Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Þurr of lengi

    14. maí 2019
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Mikið óskaplega varð ég ánægður í vetur sem leið þegar ég renndi yfir daglega leslistann minn í tölvunni og rakst á þessa fyrirsögn. Ég er þannig gerður að fyrirsagnir greina verða að kveikja í mér þannig að ég nenni að lesa þær. Þessi gerði það umsvifalaust; Dry to long. Við nánari skoðun kom í ljós að þarna var um safn af áliti veiðimanna að ræða á því hve lengi þurrflugan ætti að sitja óáreitt á vatninu áður en veiðimaðurinn færði hana úr stað, kannski lítið en þó eitthvað.

    Nú kann ég ekki lengur að nefna öll nöfn þeirra sem gáfu álit sitt í þessari grein, man þó eftir að þarna voru nöfn aðila sem unnið hafa hinar ýmsu keppnir fluguveiðimanna í hinu og þessu landinu, jafnvel heimsálfum. Þar sem ég hef sjálfur átt við langvarandi fóbíu fyrir þurrfluguglápi að glíma um árabil, þá þótti mér þetta hin skemmtilegasta lesning. Niðurstaðan var einfaldlega sú að mikill meirihluti viðmælenda taldi að 10 – 15 sek. væri hæfilegur tími til að leyfa þurrflugunni að sitja óáreitt á yfirborðinu þar til rétt væri að færa hana úr stað.

    Nokkrar sem staldra stutt við

    Þetta hljómaði eins og lúðraþytur himneskra fluguveiðiengla í mín eyru. Ég er með einhvern galla sem heitir víst rörsýn (e: tunnelvision) sem verður til þess að ég hætti að sjá nokkurn skapaðan hlut ef ég einblíni of lengi á eitthvað ákveðið. Þannig líður mér í það minnsta þegar ég hef náð að leggja þurrfluguna skammlaust  út og tek til við að stara á hana í eftirvæntingarfullri tilhlökkun þess að bregðast við. Eftir smá stund, trúlega umræddar 10 sek. hverfur allt nærumhverfi flugunnar fyrir augum mér og að öðrum 5 sek. liðnum, þá hverfur flugan sjálf. Þá er ég ekki að tala um að hún sökkvi, eins og oft vill verða, hún einfaldlega hverfur. Þetta er mín afsökun fyrir því að hreyfa þurrfluguna í tíma og ótíma og nú hef ég óbeint samþykki erlendra fluguveiðisnillinga fyrir því að taka fluguna upp eftir 10 – 15 sek., bera hana aftur á borð og vona að hún lendi skammlaust á vatninu í það skiptið og veki einhverja eftirtekt.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Í föstum skorðum

    20. mars 2019
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Það er spennuþrungið augnablik þegar tekið er í fluguna, adrenalínið flæðir og maður bregst við, stundum of seint, stundum mátulega og stundum að óþörfu. Já, það er hægt að bregðast við að óþörfu, til dæmis þegar maður hefur bara verið að krukka í stein eða annan ófögnuð sem leynist í vatninu.  En hvað gerir maður þegar flugan er föst? Er föst fluga sama sem töpuð eða má gera eitthvað til að losa hana?

    Ég hef ágæta skemmtun af því að hnýta mínar flugur sjálfur og því horfi ég ekki endilega fram á stórfellt tap þótt ég slíti, ekki nema þá að svo ólíklega vilji til að um síðustu fluguna í boxinu sé að ræða. Ég leyfi mér því að vega það og meta hvort ég bregðist við á einhvern annan hátt heldur en mögulega að slíta með því að taka á línunni. Það hefur alveg komið fyrir að ég geri ekkert annað heldur taka þéttingsfast í línu og slíta, það er þá helst undir þeim kringumstæðum að ég veit af eða sé fisk snudda í grennd við fluguna eða á milli mín og hennar sem ég vil ekki styggja.

    Allt fast eða er hann á?

    Það fer að vísu töluvert eftir línunni sem maður notar hvort maður geti skotið flugunni til baka, úr föstum skorðum eða af steini. Ef línan er með þokkalega góðri teygju, þá má beina stangartoppinum beint að staðnum þar sem línan sker vatnið, taka vel á og sleppa skyndilega. Ef vel tekst til, þá skýst flugan til baka og losnar.

    Að vaða eftir flugu er yfirleitt alltaf möguleiki en getur styggt fisk sé hann í grennd. Raunar þarf hann ekkert að vera mjög nálægt því bæði bylgjur í vatni og urg í grjóti undan vöðluskóm berast langt í kyrrstæðu vatni og fiskurinn er yfirleitt ekki lengi að bregðast við þessu með því að láta sig hverfa. Að vaða eftir flugu hefur lítið að segja nema þú komist með stangartoppinn beint yfir en helst fram yfir fluguna og náir að smokra henni úr festunni. Umfram allt, ekki byrja á því að veifa stönginni upp og niður, út og suður því þá máttu alveg eins eiga von á því að brjóta hana í látunum. Raunar eru það fæturnir sem duga oft best til að losa fluguna ef þér tekst að láta utanverðan sólann renna eftir tauminum, alveg niður að flugu. Það eiginlega bregst ekki að flugan losnar.

    Mín uppáhalds aðferð við að losa flugu er eftir sem áður að beita kasti, helst veltikasti beint yfir festuna þannig að flugan kippist til baka og losnar. Ef flugan losnar ekki í fyrstu atrennu, þá má alltaf leyfa línunni að liggja fyrir utan festu og einfallega draga hana inn. Stundum dugar dragið af línunni til að losa fluguna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Rísandi flugur

    30. janúar 2019
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Þetta er ekki sú fyrirsögn sem ég hefði viljað setja á þessa grein, en því miður var alveg sama hvað ég velti mér upp úr merkingu enska orðsins emerging, þá fann ég ekkert skárra en þetta. Ég hef verið að veltast með þetta í kollinum í einhver ár eða alveg síðan ég varð vitni að urmul flugna sem risu upp af botni Vatnsviks við Þingvallavatn hér um árið og bleikjan fór gjörsamlega hamförum og veltist í ætinu.

    Þegar svo ber undir að fluga klekst út og rís upp að yfirborðinu, þá er oft ekki minni hamagangur rétt undir yfirborðinu heldur en á ofan þess. Það er ekki auðvelt að lýsa þessum þungu undiröldum sem myndast í vatninu, fiskurinn kemur jafnvel aldrei upp í yfirborðið, heldur veltist um í vatninu á þetta 15 – 50 sm. dýpi og úðar í sig nýklöktum flugum sem rísa upp að yfirborðinu.

    Stundum er mjög erfitt að greina að það sé veisla í gangi undir yfirborðinu og oftar en ekki sér maður krökkt af flugu á yfirborðinu en engar uppitökur. Undir niðri ólgar samt allt og kraumar og einstaka sinnum sér maður kúf myndast á yfirborðinu, stöku ugga uppúr en aldrei beinlínis einhverja töku. Það voru einmitt tveir svona kúfar sem mynduðust á vatninu sem vöktu athygli mína, þeir komu fram á nákvæmalega sama stað, með nákvæmlega sama hætti og þá var ekki um að villast, það var klak í gangi og bleikjunni þótti fyrirhöfnin ekki svara kostnaði að eltast við þær flugur sem náðu yfirborðinu.

    Ég hafði verið með votflugu á flotlínu þegar þetta var og datt þá í hug að setja þyngda flugu undir, ekki hefðbundna Þingvallafluguþyngd, heldur venjulegt Héraeyra. Fyrst það var eitthvað í gangi þarna, var alveg eins gott að taka þátt í veislunni en ég viðurkenni það fúslega að mér varð nú hugsað til þeirra hundruða af flugum sem ég sá á vatninu, margfaldaði með óræðri tölu og hugsaði þá sem svo að ein fluga frá mér væri þá ekki til mikils líkleg innan um allt það sem væntanlega var á ferðinni í vatninu.

    Lengi vel gerðist ekkert, ég dró hægt inn, miðlungs, með hléum og með rykkjum, ekkert gerðist. Þá var það að ég fór að hugsa, flugurnar voru jú að rísa og hví ekki að reisa stöngina lítið eitt í stað þess að draga inn. Það var eins og við manninn mælt, flugan var negld og væn bleikja var óhress á hinum endanum að vera trufluð svona illa á matmálstímanum. Ég þóttist nú vera nokkuð góður með mig þegar mér tókst síðar að taka aðra með þessari aðferð, því samkeppnin við náttúrulegu fæðuna var hreint út sagt gríðarleg.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Risvandamál

    21. janúar 2019
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Þegar maður er á veiðislóð og lítið er að gerast, gónir maður á hitt og þetta og þá ekki síst á þann veiðimann sem stendur manni næst, sérstaklega ef hann er í fiski. Þannig var það þegar ég varð vitni að risvandamáli veiðimanns. Sjálfur hafði ég ekkert orðið var við fisk þegar ég sá skyndilega út undan mér að þessi veiðimaður brást við, reisti stöngina snarlega og það var greinilega fiskur á, gott hjá honum hugsaði ég með mér, en skipti síðan um skoðun.

    Það sem stakk mig í augun var það sem fylgi á eftir viðbragðinu. Þessi annars ágæti veiðimaður hætti bara ekki að reisa stöngina eftir að hafa tryggt fluguna í bleikjunni og reist stöngina upp í 45° frá mitti. Hann bara hélt áfram og lyfti báðum höndum upp, upp og ég hélt svei mér þá að hann ætlaði aldrei að hætta. Þegar armlengdin var fullnýtt var hjólið komið vel yfir hausamótin á honum og stóð stöngin beinstíf upp í loftið. Fram úr topplykkjunni lafði flugulínan og veiðimaðurinn hamaðist við að taka slakann af línunni. Það var nokkuð greinilegt að þetta Viagra-ris stangarinnar hafði dregið bleikjugreyið alveg upp á yfirborðið og hún bara flaut sem lömuð að fótum hans og slaki myndaðist á línunni.

    Þegar við reisum stöng við töku, þá ætti 45° ris auk þéttingstaki í línuna að vera nægjanlegt til að tryggja fluguna. Fiskar eru næstum óútreiknanlegir og því er ágætt að eiga eitthvað upp á að hlaupa ef hann tekur upp á því að synda á móti okkur eða taka stökkið út til hliðar. Ef við látum 45° nægja í fyrstu atrennu þá eigum við nokkra tugi gráða uppá að hlaupa og það sem meira er, það er auðveldara að færa stöngina til sitt hvorrar hliðar ef bregðast þarf sérstaklega við stökki fisksins út og suður.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Við rekkana

    7. janúar 2019
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Í hreinskilni sagt þá fer ég stundum í veiðivöruverslanir til að kaupa ekki neitt. Stundum slæðist reyndar eitthvað með mér út úr búðinni, en oftar en ekki þá er ég bara að forvitnast og hitta mennina. Afsakið að ég segi mennina, en ég hitti því miður mjög fáar konur í þessum verslunum, hverju sem það nú sætir.

    Trúlega eru tveir staðir í hverri verslun einna skemmtilegastir; stangarekkinn og flugubarinn. Þarna safnast menn saman, skoða og spekúlera, láta sig dreyma og stundum halda menn höndunum fast niðri í vösunum, bara svona til vonar og vara þannig að þeir óvart fari ekki út með eitthvað sem þeir ætluðu ekki að kaupa.

    Græjugaurinn hittir maður í veiðivöruverslunum, rétt eins og á veiðistöðum. Hann spáir helst í allt sem er nýtt og oftar en ekki lætur hann blekkjast af því sem er stærst og mest. Þetta er gaurinn sem kaupir tvíhenduna sem fékk verðlaunin í vor sem leið sem besta, öflugasta og hraðasta stöngin, en hefur síðan ekki efni á að kaupa veiðileyfi í ám sem krefjast þannig græju, en hann á stöngina. Þennan er eiginlega hægt að plata til að kaupa hvað sem er, svo lengi sem það er hlaðið lofi.

    Læðupúkinn er sá sem læðist aftan að manni og hálf hvíslar að manni gáfulegu kommenti um stöngina sem maður er að skoða eða fluguna sem maður virðir fyrir sér. Hann virkar alveg eins og starfsmaður verslunarinnar, svo mjög að lítt kunnugir viðskiptavinir snúa sér gjarnan að honum og spyrja hvor þetta eða hitt sé ekki til. Það dásamlega er að læðupúkinn lætur það alveg vera að benda á starfsfólkið, leiðbeinir viðskiptavinum og gefur þeim góð ráð sem starfsmennirnir eiga síðan stundum erfitt með að uppfylla. Hann er svolítið eins og ólaunaðar starfsmaður á plani og er skilgetið afkvæmi heimilislegs andrúmslofts veiðiverslana.

    Svo er það sá sem er persónulega kunnugur öllum betri veiðimönnum landsins og þótt víðar væri leitað. Hann hefur eftir ummæli þeirra frægu eins og hann hafi verið viðstaddur tímamóta veiðiferð aldarinnar og fer með heilu fyrirlestrana eins og hann hafi sjálfur skrifað þá. En þegar kemur að því að hann er spurður hvernig græjan eða flugan hafi reynst þá kemur eitthvað eins og; Tja, ég hef nú aldrei prófað hana, en ég þekki Sr. Jón Jónsson sem hefur veitt mikið á hana.

    Gullmolar veiðiverslananna eru aftur á móti þeir sem segja afskaplega fátt að fyrra bragði, standa hjá og vega og meta það sem fyrir augu ber. Varfærnislega handleika þessi menn það sem er á boðstólum, spyrja afgreiðslumanninn stöku spurningar og gaumgæfa svarið. Mér hefur fundist þessi lýsing vera sammerk með þeim veiðimönnum sem af guðs náð hafa aflað sér reynslu, þekkingar og færni í stangveiði. Þeir berast lítt á en eru hafsjór upplýsingar og góðra ráða, ef manni tekst að ná þeim á spjall.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Að pirra lesendur

    26. nóvember 2018
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Þegar maður er svo flæktur í veiðidelluna að fyrsti viðkomustaður á netinu á hverjum degi er fréttaveita veiðivefjanna, þá er manni víst ekki viðbjargandi. Og það eru alls konar fréttir og leiðbeiningar sem maður fær með morgunkaffinu. Hvernig best sé að gera þetta og hvernig best sé að gera hitt og allt það sem maður er trúlega að gera vitlaust.

    Ég játa það fúslega að sumt af því sem ég les fer oggolítið í taugarnar á mér, þá helst það sem ég veit að ég er að gera vitlaust í veiðinni. Þessi endalausu 10 bestu ráðin og 10 algengustu mistökin sem eru ekki að segja manni neitt annað en það sem maður veit, en vill helst gleyma. Mín helstu rök fyrir því að halda áfram að gera vitleysurnar mínar eru einfaldlega þau að mér líður bara ágætlega í minni eigin vitleysu. Ég er sem sagt að þverskallast við að ráða bót á nokkrum atriðum í veiðinni, helst í kastinu mínu.

    Um daginn rak ég augun í grein sem vísvitandi var skrifuð með mig í huga og hún pirraði mig, Sjö ráð til að ná fluguveiðinni þinni upp. Einmitt, eins og mér veitti nú af fleiri ráðum, en af því þetta voru bara sjö ráð, ekki 10, þá lét ég mig hafa það að renna yfir hana.

    Gott kast er allt í úlnliðnum. Já, hugsaði ég með mér og botnaði fyrirsögnina; ekki brjóta úlnliðinn í kastinu.

    Haltu einbeitingunni á nákvæmni, ekki lengd. Einmitt, en það er bara stundum svo skemmtilegt að ná löngu kasti. Ég veit, ég veit, að það er fiskur líka innan við 40 fetin.

    Notaðu réttu fluguna, rétt. Já, ég veit, ekki veiða á púpu þegar fiskurinn er í síli, ekki nota Black Ghost þegar fiskurinn er í mýlirfu.

    Kunna að taka á fiskinum. Veiddu, taktu á og haltu strengdu þar til fiskurinn er kominn í netið.

    Negldu tímann. Slepptu því að veiða þegar fiskurinn er upptekinn í einhverju öðru en að éta eða þegar hann étur hreint ekki neitt.

    Haltu dagbók. Já, til þess er ég nú að safna þessum veiðiferðum mínum á vefnum.

    Kannaðu ókunnar slóðir. Einmitt það sem ég er alltaf að segja, prófaðu eitthvað nýtt og færðu þig á milli staða, þá reynir á að kunna á eitthvað, ekki veiða upp á vanann.

    Þetta var annars alveg dásamleg grein og ég las hana reyndar frá orði til orðs, einföld og gagnorð og ég var í raun ekkert pirraður, alveg satt. Trúlega ekki nándar nærri eins pirraður og þú, lesandi góður ert núna af því að lesa þessa grein.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 9 10 11 12 13 … 40
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 177 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar