
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Hlíðarvatn í Selvogi, 30. sept.
Á fimmtudag fékk ég SMS frá veiðifélaga mínum sem hafði alveg óvart kíkt á veðurspá helgarinnar fyrir Selvoginn og enn meira óvart rambað inn á leyfi.is þar sem við blasti síðasti dagur tímabilsins laus hjá Ármönnum. Það er alveg hreint ótrúlegt hve góðan veiðifélaga ég á, að detta niður á þessar upplýsingar og stinga upp á því að við tækjum þennan dag. Þetta varð nú kveikjan að því að veiðidótinu var hlaðið í bílinn eftir vinnu í gær, komið við í matvöruverslun og brunað austur í Selvog.

Haustlitirnir við Hlíðarsel Það er svolítið tregablandin ánægja að ljúka tímabilinu í Hlíðarvatni, en kannski við hæfi að vera á staðnum bæði fyrsta og síðasta dag veiðitímabilsins og kannski enn meira við hæfi að þeir enduðu í sömu aflatölu. Annars var einn mjög stór munur á þessum dögum, veðrið í dag var svo margfalt betra og fallegra heldur en 1. maí þegar stjórn Ármanna opnaði vatnið. Sumarið hefur annars verið alveg með ágætum hjá okkur í Hlíðarvatni, þótt auðvitað hafi skipst á skyn og skúrir og afaltölur hafi ekki alltaf verið upp á marga fiska.

Ekki amalegt veðrið við Djúpanef Við hófum veiði í morgun á nokkuð hefðbundnum slóðum Ármanna, í Botnavík. Stutta yfirlitið; bleikjurnar hafa greinilega lokið sér af í Botnavík og horfið á vit annarra ævintýra á öðrum slóðum í Hlíðarvatni. Sömu sögu er að segja af Skollapollum, Djúpanefni og Mölinni. Á Brúarbreiðu var í það minnsta ein bleikja enn á svæðinu, en hún var frekar viðskotailla og bara rétt glefsaði í flugu frúarinnar. Fleiri fréttir af fiskum í Hlíðarvatni kann ég því miður ekki að segja eftir daginn í dag.

Við Brúarbreiðuna í 12 stiga hita í dag Það gladdi samt okkar litlu hjörtu að sjá að við vorum ekki einu veiðimennirnir í Selvoginum í dag. Í húsi Selfyssinga voru tveir veiðimenn sem voru á svipuðu róli og við, prófuðu Urðarvíkina, Kaldós, Réttarnes og svo Botnavíkina núna síðdegis. Ég kann því miður ekki að segja neinar veiðisögur af þeim félögum, vonandi hefur þeim gengið eitthvað betur en okkur hjónum.
Uppfært 02.10.2017: Jú, þeir félagar úr húsi Selfyssinga urðu varir og gott betur en það. Hann Þórarinn sendi okkur skilaboð og hér má lesa frásögn hans af ferð þeirra feðga í Hlíðarvatn.
Nú eru aðeins örfáir mánuðir þar til við mætum aftur í Hlíðarvatn, tökum til hendinni í vorhreinsun og fáum e.t.v. að bleyta færi að launum fyrir vel unnið verk. Þangað til ætla ég að ylja mér við endurminningar sumarsins úr Selvoginum og ekki síst þennan síðasta dag okkar þar þetta árið.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 0 / 0 115 / 157 0 / 0 32 / 31 16 / 18 Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Framvötn 2017
Það eru fleiri lokatölur sem eru að detta í hús þessa dagana heldur en úr laxveiðinni. Á vef Veiðivatna voru að koma lokatölur úr Framvötnum, vötnunum sunnan Tungnaár. Þeir sem fylgjast með FOS.IS vita náttúrulega að mér er þetta svæði sérstaklega hugleikið og því hef ég rýnt í þær og borið saman við tölur síðustu ára.

Framvötn – veiðitölur 2017 Eins og við mátti búast var Frostastaðavatn með flesta fiska þetta árið, rétt eins og síðustu árin. Samt sem áður eru tölurnar núna ekki svipur hjá sjón miðað við síðustu ár, raunar þær lægstu sem sést hafa frá árinu 2010. Eins og flesta rekur minni til, hamlaði Nýipollur nokkuð ferð manna inn að Froststaðavatni lengi frameftir sumri, í það minnsta þeim sem lögðu leið sína um Landmannaleið og getur að skýrt þessar lélegu aflatölur að einhverju leiti.

Frostastaðavatn 2010 – 2017 Eins og fram kom í fréttum síðla sumars var það álit fiskifræðinga sem öfluðu gagna í vatninu nú í sumar, að vatnið væri ofsetið og bleikjan þar liðmörg og smá. Þetta voru í sjálfu sér ekki nýjar fréttir fyrir þá veiðimenn sem þekkja til, en ég hef rökstuddan grun um að einhverjir veiðimenn hafi oftúlkað ummæli fiskifræðinga og talið vatnið ónýtt. Svo slæmt er ástandið ekki orðið, þótt ýmis merki ofsetningar megi finna í fiskinum. Mín persónulega reynsla er sú að vænni fiskur gengur nær landi þegar sumri fer að halla og oft má gera ágæta veiði í vatninu síðla sumars og er sá fiskur í flestum tilfellum mun heilbrigðari heldur en sá sem veiðist snemmsumars og á miðju sumri. Það verður spennandi að rýna í niðurstöður rannsóknanna þegar þær koma fram í vetur.

Ljótipollur 2010 – 2017 Tölurnar fyrir Ljótapoll styðja að einhverju leiti þá tilgátu að Nýipollur hafi dregið úr ásókn veiðimanna austur fyrir Dómadal, en ég á mjög bágt með að trúa því að aðeins 56 fiskar hafi verið dregnir upp úr Ljótapolli þetta árið. Okkur veiðifélögunum tókst að telja vel á fjórða tug fiska sem við höfðum spurnir af í sumar og þá eru aðeins taldar 5-6 veiðiferðir. Þessar tölur segja mér frekar að skil á veiðiskýrslum hafi ekki verið góð þetta árið, í það minnsta hjá þeim sem lögðu leið sína í Ljótapoll.

Dómadalsvatn 2010 – 2017 Hafi Nýipollur stöðvað för mann að Ljótapolli, þá er eins víst að þeir hafi komið við í Dómadalsvatni. Af öllum Framvötnum er Dómadalsvatn aðeins annað þeirra tveggja sem gáfu fleiri fiska þetta ár heldur næstu ár á undan. Raunar þarf að leita allt aftur til 2010 til að sjá fleiri fiska á land úr vatninu. Svo virðist vera sem vatnavextir í Dómadal hafi ekki haft slæm áhrif á urriðann þar, heldur þvert á móti.

Löðmundarvatn 2010 – 2017 Löðmundarvatn er hitt vatnið sem státar af aukningu á milli ára. Hún er kannski ekki mikil, en einhver þó og skemmtilegt að sjá að meðalþyngd fiska þar er að tosast eitthvað upp.

Framvötn 2010 – 2017 Að öllu þessu sögðu, þá eru það heildartölur vatnanna sem stinga hve mest í augu. Þær eru hreint út sagt afskaplega lélegar og verður að leita allt aftur til kuldasumarsins 2012 til að finna svipaðar tölur. Vafalaust hefur margumræddur Nýipollur haft veruleg áhrif á ástundun í Framvötnum þetta sumarið, en svona getur nú hálendisveiðin verið óútreiknanleg. Eins og sagt var um árið, það gengur bara betur næst. Veiðitölur ársins í heild sinni má finna á vef Veiðivatna með því að smella hérna.
Höfundur:
-
Framvötn, 17. & 18. sept.
Hálendið virðist ætla að toga endalaust í mann þetta haustið. Til að mynda var útlit fyrir einmuna blíðu á sunnanverðu hálendinu um síðustu helgi og auðvitað lét þetta fyrirheit mann ekki í friði þegar fór að líða að helginni. Þegar kemur að hálendinu er mótstöðuafl mitt ekki mikið og því tókum við föggur okkar á föstudaginn, pökkuðum í vagninn og renndum inn að Landmannahelli.
Þegar við vöknuðum á laugardaginn var blíðan með eindæmum og við ákváðum að renna inn fyrir Landmannalaugar og kíkja á Kýlingavötn og Kirkjufellsvatn. Ekki beint í þeim erindum að taka fram stangir heldur til að njóta haustlita og stórbrotins umhverfis. Það verður ekki af Kýlingavötnum tekið að umhverfi þeirra er ótrúlega fallegt og það skartaði sínu fegursta á laugardaginn. Við renndum einnig inn að Kirkjufellsvatni þar sem veiðimenn héldu til og voru með netalagnir úti. Eftir smá viðkomu við Kirkjufellsós og Tungnaá undan Höllinni í Kýlingum, tókum við stefnuna til baka á Frostastaðavatn eins og svo oft áður.

Kýlingavötn Það blundaði í okkur frá síðustu ferð að komast að því hvar bleikjan í Frostastaðavatni héldi sig fyrst hún var horfin úr víkunum undir Suðurnámum. Til vonar og vara, ef hún skildi hafa skilað sér aftur í hraunið í blíðunni, töltum við inn í hraunið. Eina sáum við í fyrstu vík, enga í þeirri næstu og þaðan af síður einhverja í þeirri innstu. Jæja, þá var það fullreynt og eins gott að taka stefnuna út að skerjum eins og hægt var. Stuttur gangur varð heldur lengri því allar víkur, lægðir og lautir eru næstum fullar af vatni þannig við þurftum að krækja fyrir hverja víkina á fætur annarri á leið okkar. Við eyddum töluverður tíma í þetta ráp okkar og uppskárum ekki margar fiska, ég fékk þrjá og veiðifélagi minn einn. Fleiri veiðimenn voru á sveimi, ungir sem aldnir en fáum sögum fór af aflabrögðum, enda nokkuð ljóst að bleikjan er farin að stússast í einhverju allt öðru en áti í Frostastaðavatni.

Frostastaðavatn eins og það leggur sig – Smellir fyrir stærri mynd Á heimleið okkar að Landmannahelli var ákveðið að koma við í Dómadalsvatni þar sem stillt veðrið var ekki beint til þess fallið að draga okkur í bólið. Að vísu var örlítið tekið að rökkva, en það væri í það minnsta alltaf hægt að taka nokkur köst áður en of skuggsýnt yrði til að hnýta flugu á taum. Það er skemmst frá því að segja að Dómadals vatn hefur hreint og beint hrapað í vatnshæð og lækurinn rennur ekki lengur sýnilega til vatnsins. Við óðum því töluverðan spotta út frá suðurbakkanum í áttina á dýpinu og lögðum flugur okkar fyrir urriða sem þar var að sýna sig í yfirborðinu. Eftir skamma stund var tekið hraustlega í flugu veiðifélaga míns og öllum illum látum látið yfir því ónæði sem flugan greinilega var þessum urriða. Viðureignin tók nokkurn tíma því hvorugt vildi greinilega gefa eftir og auðsýnt var að veiðifélagi minn vildi allt til þess vinna að ná fyrsta fiski sínum úr vatninu í netið. Að lokum komst þessi líka fallegi 2,5 punda urriði í netið og þar með voru álög Dómadalsvatns rofin hjá félaga mínum. Skömmu síðar var tekið aftur mjög hressilega í fluguna hjá henni. Sú viðureign varði nokkru lengur og á endanum lá 3 punda urriði í netinu hjá frúnni. Já, sumir brjóta álögin með trompi á nokkrum mínútum á meðan aðrir verða bara ekki varir.

Ströndin undan Frostastaðahrauni Fyrst bleikjurnar voru ekki við Suðurnámshraun í Frostastaðvatni taldi ég mér trú um að þær hefðu safnast saman undan Frostastaðahrauni og þangað stefndum við upp úr hádegi á sunnudag. Við skiptum örlítið liði, frúin fór inn með vatninu til suðurs en ég hélt mig við hugmynd mína að bleikjan væri í hrygningu eða hefði lokið henni undir hrauninu að norðan. Eftir að ég hafði fikrað mig því sem næst miðja vegu á ströndinni fóru tökurnar að kræla á sér og það endaði með því að ég tók samtals 9 fiska þarna á nokkuð afmörkuðu svæði. Sumir tóku djúpt, aðrir grunnt og meirihluti fiskanna var í matfiska stærð.

Þessi var t.d. búinn að hrygna Eftir að frúin hafði eytt nokkrum tíma við austurbakkan og náð tveimur þokkalegum, tölti hún í áttina til mín og bætti fimm fiskum við í netið hjá sér. Þeir fiskar sem við tókum þarna voru almennt í ágætum holdum, en þeir sem búnir voru að hrygna voru vitaskuld ekki alveg eins holdmiklir, en þeim mun tökuglaðari.
Sunnudeginum lukum við í Herbjarnarfellsvatni sem hefur leikið mig nokkuð grátt þetta sumarið, ekki einn fiskur á land, ekki einu sinni smá nart. Við fórum nú ekki langt frá bílastæðinu, veiðifélaginn kom sér fyrir austan við stæðið og ég framundan því. Veðrið var hreint út sagt frábært og ekki skemmdi að fiskur sýndi sig um leið og við komum niður að vatninu. Leikar fóru þannig að við veiddum tvær tegundir af fiski; urriða og makríl, því skömmu á undan okkur höfðu veiðimenn með makríl verið á ferð og því miður skilið töluvert af beitunni eftir í vatninu sem urriðinn hafði greinilega verið að atast í eða étið af önglum þeirra.

Mér finnst lítið varið í að rekast á þetta við vötnin okkar – Löðmundarvatn fyrir skemmstu Ég fer ekki ofan af því að mér er ekkert um makríl gefið þegar hann er skilinn eftir í eða við vötnin okkar. Menn mega svo sem veiða á það sem þeim sýnist og er leyfilegt á hverjum stað, en mér finnst það lágmark að þeir gangi þannig frá eftir sig að maður þurfi ekki að vaða slor og úrgang í vatni og á vatnsbakka eftir þá. Annars lét vatnið mér einn urriða í té og veiðifélaga mínum tvo þannig að við vorum nokkuð sátt við stutt stoppið okkar áður en við héldum heim á leið.

Safn leitarmanna í Dómadal Sunnudagurinn var rekstrardagur fjársafns leitarmanna úr Landmannalaugum að Sátu við Landmannahelli. Næstu daga munu leitarmenn síðan smala hóla og hæðir í grennd við Landmannahelli og áður en það verður rekið eða keyrt til byggða á næstu dögum. Eins tilkomumikið og það nú er að sjá svona safn fjár að hausti, þá vorum við eiginlega nokkuð fegin að hafa ekki ætlað að eyða þriðju nóttinni okkar við Landmannahelli þegar við heyrðum margradda jarm safnsins þegar því hafði verið safnað í Sátu. Þar kenndi ýmissa radda, rámar og hásar rollur að jarma þreytu- og ámátlega eftir reksturinn innan úr Laugum var ekki beint ávísun á kyrrláta nótt við Landmannahelli.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 8 / 12 115 / 157 4 / 1 32 / 31 15 / 17 Höfundur:

