Að velja flugu, leggja hana fram og koma henni langt út eru allt gild atriði sem við viljum hafa í huga þegar við veiðum. Eitt atriði til viðbótar sem vill þó oft gleymast er; koma flugunni á réttan stað. Það geta verið margar ástæður fyrir því að við viljum koma flugunni okkar á einhvern ákveðinn stað. Kannski leynist fiskurinn við stein, kannski liggur hann þétt við gróðurfláka eða undir bakkanum þannig að við verðum að gæta vel að framsetningunni svo við eigum ekki á hættu að tapa flugunni, styggja fiskinn og þá missa af honum. Þá getur ruslakarfan komið að góðum notum. Prófaðu að fara út á grasflötina með ruslafötuna eða nýttu ferðina þegar þú ferð út með ruslið og gríptu stöngina með þér. Að stilla fötunni upp, merkja sér 4, 6, 8 & 10 metra fjarlægð frá henni, taka nokkur lauflétt köst þangað til að þú nærð því að láta fluguna detta niður í fötuna geta sparað þér mikið angur í veiðinni og gert hana enn meira spennandi en ella. Mundu bara að ofgera ekki æfingunum, oftar og stutt í einu er betra en lengi og sjaldan.
-
Fluguna í ruslið
Höfundur:
-
Göslarinn veiðir líka
Göslarinn veiðir líka þegar hann veður út frá bakkanum, hræðir fiskana á undan sér, hendir beitunni út og göslast aftur upp á bakkann, setur stöngina í letingjann og bíður, en…… svæðið sem fiskurinn heldur sig á meðan kyrrð og ró hvílir yfir vatninu er mjög lítið m.v. það svæði sem hann kýs sér sem öruggt skjól verði hann fyrir áreiti. Það er í eðli silungsins að leita út frá bakkanum, út í dýpið ef hann styggist. Hann víkur sér ekki til hliðar, færir sig um nokkra metra og leggst þar fyrir, hann leitar út í öryggið og þar með stækkar svæðið verulega sem hann getur leynst í og veiðimaðurinn þarf að auglýsa agnið sitt á. Nákvæmlega sömu reglur eiga við fluguveiði, við getum þurft að halda kyrru fyrir í töluverðan tíma þar til fiskurinn kemur aftur inn á yfirráðasvæði okkar ef við förum ekki varlega.Höfundur:
-
Hafðu augun hjá þér
Að vera vel glerjaður er eitt af lykilatriðum veiðinnar. Góð polaroid gleraugu eru ekki aðeins til varnar afvegaleiddum veiðiflugum, heldur og gefa okkur möguleika á að sjá niður í vatnið. Þeir sem nota styrkt gleraugu geta keypt polaroid clips á venjuleg gleraugu eða veiðigleraugu með styrk. En það er ekki allt fengið með gleraugunum. Ef við látum það eftir okkur að hætta að skima eftir fiskinum sjálfum þá eru nokkrar líkur á því að við komum enn frekar auga á hann. Hljómar svolítið öfugsnúið en við eigum trúlega mun auðveldara með að koma auga á skugga fisksins heldur en hann sjálfan. Skyggnumst niður í vatnið og svo aðeins neðar, leitaðu á botninum að skugga sem hreyfist, eða ekki. Ef fiskurinn tekur snöggan kipp þá fer það ekkert framhjá þér, glampi, skuggi á botninum og þú nærð miði á hann.Höfundur:
-
Peacock og bræður hans
Þegar kemur að eftirlíkingum vorflugulirfunnar (Caddis) eru fáar sem standast Peacock Kolbeins Grímssonar snúninginn. Ég ætla ekkert að fara út í fæðingarsögu Peacock, það hefur verið gert oft og víða. Þess í stað langar mig aðeins að skoða fyrirmyndina, vorflugulirfuna og mismunandi birtingarmyndir hennar.

Caddis on the rock a`la Hlíðarvatn Af Peacock Kolbeins hafa með tíð og tíma orðið til ótal afbrigði, öll með það að markmiði að líkja eftir lirfunni á mismunandi vaxtaskeiði. Þannig er að lirfan skiptir mjög um lit eftir vaxtaskeiði og efnisvali í hús sitt. Efnisvalið er jafn fjölbreytt og vötnin eru mörg, helst notar lirfan þó smásteina og jurtaleyfar sem finnast á botninum en einstaka sinnum tekur hún þó til handargagns kuðunga og skeljar í næsta nágrenni.

Jurtaleyfar Það hafa fleiri góðir hnýtarar spreytt sig á Caddis eftirlíkingum. Í þeirri ágætu bók, Silungaflugur í íslenski náttúru má finna frábærar eftirlíkingar Engilberts Jensens (Fellspúpan, Cased Caddis), Sigurbrands Dagbjartssonar (Vorflugulirfa) og Sveins Þórs Arnarssonar (Vorflugulirfan).
Og hver segir að Héraeyrað eða Pheasant Tail með kúluhaus séu ekki líkar vorflugupúpu ef því er að skipta?

Skeljar Hvort sem menn hnýta ígildi lirfunnar sjálfrar, þ.e. appelsínugula/rauða rönd á hann eða ekki, þá virðist galdurinn oft vera sá að eiga nokkur afbrigði. Sjálfur hef ég veitt á afbrigði sem skorti alla litadýrð, enginn kragi, ekkert skott, aðeins hvítur broddur. Hvítur broddur?
Jú, á ákveðnu vaxtarstigi er lirfan í húsinu hvít, ekki rauð eða appelsínugul og það veit silungurinn mun betur en við.

Móberg Við getum aðeins leikið okkur að litasamsetningum með því að byggja undir búkinn með litaðri ull og spara þá fjölda Peacock fjaðranna m.v. original Peacock. Litur undirlagsins kemur þá aðeins í gegnum fjaðrirnar og breytir hinum klassíska græn-brúna lit Peacock í léttari eða skærari litatón.
Ef við svo veljum upp úr fluguboxinu okkar m.v. sandinn á botnum, smásteinana eða jurtaleifarnar, þá erum við e.t.v. nokkru nær því að plata silunginn.

Líparít Þó Peacock sé hér heima þekktasta eftirlíking vorflugupúpunnar, þá hafa menn úti í hinum stóra heimi auðvitað líka hermt eftir henni. Afbrigðin og efnisvalið er svo fjölbreytt að stofna mætti sérstakt blogg um samsetningarnar einar og sér. En allar eiga þær þó sömu fyrirmyndina, eftirhermur mismunandi byggingarefnis og þess hvort lirfan sé að kíkja út úr húsinu eða ekki.
Og ekki gleyma því að vorflugan verpir ekki aðeins í stöðuvötnum heldur einnig ám og lækjum; Peacock veiðir alls staðar.
Höfundur:
-
Fæðuvandamál

John Hurt sem Fílamaðurinn Mýflugan er undirstöðufæða silungsins. Ég virðist vera ein af undirstöðufæðu mýflugunnar eða þannig leið mér í það minnsta eftir ferð upp að Úlfljótsvatni um daginn. Hefði endurgerð Fílamannsins verið á döfinni hefði ég örugglega komið sterklega til greina sem staðgengill John Hurt í aðalhlutverkið, slíkar voru bólgurnar sem tóku sig upp hjá mér eftir ferðina. Í gegnum tíðina hafa ýmiss húsráð orðið til gegn og fyrir meðhöndlun flugnabits. Hér eru nokkur dæmi:
- B-vítamín: Ráðlagður dagskammtur skv. framleiðanda af B1 og/eða B6 er sagður draga fram ákveðinn ilm á hörundi sem á að fæla mýið frá.
- Mentol: Margir mæla með kremi eða áburði sem inniheldur hátt hlutfall af mentol eða eucalyptus til þess að fæla flugur frá. Að sögn þarf ekki að bera á alla óvarða húð, vel dugar að setja eina og eina doppu hér og þar. Þekkt vörumerki; Tiger Balm, Vick‘s VapoRup, Deep Heat.
- Betametason: Er virkt efni í fjölda krema og smyrsla sem ávísað er gegn bólgu- og ofnæmissjúkdómum, flest lyfseðilskyld á Íslandi en ferðamenn þekkja e.t.v. Calestoderm-V sem hægt er að kaup án lyfseðils erlendis. Krem sem innihalda betametasón eru sögð prýðis fróun eftir skordýrabit.
- Sítrus ávextir: Sumir drekka mikið af fersku límónu- eða sítrónuvatni fyrir veiðiferðir og fullyrða að það dragi verulega úr ásókn flugu. Aðrir beinlínis rjóða andlit og hendur með límónu og segja það dugi mun betur.
- Sítrónugras: Ekki bara krydd, heldur líka áburður eða kalt seiði til að bera á sig og/eða úða á föt og annan búnað til varnar flugu.
- Myrta (Brúðarlauf / Bog Myrtle): Notað sem virkt efni í náttúrukremum sem menn rjóða á hendur og andlit til að stugga við mýflugum. Skotar hafa notað krem og olíur úr þessari jurt í margar aldir til þessara nota.
- Tea Tree olía: Ilmkjarnaolía sem dregur úr ertingu eftir skordýrabit. Fyrirbyggjandi virkni ekki þekkt.
- Neem olía: Krem og smyrsl sem innihalda þessa olíu eru talin halda skordýrum frá mönnum. Um er að ræða nokkrar vörur sem fundist gætu í verslunum hér á landi.
- Hvítlaukur: Nokkuð stíf inntaka hvítlaukstaflna (1200 mg/dag) eða át hvítlauks fyrir veiðiferðir er talið draga verulega úr ásókn mýflugu. Svo er bara spurning hvort veiðifélagar fælist ekki líka.





Hvort eitthvað af þessu virkar er svo allt önnur saga, kannski eru þetta bara allt kerlingarbækur eins og ráð við kvefi. Öll notkun krema og olíu ætti samt að vera í hóf stillt, ekki viljum við smita lykt á veiðibúnað þannig að fiskurinn fælist. Eitt ráð að lokum; ekki nota ilmvatn eða rakspíra þegar þið haldið til veiða. Ólíkt fiskinum þá fælast flugur ekki slíka lykt, heldur þvert á móti.
Höfundur:
-
Stærðin skiptir máli
Oftar en ekki heyrir maður áróður þess efnis að veiðimenn eigi að minnka flugurnar, við séum að egna fyrir silunginn með allt of stórum flugum. Auðvitað er töluvert til í þessu og sjálfur hef ég tekið undir þetta og sagt að við verðum að vera tilbúnir til að breyta út af vananum, vera sveigjanlegir. En við getum líka undirskotið stærðina á flugunum.

Vorflugulirfur og legglangur Peacock #8 Ég rakst á þessar vorflugulirfur um daginn, veiddi þær upp úr og bar nákvæmlega saman við púpuboxið mitt. Og viti menn, hefbundinn #10 var allt of stuttur, beinlínis rýr og ræfilslegur í samanburði við undrasmíð náttúrunnar. Loksins fann ég Peacock sem ég hafði hnýtt á legglangan #8 sem bar næstum við rétta lengd, en var langt því frá nógu bústinn.

Bústinn Peacock Þegar heim var komið, hnýtti ég bústinn skratta á legglangan #8 með góðu undirlagi úr brúnni ull, þakti hann með 5 strimlum af peacock og styrkti með koparvír. Pínulítill rauður broddur, brúnn haus og Frankenstein var fullskapaður. Þetta var beinlínis tröll í púpuboxinu, en í vatn skyldi hann sem hann og gerði. Fyrir þessu trölli lágu fjórar fallegar bleikjur sem stóðust ekki þetta hlaðborð. Við litlum #10 og #12 leit ekki nokkur fiskur, einmitt þeim sem ég hefði trúlega byrjað á að prófa og minnkað síðan niður í #14 eða jafnvel #16 og svo afgreitt málið með fussi og fúlheitum; „Hér er ekki nokkur fiskur„.
Auðvitað skiptir stærðin máli, en ekki endilega á þann veg sem við höfum verið að temja okkur. Gefum lífinu gaum, metum okkur við það sem er til staðar í vatninu og fiskurinn er að snuddast í, þá og fyrst þá verðum við samkeppnishæfir við náttúruna.
Höfundur:

