FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Vorveiði

    24. mars 2011
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Þegar ísa leysir þá fara að skapast fyrstu skilyrðin fyrir umbreytingu skordýra í vötnum. En það getur liðið langur tími þar til hitastig vatnsins rís að einhverju marki. Lífríkið fer hægt af stað, gyðlur og púpur fara yfirleitt á stjá, rólega þó, u.þ.b. viku áður en þær klekjast að því gefnu að vatnið hafi náð ákveðnum þroska, hitastigi.

    Buzzer Silver Orange

    Á meðan ég var að velta þessu fyrir mér um daginn, spurði ég unglinginn á heimilinu hvað hann teldi að fiskurinn æti á þessum árstíma, rétt áður og um það bil sem ísa leysir. Eitthvað hefur matseðill vikunnar verið rýr á heimilinu því það stóð ekki á svarinu; „Afganga“. Ekki þótti honum líklegt að mikið ferskmeti væri á boðstólum og því líklegast að afgangar væru á borðum. Kannski var hann ekki svo langt frá því sanna, en það er ekki þar með sagt að við getum ekki engt fyrir fiskinn með einhverju spennandi.

    Blóðormur

    Blóðormur eða brúnar pöddur hafa oft gefið vel strax og ísa leysir, löngu áður en hitastig vatnsins nær því að kveikja á klaki. Þetta helgast auðvitað af því að viðlíka líf er að finna í vatninu allan ársins hring, jafnvel um miðjan vetur og því ekkert fráleitt að bjóða silungnum upp á slíkt, afganga. Fyrstu staðirnir þar sem fiskjar verður vart er oft á tíðum grynningarnar þar sem vorsólin nær að hita vatnið og laða til sín langsoltinn silunginn upp úr djúpinu þar sem hann hefur haft hægt um sig yfir veturinn. Þrátt fyrir að tökur að vori geta verið líflegar, þá fer fiskurinn sér engu að síður hægt, vill ekki brenna of mikilli orku í að kanna vorið.

    Bitch Creek Nymph

    Stórar púpur eins og t.d. Bitch Creek Nymph, Red Tag og Héraeyrað. Litlar, dökkar og rennilegar eins og t.d. Toppflugan og Pheasant Tail, renglulegir Peacock eða þá Blóðormur og brúnir Buzzerar niður á botninn.

    Straumflugur sem hafa orð á sér að gera það gott að vori eru t.d. orange, svartir og hvítir Nobblerar, Gulur Köttur og auðvitað Black Ghost. Veiða þær djúpt, láta þær „sleikja botninn“ eins og einhver orðaði það.

    Red Tag

    Flestar veiðiaðferðir að vori eiga það sameiginlegt að vera rólegar, jafnvel „rólegri“. Dautt rek undan léttri golu með þungum púpum eða lúshægur inndráttur straumflugu er það sem silungurinn kannast við. Sum vötn, eins og Þingvallavatn virðast kalla á stórar og bústnar púpur (nr.8) sem komið er vel niður í dýpið fyrir kuðungableikjuna.

     

    Black Ghost

    Önnur vötn fóstra ekkert annað en lítil og nett afbrigði mýpúpunnar, eins og Vífilsstaðarvatn. Engilbert Jensen beitti skemmtilegri aðferð rétt um það bil er ísa leysti á Vífó. Hann kastaði litlum flugum upp á ísskörina og dró þær síðan framaf þar sem silungurinn beið þeirra og líkti þannig eftir því þegar frosnar mýlirfur losna úr ísnum. Meðalfellsvatnið hefur gefið mönnum vel á þyngdar púpur síðla vetrar, mars – apríl, en um leið og hornsílin fara á kreik hafa litlir klassíkerar eins og Black Ghost og Nobbler gefið ágætlega á grynningunum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlutföll votflugu

    10. mars 2011
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Hlutföll í klassískri, vængjaðri votflugu verður nánast ekki lýst með öðru en að birta mynd af einni slíkri. Hvort sem þær heita Dunkeld, Blae and Black, Butcher eða Peter Ross, þá eru þær upphaflega allar í sömu hlutföllum og eins byggðar. Eitthvað sem hefur alltaf virkað og engin ástæða til að breyta. Þetta er einmitt það sem gerir þær að klassískum flugum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlutföll flóar / rækju

    9. mars 2011
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Rækjur og vatnaflær fylgja stíft hlutföllunum 2/3 + 1/3. Þeir sem eru að huga að veiðum á sjógöngufiski ættu að huga að kvikindum sem þessum, nýgenginn fiskur er vanur fæðu sem þessari og lætur oft glepjast þótt genginn sé upp í ár. Ágætt að vera með nokkrar svona til mótvægis við Hvítan Nobbler eða Sílið.

    E.S. Geir Birgir Guðmundsson benti mér á að álíka flugu hefði hann notað töluvert á Þingvöllum, sjá nánar á gbg.is Takk fyrir innleggið Geir.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlutföll buzzer’s

    8. mars 2011
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Þegar kemur að hlutföllum í buzzer þá erum við að tala um 50/50 á milli fram- og afturbols, hausinn nánast enginn og ekkert skott. Eftir að hafa prófað nokkrar svartar mjónur síðasta haust sem gáfu vel gaf ég buzzerum aðeins meiri gaum heldur en áður, þeir eru tilbúnir í boxinu fyrir komandi vertíð.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlutföll púpu

    6. mars 2011
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Fullkomin púpa lítur ákveðnum lögmálum. Hlutföllin eru nokkuð ákveðin frá náttúrunnar hendi. Takist okkur í besta falli að apa eftir náttúrunni þá erum við í góðum málum eins og Frank Sawyer með Pheasant Tail. Hlutföllin eru nánast 2/3 búkur, 1/3 thorax, hausinn nettur og skottið jafn langt búkinum. Ef við bregðum langt frá þessu, þá er nánast öruggt að við endum með óraunverulega púpu í höndunum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Púpur í silunginn

    4. mars 2011
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Prince Nymph, Héraeyra, Zug Bug, Copper John, Pheasant Tail

    Púpur eru væntanlega besta agn sem veiðimaður getur notað þegar fiskurinn er ekki að leita fæðu við yfirborðið. Bestu púpurnar eru einfaldar og líkja eftir fæðu silungsins hverju sinni, hér er engin sýndarmennska í gangi.

    Margir telja The Prince Nymph einhverja bestu púpu sem fram hefur komið í silunginn. Nú geta lesendur verið alveg rólegir, ég á eftir að nefna uppáhaldið mitt, Pheasant Tail. Prince á að líkja eftir gyðlu dægurflugunnar og tekst það alveg ágætlega. Eins má nota Prinsinn þar sem steinflugan gerir vart við sig snemma vors. Kúluhaus á Prinsinn kemur sér vel þar sem veitt er í straum eða á miklu dýpi. Uppskriftina má sjá hér.

    Héraeyrað er ótvírætt ein af klassísku silungapúpunum. Líkir eftir púpu vorflugunnar og má einnig nota þar sem dægurflugur göslast í vatninu eða krabbadýr eru á ferðinni. Úfið yfirborð Héraeyrans gerir hana einhvern veginn eðlilega í útliti og sumir vilja meina að því úfnari, því betri. Þessi fluga er hnýtt á langan öngul, alveg frá 8 og niður í 22. Uppskriftina má nálgast hér.

    Zug Bug er enn ein klassísk silungapúpa, ekki ólík Prince, enda á hún að einnig að líkja eftir dægurflugunni. Líkt og með Prince er hún tilvalin í dautt rek eða með kúluhaus á meira dýpi. Auðvitað fylgir svo uppskriftin hérna.

    Copper John, sem heitir í höfuðið á höfundi sínum, John Barr verður einnig að teljast til klassískra silungapúpa. Þyngd hennar gerir það að verkum að hana er tilvalið að nota þar sem gyðlur dægurflugunnar liggja við botninn eða sem afleggjara aftan við stóra þurrflugu. Því minni, því betri. Sumir segja að hún virki best á öngli 14 eða 16. Skemmtileg fluga að hnýta eins og sjá má hérna.

    Engin fluga hefur komist í hálfkvisti við uppáhaldið mitt; Pheasant Tail. Hún er fyrst allra þyngdra flugna og best þeirra allra í einfaldleik sínum. Hún líkir nánast fullkomlega eftir grönnum gyðlum dægurflugunnar sem eru ein vinsælasta fæða silungsins. Þessa flugu má einfaldlega aldrei vanta í boxið hjá neinum veiðimanni og allir verða að prófa að hnýta nokkur eintök. Kíktu á uppskriftina hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 136 137 138 139 140 … 154
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar