Þar sem maðurinn var að eignast þessa fínu Joakim’s stöng er nokkuð öruggt að maður mæti.
-
Kastæfing á Klambratúninu
JOAKIM´S verður með kastæfingu og stangakynningu á Klambratúninu sunnudaginn 8.maí kl.13:00 í samvinnu við Stefán Hjaltested og fleiri góða veiðimenn. Hægt verður að prófa JOAKIM´S flugustangir af öllum stærðum.Við hvetjum alla sem eiga JOAKIM´S stöng að mæta með hana á svæðið og gera nokkrar léttar kastæfingar með okkur. Gott er að yfirfara búnaðinn sinn í leiðinni og hafa allt klárt fyrir næstu veiðiferð.Höfundur:
-
Undan vindi
Eins og við þekkjum ágætlega hérna á Íslandi, þá getur lognið ferðast misjafnlega hratt yfir. Að veiða á móti vindi er vel þekkt og gjöfult þegar vatnið og vindurinn hafa borið með sér æti upp að bakkanum og þar með fiskinn sem við erum að eltast við. En þegar lognið er orðið ærandi og öll okkar ráð til að koma flugunni út með þokkalega árangursríkum hætti hafa brugðist, þá leggur margur veiðimaðurinn árarnar í bát og tekur fram kaffibrúsann í stað flugunnar. En, það er e.t.v. ekki alltaf ástæða til.
Í smærri vötnum og þar sem vindur hefur umtalsverð áhrif á umhverfingu yfirborðsins á móti þyngra vatni á botninum, þá getur veiði undan vindi verið alveg eins spennandi. Þegar vindurinn hefur náð að mynda hringstreymi á milli yfirborðs og botns, nær dýpri straumurinn að róta upp æti við bakkann hlé megin, ekki ósvipað og gerist á yfirborðinu áveðurs. Botnstraumurinn er að öllu jöfnu þyngri heldur en aldan á yfirborðinu. Hans gætir því ekki eins fljótt og öldunnar, en varir þeim mun lengur eftir að lægir. Þannig er það að bakkinn undan vindi gefur oft ágætlega eftir goluþytinn þar sem gruggið (ætið) er lengur að setjast þeim megin í vatninu og veiði því oft með ágætum á þeim slóðum.Höfundur:
-
Meðalfellsvatn, 1.maí
Loksins kom að því í ‘sumar’, fyrsti fiskurinn og það bara nokkuð vænn urriði úr Meðalfellsvatni, ríflega 1 pund sem auðvitað fékk líf. Við veiðifélagarnir og hjónin smelltum okkur upp á von og óvon í Kjósina eftir hádegið í dag þrátt fyrir frekar kuldalegt veður. Auðvitað snjór yfir öllu og aðeins 1-2°C en algjört logn og í raun einstök blíða. Reyndum ýmsar flugur, púpur og nobblera, en sú sem gaf var auðvitað Vinstri græn – wired.Höfundur:
-
Froðusnakk
Froða á yfirborði vatns, hvort heldur í straumi eða á lygnu getur gefið okkur töluverðar upplýsingar ásamt því að aðstoða okkur við veiðarnar.Þar sem froða flýtur í straumi getum við verið nokkuð viss um að ætið flýtur á svipuðum slóðum. Froða á vatni ber með sér ógrynni lífvera sem silungurinn sækir í og við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara. Oftar en ekki gefa litlar þurrflugur eða léttar púpur sé þeim kastað í eða við froðuna. Það sama á við um froðu sem berst með straumi auk þess sem hún segir okkur til um hvar aðal straumur árinnar/lækjarins liggur og hjálpar okkur þannig að stemma ‚drift‘ flugunnar við hraða straumsins og ná þannig eðlilegum hraða á fluguna.
Höfundur:
-
Hvar er fiskurinn?
Kaldhæðnislega svarið er; Í vatninu. Fiskur finnst að hámarki í um 10% vatnsins. Þessi einfalda staðreynd segir okkur að það sé frekar ólíklegt að við veiðum eitthvað ef við einfaldlega mætum á svæðið, hugsana- og athugunarlaust. Það er svo einfalt að við veiðum ekki fisk þar sem enginn fiskur finnst. Við verðum að snúa á líkurnar og nýta okkur allar vísbendingar um þá staði sem fiskur getur haldið sig á:- Í skjóli við stein
- Í lygnunni hlé megin við nes og tanga
- Í skugganum
- Í jaðri grynninga
- Í súrefnisríku vatni úr lækjum og uppsprettum
- Í skjóli við bakkann
Ef við erum alveg ‘lost’ þá eru þetta nokkrir staðir þar sem byrja má á að leita fyrir sér þegar komið er að vatni.
Höfundur:
-
Vífó, 23.apríl
Það bara hlýtur að vera eitthvað að flugnavalinu hjá mér. Skrapp í Vífó og barði vatnið í ekkert of góðu veðri frá um 10 – 12 í morgun og varð ekki var. Að vísu var vatnið töluvert gruggugt vegna vinds og ekki var nú hitanum fyrir að fara, en næstu menn urðu þó í það minnsta varir við fisk. Og jæja, það gengur bara betur næst.Höfundur:

