Næsta verkefni; skoða veðurspánna og athuga hvert ég fer næst.
Þriðja ferð mín inn að Veiðivötnum þetta árið yrði seint talin til markverðustu ferða sumarsins ef ég væri að meta veiðiferðir eftir afla. Það er nefnilega blessunarlega hægt að meta veiðiferðir á marga vegu og þegar ég gerði þessa ferð upp í huganum á leiðinni heim, þá er hún nú samt sem áður meðal tíu ánægjulegustu ferða sem ég hef farið á liðnum árum.
Stillt og fallegt veður við Tjaldvatn
Rólegheit er víst orðið sem helst er hægt að nota yfir okkur félagana sem héldum hópinn sem viðhengi fjölskylduferðar þriðja félaga okkar um helgina. Ég held að mér sé samt óhætt að segja að við tveir höfum verið ágætlega duglegir og lagt þó nokkra veiðistaði að fótum okkar um helgina, spænt upp taumaefni í metravís við tíð fluguskipti og prófað allar mögulegar útfærslur á inndrætti.
Horft til Höfðanns frá Álftatanga
Sjálfur lagði ég land undir fót og fór í 3 klst. gönguferð við Litlasjó, tölti úr Norðurbotninum og yfir í Djúpuvík, fór um allar víkur og tanga, staldraði við og kastaði nokkrum mismunandi flugum á hverjum stað án þess að verða var við fisk. Að vísu sá ég til nokkurra sem ólmuðust í æti þegar nær Ugganum dró, en þeir fiskar höfðu rænu á að vera vel utan kastfæris.
Horft til Höfðanns úr Fyrstuvík
Ég ætla ekki að voga mér að halda því fram að allir veiðimenn hafi verið jafn lánlausir og ég, en almennt var rólegt yfir þó vissulega hafi einhverjir hitt á fisk og gert þokkalega veiði. Sjálfur náði ég því afreki að fá ekki einn einasta fisk í þessari ferð og þetta var því ferð #2 sem ég fór fisklaus, en fullkomlega sáttur, heim úr Veiðivötnum. Ánægja af góðum félagsskap og góðum kynnum af fólki skal aldrei vanmeta, takk fyrir samveruna öll sem héldu til í og við Vatnaver og nágrenni yfir helgina.
Eins og margar aðrar frásagnir af veiði í Hlíðarvatni í Hnappadal, þá hefst þessi á nýjustu fréttum af vatnsstöðunni. Síðast þegar ég var í Hnappadalnum (9. júlí) þá var mjög gott vatn í Hlíðarvatni, í rauninni meira vatn heldur en þegar ég fór í vatnið 9. apríl. Nú er öldin önnur, það hefur lækkað verulega í vatninu og pollurinn fyrir framan Jónsbúð á nú ekki lengur samgang við vatnið og væntanlega er þess ekki langs að bíða að hann þorni upp.
Pollurinn fyrir framan Jónsbúð
Í öllu eðlilegu árferði og undir þessum kringumstæðum, þá ætti það að teljast ótvíræður plús að unnt sé að komast út í skerinn undir Fellsbrekku. Ég var ekki einn um að verða fyrir smávægilegum vonbrigðum með fjarveru matfiska við skerin, því þeir sem ég náði tali af voru allir sammála um að stærri fisk en 20 sm vantaði tilfinnanlega út af skerjunum.
Rifin undir Fellsbrekku
En nóg af vatnsstöðu og fjarveru fiska, eða hvað? Þau kvöld og heilan dag sem ég eyddi við vatnið með stöng í hönd, varð ég ekki var við eina einustu bleikju. Vissulega voru þekktar bleikjuslóðir nú langt upp í landi, en maður hefur nú áður veitt ágætlega þótt vatnið hafi hörfað eins og það hefur núna gert.
Leikur ljóss og skugga að kvöldi
Ég ætla svo sem ekkert að orðlengja þessa frásögn, það er ekki frá miklu að segja ef undan er skildir þessir 10 til 15 urriðar sem ég náði og fengu líf sökum smæðar. Umhverfið og veðrið var náttúrulega alveg frábært, hlýtt og notalegt, með gjólu á köflum sem kom sér ágætlega til að kæla sig niður á endalausri göngu eftir vatnsbakkanum í leit að þeim stóru eða í það minnsta stærri.
Þetta er nú alls ekki í fyrsta skiptið sem ég hef komið fisklaus heim úr Hlíðarvatni, en miðað við áratuga reynslu af vatninu í allri mögulegri vatnshæð, þá er þetta sumar trúlega það lélegasta sem ég hef upplifað. Er ég þá hættur að fara í Hlíðarvatn í Hnappadal? Nei, ekki aldeilis, þetta vatn á allt of sterk ítök í mér að ég farið að svíkjast um að heimsækja það.
Undanfarin 6 ár hef ég haldið í þá hefð að heimsækja Kvíslavatn á Sprengisandi í það minnsta einu sinni á ári, stundum oftar. Það er einfaldlega eitthvað við það að komast upp undir Hofsjökul í veiði og um síðustu helgi gaf veðurspáin þokkalegasta veður til kynna og ég stakk því af seinni part föstudags með mitt færanlega veiðihús í eftirdragi.
F26 eins og bókstafurinn gefur til kynna, er fjallvegur og maður getur átt á ýmsu von þegar líður á sumarið. Fyrir utan hefðbundin þvottabretti í flestum brekkum, þá var ástandið á veginum bara alveg þokkalegt og ég var nokkuð hefðbundin tíma af malbikinu og inn að Kvíslavatni, um það bil eina klukkustund. Framan af ferð var hið ágætasta veður, nærri því heiðskýrt en fljótlega eftir að ég var kominn yfir Köldukvísl fór að bæta í vind og ryk dró fyrir sólu. Raunar bætti jafnt og þétt í vind með kvöldinu og rétt um það bil sem ég tók á mig náðir um kl. 22 var farið að slá í 13 m/sek. og vagninn ruggaði mér kröftuglega í svefn.
Ég hef stundum tekið upp á því að blanda öðrum áhugamálum mínum inn í veiðisögur og í þessari sögu gefst tækifæri til að troða jarðfræði örlítið inn. Eftir að hafa verið vaggað í svefn á föstudagskvöldið, hrökk ég upp rétt fyrir miðnættið við það að vagninn vaggaði allt í einu í þvert á vindinn þegar tveir hressilegir jarðskjálftar riðu yfir. Ég var sem sagt áminntur, heldur óþægilega, á að ég hafði valið mér næturstað í nágrenni við Bárðarbungu í Vatnajökli og það sem meira var, einhverjum 200 metrum fyrir neðan yfirborð Hágöngulóns sem tekur jú við vatni úr Köldukvíslarjökli, skammt vestan Bárðarbungu. Hvað ef bungan á Bárði færi nú að gera einhvern óskunda? Tja, það væri þá ekkert við því að gera, hugsaði ég með mér og snéri mér á hina hliðina og vonaði að ekki mundir bæta enn meira í vind.
Eftir nokkra kaffibolla, ítrekaða stöðutöku á veðri ákvað ég að rölta undan vindinum út með víkinni þar sem lækurinn úr Svörtubotnum rennur til vatnsins. Í stuttu máli, þá var ekki einn einasta fisk að sjá sem var kannski ekkert skrítið miðað við báruna sem var á vatninu, alveg þangað til ég kom inn á sandfjöruna sem stundum hefur verið nefnd Skötustaðir. Skortur á örnefnum á þessum slóðum verður víst ekki leystur með öðrum hætti en gefa upp hnitin þar sem ég varð fyrst var við fisk N 64° 32′ 9“ W 18° 32′ 36“
Upp á ströndina stóð töluverð bára og ég byrjaði því á að reyna hefðbundnar urriðaflugur út í ölduna og draga þær snaggaralega inn. Þessum flugum var hreint ekki sinnt og það var ekki fyrr en ég lenti í einhverju brasi með línuna undir vöðluskónum sem varð þess valdandi að flugan sökk alveg niður á botn að ég fékk nart. Nú já, þarna ertu þá og ég skipti yfir í afbrigði af rauðum Nobbler, hnýtt á stuttan krók #12 og dró hann lötur hægt eftir botninum og þar með hófust leikar.
Afbrigði af Nobbler, stuttur krókur #12
Eftir að hafa tekið nokkra, misst fleiri og orðið var við töluvert áreiti á fluguna, hóf ég röltið út með ströndinni og alveg þangað sem gruggið tók við af tæru vatninu úr Svörtubotnum. Það er óhætt að segja að þarna var mjög mikið af fiski að gera sér það sem ég taldi vera skötuorm að góðu við botninn. Annað kom þó raunar á daginn þegar ég kíkti í þá 7 fiska sem ég tók á þessum slóðum. Ég fann aðeins einn skötuorm í þessum fiskum en allir voru þeir stappaðir af flugu og mýlirfu.
Aflinn fram að miðdegisverði (raunar bættist einn við eftir þessa mynd)
Eftir miðdegisverð lagðist ég í könnunarferð, renndi niður að útfalli Ölduvers og reyndi töluvert þar, án árangurs, rétt eins og víðar á leiðinni. Þegar ég endaði síðan hringferð mína niðri við Svarárós varð mér öllum lokið, ekki einn einasti fiskur í ósnum, ekkert nart þrátt fyrir tíð fluguskipti og mismunandi aðferðir. Ég ákvað því að prófa nokkrar auðhnýttar flugur sem ég hef verið að vinna með, helst til að sjá hvernig þær haga sér í vatni. Eftir að hafa prófað nokkrar dökkar í grugginu norðvestan við eyðið sem skilur að Svarárós og Kvíslavatn, þá var komið að einni sem ég hafði satt best að segja ekkert endilega trú á. En, svona getur maður mislesið aðstæður og umhverfið.
Hnýtt á legglangan krók #6, gengur undir vinnuheitinu White and silver straggle
Í stað þess að leyfa þessari flugu að sökkva, þá skipti ég yfir í flotlínu og hóf snaggaralegan inndrátt um leið og hún lenti. Og viti menn, í fyrsta kasti var flugan tekin rétt eftir að hún lenti og sá var hreint ekki sáttur við mistökin sín. Mér hafa alltaf fundist fiskarnir í Kvíslavatni vera hressir og til í tuskið, en þessi sló öll met, djöflaðist, stökk og setti hraðamet í allar áttir meðan hann krossaði vatnið fyrir framan mig. Eftir frábæra skemmtun í 10 mínútur náði ég undirtökunum og landaði vænum 3ja punda urriða. Auðvitað hélt ég áfram að prófa þessa flugu með sama inndrætti og í þriðja, fjórða kasti tók annar 2ja pundari og síðdeginu lauk ég síðan með 3,5 punda skemmtikrafti sem náði nær allri línunni út hjá mér áður en mér tókst að hemja hann á bremsunni.
Gruggbræðurnir þrír við Svartárós
Áður en ég hélt til baka í vagninn, settist ég niður með kaffibolla og naut þess í botn að horfa á umhverfið í kvöldstillunni og auðvitað hafði ég auga með því hvort fiskur léti sjá sig í Svartárósi, en það fór nú ekki svo, þannig að ég tuskaðist heim í vagn og tók kvöldinu bara rólega og endurraðaði í nokkur flugubox með kaldan við hendina.
Rólegheita síðdegi við Svarárós
Vinur allra veiðimanna, Himbriminn vakti mig frekar seint á sunnudaginn ( kl. 10 ) með ákalli sínu til spúsu sinnar og unga að drífa sig inn að hvíta ferlíkinu sem inni að Svörtubotnum, það væri fiskur að vaka þar. Það þurfti ekki marga kaffibolla áður en ég var kominn í vöðlurnar og hugsaði mér gott til glóðarinn að reyna fyrir mér í blíðunni á sömu slóðum og ég hafði byrjað laugardaginn á. Þá þegar var hitastigið komið fast að 20°C og sól skein skært á bak við skýin.
Spegill á sunnudegi
Að þessu sinni var allt annað uppi á teningnum, ekki litið við flugum á botninum enda var fluga á vatninu og víðast hvar var fiskur í uppitöku. Mér varð ósjálfrátt hugsað til flotlínunnar og ævintýrisins við Svartárós, en ég valdi að þessu sinni töluvert minni flugu og af öðrum toga. Frændur Kvíslaveitu urriðans, þeir sem eiga heima í Veiðivötnum, voru ansi sprækir þegar ég sýndi þeim sérlega einfalda kopar- og svartlitaða flugu fyrr í sumar. Eftir að hafa krafsað mig í gegnum nokkur box fann ég þá sem ég hafði í huga; óþyngd fluga með koparbúk og væng úr svartri lambsull.
Hnýtt á grubber #4 og gengur undir vinnuheitinu Copper sheep
Eftir að hafa tekið fjóra væna fiska, skipti ég um flugu. Já, stundum vill maður bara fá staðfestingu á því að hafa rambað á réttu fluguna og það má segja að það hafi ég fengið. Í að verða 1 klst. reyndi ég nokkrar aðrar flugur, þekktar og eigin skáldverk en það var ekki fyrr en ég nálgast aftur svarta flugu með kopar eða gulli að þær vöktu einhvern áhuga. Ég skipti því aftur í upphaflegu fluguna og það var eins og við manninn mælt, þeir fóru að taka og fjórir til viðbótar enduðu í netinu mínu. Eftir á að hyggja, þá getur líka verið að það hafi orðið smá hlé á tökum fiska eftir að mér heyrðist bíll vera að nálgast mig upp úr hádegi og vatnið hagaði sér eitthvað skringilega. Það var reyndar ekki fyrr en á heimleið að ég kveikti á útvarpinu og heyrði að það hefði verið snarpur kippur í Torfajökli kl. 12:44.
Afli sunnudagsins
Þegar klukkan var langt gengin í þrjú og mér tók að vaxa heildarafli helgarinn í augum, lét ég gott heita og hélt til baka í vagninn, fékk mér kröftugan miðdegisverð og settist út í blíðuna og naut þess sem var eftir af henni áður en ég tók hafurtask mitt og vagn saman og hélt heim á leið, miklu meira en sáttur við þessa ferð mína að Kvíslavatni.