FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Þrenna 2. september

    2. september 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Öll veiði bönnuð

    000 – Blíðviðrið í dag dró okkur hjónin í smá hringferð með stangirnar. En, það var eins og þetta skilti sem varð á vegi okkar  hefði sett regluna í ferðinni. Við sem sagt núlluðum á Nautatanga við Þingvallavatn, núlluðum í Einkavatni (sem við höfum lítið heimsótt í sumar) og svo fullkomnuðum við þrennuna með því að núlla við Meðalfellsvatnið.

    Eini staðurinn sem við urðum vör við eitthvert líf var í Meðalfelli þar sem ég fékk eitt nart, en ekki söguna meir.

    Tapað og fundið

    Á rambi mínu við Nautatanga fann ég útidyralykil (ASSA) í miklu bláu bandi. Lykillinn sjálfur er afar skrautlegur og er eigandi hans beðinn að lýsa honum ef hann vill vitja hans. Væntanlega einfaldast að senda mér tölvupóst með því að smella hér.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     73 / 34 14 28 / 33 4 34 14

    Ummæli

    03.09.2012 – Árni Jónsson: Tók einmitt tvö sjálfur og núllaði líka. Þingvelli & Úlfljóts. Sá einn fisk á Þingvöllum og hann leit á mig með svip sem að sagði “Farðu, tímabilið er að verða búið”. En gullfallegt veður og spegill í langan tíma.

    03.09.2012 – Urriði: Tja, það sem ykkur skorti í þolinmæði bættuð þið upp með yfirferð. Þrjú vötn á einum degi er alveg ágætt. Og ég var svosem heldur ekki var við uppítökur, sá einu sinni breskan veiðiþátt þar sem kom fram að silungur(og lax) gætu ekki lokað augunum því það vantaði á þá augnlok. þáttarstjórnandinn vildi því meina að silungur héldi sig dýpra þegar það er sól(enn dýpra ef það er logn) en í yfirborðinu þegar það er skýjað(og helst gárað). Sem stangast algjörlega á við veiðimenninguna á Íslandi, hérna taka menn ekki fram þurrflugur nema vatnið sé spegilslétt og veðrið gott en grýta svo út þungum púpum um leið og vatnið gárast! Fiskurinn er örugglega miklu meira í yfirborðinu þegar það er gárað, þá sjáum við bara ekki uppítökurnar. Enda veiða fáir betur í Laxárdal en bretarnir sem nota þurrflugur/yfirborðsflugur í öllum veðrum.

    Svar: Já, þetta er viðtekin skýring (augnlokin) og oft vísað í hana. Við hérna norður á hjara veraldar njótum góðs af því að stóran hluta ársins varpast sólarljósið skáhallt á yfirborðið og brotnar fyrr heldur en nær miðbaug og því fær fiskurinn hér síður glýju í augun. Þurrfluguveiði er stórlega vanmetin á Íslandi, það hef ég séð í sumar þegar konan er að rífa upp hvern fiskinn á fætur öðrum á meðan ég kroppa þetta með púpunum mínum 🙂  Þetta er kannski bara efni í nokkrar greinar.

    03.09.2012 – Urriði: Ég fatta ekki alveg hvað menn hafa á móti sól og góðu veðri í vatnaveiði, ég hef gert mína bestu vatnaveiði í góðu veðri(kannski vegna þess að ég nenni ekki að standa lengi við vötn ef veðrið er leiðinlegt). Þessi (http://i.imgur.com/KVa4f.jpg ) tók núna um helgina í 22°C, blankalogni og glampandi sól um miðjan dag. Ég var bara á gönguskóm og kastaði frá landi, svo það er ekki eins og hann hafi verið e-ð lengst úti í dýpinu! Mér finnst veðrið skipta mun meira máli þegar maður er að veiða í straumvatni, en í vatnaveiði skiptir það mig engu máli. Silungurinn hættir ekkert að borða þó það sé gott veður, þeir skora sem þora :)

    Þakka enn og aftur fyrir skemmtilega síðu!

    Svar: Tvö vötn af þremur voru mjög tær, heiðskýrt og glampandi sól og við urðum ekki vör við neinar uppitökur þrátt fyrir að steinflugur væru á vatninu. Þriðja vatnið var örlítið skolað, kannski nóg til þess að sólarglampar náðu takmarkað niður í vatnið og þar urðum við vör við uppitökur. En, mikið rétt, fiskurinn hættir ekkert að borða þótt það sé glampandi sól, okkur tókst bara ekki að koma flugunum niður á rétt dýpi fyrir hann. Kannski var þolinmæðis taumurinn eitthvað stuttur í okkur 🙂

    P.S. Prufan þín skilaði sér, en ég samþykkti hana ekki 🙂

    02.09.2012 – Ási: Takk fyrir sögur þínar og leiðinlegt að þú skyldir núlla. Veðrið hefur trúlega hvort tveggja lyft degingum og dregið niður. Ég snéri við í huganum í morgun og ákvað að fara heldur seinnipartinn á morgun. -Fannst allt of mikil sól.

    Svar: Já, þetta er ekki ólíkt og þrá manna eftir rigningu í þurrki og svo uppstyttu í regntíð, en veðrið var einfaldlega allt of gott til að sitja heima og skrifa greinar fyrir næstu vikur. Góða skemmtun á morgun.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Þingvallavatn 27. ágúst

    27. ágúst 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Þetta telst nú næstum ekki veiðiferð en við hjónin fórum nú samt upp á Þingvelli rétt upp úr kl.20 í kvöld. Það fór eins og okkur grunaði; stuttur tími því við vorum ekki komin að vatninu fyrr en rétt fyrir 21 og fljótlega upp úr kl.22 rökkvaði mjög skart.

    Þingvallavatn

    Ekki var nú margt um manninn á bakkanum, þ.e. frá Lambhaga og inn að Vatnskoti þar sem við komum okkur fyrir. Ætli við höfum ekki talið einhverja 4 veiðimenn á þessum spotta. Vatnið einstaklega fallegt, stillt og milt veður. Hitastigið að vísu aðeins rétt um 8°C og komið niður í 5°C þegar við hættum upp úr kl.22.

    Lítið urðum við nú vör við fisk, ég fékk eitt nart sem ég vil nú samt gera sem mest úr, því þetta var ekki bleikja. Ætli urriðinn sé ekki aðeins að tosast aftur upp úr dýpinu núna þegar rökkva tekur og vatnið kólnar.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     73 / 34 14 28 / 33 4 33 13

    Ummæli

    28.08.2012 Stefán Bjarni Hjaltested: Vil endilega fá að vita hversu margar bóndableikjur og hversu margar frúarbleikjur að ég tali nú ekki um urriðann. Annars takk fyrir skemmtilegar frásagnir um veiði og ferðir í sumar,svo og annan fróðleik.

    Svar: Já, ég er nú hræddur um að eitthvað halli á mig í þessum samanburði 🙂 En, sjáum til.

    Svar: Það fór nú eins og ég í raun vissi, frúin á vinninginn með miklum mun í bleikjunni með 73:34 en ég klóra aðeins í bakkann í urriðanum með 33:28. Þetta með bleikjuna kemur mér í raun ekkert á óvart, frúin er miklu næmari á tökur heldur en ég og bregst fyrr við. Hér eftir verður aflatölum skipt í rauðar fyrir frúarfiska og bláar fyrir bóndafiska. Ég ætla ekkert að gera upp hvort okkar sleppir fleiri fiskum og hvort okkar núllar oftar 🙂

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Þingvallavatn 25. ágúst

    25. ágúst 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Gerði mér ferð í dag kringum Úlfljótsvatnið, fór að vísu aldrei út úr bílnum því mér fannst veðrið ekki spennandi. Kannski er maður bara orðinn svona góðu vanur en vindur var töluverður og hitastigið ekki nema 10°C þegar ég var á ferðinni þannig að ég renndi þess í stað út með Arnafellinu og kom mér í skjól með útsýni yfir Þingvallavatnið. Eins og áður er ekkert út á umhverfið að setja þarna, nema þá afskaplega lítið líf með fiskinum, rétt aðeins að maður yrði var við einhverja titti að leika sér undir Sláttuláginni. Sem sagt, núllað. Kannski vegna þess að ég var einn á ferð, kvennmannslaus í þetta skiptið.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     107 14 61 4 32 12

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Langavatn, Borgarbyggð 17.- 19. ágúst

    19. ágúst 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Ég á nú ýmislegt konunni minni að þakka og um helgina bættist enn eitt í sarpinn. Hefði hún ekki krækt í mjög þokkalega bleikju á laugardaginn uppi við Langavatn hefði þessi veiðiferð með réttu átt að merkjast sem fyrsta núllið eftir að veiðin fór af stað fyrir alvöru í sumar. Við sem sagt ákváðum ásamt Mosó-genginu að renna upp að Langavatni um helgina. Ég hafði það sterkt í huga að renna inn með austubakka vatnsins inn að botni, nokkuð sem mig hefur lengi langað til að gera en aldrei látið verða að.

    Langavatn um miðnættið

    Þar sem heldur gustaði á okkur á laugardaginn var ákveðið að leggja í leiðangur austur með vatninu. Okkur til nokkurrar furðu var einstaklega hátt í vatninu, jafnvel þótt hleypt hefði verið duglega úr því til að vökva laxveiðimenn niðri á Mýrum. Við höfðum við opnunina í júní rennt inn með vatninu en þá var slóðinn svo illa í sundur að við hurfum frá. Nú var annað uppi á teningnum, slóðinn í alveg þokkalegu standi þar sem hann lá á þurru, en þegar komið var 2/3 leiðarinnar inn í botn hvarf slóðinn svo gjörsamlega í vatnið að ég hvarf frá. Jæja, það gengur bara betur næst.

    Í þessum leiðangri okkar stöldruðum við á mjög veiðilegu nesi fyrir miðju vatni þar sem frúin tók fisk helgarinnar, þann sem hirtur var. Ég setti að vísu í þokkalega bleikju, en eitthvað tók hún tæpt þannig að ég missti af henni áður en mér tókst að þreyta hana að einhverju ráði. Annars var lítið um fisk í ferðinni, þ.e. þeir sem tóku flugu voru litlir, svo litlir að öllum var sleppt og ekki færðir til bókar.

    Ýmsar flugur voru áhugaverðar í augum titta, svo sem; Pheasant, Héraeyra, Hérinn og svo auðvitað Peacock í ýmsum útfærslum, helst sú sem gengur undir heitinu Frankenstein vegna óheyrilegrar stærðar (hnýttur á XXL #8 með margföldu undirlagi = feitur og fínn).

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     107 14 61 4 31 11

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlíðarvatn, Hnappadal 3.- 5. ágúst

    6. ágúst 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Þegar maður kemur að vatni sem maður telur sig þekkja alveg þokkalega og fiskurinn er eiginlega ekki þar sem hann er vanur að vera, þá þarf að breyta til, það sannaði þessi helgi. Við hjónin ákváðum á föstudaginn að heimsækja Mosó gengið sem hafði farið vestur í Hnappadal deginum áður og gert þokkalega veiði í Hlíðarvatni. Að vísu vorum við svo seint á ferðinni á föstudaginn að við gerðum lítið annað en koma okkur fyrir, settum stangirnar saman og tókum tappa af bjórnum.

    Smællið fyrir stærri mynd

    Til að klára skildupartinn; Veðrið lék sé að okkur þessa daga, vindur, logn, sól, skýjað o.s.frv. Eins og við var að búast hafði lækkað verulega í vatninu frá því í byrjun júní þannig að við leituðum ‘hefðbundinna’ slóða í vatninu í leit að fiski. Vatnshiti var nokkuð hár, 14-16°C sérstaklega þar sem grynningar lágu langt út í vatnið. Engu virtist skipta að nokkur gára væri, hitastigið hélst nokkuð hátt frá morgni til kvölds. Fiskurinn lét bíða töluvert eftir sér og þeir sem við hjónin tókum á laugardag voru frekar í minni kanntinum, jafnvel af Hlíðarvatnsfiski að vera, skárstu slefuðu yfir 1/2 pund. Við skiptum aflatölum nokkuð jafnt á milli okkar, hvort um sig með 3 fiska, einhverjum sleppt sökum smæðar.

    Sökum óspennandi fiskstærðar og almennt lélegrar veiði á laugardag ákvað ég að eyða kvöldinu í rölt inn með vatninu og upp með Fossá og Djúpadalsá, nokkuð sem mig hefur lengi langað. Ekki varð ég var við einn einasta fisk í ánum, hafði raunar gert ráð fyrir að rekast á einn og einn ungliða urriðahreyfingarinnar en það varð nú ekki. Það væri örugglega gaman að rölta upp með ánum að hausti, nóg var af álitlegum veiðistöðum í þeim.

    Á sunnudag var lagt á hefðbundnar slóðir án þess að verða vör við fisk. Nú var annað hvort að hrökkva eða stökkva svo við hjónin lögðum á okkur grynningakönnun, langt út í vatnið þar til við náðum ágætu sambandi við kaldara vatn í dýpinu og tókum blandaðan pakka af urriða og bleikjum, samtals 14 stk. sem allir voru um og yfir pundið. Helgin endaði því í samtals 20 fiskum, 9 bleikjur og 11 urriðar. Flugurnar sem gáfu einna best voru; Peacock í öllum mögulegum útfærslum, Pheasant og Héraeyra (original).

    Afli helgarinnar

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     106 14 61 4 30 11

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Skagaheiði 25.- 28. júlí

    29. júlí 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Ölvesvatn, Fossvatn, Eiðsá

    Það hefur verið á dagskránni í allt sumar að kíkja á Skagaheiðina, þ.e. austanverða og loksins varð að því að við komum okkur af stað. Renndum út úr bænum eftir kvöldmat á þriðjudag (24.júlí) með stefnuna á Blönduós og gistum þar eina nótt og héldum svo áfram út á Skaga um hádegið á miðvikudag.

    Byrjum á veginum inn að Ölvesvatni; ef hann væri kvenkyns þá segði maður í besta falli að blessunin væri stórbeinótt og henni veitti ekki af því að fara í húðsnyrtingu. En yfir urð og grjót tipluðum við með fellihýsið sem var, þegar öllu var á botninn hvolft hreint ekkert óráð í stað þess að ‚njóta‘ gistingar í húsunum við vatnið.

    Ölvesvatn

    Veðrið á miðv.dag var alveg þokkalegt en greinilegt að viðvarandi norðlægar vindáttir höfðu plægt Ölvesvatnið nokkuð upp og lítið líf sjáanlegt á vatninu undan og við veiðihúsin. Samt tókst frúnni að tæla einn urriða á Peacock skammt þar frá sem lækurinn úr Heyvötnum ætti að renna í vatnið. Í trausti þess að næsti morgunn gæfi okkur færi á fiski var farið á nokkuð skynsamlegum tíma í bólið og vaknað með fyrra fallinu á fimmtudag. En, enginn er spámaður í sínu föðurlandi og ekki eru þeir mikið betri í Noregi (yr.no) því fimmtudagurinn rann upp með roki sem hvergi var að sjá í kortunum, vötnin gruggug og hvítfyssandi. Til að ganga ekki að bakteríunni alveg dauðri lagði ég land undir fót og gekk inn með vesturbakka Fossvatns og inn að Eiðsá. Áin sem er í raun bara lítill lækur sem rennur úr Ölvesvatni var þokkalega tær og ég ákvað að setja fulldressaða Watson‘s Fancy undir og reyna fyrir mér. Ekki vantaði áhugann og tökurnar því smáurriði var beinlínis vaðandi um alla á ósanna á milli. U.þ.b. miðja vegu yfir í Ölvesvatn greip einhver kergja mig og ég gafst ekki upp þrátt fyrir þrálátar tittatökur og ég hélt áfram að drekkja Watson‘s niður í álitlegan hyl. Þegar ég svo, að ég taldi, hafði sett í nokkuð öflugan gróður í hylnum og skilað af mér nokkrum óprenthæfum orðum lá við að ég hætti við allt saman. En, þegar ég tók nokkuð ákveðið í línuna var svarið ekki þunglamalegt gróðurtog heldur öflugur vöðvasamdráttur með nettum skammti af pirringi. Nú nú, það er þá einhver fiskur þarna og ég reisti stöngina svona til vonar og vara sem var kannski eins gott því upp úr hylnum og um 50 sm. í loft upp sveif þessi líka flotti urriði og sendi mér illt augnaráð. Holímólí varð mér að orði og setti mig í viðeigandi stellingar og tók til við að þreyta þennan bolta í þröngum farveginum. Ekki hægt um vik þar sem töluverður gróður var beggja vegna hyljar og ekki tók hann í mál að fara móti straumi inn á grynningar ofan hyljar. Eftir um 10 mín. gafst hann þó upp og ég náði honum upp á bakkann, glæsilegur hængur sem reyndist slétt 3 pund, massaður gutti sem greinilega leið ekki illa í öllu ætinu í ánni. Meðan þessu fór fram tók frúin fínan urriða í Ölvesvatni miðja vegu á milli útfallsins að Eiðsá og veiðihúsanna með Higa‘s SOS. Ekki varð okkur nú meira úr veiði á fimmtudaginn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir frameftir kvöldi en undir miðnættið lagðist þétt og kuldaleg þoka yfir vatnið sem hefði e.t.v. átt að færa fisk nær landi en ekkert gerðist.

    Fossvatn í bakgrunni

    Föstudagurinn rann aftur á móti upp með þessari líka blíðu, uppitökum og miklu lífi rétt utan veiðihúsanna, nokkuð sem við höfðum saknað kvöldin á undan. Eins og stormsveipur var frúin komin í gallann og með þurrflugu að vopni tók hún 6 bleikjur og 1 urriða í blíðunni alveg fram yfir hádegið þegar botninn datt einfaldlega úr veiðinni. Væntanlega hafði vatnið þá náð efri mörkum hitastigs fyrir geðslag fisksins og hann þá hörfað út í kaldara vatn. Ekki gekk mér alveg eins vel og frúnni, ekki einn einasti fiskur á þurrflugu en tók eina bleikju á Black Zulu og aðra til á Higa‘s SOS. Eftir rólegheit fram eftir degi og stutt rölt niður með Fossá lögðum við aftur í hann eftir kvöldmat, frúin og Mosó deildin út með norðurbakkanum en ég ákvað að rölta hringinn í kringum Fossvatnið. Þrátt fyrir einstaklega fallegt veður og stillt vatn varð ég ekki var við neinn fisk í matstærð og kom því fisklaus heim í vagninn upp úr kl.23. Því miður var svipaða sögu að segja af Ölvesvatninu, það er bara eins og fiskurinn gæfi sig ekkert að kvöldi, ekki einu sinni inni við Lindirnar undir norðurbakkanum sem að sögn gefa oft vel í hita og eftir heita daga. Samt sem áður held ég að allir hafi verið nokkuð sáttir við daginn og fóru í bólið með von um annan eins dag að morgni.

    Aflinn af Skagaheiði

    Ekki átti föstudagurinn sér bróður hvað veðrið snerti, vindurinn hafði tekið sig upp aftur og vötnin fljót að litast á laugardagsmorgun. Samt sem áður reyndu allir fyrir sér í grennd við veiðihúsin og Fossvatnið án þess að einn einasti fiskur kæmi á land. Aðrir veiðimenn á staðnum gerðu aftur á móti nokkuð góða veiði með maðk sunnan við útfallið í Eiðsá fram undir hádegið en þá datt allur botn úr veiðinni eins og fyrri daga. Væntanlega hafa þrálátar norðlægar áttir hrakið fiskinn nokkuð sunnar í vatnið og hefði maður e.t.v. betur tekið sér göngutúr í þá áttina, svona eftirá að hyggja.

    Almennt voru allir held ég, sáttir við ferðina þrátt fyrir leiðinda veður meirihluta tímanns. Við hjónin með samtals 12 fiska, alla væna og Mosó gengið með álíka.

    Að lokum langar mig að minnast lauslega á lata veiðimenn sem borið hefur niður við Ölvesvatn ekki alls fyrir löngu. Það mega nú vera meiru dauðyflin sem ekki kveikja á þeim sóðaskap og ósóma sem felst í því að skilja hausa og beinagarða eftir rétt utan íverustaða við vatnið bara vegna þess að þeir hafa ekki rænu á að stinga upp torfu til að urða úrgang. Ég hef í gegnum tíðina gætt orðfæris á þessu bloggi mínu og hvatt menn auðmjúklega til virðingar við náttúru okkar fallega lands, en nú brestur mig einfaldlega kurteis orð til að lýsa þessum aumingjum sem breiða út orma og sóðaskap í nafni veiðimanna. Hafið skömm fyrir umgengnina.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     97 14 50 4 29 11

    Ummæli

    31.07.2012 – Sigurgeir Sigurpálsson: Sæll, Stórskemmtileg síða hjá þér. Ég fór líka á Skagaheiði fyrr í sumar og þar var ég í öðrum bústaðnum og fólk í hinum. Ég sá enga aðra á svæðinu en einn morguninn komum við niður að vatninu og þar hafði hitt fólkið fleygt hræjum af flottum fiskum í vatnið. Það hafði bara flakað þá og fleygt þeim út í vatnið eins og þeir muni bara hverfa á örskotsstundu. Hrikalega leiðinlegt að koma að vatninu svoleiðis.

    
    

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 41 42 43 44 45 … 56
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar