Ég fékk rétt í þessu smá fréttatilkynningu frá Stjána Ben. sem ég er bara ekki alveg að fatta; „… á morgun byrjum við að selja ósóttar pantanir í Veiðivon, Mörkinni 6.“ Eru virkilega til einhverjir áhugamenn um stangveiði sem ekki eru búnir að kaupa + sækja miðana sína á RISE?
Norðlendingar geta enn tryggt sér miða á svak.is og í Veiðivörum.is í Amarohúsinu. Svo ætlar Stjáni sjálfur að vera á Sportvitanum frá kl.14 á sunnudaginn.


Fleiri bæjarfélög mættu taka Skagaströnd sér til fyrirmyndar og þá er ég ekki bara að tala um Kántríbæ. Nú hefur verið gefin út bæklingur um Veiði á Skagaheiði.
