Það getur verið verulega ergjandi þegar maður er búinn að fylgja öllum leiðbeiningum (læðast að vatninu, skoða lífríkið, fylgjast með atferli og velja flugu af kostgæfni) þegar maður sér fluguna beinlínis stífna upp eða druslast í inndrættinum. Engin eðlileg hreyfing og því ekkert aðdráttarafl. Eftir nokkur svona tilfelli þá kviknaði loksins á perunni hjá mér, taumurinn. Er ég örugglega með réttan taum og taumaenda? Taumurinn hefur ekki aðeins áhrif á það hvernig flugan leggst í kastinu, heldur og einnig hvernig hún hagar sér í inndrætti. Þegar ég fór að styðjast við eftirfarandi þumalputtareglu þá fóru flugurnar að haga sér mun betur:
- Deildu í flugustærðina með fjórum og veldu taum og taumenda m.v. útkomuna. Dæmi: Taumur fyrir flugu á öngli nr. 12 ætti að vera 12 / 4 = 3x. Ef þú ert ekki viss um stærð flugunnar, taktu gott gisk og lækkaðu taumstærðina um 1x.






Frá því bloggið fór af stað í byrjun júní hafa ríflega 6200 heimsóknir slæðst inn á það, töluvert fleiri en ég átti von á. Auðvitað voru fyrstu vikurnar rólegar, innan við 100 heimsóknir á viku en svo hefur verið ákveðinn og öruggur stígandi heimsókna, flestar 466 í 50. viku þegar Orðalistinn fór í loftið.