Ég hef ekkert verið neitt rosalega duglegur að senda frá mér efni síðustu vikurnar, mikið að gera og spennandi hlutir á döfinni. Samt hef ég nú gefið mér tíma til að svipast um í ýmsum verslunum og þá helst í hnýtingarhornum þeirra, þ.e. að segja þar sem það finnst. Í stuttu máli; þetta er hálfgerð eyðimörk, í besta falli götótt. Úrvalið er afskaplega lítið og fátt um svör þegar spurt er hvenær menn hafi hugsað sér að taka inn nýjar vörur, nema á einum stað; Veiðiflugur.is Hann Hilmar sagði mér skemmtilegar fréttir um daginn, von er á ‘alvöru’ búð eftir áramótin með stór-auknu úrvali og hnýtingarvörum. Auðvitað rúmar skúrinn á Kambsveginum ekki meira úrval þannig að ný staðsetning er á döfinni. Miðað við lýsingarnar á því sem hann ætlar að bjóða í nýju búðinni verður þetta algjört sælgætisland fyrir flugufíklana. Ég bíð spenntur…
-
Betri tíð með ….
Höfundur:
-
Vikuskammtur af afsökunum
Fyrir viku smellti ég hér inn vikuskammti af ráðum til að brjóta stöngina sína. Nú er komið að því að gefa skammt af afsökunum sem hægt er að nota til að komast í veiði:1. Viðskiptatengsl
„Það er svo ótrúlega hvetjandi fyrir viðskiptinn að bjóða þeim í veiði“. Bankarnir og stórfyrirtæki hafa notað þessa afsökun með nokkuð góðum árangri síðustu árin. Ef þú ert ekki í bisness, snúðu henni þá bara við; „Þeir vildu endilega bjóða mér.“
2. Fjölskyldutengsl
„Sjáðu til, ég er kominn á þann aldur að ég finn hjá mér þörf til að styrkja tengslin við; krakkana, pabba, tengdapabba, stóra bróður“ Mundu bara að skipta reglulega um aðila þannig að þetta veki ekki óþarfa grunsemdir.
3. Gvuð, ég þarf svo að komast burt
„Vinnan er alveg búinn að fara með mig þessar síðustu vikur, ég þarf bara að komast aðeins frá.“ Gættu þess aðeins að nota ekki þessa afsökun þegar þú ert í miðju sumarfríi, bættu þá Garð fremst í setninguna.
4. Þú mátt alveg koma með……
„Eigum við ekki bara að fara saman, tvö ein?“ Hjá mörgum virkar þetta, semsagt öfugt. Henni dettur ekki í hug að fara með þér. Hjá mér virkar þetta ekki, besti veiðifélagi minn er konan mín.
5. Njóttu tímans…
„Elskan mín, ímyndaðu þér hvað það getur orðið rólegt og notalegt hjá þér svona ein heima (með krakkana)“.
6. Einstakt tækifæri
„Strákarnir vildu ólmir bjóða mér, tækifæri sem býðst örugglega ekki aftur“. Borgaðu bara þinn hluta í kostnaðinum með öðru korti en hún fær yfirlit yfir.
7. Mér finnst þetta bara svo gaman
„Heyrðu, mig langar svoooo að fara að veiða um helgina. Mér finnst þetta bara svo gaman“. Þetta er væntanlega besta afsökunina og sú hreinskilnasta. Láttu reyna á hana, það kemur þér örugglega á óvart hversu vel verður tekið í hana.
Höfundur:
-
Á allra færi
Nú fara línur að skýrast fyrir jólagjafalistann hjá veiðimönnum. The Source Ísland og nú bók Gunnars Bender, Auðar Ottesen og Páls Jökuls, Á allra færi. Eins og kynning ritsins segir, þá fjallar hún um mismunandi veiðiaðferðir, klæðnað veiðimanna, fjölskylduvæn veiðivötn og ár, flugur og hnýtingar þeirra o.s.frv.Auðvitað blundar sú von í brjósti vatnaveiðimannsins að hér sé að ferðinni rit sem gerir vötnum og vatnaveiði aðeins betri skil en almennt hefur verið í veiðitengdri útgáfu og efni síðustu ár. Raunar hef ég aðeins rekist á eina góða bók um vatnaveiði á Íslandi, Vatnaveiði handbókin eftir Guðmund Guðjónsson frá 1989. Kannski væri ráð að endurskoða þá bók og gefa út aftur.
Höfundur:
-
Vikuskammtur af ráðum
Það eru til ráð og leiðbeiningar fyrir öllu. Hér á eftir fara 7 örugg ráð til að brjóta veiðistöngina sína með einum eða öðrum hætti.1. Skelltu bílhurðinni á hana
Það eru engin ný sannindi að bílar og veiðistangir eiga ekkert rosalega vel saman. Ef þú vilt vera nokkuð viss um að brjóta stöngina þína, leggðu hana frá þér í opna gátt á bíl, helst í roki eða sterkri gjólu. Ef þú ert ekki alveg eins öruggur um að vilja brjóta hana, lokaðu fram hurðunum og notaðu kverkina á milli spegils og hurðar í staðinn. Mundu bara hvar stöngin er þegar þú svo opnar hurðina.
2. Leggðu stöngina frá þér á jörðina
Stangir sem liggja flatar á jörð eru upplagðar til að stíga á og brjóta. Best er að hafa eitthvað hnökrótt undir, s.s. steina, möl eða stórgrýti.
3. Láttu stangarendann vísa fram á göngu
Ótrúlega einfalt ráð til að brjóta stangarendann. Notaðu tækifærið þegar þú ert að færa þig á milli veiðistaða og gerðu þitt ýtrasta til að halda stönginni í lágréttri stöðu, með stangarendann fram. Dreifðu svo athyglinni út um víðan völl, þá getur þú verið nokkuð öruggur um að þú hrasir og stingir endanum niður, krass.
4. Notaðu stöngina til að losa festur
Kastaðu naumt, helst í mikinn gróðurfláka eða gamla girðingu sem liggur hálf í kafi. Þegar þú ert svo búinn að festa vel og tryggilega, notaðu stöngina til að reyna að losa. Fyrst létt, síðar ákveðið og að lokum með miklu offorsi. Þú getur verið nokkuð viss um að eitthvað gefi eftir og ef þú ert heppinn þá er það stöngin, ekki hnúturinn. Ekki láta þér til hugar koma að taka í línuna/girnið til að reyna að losa, þá missir þú af upplögðu tækifæri til stangarbrots.
5. Ekki setja stöngina nógu vel saman
Ef þú setur stöngina þína saman með hálfum huga og aðeins að hálfu leiti þá átt þú ágætis möguleika á að brjóta hana með góðu kasti. Láttu helst skrölta aðeins í samsetningunni, þá hefst þetta miklu fyrr. Gott ráð er að að hunsa samsetningarnar algjörlega allan daginn, láttu eins og þær séu ekki til.
6. Notaðu MJÖG þungar flugur
Notaðu mjög þungar flugur fyrir léttu stöngina þína og kastaðu eins og þú byrjaðir að kasta. Leyfðu hvorki fram- né afturkasti að klárast, kastaðu með þröngum boga þannig að þú getir verið viss um að flugan sláist í stöngina og merji hana á viðkvæmum stað.
7. Ekki ganga frá henni, heldur á henni
Ekki vanda til geymslu að hausti. Ágætur staður er með garðverkfærunum og snjóskóflunni í skúrnum og blessaður/blessuð ekki vera að hafa fyrir því að taka hana sundur. Röð tilviljana klárar svo málið fyrir þig og stöngina.
Höfundur:
-
Veiðikortið 2011 – viðbætur
Á næsta ári bætast ný svæði við á Veiðikortið. Kærkomin viðbót fyrir okkur vatnaveiðifíklana. Fyrst skal telja nýjan skika í Þingvallavatni á milli Ölfusvatnsár og Villingavatnsár og svo Hraunsfjörðinn fyrir landi Berserkseyrar, sjóveiði. Að vísu telja þeir félagar einnig upp Geitabergs- og Eyrarvatn í Svínadal en þau komu í raun inn á kortið síðasta sumar. Nánar má lesa um þessa á heimasíðu Veiðikortsins.Höfundur:
-
Útgáfa The Source – Ísland
Tilkynning frá Stjána Ben.: Nú styttist í útgáfu mynddisks um fluguveiðar á Íslandi en myndin mun koma út um miðjan nóvember. Diskurinn ber heitið The Source – Ísland og er þriðja myndin í The Source seríunni sem framleiddar eru af Gin-Clear Media, framleiðslufyrirtæki staðsettu á Nýja Sjálandi. Áður hefur fyrirtækið gefið út myndir um Tasmaníu og Nýja Sjáland en leikstjóri myndanna og eigandi fyrirtækisins, Nick Reygaert, hefur getið sér gott orð í heimi veiðikvikmynda-gerðar. Hann vann við tökur á myndum á borð við Trout Bum Diaries – Patagonia og Kiwi Camo ásamt því að vera aðal myndatökumaður myndarinnar The Search – Tahiti. The Source – Ísland segir frá ferðalagi kvikmynda-gerðarmanna um fluguveiðilendur Íslands og sýnir landið með augum gestsins. Íslenskir veiðimenn slást í för með erlendum og færa þá í sannleikann um draumaland fluguveiðimanna – Ísland. Öllum sportfiskum landsins eru gerð góð skil. Kastað er á nýgengna laxa í kristaltærum ám, eyðifjörður kannaður í leit af sprækum og spriklandi sjóbleikjum og lindár Suðurlands þræddar með það í huga að freista risastórra urriða og sjóbirtinga. Myndin hefur verið textuð með íslenskum texta ásamt því að bæði viðmót og kápa hafa verið færð yfir á íslensku en hægt er að velja um íslenskt eða enskt viðmót. Í tilefni útgáfu myndarinnar nú um miðjan nóvember verður boðið upp á sérstakan tilboðspakka með öllum þremur myndunum úr The Source seríunni. Pakkinn inniheldur því The Source – Ísland, The Source – Tasmanía og The Source – Nýja Sjáland en þær tvær síðastnefndu eru ekki með íslenskum texta. The Source – Ísland verður dreift í búðir um miðjan nóvember en tilboðspakkann verður einungis hægt að kaupa af dreifingaraðila myndarinnar á Íslandi – I.A.T. slf.
Heimasíða I.A.T. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu I.A.T. hjá Stjána Ben. í síma 867-5200 eða með tölvupósti.
Höfundur:

