Almennt er auðveldara að koma auga á fisk úr hæð heldur en við vatnsborðið. Reyndu að koma því þannig fyrir að þú getir skimað vatnið eilítið ofan frá, en mundu; Þú ert sjálfur sýnilegri hátt uppi heldur en krjúpandi við vatnsbakkann. Farðu varlega, vertu á móti sól til að varpa ekki skugga á vatnið og sparaðu snöggu hreyfingarnar.
-
Hátt uppi, eða ….
Höfundur:
-
Að koma auga á hann með gleraugum

Þegar þú ert búinn að vera lengi með veiðigleraugun á þér (Poloroid) er ágæt regla að taka þau af sér í smá tíma og skima um vatnið. Þegar þú setur gleraugun á þig aftur virðast þau virka betur. Það er þannig að augun í okkur venjast skautuðu gleri með tímanum og við hættum að sjá eins skýrt niður í vatnið og áður, að skipta um birtustig hjálpar til við að ‘núllstilla’ augun.
Höfundur:
-
Miðfjarðará – 2009

PDF skjal 1.8 MB Ég hef áður vakið athygli á frábærri klippu Fly Max Films úr Miðfjarðará árið 2009 (sjá hér). Nú er þátturinn í heild sinni (ásamt 4 öðrum þáttum Fly Max TV) komin út á DVD undir heitinu The Silver Collection og hægt að kaupa hann hér.
Í lok síðasta árs birti The Canadian Fly Fisher ágæta grein um þessa ferð, en því miður er það tímarit í dvala núna eftir eigendaskipti. Greinina er þó hægt að nálgast með því að smella á myndina hér til hliðar, því ég var svo forsjáll að taka hana niður sem PDF á meðan tímaritið dreifði henni á netinu. Endilega gefið þessu gaum, skemmtilegar tökur og frábær ummæli um Ísland.
Höfundur:
-
Kastklukka?

Smellið fyrir stærri mynd Hvað er maðurinn alltaf að tala um ‘klukku’ þegar hann er að lýsa köstum? Er hann virkilega svona tímabundinn?
Ekki nema von að einhver spyrji, en þegar vísað er í klukkuna þegar lýst er ferli eða stöðu stangar, þá er um ímyndaða klukku að ræða þar sem veiðimaðurinn stendur inni í henni með fæturnar c.a. kl.6 og andlitið vísar að kl.9 Með þessu er hægt að lýsa ferli stangarinnar alveg frá lægstu stöðu í inndrætti (á milli kl.8 og 9) og aftur til aftara stopps um kl. 1 Með þessa klukku til hliðsjónar getum við sagt að kasttíminn sé á milli kl. 11 og 1. Því styttri kasttíma sem við náum, því minna bil verður á milli neðri- og efri hluta línunnar í kastinu, þ.e. kasthjólið verður minna og línan tekur minni vind á sig, köstin verða fallegri. Og, nei, þegar ég er að veiða þá er ég aldrei tímabundinn.
Höfundur:
-
Að losa stöng í sundur
Oftar en ekki hefur maður þurft að eyða drjúgum tíma í að losa veiðistöngina í sundur í lok veiðiferðar. Einfallt ráð, sem ég hef ekki hugmynd um hvers vegna virkar, er að taka hana í sundur fyrir aftan bak. Prófaðu bara næst þegar hún lætur eins og skrúfuð saman.Höfundur:
-
Að rétta úr taum
Einþátta krullaðir taumar eru óspennandi. Einfalt ráð til að rétta úr þeim er að taka venjulegt PVC strokuleður, skera grannt V í endan á því og renna tauminum hægt en ákveðið í gegnum það. Hitinn sem myndast við að taumurinn rennur í gegnum strokuleðrið réttir úr honum + þú þrífur af honum öll óhreinindi og svo fer ekkert fyrir storkuleðrinu í veiðivestinu.Höfundur:

