Því miður hefur hefðin fyrir ferðum vestur í Hnappadal heldur látið undan síga síðustu ár. Sú var tíðin að farið var 3-4 á sumri í Hlíðarvatnið og veitt heil ósköp. Nokkur ár höfum við bræðurnir og spúsur okkar fylgst með og orðið vitni að gríðarlegum sveiflum í vatnshæð í Hnappadalnum og ég er ekki frá því að við séum að sjá afleiðingar verstu áranna núna. Mér finnst satt best að segja vanta 3ja og 4ra ára fisk í vatnið, þá er ég að tala um urriða. Það sem hópurinn veiddi núna um helgina var mest 2ja ára fiskur og svo mögulega einhverjir 5 ára sem náðust með löngum köstum út í vatnið (flot og maðkur).
Vatnsstaðan er mjög góð í vatninu, með því hæsta sem við höfum séð, en eitthvað hefur skordýralífið látið undan síga. Við skv. venju, veiddum fyrir landi Heggsstaða og gerðum alveg þokkalega veiði, 12 + 4 sleppt á flugu og félagar okkar vel á þriðja tug á flot og maðk á rúmum sólarhring. Við sáum til einhverra veiðimanna í Hallkellsstaðarhlíð á föstudagskvöldið en lítið sást til þeirra á laugardaginn, nema rétt fyrir hádegið. Einhverra varð ég var við á föstudagskvöldið inni við hraunið fyrir landi Hraunholts (Stangaveiðifélag Borgarness) en ég hef heyrt að stofninn þeim megin í vatninu sé í þokkalegu standi og mætti stunda það svæði meira.
Gleðifréttirnar eru að bleikjan í vatninu virðist vera að rífa sig upp úr leiðindum sem hafa hrjáð hana síðustu ár, ekki stór en í góðum holdum og falleg á að líta. Vonandi nær urriðinn sér á strik og étur á sig eitthvað hold það sem eftir lifir sumars. Annars fannst mér lítið um að vera í flæðarmálinu, ekkert síli og minna um flugupúpur heldur en oft áður.
Bleikjur úr Hlíðarvatni í Hnappadal
Fyrir þá sem hyggjast renna í Hlíðarvatnið fyrir landi Heggsstaða, gætið ykkar á slóðanum niður að síðsta ræsinu áður en komið er að vatninu. Það er illa skorið eftir rigningar síðustu vikna og eins gott að vera á 4×4.
Mér varð á orði í fyrrakvöld að mér liði eins og krakka fyrir framan nammirekkann í stórmarkaði með skotleyfi á allt sem mig langaði í. Að velja eitthvað eitt uppáhalds er næstum dónalegt gagnvart öllu hinu namminu, en einhvers staðar verður maður að byrja. Þegar það kemur að nammi þá vel ég oft frekar litlu, bragðsterku stykkin, frekar en þau stóru einsleitu. Því er svolítið eins farið með mig í veiðinni og því vel ég Hellavatn. Ég var svolítið efins að upplýsa valið, hélt jafnvel að ástæðan væri sú að þar fékk ég minn fyrsta Veiðivatna urriða en það er ekki ástæðan. Hellavatn er einfaldlega bragðbesta nammið í rekkanum sem heitir Veiðivötn. Já, einmitt, karlinn komst tvo daga í Veiðivötn nú fyrir helgi ásamt frúnni og frábærum hópi veiðifélaga ofan af Skaga.
Veiðivötn – Litli Sjór
Fyrir ferðina var auðvitað hnýtt og hnýtt eftir bestu vitund um heppilegar flugur og svo var skroppið í heimsókn til Joakim‘s og fjárfest í hægsökkvandi línu á sjöu konunnar. Sjálfur þóttist ég vera þokkalega settur en út fór ég nú samt með stöng og hraðsökkvandi Veiðivatna-línu að láni til prufu. Eftir nokkur köst með stönginni var engin vafi lengur í mínum huga; arftaki MMX er fundinn.
Vopnabúrið klárt
Eftir tilhlökkunarþrungna bílferðina upp í Veiðivötn var farið tiltölulega snemma í rúmið, fimmtudagurinn skyldi tekin snemma. Hópurinn ofan af Skaga hafði verið garnrakinn um bestu staðina og við hjónin ákváðum að byrja í Litla Sjó og láta síðan slag standa um framhaldið. Til að gera langa sögu stutta þá bar í raun ekkert til tíðinda hjá okkur yfir daginn. Maður ráfaði (ók) á milli staða, smakkaði á völdum vötnum og valdar flugur smökkuðu á óvörðu fési mínu. Gómsætasti bitinn við Litla Fossvatn var greinilega ég, átján mýbit á 5 mín. og ég stefndi hraðbyri í að leika Fílamanninn II.
Þegar kvöldaði ákváðum við hjónin að við fiskleysi yrði ekki búið þannig að við fórum í nokkuð öruggt vatn og settum í nokkrar bleikjur, svona til að geta verið með í fréttum þegar heim í Setrið væri komið. Föstudagurinn skildi tekinn með stæl, byrjað í Hraunvötnum og fikrað sig kerfisbundið til baka.
Litla Fossvatn
Eftir glæsilegt veður fimmtudagsins fengum við sýnishorn af norðan belgingi á föstudagsmorguninn, stillum inn á milli, þoku og þéttari þoku (sem einhverjir kalla rigningu) og svo aftur aðeins meiri belging. Eftir einhverjar tilraunir til fluguveiði í Stóra Hraunvatni gerðum við góða ferð í Hellavatn þar sem fyrsti urriðinn féll hjá undirrituðum. Skemmtilegur fiskur sem gaf ekkert eftir fyrr en í fulla hnefana. Sáttur? Já, miklu meira en það. Skipuleg yfirferð okkar hjóna um svæðið varð verulega fyrir áhrifum veðurs og að endingu gáfumst við upp fyrir vindáttinni og snérum leitinni upp í að finna skjól á bleikjuslóðum. Merkilegt þegar fiskarnir taka upp á því að vilja bara flugu konunnar, en ekki mína, en svona eru sumar ferðirnar.
Veiðivötn
Niðurstaða tveggja daga í Veiðivötnum: frábær ferð, mjög skemmtilegur félagsskapur sem var ósínkur á ráð og leiðbeiningar, dásamlegt umhverfi og endalausir möguleikar til veiði. Það er ekki spurning um ef, heldur þegar ég fer næst, að ég ætla að einbeita mér að Stóra Fossvatni, Snjóölduvatni og Skálavatni, ásamt nýja uppáhalds molanum mínum, Hellavatni.
Takk fyrir okkur, Skagamenn. Frábærir dagar og við eigum örugglega eftir að hittast einhvern tímann aftur í Veiðivötnum.
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
11 / 3
13 / 11
0 / 1
5 / 12
14 / 19
Ummæli
06.07.2014 – Siggi Kr. (Taumur): Hellavatn er ótrúlega fallegt og skemmtilegt vatn eins og Hraunvötnin eru reyndar flest. En hvert fóruð þið til að ná í bleikjur. Hef heyrt að Langavatn hafi verið að gefa þokkalegar bleikjur í sumar og Kvíslarvatn líka. Er að fara sjálfur eftir viku eftir að hafa tekið eitt sumar “off” í fyrra og spennan er hrikaleg.
Svar: Já, ég kolféll alveg fyrir Hellavatni. Kannski ekki alveg að marka fyrstu sýn á vötnin því mér skilst á kunnugum að heldur sé lágt í vötnunum núna. Við (aðallega frúin) mokaði bleikjunni upp í Langavatni (Langavatnskrika) og svo aðeins í Nýjavatni. Raunar smellti hún einnig í bleikjur í Snjóölduvatni (Hellisnef sunnanvert til austurs), þannig að það er víða hægt að krækja í bleikjuna. Mér skildist á staðarhöldurum að bleikjan sem kemur á land núna sé öllu vænni heldur en verið hefur. Hvað sem mönnum finnst um bleikjuna á þessu svæði, er ágætt til þess að vita að hún eigi sér afdrep á hálendinu, því víða er hún jú að hopa á láglendi.
Það er ekki lóan sem segir mér að sumarið sé komið, það eru föstudagsferðirnar út á land með skuldlausan halann í eftirdragi. Veðurspáin; Snæfellsnes lofaði góðu. Humm…. annað hvort hefur veðurspá laugardagsins misritast eða mislesist. Hvað um það, við hjónin drifum okkur af stað eftir vinnu á föstudaginn og tókum stefnuna á Hraunsfjörð því stórstraumur var víst í kortunum og þá á fjörðurinn að fyllast af sjóreið. Eitthvað er nú lítið eftir af sjóreið í hafinu ef þetta er að fyllast. Heldur þótti viðmælendum mínum á staðnum þetta dapurt. Flestir fengu lítið, sumir eitthvað en mjög margir ekki neitt.
Af okkur hjónum er það að frétta að við lögðum leið okkar í víkina inn af Búðanesi á laugard.morgun. Ekki leið á löngu þar til ég setti í eina ljónsterka 43 sm. sjóbleikju á Peacock með orange skotti. Sú gerði sko ekki kröfu til tökuvara, meira að segja dauður maður hefði ekki misst af þeirri töku. Skemmtileg viðureign þar sem hún reif ítrekað út af hjólinu hjá mér, en náðist að lokum að landi. Ekki leið á löngu þar til önnur bleikja tók sömu flugu, en þeirri sleppti ég vegna smæðar. Frúin setti í eina í smærri kantinum, en matfisk þó, á eins Peacock. Litlum sögum fer af framhaldi í veiði okkar hjónar, þ.e. aflabrögðum, en ýmislegt var reynt í staðsetningu og flugum allt fram yfir miðnættið, en án árangurs.
Formlega var þetta fyrsta ferð mín í Hlíðarvatn í Selvogi, sem Ármaður. Við hjónin eru lukkunnar pamfílar, svo ekki verður nú meira sagt. Við eigum frábæra veiðifélaga, bæði tvö og svo eigum við hreint út sagt frábæra sameiginlega vini og kunningja. Einn þeirra, Stefán Hjaltested bauð í Hlíðarvatnið í gær / dag og auðvitað þáðum við boðið og vorum mætt á þennan dásamlega stað rétt um kvöldmatarleitið í gær. Þokkalegasta veður, léttur austanstæður andvari a’la Hlíðarvatn með örlítilli vætu og hitinn vel yfir 10°C.
Við vorum svo sem ekkert að þeytast út, né suður, heldur fórum beinustu leið í Botnavík. Ég held það hafi verið strax í öðru eða þriðja kasti hjá frúnni að harkalega var tekið í fluguna, en svo ekki söguna meir. Ég aftur á móti prófaði ýmsar þekktar og viðurkenndar flugur áður en Higa’s SOS fór undir og fljótlega rann þessi líka fína 38 sm. bleikja á færið og skömmu síðar önnur 48 sm. á sömu flugu. Góð byrjun og maður smaug þreyttur, en ánægður í bólið laust eftir miðnættið.
Eftir að ég hafði rifað annað augað á ská út yfir vatnið í morgun, ákvað ég einfaldlega að snúa mér á hina hliðina og kúra af mér rigninguna sem grúfði yfir. Eftir að meistari Stefán hafði rifið okkur fram úr og við stungið úr nokkrum kaffibollum og kjaftar hvert annað í kaf, hafði Hlíðarvatnið náð að rífa af sér dumbunginn svo okkur var ekki lengur til setunnar boðið. Botnavík, Fóellutjörn og Skollapollar, allt var þetta prófað án þess að fiskur kæmi á land. Trúlega var ég næstur því að ná fiski, setti tvisvar í mjög þokkalegar bleikjur út frá Skollapollum en náði ekki að koma þeim í netið. Báðar tóku Peacock svo naumt að ekki varð haldið.
Það var svo ekki fyrr en undir hættumál að frúin setti í þessa líka fínu 44 sm. bleikju á Mölinni, rétt áður en flóðgáttir himinns opnuðustu svo um munaði. Ánægjulegur endir á skemmtilegri og afslappandi ferð. Takk fyrir okkur, Stefán, Ármenn og Hlíðarvatn.
Afrakstur kvöldvaktarinnar
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
1 / 2
1 / 6
0 / 0
5 / 11
12 / 17
Ummæli
26.06.2014 – Þórunn Björk: Mér finnst þessar lokatölur samt eitthvað svoooo furðulegar! Getur verið að það sé rangt talið- er hægt að fara fram á endurtalningu? …er ég bara komin með ….xyz og %&/ fiska? dem!
Svar: Ég vísa öllum dylgjum um misferli í talningu á bug, og nei….. hér verður ekki talið aftur þótt einhver sé óánægður með útkomuna, ekki frekar en í kosningum til Alþingis eða sveitastjórna. Ég er með 100% nýtingu veiðiferða, 17 fiskar í jafn mörgum ferðum, þú ert einfaldlega með 1/2 fisk í ferð. Masa minna, veiða meira. P.S. takk fyrir daginn við Hlíðarvatn, veiðifélagi góður.
Undantekningin sannar regluna; Sjaldan er ein bleikjan stök. Við hjónin stukkum á glufuna sem myndaðist í yfirvinnunni hjá mér, settum kvöldmat snemma á borð, gúffuðum í okkur og stungum af á Þingvöll. Þokkalegt veður, SSV átt 4-5 m/sek., þoka en hlýtt. Af gefinni reynslu var ákveðið að byrja í Nesi þar sem frúin fékk murtu-nart, ég ekkert.
Færðum okkur eftir nokkra stund yfir í Vatnskotið vestanvert og komum okkur fyrir úti í Vatnsvíkurhólmanum þar sem mér tókst að krækja í eina bleikju í matfiskstærð og eina murtu. Annað varð svo sem ekki til frásagnar um þessa ferð okkar. Engin mynd, nema sú sem Þingvellir stimpluðu inn í huga minn þetta kvöld, rólegheit.
Hvar eiga veiðimenn að vera annars staðar en á Þingvöllum á þessum degi? Ég reif mig upp kl.6 í morgun, hitaði vatn á brúsa og skundaði á Þingvöll, eins og sagði í ljóðinu forðum. Dásamleg þoka grúfði yfir völlunum og vatninu, hlýtt og stillt veður, ekki hægt að biðja um það betra.
Þingvellir kl.07:00 17.júní 2014
Um síðustu helgi fórum við hjónin á Þingvöll og áttum skemmtilega stund með fullt af murtum og 2-3 undirmálsbleikjum sem ekki verða færðar til bókar sökum smæðar. Í þeirri ferð brugðum við út af vananum og fórum í Tóftirnar austanverðar, svæði sem lofar góðu. Ég hugsaði mér því gott til glóðarinnar í morgun og byrjaði í Tóftum, en fljótlega fékk ég það á tilfinninguna að trúlega yrði meira um menn en afla á þeim slóðum, svo ég færði mig út á Nes með stefnuna á Nautatanga.
Eftir að hafa hrist nokkrar murtur af brá svo við að tekið var í Peacock’inn af fullri alvöru. Jamm, ekki bar að öðru en stærri bleikja væri þar á ferð. Eftir nokkuð snarpa viðureign lá þessi líka feita og pattaralega hryggna á bakkanum, 1 – 1,5 pund. Skömmu síðar var aftur tekið í Peacock og nú af enn meiri alvöru. Viðureignin var að sama skapi lengri og endaði með þessari líka fínu bleikju á bakkanum.
Þjóðhátíðarbleikja – 2,5 pund
Eftir smá bið, með tilheyrandi árangurslausum tilraunum með aðrar flugur, setti ég Peacock aftur undir og auðvitað kom enn ein bleikjan á hjá mér í svipaðri stærð og sú fyrsta. Flottur morgun á Þingvöllum í kyrrð og ró, fjarri glys og látum Borgarinnar. Ég hef sjaldan átt ánægjulegri Þjóðhátíðardag, til hamingju með daginn.
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
0 / 3
0 / 3
0 / 0
5 / 11
10 / 15
Ummæli
17.06.2014 – Þorkell:Fagnaði þjóðhátíðardeginum með nákvæmlega sama hætti og þú. Reis úr rekkju klukkan sex, skundaði á Þingvöll og treysti vort heit. Landaði þremur bleikjum á Pheasant tail og Peacock og veðrið maður. Til hamingju með daginn sömuleiðis.
Svar: Já, segðu. Frábært verður eins og sjá má á myndunum af þinni frásögn, sjá hér.