
-
Tilvitnun
Höfundur:
-
Framvötn, 9. & 10. sept.
Hún hefur nú ekki alltaf verið látin ráða, blessuð veðurspáin þegar kemur að veiði. En í þetta skiptið tókum við veiðifélagarnir mark á spánni og bókuðum okkur gistingu við Landmannahelli í stað þess að draga færanlega veiðihúsið þangað uppeftir um helgina. Við voru svo ljónheppinn að eitt af litlu húsunum, Dyngja var laus aðfaranótt sunnudags og því renndum við inn að Landmannahelli upp úr hádegi. Þess má geta að yfirferð Landmannaleiðar F225 er með besta móti um þessar mundir, vegurinn var greinilega heflaður ekki alls fyrir löngu og því rennifæri eins og maður getur sagt um vegi uppi á hálendi.

Ekki amalegt útsýni úr Dyngju, Langasáta og Sátubarn Hann var nokkuð svalur þegar við renndum í hlað, komum föggum okkar fyrir í húsinu og héldum sem leið liggur að Ljótapolli. Við horfðum heldur skeptísk á hitatölurnar falla eftir því sem nær Ljótapolli dró, þetta byrjaði í 9°C, féll svo jafnt og þétt niður í 5°C þegar við vorum komin að pollinum. Einhver goluskítur var uppi á brún, en heldur stilltara þegar niður var komið og við skiptum liði til að byrja með. Veiðifélaginn fór alveg inn í krikann að norðan, en ég óð út á grynningarnar beint fram undan slóðanum niður að vatninu. Þetta var eiginlega svolítil leit að réttu flugunni og man eiginlega ekki hverjar þeirra virkuðu, ég fékk hvert nartið á fætur öðru þangað til hann tók loksins langt úti í dýpinu. Humm, þetta var nú hvorki snaggaraleg taka né öflug og það sýndi sig fljótlega að þarna var á ferðinni hástökkvari mikill og sprettharður en heldur smár vexti. Hann fékk auðvitað líf eftir að hafa jafnað sig stutta stund við háfinn minn. Veiðifélaginn setti aftur á móti í prýðilegan 1,5 punda urriða á dökk grænan Nobbler með orange but og græn/bláu tinsel í skottinu. Já, sumir muna betur en aðrir eftir þeim flugum sem gefa.
Hann dimmir orðið snögglega um þessar mundir og það fór nú svo að þvermóðska mín við veiðina varð til þess að ég byrjaði að klöngrast upp á brún í rökkri og endaði við bílinn í myrkri. Þá hafði veiðifélagi minn fyrir nokkru komið sér upp, enda nokkuð sátt með yfirhöndina í aflatölum.

Frostastaðavatn 10. sept. Sunnudagurinn skildi tekinn með trompi, aflatölur lagfærðar og því stefnt inn fyrir Suðurnámshraun við Frostastaðavatn. Þar kúrir vík ein sem aldrei bregst, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Eftir að hafa þrætt víkina endilanga og skyggnt hana eins og frekast var unnt, gáfumst við upp og héldum til baka inn í hraunið. Næsta vík var heldur ekki gjöful, en mér tókst þó að slæma flugunni fyrir bleikju rétt utan við hana þannig að það voru ekki nema 1,5 pund sem ég þurfti að bera til baka í bílinn þegar við ákváðum að láta gott heita. Reyndar hefði aflinn geta tvöfaldast hefði bleikjan sem tók hjá félaga mínum í fyrstu víkinni hangið á, en svo var nú ekki.

Aflinn úr Suðurnámshrauni Eftir skeggræður og spádóma, ákváðum við að renna að bílastæðinu að norðan og freista þess að veiða þar undan stigmagnandi norðaustan áttinni sem hafði þó byrjað í nokkuð góðu formi um morguninn. Sökum óvenjulega hárrar vatnsstöðu í Framvötnum var bílastæðið að norðan fært nokkuð inn í landið í sumar, helst til þess að bílar væru ekki á kafi þar sem stæðið var upphaflega. Það var því nokkur gangur niður og austur að skerjunum undan Frostastaðahrauni og við óðum út að þeim sem unnt var og reyndum fyrir okkur. Fljótlega varð ég var við fisk, landmegin við skerin sem möruðu meira í kafi heldur en uppúr. Það fór svo að ég setti í fjórar bleikjur þarna, allar í prýðilegu ástandi, feitar og fallegar. Aðeins ein þeirra bar með sér riðbúning en búinn að hrygna og matarástin hafði gripið aftur um sig því hún var full að bobbum og torkennilegu brúnu gumsi sem ég þori ekki að segja til um hvað var. Líkt og í síðustu ferð voru þetta allt matfiskar þótt ekki væru þeir sérstaklega stórir eða margir. Af veiðifélaga mínum fara aftur á móti engar sögur um afla og hef ég ekki fleiri orð um það. Þegar norðaustan áttin hafði náð 10 m/sek. létum við gott heita, tókum saman föggur okkar og pökkuðum í bílinn. Það kom okkur verulega á óvart að hitastigið hékk í 8°C, vindkælingin var slík að ég hélt okkur vera að skjálfa þarna við svipað hitastig og í ísskáp.

Hauststemning við Löðmundarvatn Á leiðinni til baka komum við stuttlega við í Löðmundarvatni en héldum okkur við myndavélarnar og stoppuðum stutt. Við Landmannahelli áttum við spjall við aðra veiðimenn sem höfðu svipaða sögu að segja af aflabrögðum, heldur rýr veiði og af spurn sögðu þeir okkur sögur af viðlíka aflabrögðum annarra veiðimanna sem þeir höfðu hitt. Svona getur þetta verið þegar skyndilega kólnar og norðlægar áttir taka að blása uppi á hálendi, en það spáir hlýnandi og það verður opið í Landmannahelli fram yfir næstu helgi.

Helliskvísl við Sauðleysu Að lokum langar mig að geta vatnafars að Fjallabaki. Eins og marga rekur minni til fór töluverðum sögum af hárri vatnsstöðu á þessum slóðum fram eftir vori og langt inn í sumarið. Nýipollur er að vísu löngu þornaður og Dómadalsvatn komið í eðlilega hæð, en Frostastaðavatn stendur enn hærra en í meðal ári þótt ekki muni miklu. Nóg samt til að ekki er fært út í ystu sker undan hraunum, Frostastaðahrauni og Suðurnámshrauni. Hærra stendur í Löðmundarvatni en venjulega, þótt ekki renni mikið úr vatninu. Helliskvísl er heldur vatnslítil og því má geta sér til um að einhver fyrirstaða hafi myndast við útfall vatnsins.

Tungnaá 23. júlí 
Tungnaá 9. sept. Í fyrstu ferð okkar inn að Framvötnum þetta árið, sem var 23. júlí tók ég mynd af brún Ljótapolls yfir Blautaver og Tungnaá. Um þessa helgi tók ég aðra mynd á svipuðum slóðum og sjá má að eitthvað hefur áin róast.

Á heimleið, Búrfell gægist fram á milli Klofninga. Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 0 / 5 107 / 145 1 / 0 28 / 30 14 / 16 Höfundur:
-
Tilvitnun

Höfundur:
-
Tilfæringar og nýtt efni
Örlitlar tilfæringar hafa verið gerðar á valmynd síðunnar til að rýma fyrir nýju efni og vonandi gera vafur um síðuna markvissara. Undir valkostinum Ýmislegt hefur verið safnað saman ýmsum töflum og upplýsingum sem áður voru dreifðar um valmyndina. Þangað fluttist meðal annars Dagatalið og nýtt safn Laga og reglna sem tengjast veiði og veiðifélögum. Þá hafa Vefritin einnig flutt sig um set og eru nú undir Tenglunum.

Flýtileiðum á forsíðunni fækkað til samræmis við yfirflokkana í valmyndinni Til gamans má geta þess að það sem af er árs hafa 14.500 aðilar heimsótt síðuna rétt rúmlega 95.000 sinnum, meðal annars til að lesa þær 165 greinar ársins sem þegar hafa birst.
Höfundur:
-
Framvötn, 3. sept.
Það eru tveir dagar á flestum helgum, stundum fleiri, en aldrei aðeins einn. Þetta er nú ekki merkileg speki, en í samhengi hlutanna gefur það augaleið að það er algjör óþarfi að láta sunnudaginn falla flatan þótt farið hafið verið í veiði á laugardeginum. Þegar maður vaknað síðan við það á sunnudagsmorgni að Brúsi byrjar að suða og suða um að komast aftur út í náttúruna, þá drattast maður auðvitað framúr, kveikir á kaffikönnunni og smellir á eins og tvær samlokur með meiru.

Á leið í Framvötn Eftir heldur grámóskulegt ferðalag yfir heiðina var það með töluverðri ánægju að ég tók eftir sólstöfum norðaustan Heklu og þegar upp á Landmannaleið var komið tók nú heldur betur við þetta líka fallega veður og það var með örlitlum votti af kæti að ég renndi í hlað við Landmannahelli, kvittaði mig inn á svæðið og fékk veiðiskýrslu til að fylla af fallegum tölum, vonandi.

Frostastaðavatn um hádegið á sunnudag Frostastaðavatn var það heillin sem átti að kanna og þá sérstaklega hvernig bleikjan hefði haft það í sumar. Síðast þegar ég koma í vatnið, vantaði nokkuð upp á að stærri bleikjan væri komin upp að hrauninu og þær sem voru mættar voru ekkert í sérstaklega góðum holdum. Minnugur þess að vatn stóð mjög hátt fyrripart sumars var ég líka svolítið spenntur að sjá hvað mikið hefði lækkað í vatninu. Jú, það hefur lækkað töluvert í vatninu og er það núna u.þ.b. í þeirri hæð sem maður er vanur að sjá snemmsumars, ystu sker óaðgengileg og enn töluvert vatn á leirunum við norðurbakka vatnsins. Hvað um það, ég smellti mér í vöðlurnar og arkaði inn fyrir Suðurnámshraun, kom mér fyrir við óbrigðula vík og setti auðvitað Peacock með orange skotti undir. Niðurstaðan? Ekkert. Black Zulu? Ekkert. Pheasant Tail? Allt á fullt og þannig hélst það þangað til rúmlega 20 bleikjur lágu í netinu, þá datt þetta eitthvað niður og lagaðist ekki fyrr en ég setti toppflugupúpu undir, einlita svarta með hvítum hnakka. Sjö stykki til viðbótar og þá rankaði ég við mér, þyngdin var komin að þolmörkum skrifstofumannsins og þar að auki voru komnir gestir í víkina sem biðu í ofvæni eftir því að fá sér eitthvað í gogginn, himbrima par hafði síðasta korterið lónað yst í víkinni þannig að ég settist niður, fékk mér kaffisopa og leyfði þeim að pikka upp þær bleikjur sem eftir voru.

Brúsi við Frostastaðavatn Eftir þrautagöngu mína út að bílastæði, með nokkrum stoppum því þau sigi í þessi tæpu 20 kg. sem voru í netinu, þá svolgraði ég í mig hálfum lítra af vatni og kom fiskinum fyrir í kælikassanum. Ástand fisksins var alveg þokkalegt, allur fiskurinn sem ég tók var í matfiskastærð, flestir voru virkilega vel haldnir en inni á milli voru fiskar sem greinilega höfðu átt betri daga. Það verður áhugavert að lesa niðurstöður nýlegra rannsókna á bleikjunni í Frostastaðavatni og þá sérstaklega til hvaða ráða er rétt að grípa til að stemma stigu við offjölgun í vatninu.

Vottur af regnboga Þegar ég renndi norður fyrir vatnið hélt ég að veiðigyðjan væri að senda mér skilaboð í formi regnboga á milli mín og Ljótapolls. Gat verið að fjársjóðurinn lægi við enda regnbogans? Minnugur þess að vatnið gaf ágætlega í síðustu ferð safnaði ég kjarki og kröftum og lét mig hafa það að fikra mig niður að steininum. Það er skemmst frá að segja að niðri við vatnið var vindur, vindur úr öllum áttum og þráðbein flugulínan tók ítrekað upp á því að skipta um stefna og lenda rétt við fætur mér. Eftir ekki langan tíma, eiginlega mjög skamman tíma rifjaðist sú staðreynd upp fyrir mér að það er fátt sem fer meira í taugarnar á mér heldur en vindur sem veit ekki í hvaða átt hann vill ferðast. Eftir þessa hugljómun tók ég til við að fikraði mig í rólegheitum, reyndar mjög miklum rólegheitum aftur upp á brún og kláraði þar hálfan lítra af vatni til viðbótar. Það er ekkert eðlilegt hvað maður getur svitnað mikið í vöðlunum þegar það er 14°C hiti.

Frostastaðavatn séð úr norðri Já, það er væntanleg rétt að segja frá veðrinu. Sunnan og suðaustan léttur vindur, nema niðri í Ljótapolli. Ætli skýjafarið kallist ekki dumbungur með glætum, en þær glætur voru ansi margar þegar ég var við Frostastaðavatnið þannig að vel sást til botns og eiginlega gat maður pikkað fórnarlömbin upp með augunum áður en flugan tók þau.

Herbjarnarfellsvatn Eftir Ljótapollsleikfimina renndi ég inn að Landmannahelli, gerði að þeim fiski sem komin var og hugsaði ráð mitt. Það endaði með því að ég renndi yfir hálsinn að Herbjarnarfellsvatni. Síðast gaf vatnið mér ekki einn einasta fisk og ég var nú satt best að segja ekkert sérstaklega bjartsýnn á að það gæfi mér eitthvað í þetta skiptið. En stundum er fiskur ekki allt, sko bara stundum. Veðrið og umhverfið í gær var mér eiginlega nóg ttilefni il að eyða tæpum tveimur tímum við vatnið án þess að fá svo mikið sem eitt nart, sama hvaða flugur ég setti undir. Upp úr kl. 20 tók ég mitt hafurtask, skipti yfir í gallabuxur og hélt heim á leið eftir að hafa skilað skýrslunni í Landmannahelli.
Vel að merkja, það verður opið hjá Hellismönnum fram yfir göngur í lok þess mánaðar og ef veður heldur áfram að vera svona milt og gott á hálendinu, þá er ekkert því til fyrirstöðu að skjótast í Framvötnin og næla sér í nokkrar bleikjur eða urriða í kistuna fyrir veturinn.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 0 / 27 107 / 140 0 / 0 27 / 30 13 / 15 Höfundur:
-
Hlíðarvatn í Hnappadal, 2. sept.
Þegar maður keyrir í hálfan annan tíma í veiði, þá hefur maður auðvitað nægan tíma til að íhuga hvernig maður ætti að hefja frásögnina af veiðiferðinni. Þegar kötturinn er úti, leika mýsnar sér… – Til að rétta veiðitölurnar af… – Einn ég sit og keyri… o.s.frv. Ekkert af þessu var neitt spennandi eða skemmtilegt þannig að ég byrja bara svona:
Að þessu sinni var ég einn á ferð í veiði, veiðifélaginn fjarri góðu gamni eða öllu heldur í allt öðru góðu gamni. Samt engin ástæða til að láta góðan laugardag renna sér úr greypum þannig að eftir að ég hafði smurt nesti og smellt kaffi á brúsa, renndi ég vestur á bóginn með stefnuna á Hlíðarvatn í Hnappadal.

Nestið klárt Eins og góður maður hafði á orði á Fésbókinni í morgun, þá á maður alls ekki að láta veðurspánna ráða, þá fengi maður bara sigg á óæðri endann. Útlitið var reyndar þannig í morgun að ég mátti eiga von á töluverðum vindi, ausandi rigningu og eiginlega bara ömurlegu veðri. Ég hélt nú samt ótrauður af stað, þetta yrði þá bara ágætur bíltúr.

Þokuslæðingur við Hlíðarvatn Svona tók nú Hlíðarvatnið, eða það sem eftir er af því, á móti mér rétt fyrir hádegi. Staflogn, léttur þokuúði og vatnið spegilslétt. Ég hætti umsvifalaust að íhuga afsakanir fyrir aflaleysi, snaraði mér í vöðlurnar, smellti hægsökkvandi línu á stöngina og Orange Nobbler á taum. En viti menn, ekkert gerðist í næstum klukkutíma og ég fór að efast um þessa pottþéttu uppskrift að veiði sem hefur gert sig ágætlega í Hlíðarvatni hingað til. Hvað er þá til ráða? Jú, spóla til baka og gera það sem maður hefði átt að gera í upphafi, setjast niður og horfa á vatnið. Einmitt, þarna var fluga að klekjast og þarna var önnur og svo enn önnur, eiginlega alveg glás af þeim. Hvaða flugur voru þetta eiginlega? Jú, toppflugur og einhverjar óræðar stærri flugur. Eftir kaffisopa og samloku skipti ég yfir í flotlínu, smellti Black Zulu undir og viti menn, fyrsti fiskur í fyrsta kasti og þannig hélt þetta áfram þangað til urriðarnir fóru að missa af flugunum rétt undir yfirborðinu. Ég lengdi því í tauminum og skipti yfir í þurrflugu. Það verður nú bara að segjast að það er fátt skemmtilegra heldur en taka ljóngrimman urriða á þurrflugu, þvílíkt kick sem maður fær út úr þessu.

Hlíðarvatn fyrir landi Hraunholta Af vatninu er það helst að frétta að það fer minnkandi, eins og svo oft áður. Enn rennur þó úr því í gegnum hraunið en það er töluvert langt síðan hætti að renna í Hraunholtaá. Sem sagt, ekki það lægsta sem ég hef séð í vatninu, en lágt er það nú samt.

Alltaf gaman að kveðja með færslum í þessa Fiskar dagsins voru allir urriðar, trúlega eru bleikjurnar farnar að sinna öðru en áti og það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá þær í hundraðatali fyrir landi Heggsstaða hérna um árið, pússandi botninn, rauðar á bumbunni, dökkar á bakinu og með hvítar bryddingar á uggum. Mig minnir fastlega að það hafi verið um þetta leiti sumars og því ekki ólíklegt að þær hafi verið fjarri góðu gamni í dag með hugann við allt annað en flugur veiðimanna og náttúru. Heim fóru fimm fiskar, engir boltar en matfiskar þó. Tveimur skilaði ég aftur í vatnið og þakkaði þeim hetjulega baráttu og skemmtileg tilþrif í loftfimleikum. Að lokum, ef einhver hefur áhuga, þá vildi ég bara segja að sumarið er alls ekki búið og ýmislegt getur ennþá gerst ef flugan heldur áfram að klekjast.
Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða 0 / 0 107 / 113 0 / 7 27 / 30 13 / 14 Höfundur:

